1. kafli
Mörður hét maður er kallaður
var gígja. Hann var sonur Sighvats hins rauða. Hann bjó á Velli á Rangárvöllum.
Hann var ríkur höfðingi og málafylgjumaður mikill og svo mikill lögmaður að
engir þóttu löglegir dómar dæmdir nema hann væri við. Hann átti dóttur eina er
Unnur hét. Hún var væn kona og kurteis og vel að sér og þótti sá bestur kostur
á Rangárvöllum.
Nú víkur sögunni vestur til
Breiðafjarðardala. Maður er nefndur
Höskuldur. Hann var Dala-Kollsson. Móðir hans hét Þorgerður og var
dóttir Þorsteins hins rauða, Ólafssonar hins hvíta, Ingjaldssonar, Helgasonar.
Móðir Ingjalds var Þóra, dóttir Sigurðar orms í auga, Ragnarssonar loðbrókar.
Unnur hin djúpúðga var móðir Þorsteins rauðs, dóttir Ketils flatnefs,
Bjarnarsonar bunu. Höskuldur bjó á Höskuldsstöðum í Laxárdal.
Hrútur hét bróðir hans. Hann
bjó á Hrútsstöðum. Hann var sammæður við Höskuld. Faðir hans var Herjólfur.
Hrútur var vænn maður, mikill og sterkur, vígur vel og hógvær í skapi, manna
vitrastur, hagráður við vini sína en tillagagóður hinna stærri mála.
Það var einu hverju sinni að
Höskuldur hafði vinaboð og þar var Hrútur bróðir hans og sat hið næsta honum.
Höskuldur átti sér dóttur er Hallgerður hét. Hún lék sér á gólfi við aðrar
meyjar. Hún var fríð sýnum og mikil vexti og hárið svo fagurt sem silki og svo
mikið að það tók ofan á belti.
Höskuldur kallar á hana:
"Far þú hingað til mín," sagði hann.
Hún gekk þegar til hans. Hann
tók undir hökuna og kyssti hana. Síðan
gekk hún í braut.
Þá ræddi Höskuldur til Hrúts: "Hversu líst
þér á mey þessa, þykir þér eigi fögur vera?"
Hrútur þagði við. Höskuldur talaði til
annað sinn.
Hrútur svaraði þá. "Ærið
fögur er mær sjá og munu margir þess gjalda. En hitt veit eg eigi hvaðan
þjófsaugu eru komin í ættir vorar."
Þá reiddist Höskuldur og var
fátt um með þeim bræðrum nokkura hríð.
Bræður Hallgerðar voru þeir
Þorleikur, faðir Bolla, og Ólafur, faðir Kjartans, og Bárður.
2. kafli
Það var einu hverju sinni að
þeir bræður riðu til alþingis, Höskuldur og Hrútur. Þar var fjölmenni mikið.
Þá ræddi Höskuldur við Hrút:
"Það vildi eg bróðir að þú bættir ráð þitt og bæðir þér konu."
Hrútur svarar: "Lengi
hefir mér það í hug verið og hefir mér þó tvennt um sýnst. En nú vil eg gera að
þínu skapi eða hvar skulum við á leita?"
Höskuldur svaraði: "Hér
eru nú höfðingjar margir á þingi og er gott um að velja en þó hefi eg í einum
stað á stofnað fyrir þína hönd. Kona heitir Unnur og er dóttir Marðar gígju,
hins vitrasta manns, og er hann hér á þingi og svo dóttir hans og mátt þú nú sjá
hana ef þú vilt."
Og annan dag eftir er menn
gengu til lögréttu sáu þeir konur úti hjá Rangæingabúð, vel búnar.
Þá mælti Höskuldur við Hrút:
"Þar er hún nú Unnur er eg sagði þér frá eða hversu líst þér á hana?"
"Vel," sagði hann,
"en eigi veit eg hvort við eigum heill saman."
Síðan ganga þeir til
lögréttu. Mörður gígja mælti lögskil að vanda sínum og gekk heim til búðar
sinnar. Höskuldur stóð upp og Hrútur og gengu til búðar Marðar og inn í búðina.
Mörður sat í innanverðri búðinni. Þeir kvöddu hann. Hann stóð upp í mót þeim og
tók í hönd Höskuldi og settist hann niður hjá honum en Hrútur sat hið næsta
Höskuldi.
Síðan töluðu þeir margt og
komu þar niður ræður Höskulds að "eg mæli til kaupa við þig. Vill Hrútur
gerast mágur þinn og kaupa dóttur þína og skal eg eigi mitt til spara."
Mörður svaraði: "Veit eg
að þú ert höfðingi mikill en bróðir þinn er mér ókunnigur."
Höskuldur mælti: "Framar
er hann en eg."
Mörður mælti: "Mikið
munt þú þurfa fram að leggja með honum því að hún á allan arf eftir mig."
"Eigi þarf og lengi að
bíða hvað eg skal á kveða," sagði Höskuldur, "hann skal hafa Kambsnes
og Hrútsstaði og upp til Þrándargils. Hann á og kaupskip í siglingum."
Hrútur talaði þá til Marðar:
"Hugsa svo um bóndi að bróðir minn mun mér mjög hafa fram haldið fyrir
ástar sakir. En ef þér viljið gera málið að álitum þá vil eg að þér gerið
kostinn."
Mörður svaraði: "Hugsað
hefi eg kostinn. Hún skal hafa sex tigu hundraða og skal aukast þriðjungi í
þínum garði en ef þið eigið erfingja þá skal vera helmingarfélag með ykkur."
Hrútur mælti: "Þenna
kost vil eg og höfum nú votta við."
Síðan stóðu þeir upp og
tókust í hendur og fastnaði Mörður Hrúti dóttur sína Unni og skyldi boð vera
hálfum mánuði eftir mitt sumar að Marðar.
Nú ríða þeir heim af þingi
hvorirtveggju og ríða þeir vestur hjá Hallbjarnarvörðum. Þá reið í mót þeim
Þjóstólfur, son Bjarnar gullbera úr Reykjardal, og sagði þeim skipkomu í Hvítá
og var þar kominn út Össur föðurbróðir Hrúts og vildi að Hrútur kæmi til fundar
við hann sem fyrst. En er Hrútur spurði þetta þá bað hann Höskuld fara til
skips með sér. Höskuldur fór og þeir báðir.
En er þeir komu til skips
fagnar Hrútur Össuri frænda sínum vel og blíðlega. Össur bauð þeim inn í búð að
drekka. Síðan var tekið af hestum þeirra og gengu þeir inn og drukku.
Hrútur mælti til Össurar:
"Nú skalt þú ríða vestur með mér frændi og vera með mér í vetur."
"Eigi hendir svo,"
sagði hann, "því að eg segi þér lát Eyvindar bróður þíns en hann leiddi
þig til arfs á Gulaþingi og munu nú taka óvinir þínir ef þú kemur eigi
til."
"Hvað er nú til ráðs
bróðir?" sagði Hrútur, "þykir mér nú vandast málið er eg hefi áður
ráðið brúðlaup mitt."
Höskuldur mælti: "Þú
skalt ríða suður til fundar við Mörð og bið hann að þið skipið máldaga annan og
sitji dóttir hans þrjá vetur í festum. En eg mun ríða heim og flytja vöru þína
til skips."
Hrútur mælti: "Nú vil eg
að þú takir mjöl og við og slíkt annað sem þér líkar af varningi."
Hrútur lét taka hesta sína og
reið hann suður en Höskuldur reið heim vestur.
Hrútur kom austur á
Rangárvöllu til Marðar og hafði þar góðar viðtökur. Hrútur sagði Merði allt
efni sitt og bað hann ráð á leggja.
Mörður mælti og spurði hversu
mikið fé það væri.
Hrútur sagði vera tvö hundruð
marka ef hann fengi allt.
Mörður mælti: "Mikið er
það í móti erfðinni minni og skalt þú víst fara ef þú vilt."
Síðan breyttu þeir máldaganum
og skyldi Unnur sitja þrjá vetur í festum.
Nú ríður Hrútur til skips og
er við skip um sumarið þar til er búið var. Höskuldur færði fé allt til skips
það sem Hrútur átti. Hrútur fékk Höskuldi í hendur fjárvarðveislu sína vestur
þar meðan hann væri utan. Reið Höskuldur heim til bús síns.
Litlu síðar gaf þeim byr og
sigla þeir í haf. Þeir voru úti þrjár vikur og komu að við Hernar á Hörðalandi
og sigldu síðan austur til Víkur.
3. kafli
Haraldur gráfeldur réð fyrir
Noregi. Hann var sonur Eiríks blóðöxar Haraldssonar hins hárfagra. Gunnhildur
hét móðir hans og var dóttir Össurar tota. Þau höfðu aðsetur austur í
Konungahellu.
Nú spurðist skipkoman austur
þangað til Víkurinnar. Og þegar er þetta fréttir Gunnhildur spurði hún eftir
hvað íslenskra manna væri á skipi. Henni var sagt að Hrútur hét maður og var
bróðursonur Össurar.
Gunnhildur mælti: "Eg
veit gjörla. Hann mun heimta erfð sína en sá maður hefir að varðveita er Sóti
heitir."
Síðan kallar hún á einn
herbergissvein sinn er Ögmundur hét: "Eg vil senda þig norður í Víkina á
fund Össurar og Hrúts og seg að eg býð þeim báðum til mín í vetur og eg vil
vera vinur þeirra. Og ef Hrútur fer mínum ráðum fram þá skal eg sjá um fémál
hans og um það annað er hann tekur að henda. Eg skal og koma honum fram við
konunginn."
Síðan fór Ögmundur og kom á
fund þeirra. En þegar er þeir vissu að hann var sveinn Gunnhildar tóku þeir við
honum sem best. Hann sagði þeim
erindi sín af hljóði.
Síðan töluðu þeir ráðagerðir sínar frændur
leynilega og ræddi Össur við Hrút: "Svo líst mér frændi sem nú munum við
hafa gert ráð okkað því að eg kann skapi Gunnhildar. Jafnskjótt sem við viljum
eigi fara til hennar mun hún reka okkur úr landi en taka fé okkað allt með
ráni. En ef við förum til hennar þá mun hún gera okkur sæmd slíka sem hún hefir
heitið."
Ögmundur fór heim. Og er hann fann
Gunnhildi sagði hann henni erindislok sín og það að þeir mundu koma.
Gunnhildur mælti: "Slíks
var von því að Hrútur er vitur maður og vel að sér. En nú haf þú njósn af nær
er þeir koma til bæjarins og seg mér."
Þeir Hrútur fóru austur til
Konungahellu. En er þeir komu þar gengu í mót þeim frændur og vinir og fögnuðu
þeim vel. Þeir spurðu hvort konungur var í bænum. Þeim var sagt að hann var
þar. Síðan mættu þeir Ögmundi.
Hann sagði þeim kveðju
Gunnhildar og það með að hún mundi eigi bjóða þeim fyrr en þeir hefðu fundið
konung fyrir orðs sakir: "að svo þyki sem eg grípi gulli á við þá. En eg
mun þó til leggja slíkt er mér sýnist og veri Hrútur djarfmæltur við konung og
biðji hann hirðvistar. Eru hér og klæði er drottningin sendir þér og skalt þú í
þeim ganga fyrir konunginn."
Síðan fór Ögmundur aftur.
Annan dag eftir mælti Hrútur
við Össur: "Göngum við nú fyrir konung."
"Það má vel," sagði
Össur.
Þeir gengu tólf saman og voru
þeir allir frændur þeirra og vinir. Þeir komu í höllina er konungur sat yfir
drykkju. Gekk Hrútur fyrstur og kvaddi konunginn. Konungur hugði vandlega að
manninum er vel var búinn og spurði hann að nafni. Hann nefnir sig.
"Ert þú íslenskur
maður?" sagði konungur.
Hann sagði að svo var.
"Hvað hvatti þig hingað
á vorn fund?"
"Að sjá tign yðra herra
og það annað að eg á erfðamál mikið hér í landi og mun eg yðvar verða við að
njóta að eg fái rétt af."
Konungur mælti: "Hverjum
manni hefi eg heitið lögum hér í landi eða hver eru fleiri erindi þín á vorn
fund?"
"Herra," sagði
Hrútur, "eg vil biðja yður hirðvistar og gerast yðvar maður."
Konungur þagnar við.
Gunnhildur mælti: "Svo líst mér sem sjá maður
bjóði yður hina mestu sæmd því að mér líst svo ef slíkir væru margir innan
hirðar sem þá væri vel skipað."
"Er hann vitur
maður?" sagði konungur.
"Bæði er hann vitur og
framgjarn," segir hún.
"Svo þykir mér sem móðir
mín vilji að þú fáir nafnbót slíka sem þú mælir til. En fyrir tignar sakir
vorrar og landssiðar þá kom þú til vor á hálfs mánaðar fresti. Skalt þú þá
gerast hirðmaður minn en móðir mín haldi þér kost þar til og kom síðan á minn
fund."
Gunnhildur mælti við Ögmund:
"Fylg þeim til húsa minna og ger þeim þar góða veislu."
Ögmundur gekk út og þeir með
honum og fylgdi hann þeim í eina steinhöll. Þar var tjaldað hinum fegursta
borða. Þar var og hásæti Gunnhildar.
Þá mælti Ögmundur: "Nú
mun það sannast er eg sagði þér frá Gunnhildi. Hér er hásæti hennar og skalt þú
í setjast og halda mátt þú þessu sæti þó að hún komi sjálf til."
Síðan veitti hann þeim
veislu. Þeir höfðu skamma hríð setið áður þar kom Gunnhildur. Hrútur vildi upp
spretta og fagna henni.
"Sit þú," segir
hún, "og skalt þú jafnan þessu sæti halda þá er þú ert í boði mínu."
Síðan settist hún hjá Hrúti
og drukku þau. Og um kveldið mælti hún: "Þú skalt sofa í lofti hjá mér í
nótt og við tvö saman."
"Þér skuluð ráða,"
sagði hann.
Síðan gengu þau til svefns og
læsti hún þegar loftinu innan og sváfu þau þar um nóttina. Um morguninn eftir fóru þau til drykkju. Og allan
þann hálfan mánuð lágu þau í loftinu tvö ein.
Þá mælti Gunnhildur við þá menn er þar voru:
"Þér skuluð engu fyrir týna nema lífinu ef þér segið nokkurum frá um hagi
vora."
Hrútur gaf henni hundrað álna hafnarvoðar og tólf
vararfeldi. Gunnhildur þakkaði honum gjöfina. Hrútur gekk í braut og
minntist við hana áður og þakkaði henni. Hún bað hann vel fara.
Um daginn eftir gekk Hrútur
fyrir konung við þrjá tigu manna og kvaddi konung.
Konungur mælti: "Nú munt
þú vilja að eg efni við þig Hrútur það sem eg hét þér."
Gerði konungur þá Hrút hirðmann sinn.
Hrútur mælti þá: "Hvar vísið þér mér til
sætis?"
"Móðir mín skal því ráða," sagði
konungur.
Síðan fékk hún honum hinn
sæmilegasta sess og var hann með konungi um veturinn vel metinn.
4. kafli
Um vorið spurði hann til Sóta
að hann var farinn suður til Danmerkur með erfðina. Þá gekk Hrútur á fund Gunnhildar
og segir henni frá ferðum Sóta.
Gunnhildur mælti: "Eg
mun fá þér tvö langskip skipuð mönnum og þar með hinn hraustasta mann, Úlf
óþveginn, gestahöfðingja vorn. En þó gakk þú að finna konung áður þú
farir."
Hrútur gerði svo. Og er hann kom fyrir konung þá
segir hann konungi um ferð Sóta og það með að hann ætlar eftir honum að halda.
Konungur mælti: "Hvern styrk hefir móðir mín
til lagið með þér?"
Hrútur svarar: "Langskip
tvö og fyrir liðinu Úlf óþveginn."
Konungur mælti: "Vel er
þar til fengið. Nú vil eg fá þér önnur tvö langskip og munt þú þó þurfa þessa
liðs alls."
Síðan fylgdi hann Hrúti til
skips og mælti: "Farist þér nú vel."
Síðan sigldi Hrútur liði sínu
suður.
5. kafli
Atli hét maður. Hann var
sonur Arnviðar jarls úr Gautlandi hinu eystra. Hann var hermaður mikill og lá
úti austur í Leginum. Hann hafði átta skip. Faðir hans hafði haldið sköttum
fyrir Hákoni Aðalsteinsfóstra og stukku þeir feðgar til Gautlands úr
Jamtalandi. Atli hélt liðinu úr Leginum út um Stokkssund og svo suður til Danmerkur
og liggur úti í Eyrasundi. Hann var og útlagi bæði Danakonungs og Svíakonungs
af ránum og manndrápum er hann hafði gert í hvorutveggja ríkinu.
Hrútur hélt suður til
Eyrasunds. Og er hann kom í sundið sér hann fjölda skipa í sundinu.
Þá mælti Úlfur: "Hvað
skal nú til ráða taka Íslendingur?"
"Halda fram
ferðinni," Segir Hrútur, "því að ekki dugir ófreistað. Skal skip
okkar Össurar fara fyrst en þú skalt leggja fram sem þér líkar."
"Sjaldan hefi eg haft
aðra að skildi fyrir mér," segir Úlfur.
Leggur hann fram skeiðina
jafnfram skipi Hrúts og halda svo fram í sundið.
Nú sjá þeir er í sundinu eru
að skip fara að þeim og segja Atla til.
Hann svaraði: "Þá gefur
vel til fjár að vinna og reki menn af sér tjöldin og búist við sem hvatlegast á
hverju skipi. Skip mitt skal vera í miðjum flotanum."
Síðan greiddu þeir róðurinn á
skipum Hrúts. Og þegar er hvorir heyrðu mál annarra stóð Atli upp og mælti:
"Þér farið óvarlega. Sáuð þér eigi að herskip voru í sundinu eða hvert er
nafn höfðingja yðvars?"
"Hrútur heiti eg,"
segir hann.
"Hvers maður ert
þú?" segir Atli.
"Hirðmaður Haralds
konungs gráfeldar," segir Hrútur.
Atli mælti: "Lengi höfum
við feðgar eigi kærir verið Noregskonungum yðrum."
"Ykkur ógæfa er
það," segir Hrútur.
"Svo hefir borið saman
fund okkarn," segir Atli, "að þú skalt eigi kunna frá tíðindum að
segja" og þreif upp spjót og skaut á skip Hrúts og hafði sá bana er fyrir
varð.
Síðan tókst orusta með þeim
og sóttist þeim seint skip þeirra Hrúts. Úlfur gekk vel fram og gerði ýmist að
hann skaut eða lagði. Ásólfur hét stafnbúi Atla. Hann hljóp upp á skip Hrúts og
varð fjögurra manna bani áður Hrútur varð var við. Snýr hann þá í mót honum. En
er þeir finnast þá leggur Ásólfur í skjöld Hrúts og í gegnum en Hrútur hjó til
Ásólfs og varð það banahögg.
Þetta sá Úlfur óþveginn og
mælti: "Bæði er nú Hrútur að þú höggur stórt enda átt þú mikið að launa
Gunnhildi."
"Þess varir mig,"
segir Hrútur, "að þú mælir feigum munni."
Nú sér Atli beran vopnastað á
Úlfi og skaut spjóti í gegnum hann. Síðan varð hin strangasta orusta. Atli
hleypur upp á skip að Hrúti og ryðst um fast og nú snýr í mót honum Össur og
lagði til hans og féll sjálfur á bak aftur því að annar maður lagði til hans.
Hrútur sneri nú í mót Atla. Atli hjó þegar í skjöld Hrúts og klauf allan niður.
Þá fékk Atli steinshögg á höndina og féll niður sverðið. Hrútur tók sverðið og
hjó undan Atla fótinn. Síðan veitti hann honum banasár. Þar tóku þeir fé mikið
og höfðu með sér tvö skip, þau er best voru, og dvöldust þar litla hríð síðan.
Þeir Sóti fórust hjá. Sigldi
hann aftur til Noregs. Kom hann við Limgarðssíðu og gekk þar á land. Þar mætti
hann Ögmundi sveini Gunnhildar.
Ögmundur kenndi Sóta þegar og
spyr hann: "Hve lengi ætlar þú hér að vera?"
"Þrjár nætur,"
segir Sóti.
"Hvert ætlar þú
þá?" sagði Ögmundur.
"Vestur til
Englands," segir Sóti, "og koma aldrei til Noregs meðan ríki
Gunnhildar er."
Ögmundur gekk þá í braut og
fer á fund Gunnhildar því að hún var þaðan skammt á veislu og Guðröður sonur
hennar. Ögmundur sagði Gunnhildi frá ætlan Sóta. En hún bað þegar Guðröð son
sinn fara og taka Sóta af lífi.
Guðröður fór þegar og kom á
óvart Sóta og lét leiða hann á land upp og festa þar upp en tók fé allt og
færði móður sinni. Hún fékk til menn að færa allt féið á land upp og austur til
Konungahellu og fór sjálf þangað.
Hrútur hélt aftur um haustið
og hafði fengið fjár mikils og fór þegar á fund konungs og hafði af honum góðar
viðtökur. Hann bauð þeim að hafa slíkt af fénu sem þeir vildu en konungurinn
tók af þriðjunginn. Gunnhildur segir Hrúti að hún hafði tekið erfðina en látið
drepa Sóta. Hann þakkaði henni og gaf henni allt hálft við sig.
6. kafli
Hrútur var með konungi um
veturinn í góðu yfirlæti. En er
voraðist gerðist Hrútur hljóður mjög.
Gunnhildur fann það og talaði til hans er þau voru
tvö saman: "Ert þú hugsjúkur, Hrútur?" sagði hún.
"Það er mælt,"
segir Hrútur, "að illt er þeim er á ólandi er alinn."
"Vilt þú til
Íslands?" segir hún.
"Það vil eg," sagði
hann.
"Átt þú konu nokkura út
þar?" segir hún.
"Eigi er það,"
sagði hann.
"Það hefi eg þó fyrir
satt," segir hún.
Síðan hættu þau talinu.
Hrútur gekk fyrir konung og
kvaddi hann.
Konungur mælti: "Hvað
vilt þú nú Hrútur?"
"Eg vil beiðast herra að
þér gefið mér orlof til Íslands."
"Mun þar þinn sómi meiri
en hér?" segir konungur.
"Eigi mun það
vera," sagði Hrútur, "en það verður hver að vinna er ætlað er."
Gunnhildur mælti: "Við
ramman mun reip að draga og gefið honum gott orlof að hann fari sem honum líkar
best."
Þá var ært illa í landi en þó
fékk konungurinn honum mjöl sem hann vildi hafa.
Nú býst hann út til Íslands
og Össur með honum. Og er þeir voru búnir þá gekk Hrútur að finna konunginn og
Gunnhildi.
Gunnhildur leiddi hann á
eintal og mælti til hans: "Hér er gullhringur er eg vil gefa þér" og
spennti á hönd honum.
"Marga gjöf góða hef eg
af þér þegið," segir Hrútur.
Hún tók höndum um háls honum
og kyssti hann og mælti: "Ef eg á svo mikið vald á þér sem eg ætla þá legg
eg það á við þig að þú megir engri munúð fram koma við þá konu er þú ætlar þér
á Íslandi að eiga en fremja skalt þú mega við aðrar konur vilja þinn. Og hefir
nú hvortgi okkað vel. Þú trúðir mér eigi til málsins."
Hrútur hló að og gekk í
braut.
Síðan fór hann til fundar við
konunginn og þakkaði honum hversu höfðinglega hann hafði alla hluti til hans
gert. Konungurinn bað hann vel fara og kvað Hrút vera hinn röskvasta mann og
vel kunna að vera með tignum mönnum.
Hrútur gekk síðan til skips
og sigldi í haf. Þeim gaf vel byri og tóku Borgarfjörð. En þegar er skip var
landfast reið Hrútur vestur heim en Össur lét ryðja skipið. Hrútur reið á
Höskuldsstaði og tók bróðir hans vel við honum og sagði Hrútur honum allt um
ferðir sínar. Síðan sendi hann mann austur á Rangárvöllu til Marðar gígju að
búast við boði. En þeir bræður riðu síðan til skips og sagði Höskuldur Hrúti
fjárhagi hans og hafði mikið á aflast síðan Hrútur fór í braut.
Hrútur mælti: "Minni mun
umbun verða bróðir en skyldi en fá vil eg þér mjöl svo sem þú þarft í bú þitt í
vetur.
Síðan réðu þeir skipinu til
hlunns og bjuggu um en færðu varning allan vestur í Dala.
Hrútur var heima á
Hrútsstöðum til sex vikna.
Þá buggust þeir bræður og
Össur með þeim að ríða austur til brúðlaups Hrúts og riðu við sex tigu manna.
Þeir riðu þar til er þeir koma austur á Rangárvöllu. Þar var fjöldi
fyrirboðsmanna. Skipuðust menn þar í sæti en konur skipuðu pall og var brúðurin
heldur döpur. Drekka þeir veisluna og fer hún vel fram. Mörður greiddi út
heimanfylgju dóttur sinnar og reið hún vestur með Hrúti. Þau riðu þar til er
þau komu heim. Hrútur fékk henni öll ráð í hendur fyrir innan stokk og líkaði
það öllum vel. En fátt var um með þeim Hrúti um samfarar og fer svo fram allt
til vors.
Og þá er voraði átti Hrútur
för í Vestfjörðu að heimta fyrir varning sinn. En áður hann færi heiman talaði
Unnur við hann: "Hvort ætlar þú aftur að koma áður menn ríða til
þings?"
"Hvað er að því?"
segir Hrútur.
"Eg vil ríða til
þings," segir hún, "og finna föður minn."
"Svo skal þá vera,"
sagði hann, "og mun eg ríða til þings með þér."
"Vel er það og,"
segir hún.
Síðan fór hann heiman og
vestur í fjörðu og byggði allt féið og fór þegar vestan.
Og er hann kom heim bjó hann
sig þegar til þings og lét ríða með sér alla nábúa sína. Höskuldur reið og,
bróðir hans.
Hrútur mælti við konu sína:
"Ef þér er jafnmikill hugur á að fara til þings sem þú lést þá bú þú þig
og ríð til þings með mér."
Hún bjó sig skjótt og síðan
ríða þau uns þau koma til þings.
Unnur gekk til búðar föður
síns. Hann fagnaði henni vel en henni var skapþungt nokkuð.
Og er hann fann það mælti
hann til hennar: "Séð hefi eg þig með betra bragði eða hvað býr þér í
skapi?"
Hún tók að gráta og svaraði
engu.
Þá mælti hann við hana:
"Til hvers reiðst þú til alþingis ef þú vilt eigi svara mér eða segja mér
trúnað þinn eða þykir þér eigi gott vestur þar?"
Hún svaraði: "Gefa mundi
eg til alla eigu mína að eg hefði þar aldrei komið."
Mörður mælti: "Þessa má
eg skjótt vís verða."
Þá sendi hann mann eftir þeim
Hrúti og Höskuldi. Þeir fóru þegar. Og er þeir komu á fund Marðar stóð hann upp
í mót þeim og fagnaði þeim vel og bað þá sitja. Töluðu þeir lengi og fór tal
þeirra vel.
Þá mælti Mörður til Hrúts:
"Hví þykir dóttur minni svo illt vestur þar?"
Hrútur mælti: "Segi hún
til ef hún hefir sakagiftir nokkurar við mig."
En þær urðu engar upp bornar
við Hrút. Þá lét Hrútur eftir spyrja nábúa sína og heimamenn hversu hann gerði
til hennar. Þeir báru honum gott vitni og sögðu hana ráða öllu því er hún
vildi.
Mörður mælti: "Heim
skalt þú fara og una vel við ráð þitt því að honum ganga öll vitni betur en
þér."
Síðan reið Hrútur heim af
þingi og kona hans með honum og var nú vel með þeim um sumarið. En þá er
vetraði þá dró til vanda um samfarar þeirra og var þess verr er meir leið á
vorið.
Hrútur átti enn ferð vestur í
fjörðu að fjárreiðum sínum og lýsti yfir því að hann mundi eigi til alþingis
ríða. Unnur talaði fátt um. Hrútur
fór þá er hann var til þess búinn.
7. kafli
Nú líður til þings framan.
Unnur talaði við Sigmund Össurarson og spurði ef hann vildi ríða til þings með
henni. Hann kveðst eigi ríða mundu ef Hrúti frænda hans þætti verr.
"Því kveð eg þig
til," segir hún, "að eg á á þér helst vald allra manna."
Hann svaraði: "Gera mun
eg þér kost á þessu. Þú skalt ríða vestur með mér aftur og hafa engi undirmál
við Hrút eða mig."
Hún hét því. Síðan ríða þau
til þings.
Mörður var á þingi, faðir
hennar. Hann tók við henni allvel og bað hana vera í búð sinni meðan þingið
væri. Hún gerði svo.
Mörður mælti: "Hvað
segir þú mér frá Hrúti félaga þínum?"
Hún svarar: "Gott má eg
frá honum segja það allt er honum er sjálfrátt."
Mörður varð hljóður við og
mælti: "Það býr þér nú í skapi dóttir að þú vilt að engi viti nema eg og
munt þú trúa mér best til úrráða um þitt mál."
Þá gengu þau á tal þar er
engir menn heyrðu þeirra viðurmæli.
Þá mælti Mörður til dóttur
sinnar: "Seg þú mér nú allt það er á meðal ykkar er og lát þér ekki í augu
vaxa."
"Svo mun vera
verða," segir hún. "Eg vildi segja skilið við Hrút og má eg segja þér
hverja sök eg má helst gefa honum. Hann má ekki hjúskaparfar eiga við mig svo
að eg megi njóta hans en hann er að allri náttúru sinn annarri sem hinir
vöskustu menn."
"Hversu má svo
vera?" segir Mörður, "og seg mér enn gerr."
Hún svarar: "Þegar hann
kemur við mig þá er hörund hans svo mikið að hann má ekki eftirlæti hafa við
mig en þó höfum við bæði breytni til þess á alla vega að við mættum njótast en
það verður ekki. En þó áður við skiljum sýnir hann það af sér að hann er í æði
sínu rétt sem aðrir menn."
Mörður mælti: "Vel hefir
þú nú gert er þú sagðir mér. Mun eg leggja ráð á með þér það er þér mun duga ef
þú kannt með að fara og bregðir þú hvergi af. Nú skalt þú heim ríða fyrst af
þingi og mun bóndi þinn heim kominn og taka við þér vel. Þú skalt vera við hann
blíð og eftirmál og mun honum þykja góð skipan á komin. Þú skalt enga fáleika á
þér sýna. En þá er vorar skalt þú kasta á þig sótt og liggja í rekkju. Hrútur
mun engum getum vilja um leiða um sóttarfar þitt og ámæla þér í engu, heldur
mun hann biðja að allir geymi þín sem best. Síðan mun hann fara í fjörðu vestur
og Sigmundur með honum og mun hann flytja allt fé sitt vestan úr fjörðum og
vera í brautu lengi sumars. En þá er menn ríða til þings og allir menn eru
riðnir úr Dölum, þeir er ríða ætla, þá skalt þú rísa úr rekkju og kveðja menn
til ferðar með þér. En þá er þú ert albúin þá skalt þú ganga til hvílu þinnar
og þeir menn með þér sem förunautar þínir eru. Þú skalt nefna votta hjá
rekkjustokki bónda þíns og segja skilið við hann lagaskilnaði sem þú mátt
framast að alþingismáli réttu og allsherjarlögum. Slíka vottnefnu skalt þú hafa
fyrir karldyrum. Síðan ríð þú í braut og ríð Laxárdalsheiði og svo til
Holtavörðuheiðar því að þín mun eigi leitað til Hrútafjarðar og ríð þar til er
þú kemur til mín og mun eg þá sjá fyrir málinu og skalt þú aldrei síðan koma
honum í hendur."
Nú ríður hún heim af þingi og
var Hrútur heim kominn og fagnaði henni vel. Hún tók vel máli hans og var við
hann blíð og eftirmál. Þeirra samfarar voru góðar þau misseri. En er voraði tók
hún sótt og lagðist í rekkju. Hrútur fór í fjörðu vestur og bað henni virkta
áður.
Nú er kemur að þingi bjó hún
ferð sína í braut og fór með öllu svo sem fyrir var sagt og ríður á þing síðan.
Héraðsmenn leituðu hennar og fundu hana eigi.
Mörður tók við dóttur sinni
vel og spurði hana hversu hún hefði með farið ráðagerð hans.
"Hvergi hefi eg af
brugðið," sagði hún.
Hann gekk til Lögbergs og
sagði skilið lagaskilnaði með þeim að Lögbergi.
Þetta gerðu menn að nýjum
tíðindum.
Unnur fór heim með föður
sínum og kom aldrei vestur þar síðan.
8. kafli
Hrútur kom heim og brá mjög í
brún er kona hans var í brautu og er þó vel stilltur og var heima öll þau
misseri og réðst við engan mann um sitt mál.
Annað sumar eftir reið hann
til alþingis og Höskuldur bróðir hans með honum og fjölmenntu mjög. En er hann
kom á þing þá spurði hann hvort Mörður gígja væri á þingi. Honum var sagt að
hann var þar og ætluðu allir að þeir mundu tala um mál sín en það varð eigi.
Einnhvern dag er menn gengu
til Lögbergs nefndi Mörður sér votta og lýsti fésök á hendur Hrúti um fémál
dóttur sinnar og taldi níu tigu hundraða fjár. Lýsti hann til gjalda og til
útgreiðslu og lét varða þriggja marka útlegð. Hann lýsti í fjórðungsdóm þann er
sökin átti í að koma að lögum. Lýsti hann löglýsing og í heyranda hljóði að
Lögbergi.
En er hann hafði þetta mælt
svaraði Hrútur: "Meir sækir þú þetta mál með fjárágirnd og kapppi er
heyrir til dóttur þinnar heldur en með góðvild eða drengskap enda mun eg hér
láta nokkuð í mót koma því að þú hefir enn eigi féið í hendi þér það er eg fer
með. Mæli eg svo fyrir að þeir séu allir heyrandi vottar er hjá eru að Lögbergi
að eg skora þér á hólm. Skal við liggja mundurinn allur og þar legg eg í mót
annað fé jafnmikið og eigi sá hvorttveggja féið er af öðrum ber. En ef þú vilt eigi
berjast við mig þá skalt þú af allri fjárheimtunni."
Þá þagnaði Mörður og réðst um
við vini sína um hólmgönguna.
Honum svaraði Jörundur goði:
"Eigi þarft þú við oss ráð að eiga um þetta mál því að þú veist ef þú
berst við Hrút að þú munt láta bæði lífið og féið. Er honum vel farið. Hann er
mikill af sjálfum sér og manna fræknastur."
Þá kvað Mörður það upp að
hann mundi eigi berjast við Hrút. Þá varð óp mikið að Lögbergi og óhljóð og
hafði Mörður af hina mestu svívirðu. Síðan ríða menn heim af þingi.
Þeir bræður riðu vestur til
Reykjardals, Höskuldur og Hrútur, og gistu að Lundi. Þar bjó Þjóstólfur sonur
Bjarnar gullbera. Regn hafði verið mikið um daginn og höfðu menn orðið votir og
voru gervir langeldar. Þjóstólfur bóndi sat á meðal þeirra Höskulds og Hrúts.
Sveinar tveir léku á gólfinu. Þeir voru veislusveinar Þjóstólfs og lék mær ein
hjá þeim. Þeir voru málgir mjög því að þeir voru óvitrir.
Annar þeirra mælti: "Eg
skal þér Mörður vera og stefna þér af konunni og finna það til foráttu að þú
hafir eigi sorðið hana."
Annar svaraði: "Eg skal
þér Hrútur vera. Tel eg þig af allri fjárheimtunni ef þú þorir eigi að berjast
við mig."
Þetta mæltu þeir nokkurum
sinnum. Þá gerðist hlátur mikill af heimamönnum. Þá reiddist Höskuldur og laust
sveininn með sprota, þann er Mörður nefndist, en sprotinn kom í andlitið og
sprakk fyrir.
Höskuldur mælti við sveininn:
"Verð úti og drag engan spott að oss."
Hrútur mælti: "Gakk
hingað til mín."
Sveinninn gerði svo. Hrútur
dró fingurgull af hendi sér og gaf honum og mælti: "Far í braut og leita á
engan mann síðan."
Sveinninn fór í braut og
mælti: "Þínum drengskap skal eg við bregða æ síðan."
Af þessu fékk Hrútur gott
orð. Síðan fóru þeir vestur heim og er nú lokið þrætum þeirra Marðar.
9. kafli
Nú er þar til máls að taka að
Hallgerður vex upp, dóttir Höskulds, og er kvenna fríðust sýnum og mikil vexti
og því var hún langbrók kölluð. Hún var fagurhár og svo mikið hárið að hún
mátti hylja sig með. Hún var örlynd og skaphörð.
Þjóstólfur hét fóstri hennar.
Hann var suðureyskur að ætt. Hann var styrkur maður og vígur vel og hafði
margan mann drepið og bætti engan mann fé. Það var mælt að hann væri engi
skapbætir Hallgerði.
Maður er nefndur Þorvaldur.
Hann var Ósvífursson. Hann bjó út á Meðalfellsströnd undir Felli. Hann var vel
auðigur að fé. Hann átti eyjar þær er heita Bjarneyjar. Þær liggja út á
Breiðafirði. Þaðan hafði hann skreið og mjöl. Þorvaldur var vel styrkur maður
og kurteis, nokkuð bráður í skaplyndi.
Það var einu hverju sinni að
þeir feðgar ræddu með sér hvar Þorvaldur mundi á leita um kvonfang. En það
fannst á að honum þótti sér óvíða fullkosta.
Þá mælti Ósvífur: "Vilt
þú biðja Hallgerðar langbrókar, dóttur Höskulds?"
"Hennar vil eg
biðja," segir hann.
"Það mun ykkur eigi mjög
hent," sagði Ósvífur, "hún er kona skapstór en þú ert harðlyndur og
óvæginn."
"Þar vil eg þó á
leita," segir hann, "og mun mig eigi tjóa að letja."
"Þú átt og mest í
hættu," segir Ósvífur.
Síðan fóru þeir bónorðsför og
komu á Höskuldsstaði og höfðu þar góðar viðtökur. Þeir ræddu þegar erindi sín
fyrir Höskuldi og vöktu bónorðið.
Höskuldur svaraði:
"Kunnigt er mér um hag ykkarn en eg vil enga vél að ykkur draga að dóttir
mín er hörð í skapi. En um yfirlit hennar og kurteisi megið þið sjálfir
sjá."
Þorvaldur svaraði: "Ger
þú kostinn því að eg mun skaplyndi hennar eigi láta fyrir kaupi standa."
Síðan tala þeir um kaupið og
spurði Höskuldur dóttur sína eigi eftir því að honum var hugur á að gifta hana
og urðu þeir á sáttir á allan kaupmála. Síðan rétti Höskuldur fram höndina en
Þorvaldur tók í og fastnaði sér Hallgerði og reið heim við svo búið.
10. kafli
Höskuldur sagði Hallgerði
kaupið.
Hún mælti: "Nú er eg að
raun komin um það er mig hefir lengi grunað að þú mundir eigi unna mér svo
mikið sem þú sagðir jafnan er þér þótti eigi þess vert að við mig væri um talað
þetta mál enda þykir mér ráð þetta eigi svo mikils háttar sem þér hétuð
mér."
Og fannst það á í öllu er hún
þóttist vargefin.
Höskuldur mælti: "Ekki
legg eg svo mikið við ofmetnað þinn að hann standi fyrir kaupum mínum og skal
eg ráða en eigi þú ef okkur skilur á."
"Mikill er metnaður
yðvar frænda," segir hún, "og er það eigi undarlegt að eg hafi
nokkurn" og gekk á braut síðan.
Hún fann fóstra sinn Þjóstólf
og segir honum hvað ætlað var og var henni skapþungt.
Þjóstólfur mælti: "Ger
þú þér gott í skapi. Þú munt vera gefin í annað sinn og munt þú þá eftir spurð
því að alls staðar mun eg gera að þínu skapi nema þar er faðir þinn er eða
Hrútur."
Síðan tala þau ekki um
fleira.
Höskuldur bjó veislu og reið
að bjóða mönnum til og kom á Hrútsstaði og kallar Hrút út til máls við sig.
Hann gekk út og gengu þeir á tal og sagði Höskuldur honum kaupmála allan og
bauð honum til boðs "og vildi eg frændi að þér þætti eigi verr þótt eg
gerði þér eigi orð áður en kaupmálið réðst."
"Betur þætti mér að eg
kæmi hvergi í nánd," segir Hrútur, "því að hvorigu mun í þessu kaupi
gifta, honum né henni. En þó mun eg fara til boðs ef þér þykir sæmd í."
"Það þykir mér
víst," sagði Höskuldur og reið heim síðan.
Ósvífur og Þorvaldur buðu og
mönnum og var eigi boðið færra en hundraði.
Maður er nefndur Svanur. Hann
bjó í Bjarnarfirði á bæ þeim er heitir á Svanshóli. Það er norður frá
Steingrímsfirði. Svanur var fjölkunnigur mjög. Hann var móðurbróðir Hallgerðar.
Hann var ódæll og illur viðureignar. Honum bauð Hallgerður til boðs síns og
sendi Þjóstólf eftir honum. Hann fór og voru vináttumál með þeim þegar.
Nú koma menn til veislunnar
og sat Hallgerður á palli og var brúðurin allkát og gekk Þjóstólfur jafnan til
tals við hana en stundum talar hann við Svan og fannst mönnum mikið um tal
þeirra. Veislan fór vel fram. Höskuldur leysti út fé Hallgerðar með hinum besta
greiðskap.
Síðan mælti hann til Hrúts:
"Skal eg nokkurar gjafar fram leggja?"
Hrútur svaraði: "Kostur mun
þér af tómi að eyða fé þínu fyrir Hallgerði og lát hér stað nema."
11. kafli
Þorvaldur reið heim frá
boðinu og kona hans með honum og Þjóstólfur. Hann fylgdi hesti Hallgerðar og
töluðu þau jafnan.
Ósvífur veik að syni sínum og
mælti: "Unir þú vel ráðinu eða hversu fór tal með ykkur?"
"Vel," segir hann,
"alla blíðu lét hún uppi við mig og mátt þú sjá mót á er hún hlær við
hvert orð."
"Eigi ætla eg hlátur
hennar jafngóðan sem þú," segir Ósvífur, "en það mun þó síðar
reynast."
Þau ríða þar til er þau koma
heim. Um kveldið sat hún hjá bónda sínum og skipaði Þjóstólfi hið næsta sér
innar frá. Fátt áttust þeir við Þjóstólfur og Þorvaldur og varð þeim fátt að
orðum og fór svo fram um veturinn.
Hallgerður var fengsöm og
stórlynd enda kallaði hún til alls þess er aðrir áttu í nánd og hafði allt í
sukki. En er voraði var þar búskortur og skorti bæði mjöl og skreið.
Hallgerður kom að máli við
Þorvald og ræddi: "Eigi munt þú þurfa að sitja til alls því bæði þarf í
búið mjöl og skreið."
Þorvaldur mælti: "Ekki
fékk eg nú minna til bús en vant var og entist þá allt á sumar fram."
Hallgerður mælti: "Ekki
fer eg að því þó að þú hafir svelt þig til fjár og faðir þinn."
Þá reiddist Þorvaldur og
laust hana í andlitið svo að blæddi og gekk síðan í braut og kvaddi húskarla
sína með sér og hrundu þeir fram skútu og hljópu þar á átta karlar og reru út í
Bjarneyjar. Tók hann þar skreið sína og mjöl.
Nú er að segja frá Hallgerði
að hún sat úti og var skapþungt.
Þjóstólfur gekk að og sá að
hún var særð í andlitinu og mælti: "Hví ert þú svo illa leikin?"
"Þorvaldur veldur því
bóndi minn," sagði hún, "og stóðst þú mér þá fjarri ef þér þætti
nokkuð undir um mig."
"Eg vissi eigi,"
segir hann, "en þó skal eg þessa hefna."
Síðan gekk hann á braut og
til fjöru og hratt fram skipi sexæru og hafði í hendi öxi mikla er hann átti,
vafinskeftu. Hann stígur á skip og rær út í Bjarneyjar. Og er hann kom þar voru
allir menn rónir nema Þorvaldur og förunautar hans. Hann var að hlaða skútuna
en þeir báru á út, menn hans.
Þjóstólfur kom að í því og
hljóp upp á skútuna og hlóð með honum og mælti: "Bæði ert þú að þessu
lítilvirkur og óhagvirkur."
Þorvaldur mælti: "Hyggst
þú munu betur gera?"
"Það eitt munum við að
hafast að eg mun betur gera en þú," segir Þjóstólfur, "og er sú kona
illa gift er þú átt og skyldu ykkrar samfarar skammar vera."
Þorvaldur þreif upp handsax
eitt er var hjá honum og leggur til Þjóstólfs. Þjóstólfur hafði öxina á öxl sér
og laust á mót og kom á hönd Þorvaldi og brotnaði handleggurinn en saxið féll
niður. Síðan færði Þjóstólfur upp öxina í annað sinn og hjó í höfuð Þorvaldi og
hafði hann þegar bana.
12. kafli
Þá fóru þeir ofan, menn
Þorvalds, með byrðarnar. Þjóstólfur tók til ráða skjótt. Höggur hann þá tveim
höndum borð skútunnar og gekk sundur borðið um tvö rúm, og hljóp í skip sitt.
En á skútunni féll inn sær kolblár og sökk hún niður með öllum farminum. Þar
sökk og niður lík Þorvalds og máttu förunautar hans eigi sjá hversu hann var
til ger en hitt vissu þeir að hann var dauður.
Þjóstólfur reri inn á
fjörðinn en þeir báðu hann illa fara og aldrei þrífast. Hann svaraði engu og
reri inn á fjörðinn og þar til er hann kom heim og brýndi upp skipinu og gekk
heim og hafði uppi öxina og var hún blóðug mjög.
Hallgerður var úti og mælti:
"Blóðug er öx þín. Hvað hefir þú unnið?"
"Nú hefi eg það að
gert," segir hann, "að þú munt gefin vera í annað sinn."
"Dauðan segir þú mér
Þorvald þá," segir hún.
"Svo er," sagði
hann, "og sjá þú nú nokkurt ráð fyrir mér."
"Svo skal vera,"
sagði hún. "Eg vil senda þig norður til Bjarnarfjarðar á Svanshól og mun
Svanur taka við þér báðum höndum. Er hann svo mikill fyrir sér að þangað sækir
þig engi."
Hann söðlaði hest er hann
átti og steig á bak og reið norður til Bjarnarfjarðar á Svanshól og tók Svanur
við honum báðum höndum og spurði hann að tíðindum. En Þjóstólfur segir honum
víg Þorvalds með þeim atburðum er orðið höfðu.
Svanur mælti: "Slíkt
kalla eg menn er eigi láta sér allt í augu vaxa að gera og mun eg því heita þér
ef þeir sækja þig hingað að þeir skulu fá af því hina mestu svívirðing."
Nú er þar til máls að taka er
Hallgerður er að hún kvaddi til ferðar með sér Ljót hinn svarta frænda sinn og
bað hann söðla hesta þeirra "og vil eg ríða heim til föður míns."
Hann bjó ferð þeirra. Hún
gekk til kistna sinna og lauk upp og lét kalla til sín alla heimamenn sína og
gaf þeim nokkura gjöf öllum en þeir hörmuðu hana allir.
Nú reið hún þar til er hún
kom á Höskuldsstaði og tók faðir hennar við henni vel því að hann hafði eigi
spurt tíðindin.
Höskuldur mælti til
Hallgerðar: "Hví fór eigi Þorvaldur með þér?"
Hún svaraði: "Dauður er
hann."
Höskuldur mælti:
"Þjóstólfur mun því valda."
Hún sagði svo vera.
Höskuldur mælti: "Það mun mér síst í tauma
ganga er Hrútur segir mér að hér mundi til mikillar ógiftu draga um kaup þessi
en ekki mun týja að saka sig um orðinn hlut."
Nú er þar til máls að taka er förunautar Þorvalds
eru að þeir biðu til þess er skip komu að landi. Þeir sögðu víg Þorvalds
og báðu sér skips inn til lands. Þeim var léð þegar. Og reru þeir inn að
Reykjanesi og fundu Ósvíf og sögðu honum tíðindin.
Hann mælti: "Illa gefast ills ráðs leifar. Og
sé eg nú allt eftir hversu farið hefir. Hallgerður mun hafa sendan Þjóstólf til
Bjarnarfjarðar en hún mun riðin heim til föður síns. Skulum vér nú safna liði
og sækja hann norður þangað."
Þeir gerðu svo og fóru í
liðsbón. Varð þeim gott til manna og riðu til Steingrímsfjarðar og til
Ljótárdals og þaða n til Selárdals og svo til Bassastaða og þaðan um hálsinn
til Bjarnarfjarðar.
Nú tók Svanur til orða og
geispaði mjög: "Nú sækja að fylgjur Ósvífurs."
Þá spratt Þjóstólfur upp og
tók öxi sína.
Svanur mælti: "Gakk þú
út með mér. Lítils mun við
þurfa."
Síðan gengu þeir út báðir.
Svanur tók geitskinn eitt og
veifði yfir höfuð sér og mælti:
Verði
þoka
og verði skrípi
og undr öllum þeim
er eftir þér sækja.
Nú er frá því að segja að
þeir ríða á hálsinn Ósvífur og hans förunautar. Þá kom þoka mikil í mót þeim.
Ósvífur mælti: "Þessu
mun Svanur valda og væri vel ef eigi fylgdi meira illt."
Litlu síðar brá svo miklum
sorta fyrir augu þeim að þeir sáu ekki og féllu þeir þá af baki og týndu
hestunum og gengu í fen ofan sjálfir en sumir í skóginn svo að þeim hélt við
meiðingar. Þeir töpuðu af sér vopnunum.
Þá mælti Ósvífur: "Ef eg
fyndi hesta mína og vopn þá mundi eg aftur hverfa."
Og er hann hafði þetta mælt
þá sáu þeir nokkuð og fundu hesta sína og vopn. Þá eggjuðu margir á að enn
skyldi við leita um atreiðina og var það gert og urðu þeim þegar hin sömu
undur. Og fór svo þrem sinnum.
Þá mælti Ósvífur: "Þó að
förin sé eigi góð þá skal þó nú aftur hverfa. Nú skulum vér gera ráð vort í
annan stað og hefi eg það helst í hug mér að fara og finna Höskuld föður
Hallgerðar og beiða hann sonarbóta því að þar er sæmdar von sem nóg er til."
Síðan riðu þeir til
Breiðafjarðardala og er nú ekki fyrr frá að segja en þeir koma á Höskuldsstaði.
Þar var þá fyrir með Höskuldi Hrútur bróðir hans. Ósvífur kvaddi út Höskuld og
Hrút. Þeir gengu út báðir og heilsuðu Ósvífri en síðan gengu þeir á tal. Höskuldur
spurði Ósvífur hvaðan hann kæmi að. Hann kveðst hafa farið að leita Þjóstólfs
og fundið hann eigi.
Höskuldur kvað hann kominn
mundu norður á Svanshól "og er það eigi allra manna að sækja hann
þangað."
"Því er eg hér
kominn," sagði Ósvífur, "að eg vil beiða þig sonarbóta."
Höskuldur svaraði: "Eigi
drap eg son þinn og eigi réð eg honum bana en þó heldur þig vorkunn til að
leita á nokkurn."
Hrútur mælti: "Náið er,
bróðir, nef augum. Og er nauðsyn að drepa niður illu orði og bæta honum son
sinn og rífka svo ráð fyrir dóttur þinni. Er sá einn til að þetta orðtak falli
niður sem skjótast því að þá er betur að hér sé fátt til talað."
Höskuldur mælti: "Vilt
þú þá gera um málið?"
"Það vil eg," segir
Hrútur, "og mun eg ekki hlífa þér í gerðinni því að ef satt skal tala þá
hefir dóttir þín ráðið honum banann."
Þá setti Höskuld dreyrrauðan
og mælti ekki nokkura hríð. Síðan stóð hann upp og mælti til Ósvífurs:
"Vilt þú nú handsala mér niðurfall að sökinni?"
Ósvífur stóð upp og mælti:
"Eigi er það jafnsætti að bróðir þinn geri um. En þó hefir þú svo vel til
lagið Hrútur að eg trúi þér vel til málsins."
Síðan tók hann í hönd
Höskuldi og sættust þeir svo á málið að Hrútur skyldi gera og lúka upp gerðinni
áður Ósvífur færi heim.
Síðan gerði Hrútur og mælti:
"Fyrir víg Þorvalds geri eg tvö hundruð silfurs" - það þóttu þá vera
góð manngjöld - "og skalt þú gjalda þegar bróðir og leysa vel af
hendi."
Höskuldur gerði svo. Þá mælti Hrútur til Ósvífurs:
"Eg vil gefa þér skikkju góða er eg hafði út."
Hann þakkaði honum gjöfina og
undi nú vel við þar sem komið var og fór heim.
Litlu síðar komu þeir þannug
Hrútur og Höskuldur og skiptu fé því sem þar stóð saman og urðu þeir Ósvífur á
það vel sáttir og fóru heim með féið og er nú Ósvífur úr sögunni.
Hallgerður beiddi Höskuld að
Þjóstólfur skyldi fara heim. Höskuldur veitti henni það og var lengi margt
talað um víg Þorvalds.
Fé Hallgerðar gekk fram og
gerðist mikið.
13. kafli
Bræður þrír eru nefndir til
sögunnar. Hét einn Þórarinn, annar Ragi, þriðji Glúmur. Þeir voru synir Óleifs
hjalta. Þeir voru virðingamenn miklir og vel auðgir að fé. Þórarinn átti það
kenningarnafn að hann var kallaður Ragabróðir. Hann hafði lögsögu eftir Hrafn
Hængsson. Hann var stórvitur maður. Hann bjó að Varmalæk og áttu þeir Glúmur bú
saman. Glúmur hafði verið lengi í förum. Hann var mikill maður vexti og sterkur
og fríður sýnum. Ragi var vígamaður mikill, bróðir þeirra. Þeir bræður áttu
suður Engey og Laugarnes.
Þeir bræður töluðu, Glúmur og
Þórarinn, og spurði Þórarinn Glúm hvort hann ætlaði utan sem hann var vanur.
Hann svaraði: "Hitt
hafði eg nú heldur ætlað að hætta kaupferðum."
"Hvað er þér þá í
skapi?" segir Þórarinn. "Vilt þú biðja þér konu?"
"Það vildi eg,"
sagði Glúmur, "ef eg gæti vel fyrir mér séð."
Þá taldi Þórarinn upp konur
þær sem voru í Borgarfirði ógiftar og spurði ef hann vildi nokkura eiga af þeim
"og mun eg ríða til með þér."
Hann svaraði: "Enga vil
eg þessa eiga."
"Nefn þú þá að því þá er
þú vilt eiga," segir Þórarinn.
Glúmur svaraði: "Ef þú
vilt það vita þá heitir hún Hallgerður og er dóttir Höskulds í Dölum
vestur."
"Eigi er nú það sem mælt
er," segir Þórarinn, "að þú látir þér annars víti að varnaði. Gift
var hún manni og réð hún þeim bana."
Glúmur mælti: "Má að
hana hendi eigi slík ógifta í annað sinn. Og veit eg víst að hún ræður eigi mér
bana. En ef þú vilt mér nokkura sæmd veita þá ríð þú til með mér að biðja
konunnar."
Þórarinn mælti: "Ekki
mun mega við gera. Það mun verða fram að koma sem ætlað er."
Oft kom Glúmur á um þetta mál
við Þórarin en hann fór lengi undan. En þar kom um síðir að þeir söfnuðu að sér
mönnum og riðu tuttugu saman vestur til Dala og komu á Höskuldsstaði og tók
Höskuldur vel við þeim og voru þeir þar um nóttina. En snemma um morguninn sendir
Höskuldur eftir Hrúti og kom hann þegar og var Höskuldur úti fyrir er hann reið
í tún. Höskuldur segir Hrúti hvað þar var komið manna.
"Hvað munu þeir
vilja?" sagði Hrútur.
"Engi hafa þeir erindi
enn upp borið fyrir mig," sagði Höskuldur.
"Við þig munu þó
erindin," segir Hrútur, "þeir munu biðja Hallgerðar eða hversu munt
þú svara?"
"Hvað þykir þér
ráð?" sagði Höskuldur.
"Vel skalt þú svara og
segja þó kost og löst á konunni," segir Hrútur.
En í þessu tali þeirra bræðra
ganga þeir út gestirnir. Höskuldur og Hrútur gengu í mót þeim. Fagnaði Hrútur
vel Þórarni og þeim báðum bræðrum.
Síðan gengu þeir allir samt á
tal og mælti Þórarinn: "Eg er kominn hingað með Glúmi bróður mínum þess
erindis að biðja Hallgerðar dóttur þinnar, Höskuldur, til handa Glúmi bróður
mínum. Skalt þú það vita að hann er vel mannaður."
"Veit eg það,"
sagði Höskuldur, "að þið eruð mikils háttar menn bræður. En eg vil og
segja þér í mót að eg réð ráði hennar fyrri og varð oss það að mikilli
ógæfu."
Þórarinn svaraði: "Ekki
munum vér það láta fyrir kaupum standa því að eigi skal einn eiður alla verða.
Og má þetta verða vel þó að hitt yrði illa enda spillti Þjóstólfur þar mest
um."
Þá mælti Hrútur: "Gefa
mundi eg yður til ráð ef þér viljið eigi þetta láta fyrir ráðum standa er áður
hefir orðið um hagi Hallgerðar, að Þjóstólfur fari ekki suður með henni þó að
ráðin takist og veri þar aldrei þrem nóttum lengur, nema Glúmur lofi, en falli
óheilagur fyrir Glúmi ef hann er lengur, en heimilt á Glúmur að lofa það, en
ekki er það mitt ráð. Skal nú og eigi svo fara sem fyrr að Hallgerði sé eigi
sagt. Skal hún vita allan þenna kaupmála og sjá Glúm og ráða sjálf hvort hún
vill eiga hann eða eigi og megi hún eigi öðrum kenna þó að eigi verði vel. Skal
þetta allt vélalaust vera."
Þórarinn mælti: "Nú er
sem jafnan að það mun best gegna að þín ráð séu höfð."
Þá var sent eftir Hallgerði
og kom hún þangað og tvær konur með henni. Hún hafði yfir sér vefjarmöttul blán
og var undir í rauðum skarlatskyrtli og silfurbelti um sig en hárið tók ofan á
bringuna tveim megin og drap hún undir belti sér. Hún settist niður í milli
þeirra Hrúts og föður síns. Hún kvaddi þá alla góðum orðum og mælti vel og
skörulega og spurði tíðinda. Síðan hætti hún að tala.
Glúmur mælti: "Um kaup
við föður þinn höfum við Þórarinn bróðir minn talað að eg mundi fá þín
Hallgerður ef það er þinn vilji sem þeirra. Munt þú nú og segja er þú ert
kölluð skörungur mikill hvort það er nokkuð nær þínu skapi. En ef þér er engi
hugur á kaupum við oss þá viljum vér ekki um tala."
Hallgerður mælti: "Veit
eg að þið eruð mikils háttar menn, bræður, og veit eg að eg mun nú miklu betur
gefin en fyrr. En vita vil eg hvað þér hafið um talað eða hve mjög þér hafið
fram mælt málinu. En svo líst mér á þig að eg mun þér vel unnandi verða ef við
komum skapi saman."
Glúmur sagði henni sjálfur
allan skildaga og veik hvergi af og spurði þá Höskuld og Hrút hvort hann hermdi
rétt. Höskuldur sagði svo vera.
Hallgerður mælti þá: "Svo vel sem þér hefir
farið til mín faðir um þetta mál og þér Hrútur þá vil eg þetta að ykkru ráði
gera og skal þessi kaupmáli vera sem þið hafið stofnað."
Þá mælti Hrútur: "Það þykir mér ráð að við
Höskuldur nefnum votta en Hallgerður festi sig sjálf ef lögmanni þykir það
rétt."
"Rétt er það,"
sagði Þórarinn.
Síðan voru virð fé Hallgerðar
og skyldi Glúmur leggja í mót jafnmikið og skyldi vera helmingarfélag með þeim.
Glúmur fastnaði sér þá Hallgerði og riðu þeir suður heim en Höskuldur skyldi
hafa boð inni. Er nú kyrrt þar til er menn ríða til boðs.
14. kafli
Þeir bræður fjölmenna mjög
til veislunnar og höfðu valið lið. Þeir riðu vestur til Dala og komu á
Höskuldsstaði og var þar fjölmenni mikið fyrir. Skipuðu þeir Höskuldur og
Hrútur annan bekk en brúðgumi annan. Hallgerður sat á palli og samdi sér vel.
Þjóstólfur gekk með reidda öxi og lét hið dólglegasta og lét það engi sem
vissi.
En er boði var lokið fór
Hallgerður suður með þeim. En er þau komu suður til Varmalækjar þá spurði
Þórarinn Hallgerði ef hún vildi taka við búráðum.
"Eigi vil eg það,"
segir hún.
Hallgerður sat mjög á sér um
veturinn og líkaði við hana ekki illa.
En um vorið töluðu þeir um
fjárhagi sína bræður og mælti Þórarinn: "Eg vil gefa ykkur upp búið að
Varmalæk því að ykkur er það hægst um hönd. En eg mun fara suður í Laugarnes og
búa þar. En Engey skulum við eiga báðir saman."
Glúmur vildi að svo væri. Fór
Þórarinn suður byggðum en þau bjuggu þar eftir. Réð Hallgerður sér hjón. Hún
var örlynd og fengsöm. En um sumarið fæddi hún meybarn. Glúmur spurði Hallgerði
hvað heita skyldi.
"Hana skal kalla eftir
föðurmóður minni og skal heita Þorgerður því að hún var komin frá Sigurði
Fáfnisbana í föðurætt sína að langfeðgatölu."
Mærin var vatni ausin og
þetta nafn gefið. Hún óx þar upp og gerðist lík móður sinni að yfirlitum. Þau
sömdust vel við Glúmur og Hallgerður og fór svo fram um hríð.
Þau tíðindi spurðust úr
Bjarnarfirði norðan að Svanur hafði róið að veiðiskap um vorið og kom að þeim
austanveður mikið og rak þá upp að Veiðilausu og týndust þar. En fiskimenn þeir
er voru í Kaldbak þóttust sjá Svan ganga inn í fjallið Kaldbakshorn og var
honum vel þar fagnað en sumir mæltu því í mót og kváðu engu gegna en það vissu
allir að hann fannst hvorki lífs né dauður. En er Hallgerður spurði þessi
tíðindi þótti henni skaði mikill eftir móðurbróður sinn.
Glúmur bauð Þórarni að skipta
um löndin.
Hann kveðst eigi það vilja
"en seg þú Hallgerði ef eg lifi þér lengur að eg ætla mér Varmalæk."
Glúmur segir Hallgerði.
Hún svaraði: "Maklegur
er Þórarinn þess frá oss."
15. kafli
Þjóstólfur hafði barið
húskarl Höskulds og rak Höskuldur hann í braut. Hann tók hest sinn og vopn sín
og mælti við Höskuld: "Nú mun eg á braut fara og koma aldrei aftur."
"Allir munu því
fagna," segir Höskuldur.
Þjóstólfur reið til þess er
hann kom til Varmalækjar. Hann hafði þar góðar viðtökur af Hallgerði en eigi
illar af Glúmi. Hann sagði Hallgerði að faðir hennar hefði hann á braut rekið
og bað hana ásjá. Hún svaraði honum því að hún kveðst honum engu mega heita um
þarvist hans fyrr en hún fyndi Glúm.
"Fer vel með
ykkur?" segir hann.
"Vel er um ástir
okkrar," segir hún.
Síðan gekk hún til máls við
Glúm og lagði hendur upp um háls honum og mælti: "Skalt þú veita mér bæn
þá er eg mun biðja þig?"
"Veita mun eg þér ef þér
er sæmd í," segir hann, "eða hvers vilt þú biðja?"
Hún mælti: "Þjóstólfur
er rekinn í braut vestan þaðan og vildi eg að þú leyfðir honum að vera hér. En
eg vil þó eigi þvert taka ef þér er lítið um."
Glúmur mælti: "Nú er þér
fer svo vel skal eg veita þér þetta en seg að hann skal í brautu verða ef hann
tekur nokkuð illt til."
Hún gengur til Þjóstólfs og
segir honum.
Hann svaraði: "Nú fer
þér enn vel sem von var að."
Síðan var hann þar og sat á
sér um hríð en þar kom að hann þótti þar öllu spilla. Tók hann þá að hlífast
við engan mann nema við Hallgerði en hún veitti honum aldrei eftirmæli þá er
hann átti við aðra. Þórarinn bróðir Glúms taldi á við hann er hann lét Þjóstólf
þar vera og kvað illa gefast mundu og fara enn sem fyrr ef hann væri þar.
Glúmur svaraði vel og brá þó á sitt ráð.
16. kafli
Það var eitthvert haust að
heimtur voru illar á fé manna og var Glúmi vant margra geldinga.
Þá mælti Glúmur við Þjóstólf:
"Gakk þú á fjall með húskörlum mínum og vitið ef þér finnið nokkuð af
sauðum."
"Ekki eru mér fjárleitir
hentar," sagði Þjóstólfur, "enda er það ærið eitt til að eg vil eigi
ganga í spor þrælum þínum. Og far þú sjálfur og mun eg þá fara með þér."
Þetta varð þeim að orðum
mjög.
Hallgerður sat úti og var á
veður gott.
Glúmur gekk að henni og
mælti: "Illt höfum við Þjóstólfur nú saman átt og munum við skamma stund
saman búa" og sagði henni allt það er þeir höfðu við ræðst.
Hallgerður mælti þá eftir
Þjóstólfi og varð þeim þá mjög að orðum.
Glúmur drap til hennar hendi
sinni og mælti: "Ekki deili eg við þig lengur" og gekk síðan í braut.
Hún unni honum mikið og mátti eigi stilla sig og grét hástöfum.
Þjóstólfur gekk að henni og
mælti: "Sárt ert þú leikin og skyldi eigi svo oft."
"Ekki skalt þú þessa
hefna," segir hún, "og engan hlut í eiga hversu sem með okkur
fer."
Hann gekk í braut og glotti
við.
17. kafli
Glúmur kvaddi menn til ferðar
með sér og bjóst Þjóstólfur með Glúmi. Þeir fóru upp Reykjardal hinn syðra og
upp hjá Baugagili og upp til Þverfells og skipta þar liðinu og fóru sumir í
Skorradalsleit en suma sendi hann suður til Súlna og fundu þeir allir fjölda
fjár. Svo kom að þeir voru tveir sér, Glúmur og Þjóstólfur. Þeir gengu suður
frá Þverfelli og fundu þar sauði skjarra og eltu sunnan að fjallinu. Komust
sauðirnir upp á fjallið fyrir þeim. Ámælti þá hvor þeirra öðrum og mælti
Þjóstólfur við Glúm að hann mundi til engis hafa afla annars en brölta á maga
Hallgerði.
Glúmur mælti: "Án er
illt gengi nema heiman hafi. Eg skal taka hæðiyrði af þér þar sem þú ert þræll
fastur á fótum."
Þjóstólfur mælti: "Það
skalt þú eiga til að segja að eg er eigi þræll því að eg skal hvergi undan þér
láta."
Þá reiddist Glúmur og hjó til
Þjóstólfs með saxi en hann brá við öxinni og kom í fetann og beit í ofan um tvo
fingur. Þjóstólfur hjó þegar með öxinni í móti og kom á öxlina og tók í sundur
axlarbeinið og viðbeinað og blæddi inn úr sárinu. Glúmur greip til Þjóstólfs
annarri hendi svo fast að hann féll við. Glúmur mátti ekki halda því að dauðinn
fór á hann. Þjóstólfur huldi hræ hans með grjóti og tók af honum gullhring.
Hann gekk þar til er hann kom
til Varmalækjar. Hallgerður var úti og sá að blóðug var öxin. Hann kastaði til
hennar gullhringinum.
Hún mælti: "Hvað segir
þú tíðinda eða hví er öx þin blóðug?"
Hann svaraði: "Eigi veit
eg hversu þér mun þykja. Eg segi þér víg Glúms."
"Þú munt því
valda," segir hún.
"Svo er," segir
hann.
Hún hló að og mælti:
"Eigi ert þú engi í leikinum."
Hann mælti: "Hvert ráð
sérðu fyrir mér nú?"
"Far þú til Hrúts
föðurbróður míns," segir hún, "og sjái hann fyrir þér."
"Eigi veit eg,"
sagði Þjóstólfur, "hvort þetta er heilræði en þó skal eg þínum ráðum fram
fara um þetta mál."
Tók hann þá hest sinn og reið
á braut og lýkur eigi ferð sinni fyrr en hann kom á Hrútsstaði um nótt. Hann
bindur hest sinn á bak húsum, gengur síðan að dyrum og lýstur á högg mikið. Eftir það gengur hann norður um húsin. Hrútur
hafði vakað og kippti upphávum skóm á fætur sér, fór í treyju og tók sverð í
hönd sér. Hann vafði möttli um vinstri hönd sér og upp um handlegginn.
Menn vöknuðu við er hann gekk út. Hann gekk norður um vegginn og sá þar mann
mikinn og kenndi að þar var Þjóstólfur. Hrútur spurði tíðinda.
"Eg segi þér víg
Glúms," segir Þjóstólfur.
"Hver veldur því?"
segir Hrútur.
"Eg vó hann," segir
Þjóstólfur.
"Hví reiðst þú
hingað?" segir Hrútur.
"Hallgerður sendi mig
til þín," segir Þjóstólfur.
"Eigi veldur hún þessu
þá," segir Hrútur og brá sverðinu.
Þetta sá Þjóstólfur og vill
eigi verða seinni og höggur þegar til Hrúts. Hrútur brást skjótt undan högginu
og laust vinstri hendi utan á hlýr öxinni svo snart að öxin hraut úr hendi
Þjóstólfi. Hrútur hjó með hægri hendi á fót Þjóstólfs fyrir ofan knéið og hljóp
að honum við og hratt honum. Féll Þjóstólfur á bak aftur en fóturinn loddi. Þá
hjó Hrútur annað högg hann til bana og kom það í höfuðið. Þá komu út húskarlar
Hrúts og sáu verksummerki. Hrútur lét færa Þjóstólf í braut og hylja hræ hans.
Síðan fór Hrútur að finna Höskuld og sagði honum víg Glúms og svo Þjóstólfs.
Honum þótti skaði mikill að um Glúm en þakkaði honum vígið Þjóstólfs.
Nú er þar til máls að taka að
Þórarinn Ragabróðir spyr lát Glúms bróður síns. Ríður hann við tólfta mann
vestur til Dala og kom á Höskuldsstaði. Höskuldur tók báðum höndum við honum og
er hann þar um nóttina. Höskuldur sendir þegar eftir Hrúti að hann kæmi þangað.
Hann fór þegar. Og um daginn eftir
töluðu þeir margt um látið Glúms.
Þórarinn mælti: "Vilt þú nokkuru bæta mér
bróðurinn því að eg hefi mikils misst?"
Höskuldur svaraði: "Eigi drap eg bróður þinn
og eigi réð dóttir mín honum bana en þegar Hrútur vissi þá drap hann
Þjóstólf."
Þá þagnaði Þórarinn og þótti
vandast málið.
Hrútur mælti: "Gerum við
góða ferð hans. Hann hefir víst mikils misst og mun það vel fyrir mælast og gefum
honum gjafar og sé hann vinur okkar alla ævi síðan."
Og fór þetta fram að þeir
gáfu honum gjafar bræður og reið hann suður aftur.
Þau Hallgerður skiptu um
bústaði um vorið og fór hún suður á Laugarnes en hann til Varmalækjar. Og er
Þórarinn úr sögunni.
18. kafli
Nú er þar til máls að taka að
Mörður gígja tók sótt og andaðist og þótti það skaði mikill. Unnur dóttir hans
tók fé allt eftir hann. Hún var þá ógefin í annað sinn. Hún var örlynd mjög og
óforsjál um fjárhagi og tók að eyðast fyrir henni lausaféið svo að hún átti
ekki nema lönd og gripi.
19. kafli
Gunnar hét maður. Hann var
frændi Unnar. Rannveig hét móður hans og var Sigfúsdóttir Sighvatssonar hins
rauða. Hann var veginn við Sandhólaferju. Faðir Gunnars hét Hámundur og var
sonur Gunnars Baugssonar. Við þann
er kennt Gunnarsholt. Móðir Hámundar hét Hrafnhildur. Hún var Stórólfsdóttir
Hængssonar. Stórólfur var bróðir Hrafns lögsögumanns. Sonur Stórólfs var
Ormur hinn sterki.
Gunnar Hámundarson bjó að
Hlíðarenda í Fljótshlíð. Hann var mikill maður vexti og sterkur og allra manna
best vígur. Hann hjó báðum höndum og skaut ef hann vildi og hann vó svo skjótt
með sverði að þrjú þóttu á lofti að sjá. Hann skaut manna best af boga og hæfði
allt það er hann skaut til. Hann hljóp meir en hæð sína með öllum herklæðum og
eigi skemmra aftur en fram fyrir sig. Hann var syndur sem selur. Og eigi var sá
leikur að nokkur þyrfti við hann að keppa og hefir svo verið sagt að engi væri
hans jafningi. Hann var vænn að yfirliti og ljóslitaður, rétt nefið og hafið
upp í framanvert, bláeygur og snareygur og rjóður í kinnum, hárið mikið, gult,
og fór vel. Manna var hann kurteisastur, harðger í öllu, ráðhollur og góðgjarn,
mildur og stilltur vel, vinfastur og vinavandur. Hann var vel auðigur að fé.
Bróðir hans hét Kolskeggur.
Hann var mikill maður og sterkur, drengur góður og öruggur í öllu. Annar bróðir
hans hét Hjörtur. Hann var þá í barnæsku. Ormur skógarnef var bróðir Gunnars
laungetinn og er hann ekki við þessa sögu. Arngunnur hét systir Gunnars. Hana
átti Hróar Tungugoði sonur Una hins óborna Garðarssonar. Sá fann Ísland. Sonur
Arngunnar var Hámundur halti er bjó á Hámundarstöðum.
20. kafli
Njáll hét maður. Hann var
sonur Þorgeirs gollnis Þórólfssonar. Móðir Njáls hét Ásgerður. Hún var dóttir
Áskels hersis hins ómálga. Hún hafði komið út hingað til Íslands og numið land
fyrir austan Markarfljót milli Öldusteins og Seljalandsmúla. Sonur hennar var
Holta-Þórir faðir þeirra Þorleifs kráks, er Skógverjar eru frá komnir, og
Þorgríms hins mikla og Þorgeirs skorargeirs.
Njáll bjó að Bergþórshvoli í
Landeyjum. Annað bú átti hann í Þórólfsfelli. Njáll var vel auðigur að fé og
vænn maður yfirlits en sá hlutur var á ráði hans að honum óx eigi skegg. Hann
var lögmaður svo mikill að engi var hans jafningi, vitur og forspár, heilráður
og góðgjarn og varð allt að ráði það er hann réð mönnum, hógvær og drenglyndur,
langsýnn og langminnigur. Hann leysti hvers manns vandræði er á hans fund kom.
Bergþóra hét kona hans. Hún
var Skarphéðinsdóttir, kvenskörungur mikill og drengur góður og nokkuð
skaphörð. Þau Njáll áttu sex börn, þrjá sonu og þrjár dætur og koma þeir allir
við þessa sögu.
21. kafli
Nú er þar til máls að taka er
Unnur hefir látið allt lausaféið. Hún gerði heiman ferð sína til Hlíðarenda og
tók Gunnar vel við frændkonu sinni og var hún þar um nóttina. Um daginn eftir
sátu þau úti og töluðu. Kom þar niður tal hennar að hún sagði honum hversu
þungt henni féll til fjár.
"Illa er það,"
sagði hann.
"Hver úrræði vilt þú
veita mér?" sagði hún.
Hann svaraði: "Haf þú fé
svo mikið sem þú þarft er eg á á leigustöðum."
"Eigi vil eg það,"
segir hún, "að eyða fé þínu."
"Hversu vilt þú
þá?" segir hann.
"Eg vil að þú heimtir fé
mitt undan Hrúti," segir hún.
"Eigi þykir mér það
vænt," segir hann, "þar er faðir þinn fékk eigi heimt og var hann
lögmaður mikill en eg kann lítt til laga."
Hún svaraði: "Meir
þreytti Hrútur það með kappi en með lögum en faðir minn var gamall og þótti
mönnum því það ráð að þeir þreyttu það ekki með sér. Enda er sá engi minn
frændi að gangi í þetta mál ef þú hefir eigi þrek til."
"Þora mun eg,"
segir hann, "að heimta fé þetta en eigi veit eg hversu upp skal taka
málið."
Hún svaraði: "Far þú og
finn Njál að Bergþórshvoli. Hann mun ráðin kunna til að leggja. Er hann og
vinur þinn mikill."
"Von er mér að hann ráði mér heilt sem öllum
öðrum," segir hann.
Svo lauk með þeim að Gunnar tók við málinu en fékk
henni fé til bús síns sem hún þurfti og fór hún heim síðan.
Gunnar ríður nú að finna Njál og tók hann við honum
vel og gengu þegar á tal.
Gunnar mælti: "Heilræði
er eg kominn að sækja að þér."
Njáll svaraði: "Margir
eru þess vinir mínir maklegir að eg leggi til það sem heilt er en ætla eg að eg
leggi mesta stund á við þig."
Gunnar mælti: "Eg vil
gera þér kunnigt að eg hefi tekið fjárheimtu af Unni á Hrút."
"Það er mikið
vandamál," segir Njáll, "og mikil hætta hversu fer. En þó mun eg til
leggja með þér það er mér þykir vænst og mun það endast ef þú bregður hvergi af
en líf þitt er í hættu ef þú gerir eigi svo."
"Hvergi skal eg af
bregða," segir Gunnar.
Þá þagði Njáll nokkura stund
og mælti síðan: "Hugsað hefi eg málið og mun það duga."
22. kafli
"Nú skalt þú ríða heiman
við hinn þriðja mann. Skalt þú hafa voskufl ystan klæða og undir
söluvoðarkyrtil mórendan. Þar skalt þú hafa undir hin góðu klæði þín og
taparöxi í hendi. Tvo hesta skal hafa hver yðvar, aðra feita en aðra magra. Þú
skalt hafa héðan smíði. Þér skuluð ríða þegar á morgun og er þér komið yfir
Hvítá vestur þá skalt þú láta slota hatt þinn mjög. Þá mun eftir spurt hver sá
sé hinn mikli maður. Förunautar þínir skulu segja að þar sé Kaupa-Héðinn hinn
mikli, eyfirskur maður, og fari með smíði. Hann er maður skapillur og
margmæltur, þykist einn vita allt. Hann rekur aftur kaup sín oftlega og flýgur
á menn þegar er eigi er svo gert sem hann vill. Þú skalt ríða vestur til
Borgarfjarðar og láta þá falt hvarvetna smíðið og reka aftur kaupin mjög. Þá
mun sá orðrómur á leggjast að Kaupa-Héðinn sé manna verstur viðfangs og síst sé
logið frá honum.
Þú skalt ríða til
Norðurárdals og svo til Hrútafjarðar og til Laxárdals og til þess er þú kemur á
Höskuldsstaði. Þar skalt þú vera um nótt og sitja utarlega og drepa niður
höfði. Höskuldur mun mæla að ekki skuli eiga við Kaupa-Héðin og segja að hann
sé óvinveittur. Síðan munt þú fara í braut um morguninn eftir og koma á næsta
bæ hjá Hrútsstöðum. Þar skalt þú láta falt smíðið og hafa það uppi af er verst
er og berja í brestina. Bóndi mun að hyggja og mun hann finna brestina. Þú skalt
hnykkja af honum og mæla illt við hann.
Hann mun segja að það sé von
að þú gefist honum eigi vel "er þú gefst öllum öðrum illa."
Þá skalt þú fljúga á hann þó
að þú sért því óvanur og still þó aflinu að þú verðir eigi kenndur og ekki sé
grunað. Þá mun sendur maður á Hrútsstaði að segja Hrúti að betra mun að skilja
ykkur. Hann mun þegar senda eftir þér en þú skalt og þegar fara. Þér mun skipað
á hinn óæðra bekk gegnt öndugi Hrúts. Þú skalt kveðja hann. Hann mun vel taka
þér og spyrja hvort þú sért norðlenskur. Þú skalt segja að þú sért eyfirskur
maður. Hann mun spyrja hvort þar séu allmargir ágætismenn.
"Ærinn hafa þeir
klækiskap," skalt þú segja.
"Er þér kunnigt til
Reykjardals?" mun hann segja.
"Kunnigt er mér um allt
Ísland," skalt þú segja.
"Eru í Reykjardal kappar
miklir?" mun hann segja.
"Þjófar eru þar og
illmenni," skalt þú segja.
Þá mun Hrútur hlæja og þykja
gaman að. Munuð þið þá tala um menn í Austfirðingafjórðungi og skalt þú öllum
leggja nokkuð ámæli. Tal ykkart mun koma á Rangárvöllu. Þá skalt þú segja að
þar sé síst mannval síðan Mörður gígja var dauður. Hann mun spyrja hvað þú
færir til þess að eigi megi koma maður í stað hans. Þú skalt því svara að hann
var maður svo vitur og svo mikill lagamaður og málafylgju að aldrei varð á um hans
höfðingskap.
Hann mun spyrja hvort þér sé
nokkuð af kunnigt "hversu fór með okkur?"
"Kunnigt er mér,"
skalt þú segja, "að hann tók af þér konuna en þú hafðir ekki."
Þá mun Hrútur svara:
"Þótti þér ekki á verða fyrir honum er hann náði eigi fénu en bjó þó til
málið?"
"Hér má eg þér vel
svara," skalt þú segja, "þú skoraðir honum til einvígis en hann var
maður gamall og réðu vinir hans honum að hann berðist eigi við þig og drap svo
niður málinu."
"Mælti eg það," mun
Hrútur segja, "og þótti það heimskum mönnum sem lög væri en málið mátti þó
upp taka á öðru þingi ef hann hefði þrek til haft."
"Veit eg það,"
skalt þú segja.
Hann mun þá spyrja þig:
"Kannt þú nokkuð í lögum?"
"Kunna þótti eg norður
þar," skalt þú segja, "en þó munt þú segja mér verða hversu málið
skal upp taka."
Hrútur mun mæla: "Að
hverju máli vilt þú spyrja?"
"Að því," skalt þú
segja, "er mig skiptir engu, hversu upp skal taka fjárheimtuna
Unnar."
"Stefna skal málinu svo
að eg heyri á eða að lögheimili mínu," mun Hrútur segja.
"Stefn þú nú þá,"
skalt þú segja, "en eg mun í annað sinn."
Þá mun Hrútur stefna og skalt
þú að því vandlega hyggja hver atkvæði hann hefir. Þá mun Hrútur mæla að þú
skulir stefna. Þú skalt þá stefna og skal rangt svo að eigi sé meir en annað
hvert orð rétt. Þá mun Hrútur hlæja og mun hann þá ekki gruna en mæla þó að
fátt sé rétt í. Þú skalt kenna förunautum þínum að þeir hafi glapið þig. Þá
skalt þú biðja Hrút að hann mæli fyrir þér og að hann leyfi að þú stefnir í
annað sinn og mælir eftir honum. Hann mun leyfa þér og stefna sjálfur málinu.
Þú skalt þegar stefna eftir og mæla þá rétt og spyrja Hrút hvort rétt sé
stefnt. Hann mun segja þér að eigi megi það ónýta.
Þá skalt þú mæla hátt svo að
förunautar þínir heyri: "Stefni eg handseldri sök Unnar
Marðardóttur."
En þegar er menn eru sofnaðir
þá skuluð þér upp standa og fara hljóðlega, ganga út og bera söðla yðra í haga
til hinna feitu hestanna og ríða þeim en láta hina eftir. Þér skuluð ríða upp
úr búfjárhögum og vera þar þrjár nætur. Svo nokkuru mun yðvar leita farið
lengi. Síðan skuluð þér ríða heim suður og ríða um nætur en liggja um daga. En
vér munum fara til þings og veita að málunum."
Gunnar þakkaði honum og reið
heim fyrst.
23. kafli
Gunnar reið heiman tveim
nóttum síðar og tveir menn með honum. Þeir riðu þar til er þeir komu á
Bláskógaheiði. Þar riðu menn í móti þeim og spurðu hver sá væri hinn mikli
maður er svo lítt var sýndur. Förunautar hans sögðu að þar var Kaupa-Héðin hinn
mikli.
Þeir svöruðu: "Eigi er
þar hins verra eftir von er slíkur fer fyrir."
Héðinn lét þegar sem hann
mundi á þá ráða en þó fóru hvorir leið sína.
Gunnar fór með öllu sem fyrir
hann var lagt og var á Höskuldsstöðum um nótt og fór þaðan ofan eftir dal og
kom á næsta bæ hjá Hrútsstöðum. Þar lét hann falt smíðið og seldi þrjá
smíðisgripi. Bóndi fann að á var smíðinu og kallaði fals í. Héðinn réð þegar á
bónda. Það var sagt Hrúti og sendi hann eftir Héðni. Hann fór þegar á fund
Hrúts og hafði þar góðar viðtökur. Skipaði Hrútur honum gegnt sér og fór orðtak
þeirra sem Njáll gat til. Þá sagði Hrútur honum hversu upp skyldi taka málið og
stefndi fyrir málinu en hann mælti eftir og stefndi rangt. Þá brosti Hrútur og
grunaði ekki. Þá mælti hann að Hrútur skyldi stefna í annað sinn. Svo gerði
Hrútur. Héðinn stefndi þá í annað sinn og stefndi þá rétt og vitnaði undir
förunauta sína að hann stefndi handseldri sök Unnar Marðardóttur. Hann fór til
svefns um kveldið sem aðrir menn.
En er Hrútur var sofnaður
tóku þeir föng sín og höfðu til hesta sinna, ríða síðan yfir ána og svo fram
Hjarðarholts megin þar til er þraut dalinn og eru þar í fjöllunum millum og
Haukadals og komu sér þar er eigi mátti finna þá fyrr en riðið væri að þeim.
Söðlar þeirra og vopn höfðu
varðveitt verið í smiðju svo að þeir máttu sjálfir út ná. Urðu því engir menn
varir við brautferð þeirra.
Þessa nótt öndverða vaknaði
Höskuldur á Höskuldsstöðum og vakti upp alla heimamenn sína.
"Eg vil segja yður draum
minn," segir hann. "Eg þóttist sjá bjarndýri mikið ganga út úr
húsunum og vissi eg að eigi fannst þessa dýrs maki og fylgdu því húnar tveir og
vildu þeir vel dýrinu. Það stefndi til Hrútsstaða og gekk þar inn í húsin.
Síðan vaknaði eg. Nú vil eg spyrja yður hvað þér sáuð til hins mikla
manns."
Einn maður svaraði honum:
"Það sá eg að fram undan ermi hans kom eitt gullhlað og rautt klæði en á
hinni hægri hendi hafði hann gullhring."
Höskuldur mælti: "Þetta
er engis manns fylgja nema Gunnars frá Hlíðarenda. Þykist eg nú sjá allt eftir
og skulum vér nú ríða á Hrútsstaði."
Þeir gengu út allir og fóru á
Hrútsstaði og drápu á dyr en maður gekk út og lauk upp hurðinni. Þeir gengu
þegar inn. Hrútur lá í lokrekkju og spyr hverjir komnir eru. Höskuldur sagði
til sín og spurði hvað þar væri gesta.
Hann svarar: "Hér er
Kaupa-Héðinn."
Höskuldur mælti:
"Breiðari mun um bakið því að eg get hér verið hafa Gunnar frá
Hlíðarenda."
"Þá mun hér
slægleiksmunur orðið hafa," segir Hrútur.
"Hvað er að orðið?"
segir Höskuldur.
"Eg sagði honum hversu
upp skyldi taka fjárheimtuna Unnar og stefndi eg mér sjálfur en hann stefndi
eftir. Og mun hann þann hafa málatilbúnaðinn og er sá réttur."
"Mikill er viskumunur
orðinn," segir Höskuldur, "og mun eigi Gunnar einn hafa um ráðið.
Njáll mun þessi ráð hafa til lagið því að engi er hans maki að viti."
Þeir leita nú Héðins og er
hann allur í brautu. Þeir söfnuðu liði og leituðu þeirra þrjá daga og þrjár
nætur og fundu þá eigi.
Gunnar reið suður af fjallinu
til Haukadals og fyrir austan skarð og norður til Holtavörðuheiðar og létti eigi
fyrr en hann kom heim. Hann fann Njál og sagði honum að vel hafði dugað ráðið.
24. kafli
Gunnar reið til alþingis.
Þeir Hrútur og Höskuldur riðu og til þings og fjölmenntu mjög. Gunnar sækir mál
þetta á þingi. Hann kvaddi búa til máls og höfðu þeir Hrútur ætlað að veita
honum atgöngu en treystust eigi. Síðan gekk Gunnar að Breiðfirðingadómi og bauð
Hrúti að hlýða til eiðspjalls síns og framsögu sakar og sóknargagna allra.
Eftir það vann hann eið og sagði fram sök. Síðan lét hann bera stefnuvætti, þá sakartökuvætti.
Njáll var eigi við dóminn.
Nú sótti Gunnar málið þar til
er hann bauð til varna. Hrútur nefndi votta og sagði ónýtt málið og sagði hann
misst hafa þeirra þriggja vottorða er í dóminn áttu að koma. Eitt, það er nefnt
var fyrir rekkjustokki, annað fyrir karldyrum, þriðja að Lögbergi. Njáll var þá
kominn til dómsins og kveðst borgið munu geta málinu og sökinni ef þeir vildu
það þreyta.
"Eigi vil eg það,"
sagði Gunnar, "eg skal gera Hrúti slíkan sem hann gerði Merði frænda
mínum. Eða hvort eru þeir bræður svo nær, Hrútur og Höskuldur, að þeir megi
heyra mál mitt?"
"Heyra megum við,"
segir Hrútur, "eða hvað vilt þú?"
Gunnar mælti: "Þeir séu
heyrandi vottar er hjá eru að eg skora þér Hrútur til hólmgöngu og skalt þú
berjast við mig í dag í hólmi þeim er hér er í Öxará. En ef þú vilt eigi
berjast þá greið þú út féið allt í dag."
Síðan gekk Gunnar frá dóminum
með öllu liði sínu. Þeir Höskuldur og Hrútur gengu og heim og var málið hvorki
sótt né varið þaðan af.
Hrútur mælti er hann kom inn
í búðina: "Það hefir mig aldrei hent að sá nokkur maður hafi mér einvígi
boðið að eg hafi undan gengið."
"Það munt þú ætla að
berjast," segir Höskuldur, "en eigi skal það ef eg ræð því að eigi
fer þér nær við Gunnar en Merði mundi við þig og skulum við heldur greiða féið
báðir saman Gunnari."
Síðan spurðu þeir bræður
bændur hvað þeir vildu til leggja. Þeir svöruðu allir að þeir mundu til leggja
slíkt sem Hrútur vildi.
"Göngum þá," segir
Höskuldur, "til búðar Gunnars og greiðum af höndum féið."
Þeir gengu til búðar Gunnars
og kölluðu hann út. Hann gekk út í búðardyrnar og menn með honum.
Höskuldur mælti: "Nú er
að taka við fénu."
Gunnar mælti: "Greiðið
nú þá. Eg er búinn við að taka."
Þeir greiddu féið allt vel af
hendi.
Þá mælti Höskuldur: "Njót
þú nú sem þú hefir aflað."
"Vel munum vér njóta því
að sönn er fjárheimtan," segir Gunnar.
"Illa mun þér launað
vera." segir Hrútur.
"Fer það sem má."
segir Gunnar.
Þeir Höskuldur gengu heim til
búðar sinnar og var honum mikið í skapi og mælti til Hrúts: "Hvort mun
Gunnari aldrei hefnast þessi ójafnaður?"
"Eigi mun það,"
segir Hrútur, "hefnast mun honum víst og mun oss verða í því engi hefnd né
frami. En þó er það líkast að hann snúist til vorrar ættar um vinfengið."
Hættu þeir þá talinu.
Gunnar sýndi Njáli féið.
Njáll mælti: "Vel hefur
nú vegnað," sagði hann.
"Og hefir af þér til
leitt," segir Gunnar.
Menn riðu heim af þingi og
hafði Gunnar hina mestu sæmd af málinu.
Gunnar færði féið allt Unni
og vildi hann ekki af hafa en kveðst meira heimta þykjast eiga að henni síðan
eða að hennar frændum en að öðrum mönnum. Hún kvað það svo vera.
25. kafli
Valgarður hét maður. Hann bjó
að Hofi við Rangá. Hann var sonur Jörundar goða, Hrafnssonar hins heimska,
Valgarðssonar, Ævarssonar, Vémundarsonar orðlokars, Þórólfssonar voganefs,
Þrándarsonar hins gamla, Haraldssonar hilditannar, Hrærekssonar slöngvanbauga.
Móðir Haralds hilditannar var Auður dóttir Ívars víðfaðma Hálfdanarsonar hins
snjalla. Bróðir Valgarðs hins grá var Úlfur aurgoði er Oddaverjar eru frá
komnir. Úlfur aurgoði var faðir Svarts, föður Löðmundar, föður Sigfúss, föður
Sæmundar hins fróða, en frá Valgarði er kominn Kolbeinn ungi.
Þeir bræður, Úlfur aurgoði og
Valgarður hinn grái, fóru að biðja Unnar og giftist hún Valgarði án ráði allra
frænda sinna en það þótti Gunnari illa og Njáli og mörgum öðrum því að
Valgarður var maður grályndur og óvinsæll.
Þau gátu sér son er Mörður
hét og er sá lengi við þessa sögu. Þá er hann var fullkominn að aldri var hann
illa til frænda sinna og einna verst til Gunnars. Hann var slægur í skapferðum
og illgjarn í ráðum.
Nú skal nefna sonu Njáls.
Skarphéðinn hét hinn elsti. Hann var mikill maður vexti og styrkur, vígur vel,
syndur sem selur, manna fóthvatastur, skjótráður og öruggur, gagnorður og
skjótorður en þó löngum vel stilltur. Hann var jarpur á hár og sveipur í
hárinu, eygður vel, fölleitur og skarpleitur, liður á nefi og lá hátt
tanngarðurinn, munnljótur nokkuð og þó manna hermannlegastur.
Grímur hét annar sonur Njáls.
Hann var svartur á hár og þó fríðari sýnum en Skarphéðinn og var bæði mikill og
sterkur.
Helgi hét hinn þriðji sonur
Njáls. Hann var fríður maður sýnum og hærður vel. Hann var sterkur maður og vel
vígur. Hann var vitur maður og stilltur vel. Allir voru þeir ókvongaðir synir
Njáls.
Höskuldur hét hinn fjórði
sonur Njáls. Hann var laungetinn. Móðir hans hét Hróðný og var Höskuldsdóttir,
systir Ingjalds frá Keldum.
Njáll spurði Skarphéðinn ef
hann vildi kvongast. Hann bað föður
sinn ráða. Bað Njáll þá til handa honum Þórhildar dóttur Hrafns úr Þórólfsfelli
og átti hann því þar annað bú síðan. Skarphéðinn fékk Þórhildar og var þó
vistum með föður sínum. Til handa Grími bað hann Ástríðar af Djúpárbakka. Hún
var ekkja og auðig mjög. Grímur fékk hennar og var þó með Njáli.
26. kafli
Ásgrímur hét maður. Hann var
Elliða-Grímsson, Ásgrímssonar, Öndóttssonar kráku. Móðir hans hét Jórunn og var
Teitsdóttir Ketilbjarnarsonar hins gamla frá Mosfelli. Móðir Teits var Helga
dóttir Þórðar skeggja, Hrappssonar, Bjarnarsonar bunu. Móðir Jórunnar var Ólöf
dóttir Böðvars hersis Víkinga-Kárasonar. Bróðir Ásgríms Elliða-Grímssonar hét
Sigfús. Hans dóttir var Þorgerður móðir Sigfúss, föður Sæmundar hins fróða.
Gaukur Trandilsson var
fóstbróðir Ásgríms er fræknastur maður hefir verið og best að sér ger. Þar varð
illa með þeim Ásgrími því að Ásgrímur varð banamaður Gauks.
Ásgrímur átti tvo sonu og hét
hvortveggji Þórhallur. Þeir voru báðir efnilegir menn. Grímur hét og sonur
Ásgríms en Þórhalla dóttir. Hún var kvenna fríðust og kurteisust og vel að sér ger
í öllu.
Njáll kom að máli vil Helga
son sinn og mælti: "Hugað hefi eg þér kvonfang frændi ef þú vilt að mínu
ráði gera."
"Það vil eg víst,"
segir hann, "því að eg veit að bæði er þú vilt vel enda kannt þú vel eða
hvar hefir þú á stofnað?"
Njáll svaraði: "Við
skulum biðja dóttur Ásgríms Elliða-Grímssonar því að sá er kostur bestur."
27. kafli
Litlu síðar fara þeir og báðu
konunnar, riðu vestur yfir Þjórsá og fóru þar til er þeir komu í Tungu.
Ásgrímur var heima og tók við þeim vel og voru þar um nóttina. En um daginn gengu þeir á tal. Þá vakti
Njáll til um bónorðið og bað Þórhöllu til handa Helga syni sínum. Ásgrímur
svaraði því máli vel og sagði eigi þá menn vera að hann væri fúsari við að
kaupa en þá. Síðan töluðu þeir um málið og lauk svo að Ásgrímur festi Helga
dóttur sína og var kveðið á brúðlaupsstefnu. Gunnar var að veislu þessi og
margir aðrir hinu bestu menn.
En eftir veisluna bauð Njáll
Þórhalli Ásgrímssyni til fósturs og fór hann til hans og var með honum lengi
síðan. Hann unni meira Njáli en föður sínum. Njáll kenndi honum lög svo að hann
varð mestur lögmaður á Íslandi.
28. kafli
Skip kom út í Arnarbælisós og
stýrði skipinu Hallvarður hvíti, víkverskur maður. Hann fór til vistar til
Hlíðarenda og var með Gunnari um veturinn og bað hann jafnan að hann skyldi
fara utan. Gunnar talaði fátt um og tók á engu ólíklega. Og um vorið fór hann
til Bergþórshvols og spurði Njál hve ráðlegt honum þætti að hann færi utan.
"Ráðlegt þykir mér
það," segir Njáll, "munt þú þér þar vel koma sem þú ert."
"Vilt þú nokkuð taka við
fjárfari mínu," segir Gunnar, "meðan eg er í brautu því að eg vil að
Kolskeggur bróðir minn fari með mér en eg vildi að þú sæir um búið meðan með
móður minni."
"Ekki skal það við
nema," segir Njáll, "allt skal eg styðja þig um það er þú vilt."
"Vel mun þér fara,"
segir Gunnar.
Ríður hann þá heim.
Austmaður kom enn á tal við
Gunnar að hann mundi utan fara. Gunnar spyr ef hann hefði nokkuð siglt til
annarra landa.
Hann kveðst siglt hafa til
landa þeirra allra er voru meðal Noregs og Garðaríkis "og svo hafi eg
siglt til Bjarmalands."
"Vilt þú sigla með mér í
Austurveg?" segir Gunnar.
"Það vil eg víst,"
segir hann.
Síðan réð Gunnar utanferð
sína með honum. Njáll tók við öllu fjárfari Gunnars.
29. kafli
Gunnar fór utan og Kolskeggur
bróðir hans með honum. Þeir sigldu til Túnbergs og voru þar um veturinn. Þá var
orðið höfðingjaskipti í Noregi. Var þá dauður Haraldur gráfeldur og Gunnhildur.
Réð þá ríki Hákon jarl Sigurðarson, Hákonarsonar, Grjótgarðssonar. Móðir hans
hét Bergljót og var dóttir Þóris jarls þegjanda. Móðir hennar hét Ólöf árbót og
var dóttir Haralds hins hárfagra.
Hallvarður spurði Gunnar ef
hann vildi ráðast til Hákonar jarls.
"Eigi vil eg það,"
segir Gunnar. "Átt þú nokkuð langskip?" segir Gunnar.
"Á eg tvö," segir
Hallvarður.
"Þá vildi eg að við
færum í hernað," segir Gunnar, "og réðum menn til með okkur."
"Það vil eg þá,"
segir Hallvarður.
Síðan fóru þeir til
Víkurinnar og tóku þar skip tvö og bjuggust þaðan. Þeim varð gott til manna því
að mikil ágæti voru sögð frá Gunnari.
"Hvert vilt þú nú
halda?" segir Gunnar.
"Fyrst suður í
Hísing," segir Hallvarður, "á fund Ölvis frænda míns."
"Hvað vilt þú
honum?" segir Gunnar.
"Hann er drengur
góður," segir Hallvarður, "og mun hann fá okkur nokkurn styrk til
ferðarinnar."
"Förum við þangað
þá," segir Gunnar.
Þegar er þeir voru búnir
héldu þeir austur til Hísingar og höfðu þar góðar viðtökur.
Skamma stund hafði Gunnar þar
verið áður Ölvi fannst mikið um hann. Ölvir spurði um ferð hans. Hallvarður segir að Gunnar vill í hernað og afla
sér fjár.
"Það er engi ætlan," segir Ölvir,
"þar sem þið hafið lið ekki."
"Nú mátt þú og við
auka," segir Hallvarður.
"Eg ætla gott að styrkja
Gunnar að nokkuru," segir Ölvir, "og þó að þú eigir frændsemi að
telja við mig þá þykir mér þó meiri slægur til hans."
"Hvað vilt þú nú þá til
leggja?" segir Hallvarður.
"Langskip tvö, annað
tvítugsessu en annað þrítugsessu," segir Ölvir.
"Hverjir skulu þar
á?" segir Hallvarður.
"Eg skal skipa húskörlum
mínum annað en bóndum annað. En þó hefi eg spurt að ófriður er kominn í elfina
og veit eg eigi hvort þið komist í braut."
"Hverjir eru þar
komnir?" segir Hallvarður.
"Bræður tveir,"
segir Ölvir, "heitir annar Vandill en annar Karl, synir Snæúlfs hins gamla
úr Gautlandi austan."
Hallvarður segir Gunnari að
Ölvir hafði lagið til skipin. Gunnar varð glaður við það. Þeir bjuggu ferð sína
þaðan og er þeir voru búnir gengu þeir fyrir Ölvi og þökkuðu honum en hann bað
þá vel fara og varlega fyrir þeim bræðrum.
30. kafli
Gunnar hélt út úr elfinni og
voru þeir Kolskeggur á einu skipi báðir en Hallvarður var á öðru skipi. Þeir
sjá nú skipin fyrir sér.
Þá mælti Gunnar: "Verum
vér að nokkuru við búnir ef þeir leita á oss en eigum ekki við þá
ellegar."
Þeir gerðu svo og bjuggust
við á skipum sínum. Hinir skildu í sundur skipin og gerðu hlið í millum
skipanna. Gunnar fór fram í milli skipanna. Vandill þreif upp stafnljá og
kastaði á meðal skipanna og í skipið Gunnars og dró þegar að sér. Ölvir hafði
gefið Gunnari sverð gott. Gunnar brá nú sverðinu og hafði hann eigi sett á sig
hjálminn, hleypur þegar á saxið á skip Vandils og hjó þegar mann til bana. Karl
lagði að öðrum megin sínu skipi og skaut spjóti um þvert skip Gunnars og
stefndi á hann miðjan. Gunnar sér þetta og snerist svo skjótt að eigi mátti
auga á festa og tók hinni vinstri hendi spjótið og skaut á skip til Karls og
hafði sá bana er fyrir varð. Kolskeggur þreif upp akkeri og kastar á skip Karls
og kom fleinninn í borðið og gekk út í gegnum og féll þar inn sær kolblár og
hljópu menn allir af skeiðinni og á önnur skipin. Gunnar hljóp nú aftur á sitt
skip.
Þá kom að Hallvarður og tókst
nú bardagi mikill. Sáu þeir nú að formaður var öruggur og gerði hver að slíkt
er mátti. Gunnar gerði ýmist að hann hjó eða skaut og hafði margur maður bana
fyrir honum. Kolskeggur fylgdi honum vel. Karl hljóp á skip til Vandils bróður
síns og börðust þeir þaðan báðir um daginn.
Kolskeggur tók hvíld um
daginn á skipi Gunnars og sér Gunnar það og mælti til hans: "Betri hefir
þú öðrum verið í dag en þér því að þú hefir gert þá óþyrsta."
Síðan tók Kolskeggur jústu
eina af miði fulla og drakk og barðist eftir það. Og þar kom að þeir bræður
hljópu upp á skip þeirra Vandils og gekk Kolskeggur með öðru borði en Gunnar
með öðru. Í móti Gunnari gekk Vandill og hjó þegar til hans og kom í skjöldinn.
Gunnar snaraði hart skjöldinn er sverðið festi í og brotnaði sverðið undir
hjöltunum. Gunnar hjó í móti og sýndist hinum þrjú vera sverðin á lofti og sá
hann eigi hvar hann skyldi sér helst hlífa. Gunnar hjó undan honum báðar fætur.
Kolskeggur lagði Karl spjóti í gegnum. Eftir það tóku þeir herfang mikið.
Þaðan héldu þeir suður til
Danmerkur og þaðan austur í Smálönd og börðust jafnan og höfðu ávallt sigur.
Ekki héldu þeir aftur að hausti.
Annað sumar héldu þeir til
Rafala og mættu þar víkingum og börðust þegar og fengu sigur. Síðan héldu þeir
austur til Eysýslu og lágu þar nokkura hríð undir nesi einu. Þeir sáu mann einn ganga ofan af nesinu. Gunnar
gekk á land upp að finna manninn og töluðust þeir við. Spurði Gunnar
hann að nafni en hann nefndist Tófi. Gunnar spurði hvað hann vildi.
"Þig vil eg finna,"
segir hann. "Herskip liggja hér öðrum megin undir nesinu og mun eg segja
þér hverjir fyrir ráða. Þar ráða fyrir bræður tveir. Heitir annar Hallgrímur en
annar Kolskeggur. Þá veit eg mesta orustumenn og það með að þeir hafa vopn svo
góð að eigi fær önnur slík. Hallgrímur hefir atgeir þann er hann hefir látið
seiða til að honum skal ekki vopn að bana verða nema hann. Það fylgir og að þegar
veit er víg er vegið með atgeirinum því að svo syngur í honum áður að langt
heyrir til. Svo hefir hann náttúru mikla með sér. Kolskeggur hefir sax. Það er
hið besta vopn. Þeir hafa lið þriðjungi meira en þér hafið. Fé hafa þeir og
mikið og hafa fólgið á landi og veit eg gjörla hvar er. En þeir hafa sent
njósnarskip fyrir nesið og vita þeir allt til yðvar. Þeir hafa nú og viðbúning
mikinn og ætla þegar að yður að leggja er þeir eru búnir. Er yður nú annaðhvort
til að leggja í braut þegar ella búist þér við sem skjótast. En ef þér hafið
sigur þá skal eg fylgja þér til fjárins alls."
Gunnar gaf honum fingurgull
og gekk síðan til manna sinna og sagði þeim að herskip lágu öðrum megin nessins
"og vita þeir allt til vor. Tökum vér nú vopn vor og búumst við öllu vel
og skjótt því að nú er til fjár að vinna."
Síðan bjuggust þeir við og þá
er þeir voru búnir sjá þeir að skipin fara að þeim. Tekst nú orusta með þeim og
berjast þeir lengi og verður mannfall mikið. Gunnar vó margan mann. Þeir Hallgrímur
hljópu á skip til Gunnars. Gunnar sneri í mót Hallgrími. Hallgrímur lagði til
hans með atgeirinum. Slá ein var um þvert skipið og hljóp Gunnar aftur yfir
öfugur. Skjöldur Gunnars var fyrir framan slána og lagði Hallgrímur í hann og í
gegnum og svo í slána. Gunnar hjó á hönd Hallgrími og lamdist handleggurinn en
sverðið beit ekki. Féll þá niður atgeirinn. Gunnar tók atgeirinn og lagði í
gegnum Hallgrím. Gunnar bar atgeirinn jafnan síðan. Þeir börðust nafnar og var
nær hvorum vænna horfið. Þá kom Gunnar að og hjó Kolskegg banahögg. Eftir það
beiddu víkingar sér griða. Gunnar lét þess kost. Hann lét þá kanna valinn og
taka fé það er dauðir menn höfðu átt en hann gaf hinum vopn sín og klæði, er
hann gaf grið, og bað þá fara til fósturjarða sinna. Þeir héldu í braut en
Gunnar tók fé allt það er eftir var.
Tófi kom að Gunnari eftir
bardagann og bauð að fylgja honum til fjár þess er víkingar höfðu fólgið, kvað
það vera bæði meira og betra en hitt er þeir höfðu áður fengið. Gunnar kveðst
það vilja. Gekk hann á land með Tófa. Fór Tófi fyrir til skógar en Gunnar
eftir. Þeir komu að þar sem viður var borinn saman mikill. Tófi segir að þar
var féið undir. Ruddu þeir þá af viðinum og fundu undir bæði gull og silfur,
klæði og vopn góð. Þeir bera fé þetta til skipa. Gunnar spurði Tófa hverju er
hann vildi að hann launaði honum.
Tófi svaraði: "Eg er
danskur maður að ætt og vildi eg að þú flyttir mig til frænda minna."
Gunnar spurði hví hann væri í
Austurvegi.
"Eg var tekinn af
víkingum," segir Tófi, "og var mér skotið hér á land í Eysýslu og
hefi eg hér verið síðan."
31. kafli
Gunnar tók við honum og mælti
til Kolskeggs og Hallvarðar: "Nú munum vér halda til Norðurlanda."
Þeir létu vel yfir því og
báðu hann ráða.
Gunnar siglir úr Austurvegi
með fé miklu. Hann hafði tíu skip og hélt þeim til Heiðabæjar í Danmörk.
Haraldur konungur Gormsson var þar á land upp. Honum var sagt til Gunnars og
það með að engi var hans maki á Íslandi og sendi konungur menn sína til hans að
bjóða honum til sín. Gunnar fór
þegar á konungsfund. Konungur tók við honum vel og setti hann hið næsta
sér. Þar var Gunnar hálfan mánuð. Konungur hafði það að gamni að hann lét
Gunnar reyna ýmissar íþróttir við menn sína og voru þeir engir að né eina
íþrótt hefðu til jafns við hann.
Konungur mælti til Gunnars:
"Svo virðist mér sem óvíða muni þinn jafningi fást."
Konungur bauð að fá Gunnari
kvonfang og ríki mikið ef hann vildi þar staðfestast.
Gunnar þakkaði konungi boð
sitt og mælti: "Fara vil eg fyrst til Íslands að finna vini mína og
frændur."
"Þá munt þú aldrei aftur
koma til vor," segir konungur.
"Auðna mun því ráða
herra," segir Gunnar.
Gunnar gaf konungi langskip
gott og marga dýrgripi aðra er hann hafði fengið í hernaði. Konungur gaf honum
tignarklæði sín og glófa gullfjallaða og skarband, og gullhnútar á, og hatt
gerskan.
Gunnar fór norður til
Hísingar. Ölvir tók við honum báðum höndum. Hann færði Ölvi skip sín og kallar
það vera hans hlutskipti. Ölvir tók við fénu og kvað Gunnar vera dreng góðan og
bað hann vera þar nokkura hríð.
Hallvarður spurði Gunnar ef
hann vildi finna Hákon jarl. Gunnar sagði sér það vera nær skapi "því að
nú er eg að nokkuru reyndur en þá var eg að engu er þú baðst þess næstum."
Síðan bjuggu þeir ferð sína
og fóru norður til Þrándheims á fund Hákonar jarls og tók hann vel við Gunnari
og bauð honum að vera með sér um veturinn. Hann þá það. Gunnar virðist þar
hverjum manni vel. Að jólum gaf jarl honum gullhring. Gunnar lagði hug á
Bergljótu frændkonu jarls og fannst það oft á jarli að hann mundi hana hafa
gifta honum ef Gunnar hefði nokkuð þess leitað.
32. kafli
Um vorið spurði jarl Gunnar
hvað hann vildi láta ráða sinna. Hann kveðst vilja til Íslands.
Jarlinn kvað vera illa ært í
landi "og mun vera lítil útsigling en þó skalt þú hafa mjöl og við í skip
þitt sem þú vilt."
Gunnar þakkaði honum og bjó
skip sitt snemmendis. Hallvarður fór út með þeim Kolskeggi.
Þeir komu út snemma sumars og
tóku Arnarbælisós og var það fyrir alþingi. Reið Gunnar þegar heim frá skipi en
fékk menn til að ryðja skipið og fór Kolskeggur með honum. En er þeir komu heim
urðu menn þeim fegnir. Þeir voru blíðir við heimamenn sína og hafði ekki vaxið
dramb þeirra.
Gunnar spurði hvort Njáll
væri heima. Honum var sagt að hann var heima. Lét hann þá taka hest sinn og
reið til Bergþórshvols og Kolskeggur með honum. Njáll varð feginn komu þeirra
og bað að þeir skyldu vera þar um nóttina. Þeir gerðu svo og sagði Gunnar frá
ferðum sínum.
Njáll sagði hann vera hinn
mesta afreksmann "og ert þú mjög reyndur en þó munt þú meir síðar því að
margur mun þig öfunda."
"Við alla vildi eg gott
eiga," segir Gunnar.
"Margt mun til
verða," segir Njáll, "og munt þú jafnan eiga hendur þínar að
verja."
"Undir því væri
þá," segir Gunnar, "að eg hefði málaefni góð."
"Svo mun og vera,"
segir Njáll, "ef þú geldur eigi annarra að."
Njáll spurði Gunnar hvort
hann mundi til þings ríða. Gunnar segir að hann mundi ríða og spyr hvort Njáll
mundi ríða en hann kveðst eigi ríða mundu "og svo vildi eg að þú
gerðir."
Gunnar reið þá heim og gaf
Njáli góðar gjafar og þakkaði honum fjárvarðveisluna.
Kolskeggur bróðir hans fýsti
hann að ríða til þings "mun þar vaxa sæmd þín við því að margur mun þar að
þér víkja."
"Lítt hefi eg það skap
haft," segir Gunnar, "að hrósa mér en gott þykir mér að finna góða
menn."
Hallvarður var og þar kominn
og bauð að ríða til þings með þeim.
33. kafli
Gunnar reið og þeir allir til
þings. En er þeir komu á þing þá voru þeir svo vel búnir að engir voru þeir þar
að jafnvel væru búnir og fóru menn út úr hverri búð að undrast þá. Gunnar reið
til búða Rangæinga og var þar með frændum sínum. Margur maður fór að finna
Gunnar og spyrja hann tíðinda. Hann var við alla menn léttur og kátur og sagði
öllum slíkt er vildu.
Það var einn dag er Gunnar
gekk frá Lögbergi. Hann gekk fyrir neðan Mosfellingabúð. Þá sá hann konur ganga
í móti sér og voru vel búnar. Sú var í ferðarbroddi konan er best var búin. En
er þau fundust kvaddi hún þegar Gunnar. Hann tók vel kveðju hennar og spurði
hvað kvenna hún væri. Hún nefndist Hallgerður og kvaðst vera dóttir Höskulds
Dala-Kollssonar. Hún mælti til hans djarflega og bað hann segja sér frá ferðum
sínum en hann kvaðst ekki varna mundu henni máls. Settust þau þá niður og
töluðu. Hún var svo búin að hún var í rauðum kyrtli og var á búningur mikill.
Hún hafði yfir sér skarlatsskikkju og var búin hlöðum í skaut niður. Hárið tók
ofan á bringu henni og var bæði mikið og fagurt. Gunnar var í tignarklæðum þeim
er Haraldur konungur Gormsson gaf honum. Hann hafði og hringinn á hendi Hákonarnaut.
Þau töluðu lengi hátt. Þar kom er hann spurði hvort hún væri ógefin.
Hún sagði að svo væri
"og er það ekki margra að hætta á það," segir hún.
"Þykir þér hvergi
fullkosta?" segir hann.
"Eigi er það,"
segir hún, "en mannvönd mun eg vera."
"Hversu munt þú svara ef
eg bið þín?" segir Gunnar.
"Það mun þér ekki í
hug," segir hún.
"Eigi er það,"
segir hann.
"Ef þér er nokkur hugur
á," segir hún, "þá finn þú föður minn."
Síðan skildu þau talið.
Gunnar gekk þegar til búðar
Dalamanna og fann menn úti fyrir búðinni og spyr hvort Höskuldur væri í búð en
þeir sögðu að hann var víst þar. Gekk þá Gunnar inn. Höskuldur og Hrútur tóku
vel við Gunnari. Hann settist niður í meðal þeirra og fannst það ekki í tali
þeirra að þar hefði nokkur misþykkja í meðal verið.
Þar kom niður ræða Gunnars að
hann spurði hversu þeir bræður mundu því svara ef hann bæði Hallgerðar.
"Vel," segir
Höskuldur, "ef þér er það alhugað."
Gunnar segir sér það alvöru
"en svo skildum vér næstum að mörgum mundi það þykja líklegt að hér mundi
ekki samband verða."
"Hversu líst þér Hrútur
frændi?" segir Höskuldur.
Hrútur svaraði: "Ekki
þykir mér þetta jafnræði."
"Hvað finnur þú til
þess?" segir Gunnar.
Hrútur mælti: "Því mun
eg svara þér um þetta er satt er. Þú ert maður vaskur og vel að þér en hún er
blandin mjög og vil eg þig í engu svíkja."
"Vel mun þér fara,"
segir Gunnar, "en þó mun eg það fyrir satt hafa að þér virðið í fornan
fjandskap ef þér viljið eigi gera mér kostinn."
"Eigi er það,"
segir Hrútur, "meir er hitt að eg sé að þú mátt nú ekki við gera. En þó að
vér keyptum eigi þá vildum vér þó vera vinir þínir."
Gunnar mælti: "Eg hefi
talað við hana og er þetta ekki fjarri hennar skapi."
Hrútur mælti: "Veit eg
að svo mun vera að ykkur er báðum girndarráð. Hættið þið og mestu til hversu
fer."
Hrútur sagði Gunnari ófregið
allt um skapferði Hallgerðar og þótti Gunnari það fyrst ærið margt er áfátt
var. En þar kom um síðir að saman féll kaupmáli þeirra. Var þá sent eftir
Hallgerði og var þá um talað svo að hún var við. Létu þeir nú enn sem fyrr að
hún festi sig sjálf. Skyldi þetta boð vera að Hlíðarenda og skyldi fara fyrst
leynilega en þó kom þar er allir vissu.
Gunnar reið heim af þingi og
reið þegar að finna Njál og sagði honum kaupin. Hann tók þungt á kaupum hans.
Gunnar spurði hvað hann fyndi til að honum þótti slíkt svo óráðlegt.
Njáll svaraði: "Af henni
mun standa allt hið illa er hún kemur austur hingað."
"Aldrei skal hún spilla
okkru vinfengi," segir Gunnar.
"Það mun þó svo nær
leggja," segir Njáll, "en þó munt þú jafnan bæta fyrir henni."
Gunnar bauð Njáli til boðs og
öllu því þaðan sem hann vildi að færi. Njáll hét að fara. Síðan reið Gunnar
heim og reið um héraðið að bjóða mönnum.
34. kafli
Þráinn hét maður. Hann var
Sigfússon Sighvatssonar hins rauða. Hann bjó að Grjótá í Fljótshlíð. Hann var
frændi Gunnars og virðingamaður mikill. Hann átti Þórhildi skáldkonu. Hún var
orðgífur mikið og fór með flimtan. Þráinn unni henni lítið. Honum var boðið til
boðsins til Hlíðarenda og skyldi kona hans ganga um beina og Begþóra
Skarphéðinsdóttir kona Njáls. Ketill hét annar Sigfússon. Hann bjó í Mörk fyrir
austan Markarfljót. Hann átti Þorgerði Njálsdóttur. Þorkell hét hinn þriðji
Sigfússon, fjórði Mörður, fimmti Lambi, sétti Sigmundur, Sjöundi Sigurður.
Þessir voru allir frændur Gunnars og voru kappar miklir. Þeim hafði Gunnar
boðið öllum til boðsins. Gunnar hafði og boðið Valgarði hinum grá og Úlfi
aurgoða og sonum þeirra, Runólfi og Merði.
Þeir Höskuldur og Hrútur komu
til boðsins fjölmennir. Þar voru synir Höskulds, Þorleikur og Ólafur. Þar var
brúðurin í för með þeim og Þorgerður dóttir hennar og var hún kvenna fríðust.
Hún var þá fjórtán vetra gömul. Margt var með henni annarra kvenna. Þar var og
Þórhalla dóttir Ásgríms Elliða-Grímssonar og dætur Njáls tvær, Þorgerður og
Helga.
Gunnar hafði marga
fyrirboðsmenn og skipaði hann svo sínum mönnum. Hann sat á miðjan bekk en innar
frá Þráinn Sigfússon, þá Úlfur aurgoði, þá Valgarður hinn grái, þá Mörður og
Runólfur, þá Sigfússynir. Lambi sat innstur. Hið næsta Gunnari utar frá sat
Njáll, þá Skarphéðinn, þá Helgi, þá Grímur, þá Höskuldur, þá Hafur hinn spaki,
þá Ingjaldur frá Keldum, þá synir Þóris austan úr Holti. Þórir vildi sitja
ystur virðingamanna því að þá þótti hverjum gott þar sem sat. Höskuldur sat á
miðjan bekk en synir hans innar frá honum. Hrútur sat utar frá Höskuldi. En þá
er eigi frá sagt hversu öðrum var skipað. Brúður sat á miðjum palli en til
annarrar handar henni Þorgerður dóttir hennar. Á aðra hönd sat Þórhalla dóttir
Ásgríms Elliða-Grímssonar.
Þórhildur gengur um beina og
báru þær Bergþóra mat á borð. Þráinn Sigfússon var starsýnn á Þorgerði
Glúmsdóttur. Þetta sér kona hans, Þórhildur. Hún reiðist og kveður til hans
kviðling:
"Era gapriplar góðir,
gægur er þér í augum,
Þráinn," segir hún.
Hann steig þegar fram yfir
borðið og nefndi sér votta og sagði skilið við Þórhildi "vil eg eigi hafa
flimtan hennar né fáryrði yfir mér."
Og svo var hann kappsamur um
þetta að hann vildi eigi vera að veislunni nema hún væri í braut rekin. Og það
varð að hún fór í braut. Og nú sátu menn hver í sínu rúmi og drukku og voru
kátir.
Þá tók Þráinn til orða:
"Ekki mun eg gera að launtali það sem mér býr í skapi. Þess vil eg spyrja
þig Höskuldur Dala-Kollsson, vilt þú gifta mér Þorgerði frændkonu þína?"
"Eigi veit eg það,"
segir Höskuldur, "mér þykir þú lítt hafa við þessa skilið er hefir þú áður
átt eða hver maður er hann, Gunnar?"
Hann svarar: "Eigi vil
eg frá segja því að mér er maðurinn skyldur og seg þú frá Njáll, því munu allir
trúa."
Njáll mælti: "Það er frá
manni að segja að maður er vel auðigur að fé og ger að sér um allt og hið mesta
mikilmenni og megið þér fyrir því gera honum kostinn."
Þá mælti Höskuldur:
"Hvað sýnist þér ráð Hrútur frændi?"
Hrútur svaraði: "Gera
mátt þú fyrir því kostinn að þetta er henni jafnræði."
Þá tala þeir um kaupin og
verða á allt sáttir. Stendur þá Gunnar upp og Þráinn og ganga að pallinum.
Spurði Gunnar þær mæðgur hvort þær vildu játa þessum kaupum. Þær kváðust eigi
bregða mundu. Fastnaði Hallgerður Þorgerði dóttur sína. Þá var skipað konum í
annað sinn. Sat þá Þórhalla meðal brúða. Fer nú boðið vel fram. Og er lokið var
ríða þeir Höskuldur vestur en Rangæingar til sinna heimila. Gunnar gaf mörgum
góðar gjafar og virðist það vel.
Hallgerður tók við búráðum og
var fengsöm og atkvæðamikil. Þorgerður tók við búráðum að Grjótá og var góð
húsfreyja.
35. kafli
Það var siðvenja þeirra
Gunnars og Njáls að sinn vetur þá hvor þeirra heimboð að öðrum og veturgrið
fyrir vináttu sakir. Nú átti Gunnar að þiggja veturgrið að Njáli og fóru þau
Hallgerður til Bergþórshvols. Þá
voru þau Helgi eigi heima. Njáll tók vel við þeim Gunnari. Og þá er þau
höfðu þar verið nokkura hríð kom Helgi heim og Þórhalla kona hans.
Þá gekk Bergþóra að pallinum
og Þórhalla með henni og mælti Bergþóra til Hallgerðar: "Þú skalt þoka
fyrir konu þessi."
Hún svarar: "Hvergi mun
eg þoka því að engi hornkerling vil eg vera."
"Eg skal hér ráða,"
sagði Bergþóra.
Síðan settist Þórhalla niður.
Bergþóra gekk að borðinu með
handlaugar.
Hallgerður tók höndina
Begþóru og mælti: "Ekki er þó kosta munur með ykkur Njáli. Þú hefir
kartnagl á hverjum fingri en hann er skegglaus."
"Satt er það,"
sagði Bergþóra, "en hvortgi okkart gefur það öðru að sök. En eigi var
skegglaus Þorvaldur bóndi þinn og réðst þú þó honum bana."
"Fyrir lítið kemur
mér," segir Hallgerður, "að eiga þann mann er vaskastur er á Íslandi
ef þú hefnir eigi þessa Gunnar."
Hann spratt upp og steig fram
yfir borðið og mælti: "Heim mun eg fara og er það maklegast að þú sennir
við heimamenn þína en eigi í annarra manna híbýlum enda á eg Njáli marga sæmd
að launa og mun eg ekki vera eggjanarfífl þitt."
Síðan fóru þau heim.
"Mun þú það Bergþóra," sagði Hallgerður,
"að við skulum eigi skildar."
Bergþóra sagði að ekki skyldi hennar hlutur batna
við það. Gunnar lagði ekki til og fór heim til Hlíðarenda og var heima
allan þann vetur í gegnum. Líður nú á sumarið og allt til þings framan.
36. kafli
Gunnar ríður til þings. En
áður en hann reið heiman mælti hann til Hallgerðar: "Ver þú dæl meðan eg
er heiman og sýn af þér enga fárskapi þar sem við vini mína er um að
eiga."
"Tröll hafi þína
vini," segir hún.
Gunnar ríður til þings og sá
að eigi var gott orðum við hana að koma. Njáll reið til þings og synir hans
allir.
Nú er frá því að segja hvað
heima er tíðinda. Þeir áttu skóg saman, Njáll og Gunnar, í Rauðaskriðum. Þeir
höfðu eigi skipt skóginum en hvor var vanur að höggva sem þurfti og taldi
hvorgi á annan um það.
Kolur hét verkstjóri
Hallgerðar. Hann hafði verið með henni lengi og var hið mesta illmenni.
Svartur hét maður. Hann var
húskarl Njáls og Bergþóru og líkaði þeim við hann vel. Bergþóra mælti við hann
að hann skyldi fara í Rauðaskriður og höggva skóg "en eg mun fá til menn
að draga heim viðinn."
Hann kveðst vinna mundu það
er hún legði fyrir hann. Hann fór upp í Rauðaskriður. Tekur hann þar og höggur
skóg og skyldi þar að vera viku.
Snauðir menn komu til
Hlíðarenda austan frá Markarfljóti og sögðu að Svartur hafði verið í
Rauðaskriðum og höggvið skóg og gert mikið að.
"Svo mun Bergþóra til
ætla," segir Hallgerður, "að ræna mig mörgu en því skal eg ráða að
hann höggvi eigi oftar."
Rannveig heyrði, móðir
Gunnars, og mælti: "Þó hafa húsfreyjur þótt góðar austur hér að ekki hafi
staðið í mannráðum."
Nú leið af nóttin og um
morguninn kom Hallgerður að máli við Kol og mælti: "Verk hefi eg þér
hugað" og fékk honum öxi. "Far þú í Rauðaskriður. Þar munt þú finna
Svart."
"Hvað skal eg
honum?" segir hann.
"Spyr þú að því,"
segir hún, "þar sem þú ert hið mesta illmenni? Drepa skalt þú hann,"
segir hún.
"Gert mun eg það
geta," segir hann, "en það er þó líkast að eg gefi mig við."
"Vex þér hvetvetna í
augu," segir hún, "og fer þér illa þar sem eg hefi mælt eftir þér
hvern hlut. Mun eg fá til annan mann að gera þetta ef þú þorir eigi."
Hann tók öxina og var reiður
mjög og tekur hest er Gunnar átti og ríður þar til er hann kemur austur að
Markarfljóti. Hann steig þar af baki og beið í skóginum þar til er þeir höfðu
borið ofan viðinn og Svartur var einn eftir.
Hleypur Kolur þá að honum og
mælti: "Fleiri munu kunna að höggva stórt en þú einn" og setti öxina
í höfuð honum og hjó hann banahögg og ríður heim síðan og segir Hallgerði
vígið.
"Njót heill handa,"
segir hún, "og skal eg þig svo varðveita að þig skal ekki saka."
"Vera má það," segir
hann, "en hinn veg dreymdi mig þó áður en eg vó vígið."
Nú koma þeir upp í skóginn og
finna Svart veginn og flytja hann heim.
Hallgerður sendi mann til
þings að segja Gunnari vígið. Gunnar hallmælti Hallgerði ekki um fyrir
sendimanninum og vissu menn eigi hvort honum þótti vel eða illa. Litlu síðar
stóð hann upp og bað menn sína ganga með sér. Þeir gerðu svo og fóru til búðar
Njáls. Gunnar sendi mann eftir Njáli og bað hann út koma. Njáll gekk út þegar
og gengu þeir Gunnar á tal.
Gunnar mælti: "Víg hefi
eg að segja þér og hefir valdið Hallgerður kona mín en vegið hefur Kolur
verkstjóri minn en fyrir hefir orðið Svartur húskarl þinn."
Njáll þagði meðan Gunnar
sagði söguna.
Þá mælti Njáll: "Þurfa
munt þú að láta hana eigi öllu fram koma."
Gunnar mælti: "Sjálfur
skalt þú dæma."
Njáll mælti: "Erfitt mun
þér verða að bæta öll slys Hallgerðar og mun annars staðar meira slóða draga en
hér er við eigum hlut að og mun hér þó mikið á vanta að vel sé og munum við
þess þurfa að muna það er við höfum lengi vel við mælst. Og væntir mig að þér
fari vel en þó munt þú verða mjög að þreyttur."
Njáll tók sjálfdæmi af
Gunnari og mælti: "Ekki mun eg halda máli þessu til kapps. Þú skalt gjalda
tólf aura silfurs. En það vil eg til skilja þó að nokkuð komi það úr vorum garði
er þér eigið um að gera að þér stillið eigi verr gerðinni."
Gunnar sagði það maklegt
vera. Gunnar greiddi af hendi féið vel og reið heim síðan.
Njáll kom heim af þingi og
synir hans.
Bergþóra sá féið og mælti:
"Vel er þessu í hóf stillt en jafnmikið fé skal koma fyrir Kol er stundir
líða."
Gunnar kom heim af þingi og
taldi á Hallgerði. Hún kallaði betri menn óbætta liggja margstaðar. Gunnar kvað
hana ráða mundu tiltekjum sínum "en eg skal ráða hversu málin
lúkast."
Hallgerður hældist jafnan um
víg Svarts en Bergþóru líkaði það illa.
Njáll fór upp í Þórólfsfell
og synir hans að skipa þar til bús. En þann sama dag varð sá atburður er
Bergþóra var úti að hún sér mann ríða að garði svörtum hesti. Hún nam staðar og
gekk eigi inn. Hún kenndi eigi
manninn. Sjá maður hafði spjót í hendi og gyrður saxi. Hún spurði þenna mann að
nafni.
"Atli heiti eg," sagði hann.
Hún spurði hvaðan hann væri.
"Eg er austfirskur
maður," segir hann.
"Hvert skalt þú
fara?" segir hún.
"Eg er maður
vistlaus," segir hann, "og ætlaði eg að finna Njál og Skarphéðinn og
vita ef þeir vildu taka við mér."
"Hvað er þér hentast að
vinna?" segir hún.
"Eg er akurgerðarmaður
og margt er mér vel hent að gera," segir hann, "en eigi vil eg því
leyna að eg er maður skapharður og hefir jafnan hlotið um sárt að binda fyrir
mér."
"Ekki gef eg þér það að
sök," segir hún, "þótt þú sért engi bleyðimaður."
Atli mælti: "Ert þú
nokkurs ráðandi hér?"
"Eg er kona Njáls,"
segir hún, "og ræð eg ekki síður hjón en hann."
"Vilt þú taka við
mér?" segir hann.
"Gera mun eg kost á
því," segir hún, "ef þú vilt vinna allt það er eg legg fyrir þig og
svo þó að eg vilji senda þig til mannráða."
"Átt þú svo til varið um
menn," segir hann, "að þú munt ekki mín þurfa að því að kosta."
"Það skil eg er eg
vil," segir hún.
"Kaupa munum við að
þessu," sagði hann.
Þá tók hún við honum.
Njáll kom heim og synir hans.
Njáll spurði Bergþóru hvað manna sjá væri.
"Hann er húskarl
þinn," segir hún, "og tók eg við honum því að hann lést vera
óhandlatur."
"Ærið mun hann
stórvirkur," segir Njáll, "en eigi veit eg hvort hann er svo
góðvirkur."
Skarphéðinn var vel til Atla.
Njáll ríður til þings um
sumarið og synir hans. Gunnar var á þingi. Njáll tók upp fésjóð er hann hafði
heiman.
Skarphéðinn spyr: "Hvað
fé er það faðir?"
"Hér er fé það,"
segir Njáll, "er Gunnar greiddi mér fyrir heimamann vorn fyrra
sumar."
"Koma mun það til
nokkurs," sagði Skarphéðinn og glotti við.
37. kafli
Nú er að taka til heima að
Atli spurði Bergþóru hvað hann skyldi vinna um daginn.
"Hugað hefi eg þér
verkið," segir hún. "Þú skalt fara að leita Kols þar til er þú finnur
hann því að nú skalt þú vega hann í dag ef þú vilt minn vilja gera."
"Hér er vel á
komið," segir Atli, "því að hvortveggi okkar er illmenni. En þó skal
eg svo til hans ráða að annar hvor okkar skal deyja."
"Vel mun þér fara,"
segir hún, "og skalt þú eigi til engis vinna."
Hann gekk og tók vopn sín og
hest og reið í braut. Hann reið upp til Fljótshlíðar og mætti þar mönnum er
fóru frá Hlíðarenda. Þeir áttu heima
austur í Mörk. Þeir spurðu Atla hvert hann ætlaði. Hann kveðst ríða að
leita klárs eins.
Þeir kváðu það lítið erindi
slíkum verkmanni "en þó er þá helst eftir að spyrja er á ferli hafa verið
í nótt."
"Hverjir eru þeir?"
segir hann.
"Víga-Kolur húskarl
Hallgerðar," sögðu þeir, "hann fór frá seli áðan og hefir vakað í
alla nótt."
"Eigi veit eg hvort eg
þori að finna hann," segir Atli. "Hann er skapillur og búið eg láti
annars víti að varnaði."
"Hinn veg værir þú undir
brún að líta," segja þeir, "sem þú mundir eigi vera ragur" og
vísuðu honum til Kols.
Hann keyrir þá hest sinn og
ríður mikinn.
Og er hann mætir Kol mælti
Atli til hans: "Gengur vel klyfjabandið?" segir Atli.
"Það mun þig skipta engu
mannfýlan," segir Kolur, "og engan þann er þaðan er."
Atli mælti: "Það átt þú
eftir er erfiðast er, en það er að deyja."
Síðan lagði Atli spjóti til
hans og kom á hann miðjan. Kolur sveiflaði til hans öxi og missti hans. Síðan
féll Kolur af baki og dó þegar.
Atli reið þar til er hann
fann verkmenn Hallgerðar og mælti: "Farið upp til hests Kols og geymið
hans. Kolur er fallinn af baki og er hann dauður."
"Hefir þú vegið
hann?" sögðu þeir.
Hann svarar: "Svo mun
Hallgerði sýnast sem hann hafi eigi sjálfdauður orðið."
Síðan reið Atli heim og segir
Bergþóru vígið. Hún þakkar honum verk þetta og orð þau sem hann hafði um haft.
"Eigi veit eg,"
segir Atli, "hversu Njáli mun þykja."
"Vel mun hann í höndum
hafa," segir hún, "og mun eg segja þér eitt til marks um að hann
hefir haft til þings þrælsgjöld þau er vér tókum við fyrra sumar og munu þau nú
koma fyrir Kol. En þó að sættir verði þá skalt þú þó vera var um þig því að
Hallgerður mun engar sættir halda."
"Vilt þú nokkuð senda
mann til Njáls," segir Atli, "að segja honum vígið?"
"Eigi vil eg það,"
segir hún. "Mér þætti betur að Kolur væri ógildur."
Þau hættu þá talinu.
Hallgerði var sagt víg Kols
og ummæli Atla. Hún kvaðst launa skyldu Atla. Hún sendi mann til þings að segja
Gunnari víg Kols. Hann svaraði fá og sendi mann að segja Njáli. Hann svaraði
engu.
Skarphéðinn mælti:
"Miklu eru þrælar aðgerðameiri en fyrr hafa verið. Þeir flugust þá á og
þótti það ekki saka en nú vilja þeir vegast" og glotti við.
Njáll kippti ofan fésjóðum er
uppi var í búðinni og gekk út. Synir hans gengu með honum. Þeir komu til búðar
Gunnars.
Skarphéðinn mælti við mann er
stóð í búðardyrunum: "Seg þú Gunnari að faðir minn vill finna hann."
Sá segir Gunnari. Gunnar gekk
út þegar og fagnaði vel Njáli og sonum hans. Síðan gengu þeir á tal.
"Illa hefir nú orðið," segir Njáll,
"er húsfreyja mín skal hafa rofið grið og látið drepa húskarl þinn."
"Ekki ámæli skal hún af þessu hafa,"
segir Gunnar.
"Dæm þú nú málið," segir Njáll.
"Svo mun eg gera,"
segir Gunnar. "Læt eg þá vera menn jafndýra, Svart og Kol. Skalt þú greiða
mér tólf aura silfurs."
Njáll tók fésjóðinn og seldi
Gunnari. Hann kenndi féið að það var hið sama sem hann hafði greitt Njáli. Fór
Njáll nú til búðar sinnar og var jafnvel með þeim síðan sem áður.
Þá er Njáll kom heim taldi
hann á Bergþóru en hún kvaðst aldrei vægja skyldu fyrir Hallgerði.
Hallgerður leitaði á Gunnar
mjög er hann hafði sæst á vígið. Gunnar kveðst aldrei bregðast skyldu Njáli né
sonum hans. Hún geisaði mjög. Gunnar gaf ekki gaum að því.
Svo gættu þeir til á þeim
misserum að ekki varð að.
38. kafli
Um vorið ræddi Njáll við
Atla: "Það vildi eg að þú réðist austur í fjörðu að eigi skapi Hallgerður
þér aldur."
"Ekki hræðist eg
það," segir Atli, "og vil eg heima vera ef eg á kosti."
"Það er þó
óráðlegra," segir Njáll.
"Betra þykir mér að
látast í þínu húsi," segir Atli, "en skipta um lánardrottna. En þess
vil eg biðja þig ef eg er veginn að eigi komi þrælsgjöld fyrir mig."
"Svo skal þig bæta sem
frjálsan mann," segir Njáll, "en Bergþóra mun þér því heita sem hún
mun efna að fyrir þig munu komu mannhefndir."
Réðst Atli þar þá að hjóni.
Nú er að segja frá Hallgerði
að hún sendi mann vestur til Bjarnarfjarðar eftir Brynjólfi rósta frænda sínum.
Hann var sonur Svans laungetinn. Hann var hið mesta illmenni. Gunnar vissi ekki
til þessa. Hallgerður kvað hann sér vel fallinn til verkstjóra. Brynjólfur kom
vestan og spurði Gunnar hvað hann skyldi. Hann kveðst þar vera skyldu.
"Ekki munt þú bæta
híbýli vor," segir Gunnar, "svo er mér frá þér sagt. En ekki mun eg
vísa í braut frændum Hallgerðar þeim er hún vill að með henni séu."
Gunnar var til hans fár og
ekki illa.
Leið nú svo fram til þings.
Gunnar reið til þings og
Kolskeggur með honum. Og er þeir komu til þings fundust þeir Gunnar og Njáll og
synir hans. Áttust þeir margt við og vel.
Bergþóra mælti við Atla:
"Far þú upp í Þórólfsfell og vinn þar viku."
Hann fór upp þangað og var
þar á laun og brenndi kol í skógi.
Hallgerður mælti við
Brynjólf: "Það er mér sagt að Atli sé eigi heima og mun hann vinna verk í
Þórólfsfelli."
"Hvað þykir þér líkast
að hann vinni?" segir hann.
"Í skógi nokkuð,"
segir hún.
"Hvað skal eg
honum?" segir hann.
"Drepa skalt þú
hann," segir hún.
Hann varð um fár.
"Minnur mundi Þjóstólfi í augu vaxa,"
segir hún, "ef hann væri á lífi að drepa Atla."
"Ekki skalt þú hér enn þurfa mjög á að
frýja," segir hann.
Tók hann þá vopn sín og hest,
stígur á bak og ríður í Þórólfsfell. Hann sá kolreyk mikinn austur frá bænum. Ríður hann þangað til,
stígur af baki hestinum og bindur hann en hann gengur þar sem mestur er
reykurinn. Sér hann þá hvar kolgröfin er og er þar maður við. Hann sá að hann
hafði sett spjót í völlinn hjá sér. Bryjólfur gengur með reykinum allt að honum
en hann var óður að verki sínum og sá hann eigi Brynjólf. Brynjólfur hjó í
höfuð honum með öxi. Hann brást við svo fast að Brynjólfur lét lausa öxina. Þá
þreif Atli spjótið og skaut eftir honum. Brynjólfur kastaði sér niður við
vellinum en spjótið flaug yfir hann fram.
"Naust þú nú þess er eg
var eigi við búinn," segir Atli, "en nú mun Hallgerði vel þykja. Þú
munt segja dauða minn. En það er til bóta að þú munt slíkan á baugi eiga brátt
enda tak þú nú öxi þína er hér hefir verið."
Brynjólfur svaraði engu og
tók öxina eigi fyrr en Atli var dauður, reið þá heim í Þórólfsfell og sagði
vígið. Síðan reið hann heim til Hlíðarenda og sagði Hallgerði. Hún sendi mann
til Bergþórshvols og lét segja Bergþóru að nú var launað víg Kols.
Síðan sendi Hallgerður mann
til þings að segja Gunnari víg Atla. Gunnar stóð upp og Kolskeggur með honum.
Kolskeggur mælti:
"Óþarfir munu þér verða frændur Hallgerðar."
Þeir gengu til fundar við
Njál.
Gunnar mælti: "Víg Atla
hefi eg að segja þér" og segir honum hver vó "og vil eg nú bjóða þér
bót fyrir og vil eg að þú gerir sjálfur."
Njáll mælti: "Það höfum
við ætlað að láta okkur ekki á greina en þó mun eg eigi gera hann að
þræli."
Gunnar kvað það vel vera og
rétti fram höndina. Njáll nefndi sér votta og sættust að þessu.
Skarphéðinn mælti: "Ekki
lætur Hallgerður verða ellidauða húskarla vora."
Gunnar mælti: "Svo mun
móðir þín til ætla að ýmsir eigi högg í garði."
"Ærið bragð mun að
því," segir Njáll.
Síðan gerði Njáll hundrað
silfurs en Gunnar galt þegar. Margir mæltu er hjá stóðu að mikið væri gert.
Gunnar reiddist og kvað þá
bætta fullum bótum er eigi væru vaskari menn er Atli var. Riðu þeir við það
heim af þingi.
Bergþóra ræddi við Njál er
hún sá féið: "Efnt þykist þú hafa heitin þín en nú eru eftir mín
heit."
"Eigi er nauðsyn á að þú
efnir þau," segir Njáll.
"Hins hefir þú þó til
getið," sagði hún, "og svo skal vera."
Í annan stað mælti Hallgerður
við Gunnar: "Hefir þú goldið hundrað silfurs fyrir víg Atla og gert hann
að frjálsum manni?"
"Frjáls var hann
áður," segir Gunnar, "enda skal eg ekki gera að óbótamönnum heimamenn
Njáls."
"Jafnkomið mun á með
ykkur Njáli er hvortveggji er blauður," segir hún.
"Það er sem
reynist," segir hann.
Var þá Gunnar lengi fár við
hana þar til er hún lét til við hann.
Nú er kyrrt þau misseri. Um
vorið jók Njáll ekki hjón sín. Nú ríða menn til þings um sumarið.
39. kafli
Þórður hét maður. Hann var
kallaður leysingjason. Sigtryggur hét faðir hans og hafði hann verið leysingi
Ásgerðar og drukknaði hann í Markarfljóti. Var Þórður því með Njáli síðan. Hann
var mikill maður og styrkur. Hann hafði fóstrað alla sonu Njáls. Þórður lagði
hug á frændkonu Njáls er Guðfinna hét Þórólfsdóttir. Hún var matselja heima þar
og var þá óhraust.
Bergþóra kom að máli við Þórð
leysingjason: "Þú skalt fara," segir hún, "og drepa Brynjólf
frænda Hallgerðar."
"Engi er eg
vígamaður," segir hann, "en þó mun eg til hætta ef þú vilt."
"Það vil eg," segir
hún.
Síðan tók hann hest og reið
upp til Hlíðarenda og lét kalla Hallgerði út og spurði hvar Brynjólfur væri.
"Hvað vilt þú
honum?" segir hún.
Hann mælti: "Eg vil að
hann segi mér hvar hann hefir hulið hræ Atla. Mér er sagt að hann hafi illa um búið."
Hún vísaði til hans og kvað
hann vera í Akratungu niðri.
"Gæt þú," segir
Þórður, "að honum verði eigi slíkt sem Atla."
"Engi ert þú
vígamaður," segir hún, "og mun ekki undir hvar þið finnist."
"Aldrei hefi eg séð
mannsblóð," segir hann, "og veit eg eigi hversu mér bregður við"
og hleypti úr túninu og svo ofan í Akratungu.
Rannveig móðir Gunnars hafði
heyrt á viðurtal þeirra og mælti: "Mjög frýr þú Hallgerður honum hugar en
eg ætla hann öruggan mann og mun það frændi þinn finna."
Þeir mættust á förnum vegi,
Brynjólfur og Þórður.
Þórður mælti: "Ver þú
þig Brynjólfur því að eg vil eigi níðast á þér."
Bryjólfur reið að Þórði og
hjó til hans. Þórður hjó í mót með öxi og í sundur skaptið fyrir framan hendur
honum Brynjólfi og hjó þegar í annað sinn til hans og kom framan á bringuna og
gekk þegar á hol. Féll Brynjólfur þá af baki og var þegar dauður. Þórður fann
smalamann Hallgerðar og lýsti vígi á hönd sér og sagði hvar Brynjólfur lá og
bað hann segja Hallgerði vígið. Síðan reið hann til Bergþórshvols og sagði
Bergþóru vígið og öðrum mönnum.
"Njót þú heill
handa," sagði hún.
Smalamaður sagði Hallgerði vígið.
Hún varð beisk við og kvað hér skyldu mikið illt af leiða ef hún mætti ráða.
40. kafli
Nú koma tíðindin til þings og
lét Njáll segja sér þrem sinnum og mælti síðan: "Fleiri gerast nú vígamenn
en eg ætlaði."
Skarphéðinn mælti: "Sjá
maður hefir þó helst hraðfeigur verið er látist hefir fyrir fóstra vorum er
aldrei hefir séð mannsblóð og mundu það margir ætla að vér bræður mundum þetta
fyrri gert hafa að því skaplyndi sem vér höfum."
"Skammt munt þú til þess
eiga," segir Njáll, "að þig mun slíkt henda og mun þig þó nauður til
reka."
Þeir gengu þá til móts við
Gunnar og sögðu honum vígið.
Gunnar sagði að það var
lítill mannskaði "en þó var hann frjáls maður."
Njáll bauð honum þegar
sættina. Gunnar játti því og skyldi hann sjálfur dæma. Hann dæmdi þegar og
gerði hundrað silfurs. Njáll galt þegar féið og sættust að því.
41. kafli
Sigmundur hét maður. Hann var
Lambason Sighvatssonar hins rauða. Hann var farmaður mikill, kurteis maður og
vænn, mikill og sterkur. Hann var metnaðarmaður mikill og skáld gott og að
flestum íþróttum vel búinn, hávaðamaður mikill, spottsamur og ódæll. Hann kom
út austur í Hornafirði. Skjöldur hét félagi hans. Hann var sænskur maður og
illur viðureignar. Þeir fengu sér hesta og riðu austan úr Hornafirði og luku
eigi ferð sinni fyrr en þeir komu í Fljótshlíð til Hlíðarenda. Gunnar tók við
þeim vel. Var þar frændsemi mikil með þeim Sigmundi. Gunnar bauð Sigmundi að vera þar um veturinn. Sigmundur
kvaðst það þiggja mundu ef Skjöldur væri þar, félagi hans.
"Svo er mér frá honum sagt," sagði
Gunnar, "að hann sé þér engi skapbætir en þú þarft hins heldur að bætt sé
um með þér. Er hér og vönd vistin. Vildi eg ráða yður ráð frændum mínum
að þér hlypuð eigi upp við frameggjan Hallgerðar konu minnar því að hún tekur
það margt upp er fjarri er mínum vilja."
"Veldurat sá er
varar," segir Sigmundur.
"Þá er að gæta
ráðsins," segir Gunnar, "en mjög munt þú verða reyndur og gakk með
mér jafnan og hlít mínum ráðum."
Síðan voru þeir í fylgd með
Gunnari.
Hallgerður var vel til
Sigmundar og þar kom að þar gerðist svo mikill ákafi að hún bar fé á hann og
þjónaði honum eigi verr en bónda sínum. Og lögðu margir það til orðs og þóttust
eigi vita hvað undir mundi búa.
Hallgerður mælti við Gunnar:
"Eigi er gott við að una við það hundrað silfurs er þú tókst fyrir
Brynjólf frænda minn enda skal eg hefna hans láta ef eg má," segir hún.
Gunnar kvaðst ekki vilja
skipta orðum við hana og gekk í braut. Hann fann Kolskegg og mælti til hans:
"Far þú og finn Njál og seg honum að Þórður sé var um sig þó að sættir séu
því að mér þykir eigi trúlega vera."
Hann reið og sagði Njáli en
Njáll sagði Þórði. Kolskeggur reið heim og þakkaði Njáll þeim trúleika sína.
Það var einu hverju sinni að
þeir sátu úti, Njáll og Þórður. Þar var vanur að ganga hafur um túnið og skyldi
engi hann í braut reka.
Þórður mælti: "Undarlega
bregður nú við."
"Hvað sérð þú þess er
þér þykir með undarlegu móti vera?" segir Njáll.
"Mér þykir hafurinn
liggja hér í dælinni og er alblóðugur allur."
Njáll kvað þar vera eigi
hafur og ekki annað.
"Hvað er það þá?"
segir Þórður.
"Þú munt vera maður
feigur," segir Njáll, "og munt þú séð hafa fylgju þína og ver þú var
um þig."
"Ekki mun mér það
stoða," segir Þórður, "ef mér er það ætlað."
Hallgerður kom að máli við
Þráin Sigfússon og mælti: "Mágur þætti mér þú vera ef þú dræpir Þórð
leysingjason."
"Eigi mun eg það
gera," segir hann, "því að þá mun eg hafa reiði Gunnars frænda míns.
Mun og þar stórt á liggja því að vígs þess mun brátt hefnt verða."
"Hver mun hefna,"
segir hún, "hvort karl hinn skegglausi?"
"Eigi mun það,"
segir hann, "synir hans munu hefna."
Síðan töluðu þau lengi hljótt
og vissi engi maður hvað þau höfðu í ráðagerðum.
Einu sinni var það að Gunnar
var eigi heima. Þá var Sigmundur heima og þeir félagar. Þar var kominn Þráinn
frá Grjótá. Þá sátu þau Hallgerður úti og töluðu.
Þá mælti Hallgerður:
"Því hafið þið heitið félagar Sigmundur og Skjöldur að drepa Þórð
leysingjason fóstra Njálssona en þú hefir mér því heitið Þráinn að vera við
staddur."
Þeir gengu við allir að þeir
höfðu þessu heitið henni.
"Nú mun eg gefa ráðið
til," sagði hún. "Þið skuluð ríða austur í Hornafjörð eftir fé ykkru
og koma heim um þing öndvert en ef þið eruð heima mun Gunnar vilja að þið ríðið
til þings með honum. Njáll mun vera á þingi og synir hans og svo Gunnar. En þið
skuluð þá drepa Þórð."
Þeir játtu að þessi ráðagerð
skyldi fram koma. Síðan bjuggust þau austur í fjörðu og varaðist Gunnar það
ekki og reið Gunnar til þings.
Njáll sendi Þórð leysingjason
austur undir Eyjafjöll og bað hann vera í brautu eina nótt. Hann fór austur og
gaf honum eigi austan því að fljótið var svo mikið að langt var um óreitt.
Njáll beið hans eina nótt því að hann ætlaði að hann skyldi riðið hafa til
þings með honum. Njáll mælti við Bergþóru að hún skyldi senda Þórð til þings
þegar hann kæmi heim. Tveim nóttum síðar kom Þórður austan.
Bergþóra sagði honum að hann
skyldi til þings ríða "en nú skalt þú fyrst fara upp í Þórólfsfell og sjá
þar um bú og vera þar eigi lengur en eina nótt eða tvær."
42. kafli
Sigmundur kom austan og þeir
félagar. Hallgerður sagði þeim að Þórður var heima en hann skyldi þegar til
þings ríða á fárra nátta fresti.
"Mun ykkur nú færi á við
hann," segir hún, "en ef þetta ber undan náið þið honum eigi."
Menn komu til Hlíðarenda frá
Þórólfsfelli og sögðu Hallgerði að Þórður var þar.
Hallgerður gekk til Þráins og
Sigmundar og mælti: "Nú er Þórður í Þórólfsfelli og er yður nú ráð að vega
að honum er hann fer heim."
"Það skulum vér nú
gera," segir Sigmundur.
Gengu þeir þá út og tóku vopn
sín og hesta og riðu á leið fyrir hann.
Sigmundur mælti til Þráins:
"Nú skalt þú ekki að gera því að oss mun eigi alla til þurfa."
"Svo mun eg gera,"
segir hann.
Þá reið Þórður að þeim litlu
síðar.
Sigmundur mælti til hans:
"Gef þú upp vopn þín því að nú skalt þú deyja."
"Eigi skal það,"
segir Þórður, "gakk þú til einvígis við mig."
"Eigi skal það,"
segir Sigmundur, "þess skulum vér njóta að vér erum fleiri. En eigi er
kynlegt að Skarphéðinn sé hraustur því að það er mælt að fjórðungi bregði til
fósturs."
"Að því mun þér
verða," segir Þórður, "því að Skarphéðinn mun mín hefna."
Síðan sækja þeir að honum og
brýtur hann spjót fyrir hvorumtveggja þeirra. Svo varðist hann vel. Þá hjó
Skjöldur af honum höndina og varðist hann þá með annarri nokkura stund þar til
er Sigmundur lagði í gegnum hann. Féll hann þá dauður til jarðar. Þeir báru að
honum torf og grjót.
Þráinn mælti: "Vér höfum
illt verk unnið og munu synir Njáls illa kunna víginu þá er þeir spyrja."
Þeir riðu heim og sögðu
Hallgerði. Hún lét vel yfir víginu.
Rannveig mælti, móðir
Gunnars: "Það er mælt Sigmundur að skamma stund verður hönd höggi fegin
enda mun hér svo. En þó mun Gunnar leysa þig af þessu máli. En ef Hallgerður
kemur annarri flugu í munn þér þá verður það þinn bani."
Hallgerður sendi mann til
Bergþórshvols að segja vígið en annan sendi hún til þings að segja Gunnari.
Bergþóra kvaðst ekki mundu berja Hallgerði illyrðum um slíkt, kvað það enga
hefnd fyrir svo mikið mál.
43. kafli
En er sendimaður kom til
þings að segja Gunnari vígið þá mælti Gunnar: "Þetta er illa orðið og eigi
kæmu þau tíðindi til eyrna mér að mér þættu verri. En þó skulum vér nú fara
þegar að finna Njál og væntir mig að honum fari enn vel þó að hann sé mjög að
þreyttur."
Gengu þeir þá á fund Njáls og
kölluðu hann til máls við sig. Hann gekk þegar til fundar við Gunnar. Þeir
töluðu og var ekki manna við fyrst nema Kolskeggur.
"Hörð tíðindi hefi eg að
segja þér," segir Gunnar, "víg Þórðar leysingjasonar. Vil eg bjóða þér
sjálfdæmi fyrir vígið."
Njáll þagði nokkurt skeið og
mælti síðan: "Vel er slíkt boðið," segir hann, "og mun eg það
taka. En þó er eigi örvænt að eg hafi ámæli af konu minni eða sonum mínum fyrir
þetta því að þeim mun mjög mislíka. En þó mun eg á það hætta því að eg veit að
eg á við dreng um. Vil eg og eigi að af mér standi afbrigð okkarrar
vináttu."
"Vilt þú nokkuð sonu
þína við láta vera?" segir Gunnar.
"Ekki," segir
Njáll, "því að eigi munu þeir rjúfa þá sátt er eg geri. En ef þeir eru við
staddir þá munu þeir ekki saman draga."
"Svo mun vera,"
segir Gunnar. "Sjá þú einn fyrir."
Þeir tókust þá í hendur og
sættust vel og skjótt.
Þá mælti Njáll: "Tvö
hundruð silfurs geri eg og mun þér mikið þykja."
"Eigi þykir mér þetta of
mikið," segir Gunnar og gekk heim til búðar sinnar.
Synir Njáls komu heim til
búðar og spurði Skarphéðinn hvaðan fé það hið mikla og hið góða kæmi er faðir
hans hélt á.
Njáll mælti: "Eg segi
yður víg Þórðar fóstra yðvars og höfum við Gunnar nú sæst á málið og hefir hann
tvennum manngjöldum bætt hann."
"Hverjir hafa vegið
hann?" segir Skarphéðinn.
"Sigmundur og Skjöldur
en Þráinn var þó nær staddur," segir Njáll.
"Mikils þótti þeim við
þurfa," segir Skarphéðinn, "en hvar skal þá komið er vér skulum handa
hefja?"
"Skammt mun til
þess," segir Njáll, "og munt þú þá eigi þess lattur en þó þykir mér
mikið undir að þér rjúfið eigi þessa sætt."
"Svo munum vér þá
gera," segir Skarphéðinn, "en ef til verður nokkuð með oss þá munum
vér minnast á hinn forna fjandskap."
"Engis mun eg þá um
beiða," segir Njáll.
44. kafli
Nú ríða menn heim af þingi.
Og er Gunnar kom heim mælti hann til Sigmundar: "Meiri ert þú ógiftumaður
en eg ætlaði og hefir þú til ills þína mennt. En þó hefi eg nú gervan þig
sáttan við Njál og sonu hans og skyldir þú nú eigi annarri flugu láta koma í
munn þér. Ert þú mér ekki skaplíkur. Þú ferð með spott og háð en það er ekki
mitt skap. Kemur þú þér því vel við Hallgerði að þið eigið meir skap
saman."
Gunnar taldi á hann langa
hríð en Sigmundur svaraði honum vel og kvaðst meir hans ráðum skyldu fram fara
þaðan af en þar til hafði verið. Gunnar sagði honum þá hlýða mundu. Hélst með
því nokkura hríð.
Jafnan mæltust þeir vel við,
Gunnar og Njáll og synir hans, þó að fátt væri meðal annars liðsins.
Sá atburður varð að farandi
konur komu til Hlíðarenda frá Bergþórshvoli. Þær voru málgar og heldur
illorðar. Hallgerður sat í dyngju því að hún var því vön. Þar var Þorgerður
dóttir hennar og Þráinn. Þar var og Sigmundur og fjöldi kvenna. Gunnar var eigi
þar né Kolskeggur. Farandkonur þessar gengu inn í dyngjuna. Hallgerður heilsaði
þeim og lét gefa þeim rúm. Hún spurði að tíðindum en þær kváðust engi segja.
Hallgerður spurði hvar þær hefðu verið um nóttina. Þær sögðust verið hafa að
Bergþórshvoli.
"Hvað hafðist Njáll
að?" segir Hallgerður.
"Stritaðist hann við að
sitja," sögðu þær.
"Hvað gerðu synir
Njáls?" sagði Hallgerður, "þeir þykjast helst menn."
"Miklir eru þeir að
vallarsýn en óreyndir eru þeir mjög," sögðu þær. "Skarphéðinn hvatti
öxi, Grímur skefti spjót, Helgi hnauð hjalt á sverð, Höskuldur treysti mundriða
í skildi."
"Til stórræða nokkurra
munu þeir ætla," segir Hallgerður.
"Eigi vitum við
það," segja þær.
"Hvað gerðu húskarlar
Njáls?" segir Hallgerður.
Þær svöruðu: "Eigi
vissum við hvað sumir gerðu en einn ók skarni á hóla."
"Hví mundi það
sæta?" segir Hallgerður.
Þær svöruðu: "Það sagði
hann að þar yrði taða betri en annars staðar."
"Misvitur er
Njáll," segir Hallgerður, "þar er hann kann til hversvetna ráð."
"Hvar er í því?" sögðu
þær.
"Það mun eg til finna er
satt er," segir Hallgerður, "er hann lét eigi aka í skegg sér að hann
væri sem aðrir karlmenn og köllum hann nú karl hinn skegglausa en sonu hans
taðskegglinga og kveð þú um nokkuð Sigmundur og lát oss njóta þess er þú ert
skáld."
Hann kveðst þess vera albúinn
og kvað þegar vísur þrjár eða fjórar og voru allar illar.
"Gersemi ert þú,"
sagði Hallgerður, "hversu þú ert mér eftirlátur."
Gunnar kom að í þessu. Hann
hafði staðið fyrir framan dyngjuna og heyrt á öll orðtækin. Þeim brá mjög við
er þau sáu hann inn ganga. Þá þögnuðu allir en áður hafði þar verið háreysti
mikið og hlátur.
Gunnar var reiður mjög og
mælti til Sigmundar: "Heimskur maður ert þú og óráðhollur. Þú hrópar sonu
Njáls og sjálfan hann er þó er mest vert en slíkt sem þú hefir áður af gert við
þá og mun þetta vera þinn bani. En ef nokkur maður hermir þessi orð þá skal sá
í brautu verða og hafa þó reiði mína."
En svo var þeim öllum ótti
mikill að honum að engi þorði þessi orð að herma. Síðan gekk hann í braut.
Farandkonurnar töluðu um með sér að þær mundu taka
laun af Bergþóru ef þær segðu henni þetta, fóru síðan ofan þangað og sögðu
Bergþóru á laun ófregið.
Bergþóra mælti er menn sátu undir borðum:
"Gjafar eru yður gefnar feðgum og verðið þér litlir drengir af ef þér
launið engu."
"Hversu eru gjafar
þær?" segir Skarphéðinn.
"Þér synir mínir eigið
allir eina gjöf saman. Þér eruð kallaðir taðskegglingar en bóndi minn karl hinn
skegglausi."
"Ekki höfum vér kvenna
skap," segir Skarphéðinn, "að vér reiðumst við öllu."
"Reiddist Gunnar þó
fyrir yðra hönd," segir hún, "og þykir hann skapgóður. Og ef þér
rekið eigi þessa réttar þá munuð þér engrar skammar reka."
"Gaman þykir kerlingunni
að, móður vorri, að erta oss," segir Skarphéðinn og glotti við en þó spratt
honum sveiti í enni og komu rauðir flekkar í kinnur honum en því var ekki vant.
Grímur var hljóður og beit á
vörinni. Helga brá ekki við. Höskuldur gekk fram með Bergþóru. Hún kom innar í
annað sinn og geisaði mjög.
Njáll mælti: "Kemst þó
að seint fari húsfreyja. Og fer svo um mörg mál þó að menn hafi skapraun af að
jafnan orkar tvímælis þó að hefnt sé."
En um kveldið er Njáll var
kominn í rekkju heyrði hann að öx kom við þilið og söng í hátt en lokrekkja var
önnur og héngu þar á skildir og sér hann að þeir eru í brautu.
Hann mælti: "Hverjir
hafa tekið ofan skjöldu vora?"
"Synir þínir gengu út
með," segir Bergþóra.
Njáll kippti skóm á fætur sér
og gekk út og öðrum megin hússins og sér að þeir stefna upp á hvolinn.
Hann mælti: "Hvert skal
fara Skarphéðinn?"
"Leita sauða
þinna," segir hann.
Njáll mælti: "Ekki
munduð þér þá vera vopnaðir ef þér ætluðuð það og mun annað vera erindið."
"Laxa skulum vér veiða
faðir ef vér rötum eigi sauðina," segir Skarphéðinn.
"Vel væri þá ef svo væri
að þá veiði bæri eigi undan," segir Njáll.
Þeir fóru leið sína en Njáll
gekk inn til hvílu sinnar.
Hann mælti til Bergþóru:
"Úti voru synir þínir með vopnum allir og munt þú nú hafa eggjað þá til
nokkurs."
"Allvel skal eg þakka
þeim ef þeir segja mér heim víg Sigmundar," segir Bergþóra.
45. kafli
Nú er að segja frá Njálssonum
að þeir fóru upp til Fljótshlíðar og voru um nóttina við hlíðina og fóru nær
Hlíðarenda er morgna tók. Þenna morgun hinn sama stóðu þeir upp snemma,
Sigmundur og Skjöldur, og ætluðu til stóðhrossa. Þeir höfðu beisl með sér og
tóku hross í túni og riðu í braut. Þeir leita stóðhestsins um hlíðina og fundu
hann meðal lækja tveggja og leiddu hrossin ofan að götum mjög. Skarphéðinn sá
Sigmund því að hann var í litklæðum.
Skarphéðinn mælti:
"Sjáið þér rauðálfinn sveinar?"
Þeir litu til og kváðust sjá
hann.
Þá mælti Skarphéðinn:
"Þú skalt gera að ekki Höskuldur því að þú munt oft sendur einn saman
óvarlega. En eg ætla mér Sigmund. Þykir mér það karlmannlegt. En þið Grímur og
Helgi skuluð vega að Skildi."
Höskuldur settist niður en
þeir gengu þar til er þeir komu að þeim.
Skarphéðinn mælti til
Sigmundar: "Tak vopn þín og ver þig. Er það nú meiri nauðsyn en kveða flím
um oss bræður."
Sigmundur tók vopn sín en
Skarphéðinn beið meðan. Skjöldur sneri í mót þeim Grími og Helga og börðust
þeir í ákafa. Sigmundur hafði hjálm á höfði sér og skjöld á hlið og gyrður
sverði og hafði spjót í hendi, snýr nú í mót Skarphéðni og leggur þegar
spjótinu til hans og kemur í skjöldinn. Skarphéðinn laust í sundur spjótskaftið
og færir upp öxina í annað sinn og höggur til Sigmundar og kom í skjöldinn og
klauf ofan öðrum megin mundriða. Sigmundur brá sverðinu hinni hægri hendi og
höggur til Skarphéðins og kom í skjöldinn og festi sverðið í skildinum.
Skarphéðinn snaraði svo fast skjöldinn að Sigmundur lét laust sverðið.
Skarphéðinn hjó þá enn til Sigmundar með öxinni Rimmugýgi. Sigmundur var í
pansara. Öxin kom á öxlina og klauf ofan herðarblaðið. Hann hnykkir að sér
öxinni og féll Sigmundur á kné bæði og spratt upp þegar.
"Laust þú mér nú,"
segir Skarphéðinn, "en þó skalt þú í móðurætt falla áður við
skiljum."
"Það er illa þá,"
segir Sigmundur.
Skarphéðinn laust á hjálminn
Sigmundar og hjó hann síðan banahögg. Grímur hjó á fótinn Skildi og tók af í
ristarliðnum en Helgi lagði sverði í gegnum hann og hafði hann þá bana.
Skarphéðinn sá smalamann
Hallgerðar. Þá hafði hann höggvið höfuð af Sigmundi. Hann seldi smalamanni í
hendur höfuðið og bað hann færa Hallgerði og kvað hana kenna mundu hvort það
höfuð hefði kveðið níð um þá.
Smalamaður kastaði niður
þegar höfðinu er þeir skildu því að hann þorði eigi meðan þeir voru við. Þeir
bræður fóru nú þar til er þeir fundu menn niðri við Markarfljót og sögðu þeim
tíðindin. Lýsti Skarphéðinn vígi Sigmundar á hendur sér en þeir Grímur og Helgi
vígi Skjaldar sér á hendur. Fóru þeir þá heim og sögðu Njáli tíðindin.
Njáll mælti: "Njótið
heilir handa. Hér skulu eigi sjálfdæmi fyrir koma að svo búnu."
Nú er þar til máls að taka er
smalamaður kemur heim til Hlíðarenda. Hann segir Hallgerði tíðindin.
"Fékk Skarphéðinn mér í
hendur höfuð Sigmundar og bað mig færa þér en eg þorði eigi að gera það,"
segir hann, "því að eg vissi eigi hversu þér mundi það líka."
"Það var illa er þú
gerðir það eigi," segir hún. "Eg skyldi færa Gunnari höfuðið og mundi
hann þá hefna frænda síns eða sitja fyrir hvers manns ámæli."
Síðan gekk hún til Gunnars og
mælti: "Eg segi þér víg Sigmundar frænda þíns. Hefir Skarphéðinn vegið
hann og vildi láta færa mér höfuðið."
"Slíks var Sigmundi
von," segir Gunnar, "því að illa gefast ill ráð. En jafnan gerir
hvort ykkart Skarphéðins grálega til annars."
Gekk þá Gunnar í braut. Hann lét ekki búa til
vígsmálið og engan hlut að hafa. Hallgerður minnti oft á og sagði Sigmund vera
óbættan. Gunnar gaf ekki gaum að því.
Nú liðu þrjú þing þau er menn ætluðu að hann mundi
sækja málið. Þá kom eitt vandamál að hendi Gunnari það er hann vissi
eigi hversu upp skyldi taka. Reið hann þá til fundar við Njál. Hann fagnar vel
Gunnari.
Gunnar mælti til Njáls:
"Heilræði er eg kominn að sækja að þér um eitt vandamál."
"Maklegur ert þú
þeirra," segir Njáll og réð honum ráðin.
Gunnar stóð þá upp og þakkaði
honum.
Njáll mælti þá og tók til
Gunnars: "Helsti lengi hefir Sigmundur frændi þinn óbættur verið."
"Fyrir löngu var hann
bættur," segir Gunnar, "en þó vil eg eigi drepa hendi við sóma
mínum."
Gunnar hafði aldrei illa mælt
til Njálssona. Njáll vildi ekki annað en Gunnar gerði um málið. Hann gerði tvö
hundruð silfurs en lét Skjöld vera ógildan. Þeir greiddu þegar allt féið.
Gunnar sagði sætt þeirra upp á Þingskálaþingi þá er þar var mest fjölmenni og
tjáði hversu þeim hafði vel farið feðgum og sagði um orð þau hin illu er
Sigmundi dró til höfuðsbana og skyldi engi þau herma síðan en vera ógildur hver
sem hermdi. Þeir mæltu það báðir, Gunnar og Njáll, að engir hlutir skyldu þeir
til verða að eigi semdu þeir sjálfir. Efndist það og vel síðan og voru þeir
jafnan vinir.
46. kafli
Gissur hvíti hét maður. Hann
var Teitsson Ketilbjarnarsonar hins gamla frá Mosfelli. Móðir Gissurar hét
Ólöf. Hún var dóttir Böðvars hersis Víkinga-Kárasonar. Ísleifur byskup var
sonur Gissurar. Móðir Teits hét Helga og var dóttir Þórðar Skeggja Hrappssonar
Bjarnarsonar bunu. Gissur hvíti bjó að Mosfelli og var höfðingi mikill.
Sá maður er nefndur til
sögunnar er Geir hét. Hann var kallaður Geir goði. Móðir hans hét Þorkatla og
var dóttir Ketilbjarnar hins gamla frá Mosfelli. Geir bjó í Hlíð í
Byskupstungu. Þeir Geir og Gissur fylgdust að hverju máli.
Í þenna tíma bjó Mörður
Valgarðsson að Hofi á Rangárvöllum. Hann var slægur og illgjarn. Þá var
Valgarður utan, faðir hans, en móðir hans önduð. Hann öfundaði mjög Gunnar frá
Hlíðarenda. Hann var vel auðigur að fé og heldur óvinsæll.
47. kafli
Otkell hét maður. Hann var Skarfsson
Hallkelssonar. Sá Hallkell barðist við Grím í Grímsnesi og felldi hann á hólmi.
Þeir voru bræður Hallkell og Ketilbjörn hinn gamli. Otkell bjó í Kirkjubæ.
Þorgerður hét kona hans. Hún var Másdóttir Bröndólfssonar Naddaðarsonar hins
færeyska. Otkell var auðigur að fé. Sonur hans hét Þorgeir. Hann var á ungum
aldri og gervilegur maður.
Skammkell hét maður. Hann bjó
að Hofi öðru. Hann átti vel fé. Hann var maður illgjarn og lyginn, ódæll og
illur viðureignar. Hann var vinur Otkels mikill.
Hallkell hét bróðir Otkels.
Hann var mikill maður og sterkur og var þar með Otkatli. Bróðir þeirra hét
Hallbjörn hvíti. Hann flutt út þræl einn er Melkólfur hét. Hann var írskur og
heldur óvinsæll. Hallbjörn fór til vistar með Otkatli og svo Melkólfur þræll.
Þrællinn mælti það jafnan að hann þættist sæll ef Otkell ætti hann. Otkell var
vel til hans og gaf honum hníf og belti og alklæðnað en þrællinn vann allt það
er hann vildi. Otkell falaði þrælinn að bróður sínum. Hann kvaðst mundu gefa
honum þrælinn en kvað þó verra grip í en hann ætlaði. En þegar er Otkell átti
þrælinn þá vann hann allt verr. Otkell talaði oft um það fyrir Hallbirni bróður
sínum að honum þótti þrællinn lítið vinna en hann kvað honum þó annað verr
gefið.
Í þenna tíma kom hallæri
mikið svo að menn skorti bæði hey og mat og gekk það um allar sveitir. Gunnar
miðlaði mörgum manni hey og mat og höfðu allir þeir er þangað komu meðan til
var. Svo kom að Gunnar skorti bæði hey og mat. Þá kvaddi Gunnar Kolskegg til
ferðar með sér og þá Sigfússonu og Lamba Sigurðarson. Þeir fóru í Kirkjubæ og
kölluðu Otkel út. Hann heilsaði
þeim.
Gunnar mælti: "Svo er
háttað að eg er kominn að fala að þér hey og mat ef til er."
Otkell svarar:
"Hvorttveggja er til en hvortgi mun eg þér selja."
"Vilt þú gefa mér
þá," segir Gunnar, "og hætta til hverju eg launa þér?"
"Eigi vil eg það,"
segir Otkell.
Skammkell var tillagaillur.
Þráinn Sigfússon mælti:
"Þess væri vert að vér tækjum upp bæði hey og mat og legðum verð í
staðinn."
"Aldauða eru þá
Mosfellingar," segir Skammkell, "ef þér Sigfússynir skuluð ræna
þá."
"Með engi rán munum vér
fara," segir Gunnar.
"Vilt þú kaupa þræl að
mér?" segir Otkell.
"Það spara eg
eigi," segir Gunnar.
Síðan keypti Gunnar þrælinn
og fór í braut við svo búið.
Þetta spyr Njáll og mælti:
"Illa er slíkt gert að varna Gunnari kaups. Er þar öðrum eigi góðs von er slíkir fá
eigi."
Bergþóra húsfreyja mælti: "Hvað skalt þú
margt um slíkt tala? Er þér miklu drengilegra að fá honum bæði mat og
hey er þig skortir hvortgi til."
Njáll mælti: "Þetta er
dagsanna og skal eg víst birgja hann að nokkuru."
Fór hann þá upp í Þórólfsfell
og synir hans og bundu þar hey á fimmtán hesta en á finn hestum höfðu þeir mat.
Njáll kom til Hlíðarenda og kallaði út Gunnar. Hann fagnar þeim vel.
Njáll mælti: "Hér er hey
og matur er eg vil gefa þér. Vil eg að þú leitir aldrei annarra en mín ef þú
þarft nokkurs við."
"Góðar eru gjafar
þínar," segir Gunnar, "en meira þykir mér verð vinátta þín og sona
þinna."
Fór Njáll heim síðan. Líður nú vorið.
48. kafli
Gunnar ríður til þings um sumarið en að hans gisti
fjölmenni mikið austan af Síðu. Gunnar bauð að þeir gistu þar er þeir riðu af
þingi. Þeir kváðust svo gera mundu. Ríða nú til þings. Njáll var á þingi
og synir hans. Þingið er kyrrt.
Nú er þar til að taka að
Hallgerður kemur að máli við Melkólf þræl: "Sendiför hefi eg hugað
þér," segir hún, "þú skalt fara í Kirkjubæ."
"Og hvað skal eg
þangað?" segir hann.
Þú skalt stela þaðan mat á
tvo hesta og hafa smjör og ost en þú skalt leggja eld í útibúrið og munu allir
ætla að af vangeymslu hafi orðið en engi mun ætla að stolið hafi verið."
Þrællinn mælti: "Vondur
hefi eg verið en aldrei hefi eg þjófur verið."
"Heyr á endemi,"
segir Hallgerður, "þú gerir þig góðan þar sem þú hefir bæði verið þjófur
og morðingi og skalt þú eigi þora annað en fara ella skal eg láta drepa
þig."
Hann þóttist vita að hún
mundi svo gera ef hann færi eigi. Tók hann um nóttina tvo hesta og lagði á
lénur og fór í Kirkjubæ. Hundurinn gó eigi að honum og kenndi hann og hljóp í
mót honum og lét vel við hann. Síðan fór hann til útibúrs og lauk upp og
klyfjaði þaðan tvo hesta af mat en brenndi búrið og drap hundinn. Hann fer upp
með Rangá. Þá slitnar skóþvengur hans og tekur hann hnífinn og gerir að. Honum
liggur eftir hnífurinn og beltið. Hann fer þar til er hann kemur til
Hlíðarenda. Þá saknar hann hnífsins og þorir eigi aftur að fara, færir nú
Hallgerði matinn. Hún lét vel yfir hans ferð.
Um morguninn er menn komu út
í Kirkjubæ sáu menn þar skaða mikinn. Var þá sendur maður til þings að segja
Otkatli því að hann var á þingi. Hann var vel við skaðann og kvað það valdið
mundu hafa að eldhúsið var áfast útibúrinu og ætluðu það þá allir að það mundi
til hafa borið.
Nú ríða menn heim af þingi og
riðu margir til Hlíðarenda. Hallgerður bar mat á borð og kom innar ostur og
smjör. Gunnar vissi slíks matar þar ekki von og spurði Hallgerði hvaðan það
kæmi.
"Þaðan sem þú mátt vel
eta," segir hún, "enda er það ekki karla að annast um matreiðu."
Gunnar reiddist og mælti:
"Illa er þá ef eg er þjófsnautur" og lýstur hana kinnhest.
Hún kvaðst þann hest muna
skyldu og launa ef hún mætti. Gekk hún þá fram og hann með henni og var þá
borið allt af borðinu en borið innar slátur og ætluðu allir að það mundi til
hafa borið að þá mundi þykja fengið betur. Fara þingmenn nú í braut.
49. kafli
Nú er að segja frá Skammkatli
að hann ríður að sauðum upp með Rangá og sér hann að glóar nokkuð í götunni og
hleypur af baki og tekur upp og var það hnífur og belti og þykist hann kenna
hvorttveggja og fer í Kirkjubæ. Otkell er úti staddur og fagnar honum vel.
Skammkell mælti til Otkels:
"Kennir þú nokkuð til gripa þessa?"
"Kenni eg víst,"
segir Otkell.
"Hver á?" segir
Skammkell.
"Melkólfur þræll,"
segir Otkell.
"Kenna skulu þá
fleiri," segir Skammkell, "en við tveir því að trúr skal eg þér í
ráðum."
Þeir sýndu mörgum mönnum og
kenndu þeir allir.
Þá mælti Skammkell:
"Hvað munt þú nú til ráða taka?"
Otkell svaraði: "Við
skulum fara að finna Mörð Valgarðsson og sýna honum og vita hvað hann leggi til
ráðs með okkur."
Síðan fóru þeir til Hofs og
sýndu Merði gripina og spurðu ef hann kenndi.
Hann kvaðst kenna "eða
hvað er að því? Þykist þér til Hlíðarenda eiga eftir nokkuru að sjá?"
"Vant þykir oss með
slíku að fara," segir Skammkell, "er slíkir ofureflismenn eiga í
hlut."
"Svo er víst,"
segir Mörður, "en þó mun eg vita þá hluti úr híbýlum Gunnars er hvorgi
ykkar mun vita."
"Gefa viljum vér þér fé
til," segja þeir, "að þú leitir eftir þessu máli."
Mörður svaraði: "Það fé
mun mér fullkeypt en þó má vera að eg hætti á."
Síðan gáfu þeir honum þrjár
merkur silfurs að hann skyldi vera með þeim í ráðagerð og liðveislu. Hann gaf
það ráð til að konur skyldu fara með smávarning og gefa húsfreyjum og vita
hverju þeim væri launað "því að allir hafa það skaplyndi," segir
Mörður, "að gefa það fyrst upp er stolið er ef það hafa að varðveita. Mun
hér og svo ef af mannavöldum er. Skulu þær þá sýna mér af hverju gefið er
hvargi. Vil eg þá vera laus máls þessa ef uppvíst verður."
Þessu játuðu þeir. Fóru þeir heim síðan.
Mörður sendi konur í hérað og voru þær í brautu
hálfan mánuð. Þær komu aftur og höfðu byrðar stórar. Mörður spurði hvar
þeim hefði mest gefið verið. Þær sögðu að þeim hefði að Hlíðarenda mest gefið
verið og Hallgerður yrði þeim mestur drengur.
Hann spyr hvað þeim væri þar
gefið.
"Ostur," segja þær.
Hann beiddist að sjá. Þær
sýndu honum og voru það sneiðir margar. Tók hann þær og varðveitti. Litlu síðar
fór Mörður að finna Otkel. Bað hann að taka skyldi ostkistu Þorgerðar og var
svo gert. Lagði hann þar í niður sneiðirnar og stóðst það á endum og ostkistan.
Sáu þeir þá að þeim hafði heill hleifur gefinn verið.
Þá mælti Mörður: "Nú
megið þér sjá að Hallgerður mun stolið hafa ostinum."
Drógu þeir þá öll dæmi saman.
Sagði Mörður þá að hann þóttist laus þessa máls. Skildu þeir að því.
Kolskeggur kom að máli við
Gunnar og mælti: "Illt er að segja. Alræmt er að Hallgerður muni stolið
hafa og valdið þeim hinum mikla skaða er varð í Kirkjubæ."
Gunnar kvaðst ætla að svo
mundi vera "eða hvað er nú til ráðs?"
Kolskeggur svaraði: "Þú
munt þykja skyldastur að bæta fyrir konu þinni og þykir mér ráð að þú farir að
finna Otkel og bjóðir honum góð boð."
"Þetta er vel
mælt," segir Gunnar, "og skal svo vera."
Litlu síðar sendi Gunnar
eftir Þráni Sigfússyni og Lamba Sigurðarsyni og komu þeir þegar. Gunnar sagði
þeim hvert hann ætlaði. Þeir létu vel yfir því.
Gunnar reið við hinn tólfta
mann í Kirkjubæ og kallaði út Otkel.
Þar var Skammkell og mælti:
"Eg skal út ganga með þér og mun nú betra að hafa vitsmuni við. Mundi eg
það vilja að standa þér þá næst er þú þyrftir mest sem nú mun vera. Þykir mér
það ráð að þú látir drjúglega."
Síðan gengu þeir út, Otkell
og Skammkell, Hallkell og Hallbjörn. Þeir heilsuðu Gunnari. Hann tók því vel. Otkell spyr hvert hann
ætlaði að fara.
"Ekki lengra en
hingað," segir Gunnar, "og er það erindi mitt að segja þér um skaða
þann hinn mikla og hinn illa er hér er orðinn að hann er af völdum konu minnar
og þræls þess er eg keypti að þér."
"Slíks var von,"
segir Hallbjörn.
Gunnar mælti: "Hér vil
eg bjóða fyrir góð boð og bjóða að hinir bestu menn skipi um í héraðinu."
Skammkell mælti: "Þetta
eru áheyrileg boð og ójafnleg. Þú ert vinsæll af bóndum en Otkell er
óvinsæll."
"Bjóða mun eg,"
segir Gunnar, "að gera um sjálfur og lúka upp þegar og leggja á vináttu
mína og greiða nú allt féið og mun eg bæta þér tvennum bótum."
Skammkell mælti: "Þenna
kost skalt þú eigi þiggja og er það grunnúðlegt ef þú ætlar að selja honum
sjálfdæmi þar er þú ættir að taka."
Otkell mælti: "Eigi vil
eg selja þér sjálfdæmi Gunnar."
Gunnar mælti: "Skil eg
hér tillögur manna nærgi er launað verður, enda dæm þú nú sjálfur."
Otkell laut að Skammkatli og
mælti: "Hverju skal eg nú svara?"
Skammkell mælti: "Þetta
skalt þú kalla vel boðið en víkja máli þínu undir Gissur hvíta og Geir goða.
Munu það þá margir mæla að þú sért líkur Hallkatli föðurföður þínum er mestur
kappi hefir verið."
Otkell mælti: "Vel er
þetta boðið Gunnar en þó vil eg að þú ljáir mér tómstundar til að finna Gissur
hvíta og Geir goða."
Gunnar mælti: "Far þú nú
með sem þér líkar. En það munu sumir menn mæla að þú kunnir eigi að sjá sóma
þinn er þú vilt eigi þessa kosti er eg býð þér."
Ríður Gunnar heim.
Og er Gunnar var í brautu
mælti Hallbjörn: "Hér veit eg mestan mannamun. Gunnar bauð þér aldrei svo
góð boð að þú vildir þiggja eða hvað munt þú mega ætla þér að deila við Gunnar illdeilum
þar sem engi er hans jafningi? En þó er hann svo vel að sér að hann mun láta
standa boð þessi þó að þú þiggir síðar. Þykir mér ráð að þú farir að finna
Gissur hvíta og Geir goða nú þegar."
Otkell lét taka hest sinn og
bjó sig að öllu. Otkell var ekki glöggskyggn. Skammkell gekk á leið með
Otkatli.
Hann ræddi við Otkel:
"Undur þótti mér er bróðir þinn vildi eigi taka af þér þetta starf. Vil eg
bjóða þér að fara fyrir þig er eg veit að þér þykir mikið fyrir ferðum."
"Það mun eg
þiggja," sagði Otkell, "og ver þú sem réttorðastur."
"Svo skal vera,"
segir Skammkell.
Tók Skammkell þá við hestinum
og við klæðum Otkels en Otkell gengur heim.
Hallbjörn var úti og mælti
til Otkels: "Illt er að eiga þræl að einkavin og munum vér þessa jafnan
iðrast er þú hefir aftur horfið og er það óviturlegt bragð að senda hinn
lygnasta mann þess erindis er svo mun mega að kveða að líf manna liggi
við."
"Hræddur mundir þú
verða," segir Otkell, "ef Gunnar hefði á lofti atgeirinn er þú ert nú
svo."
"Eigi veit það,"
segir Hallbjörn, "hver þá er hræddastur en það munt þú eiga til að segja
að Gunnar mun ekki lengi munda atgeirinum ef hann færir hann á loft og sé hann
reiður."
Otkell mælti: "Hvikið
þér allir nema Skammkell."
Voru þeir þá báðir reiðir.
50. kafli
Skammkell kom til Mosfells og
hermdi boð öll fyrir Gissuri.
"Svo líst mér,"
segir Gissur, "sem þetta hafi allvel boðið verið eða fyrir hví þá Otkell
eigi boð þessi?"
"Það var mest í
því," segir Skammkell, "að allir vildu leita þér vegs og beið hann af
því þinna atkvæða og mun öllum það best gegna."
Þar var Skammkell um nóttina.
Gissur sendi mann eftir Geiri
goða og kom hann ofan snemma.
Segir þá Gissur honum allt
hversu farið var, spurði þá hversu með skyldi fara.
Geir mælti: "Svo sem þú
munt áður ætlað hafa að gera það af þessu máli sem best gegnir. Nú munum við
láta Skammkel segja söguna í annað sinn og vita hversu honum hermist."
Þeir gerðu svo.
Geir mælti: "Rétt munt
þú sagt hafa sögu þessa en þó hefi eg þig séð illmannlegastan mann og eigi
deilir litur kosti ef þú gefst vel."
Fór Skammkell heim og ríður
fyrst í Kirkjubæ og kallar út Otkel. Hann fagnar vel Skammkatli.
Skammkell segir honum kveðju
Gissurar og Geirs "en um málaferli þessi þarf ekki að tala hljóðlega að
það er vilji þeirra Geirs goða og Gissurar að sættast ekki á mál þessi. Er það
tillaga þeirra að þú farir til Hlíðarenda og stefnir Hallgerði um stuld en
Gunnari um afneyslu."
Otkell mælti: "Svo skal
með öllu fara sem þeir hafa ráð til gefið."
"Þeim þótti og undir því
mest," segir Skammkell, "að þú hefðir sem mikillegast látið en eg
gerði þig sem mestan mann af öllu."
Nú segir Otkell bræðrum
sínum.
Hallbjörn mælti: "Þetta
mun vera hin mesta lygi."
Nú líða stundir þar til er
stefnudagar komu hinir síðustu til alþingis. Otkell kvaddi bræður sína og
Skammkel að ríða til Hlíðarenda stefnuför.
Hallbjörn kvaðst fara mundu
en kvað þá þessar ferðar iðrast mundu "þá er stundir líða."
Nú ríða þeir tólf saman til
Hlíðarenda. En er þeir komu í túnið þá var Gunnar úti og fann eigi fyrr en þeir
komu allt að bænum. Hann gengur þá eigi inn. Otkell lætur þegar dynja stefnuna.
En er þeir höfðu fram flutt
stefnuna þá mælti Skammkell: "Er rétt stefnt Gunnar bóndi?"
"Þér vitið slíkt,"
segir Gunnar, "en minna skal eg þig á ferð þessa Skammkell eitthvert sinn
og tillögur þínar."
"Það mun oss ekki
saka," segir Skammkell, "ef atgeirinn er eigi á lofti."
Gunnar var hinn reiðasti og
gekk inn og sagði Kolskeggi.
Kolskeggur mælti: "Illa
var er vér vorum eigi úti. Þeir skyldu hafa farið hingað hina mestu sneypu ef
vér hefðum við verið."
Gunnar mælti: "Hvað
bíður sinnar stundar en ekki mun þeim för sjá til sæmdar verða."
Litlu síðar fór Gunnar að
finna Njál og sagði honum.
Njáll mælti: "Lát þú
lítt á þig fá því að þetta mun þér verða til hinnar mestu sæmdar áður þessu
þingi sé lokið. Skulum vér og fylgja þér allir með ráðum og kappi."
Gunnar þakkaði honum og reið
heim.
Otkell ríður til þings og
bræður hans og Skammkell.
51. kafli
Gunnar reið til þings og
allir Sigfússynir, svo Njáll og synir hans. Þeir gengu með Gunnari allir og var
það mælt að engi flokkur mundi jafn harðsnúinn þeim.
Gunnar gekk einn dag til
búðar Dalamanna. Hrútur var við búð og Höskuldur og fögnuðu þeir vel Gunnari.
Gunnar segir þeim alla sögu um málaferli þessi.
"Hvað leggur Njáll til
ráðs?" segir Hrútur.
Gunnar svaraði: "Hann
bað mig finna ykkur bræður og segja svo að eitt ráð mundi honum um það sýnast
sem ykkur."
"Það vill hann þá,"
segir Hrútur, "að eg kveði upp fyrir vensla sakir og skal svo vera. Þú
skalt skora á hólm Gissuri hvíta ef þeir bjóða þér eigi sjálfdæmi en Kolskeggur
Geiri goða. En fást munu menn til að ganga að móti Otkatli og bræðrum hans. Og
höfum vér nú lið svo mikið allir saman að þú mátt fram koma slíku sem þú vilt."
Gunnar gekk heim til búðar og
sagði Njáli.
"Slíks var mér
von," sagði Njáll.
Úlfur aurgoði varð vís þessar
ráðagerðar og sagði Gissuri.
Gissur mælti til Otkels:
"Hver lagði það til ráðs með þér að þú skyldir stefna Gunnari?"
"Skammkell sagði mér að
það væri ráðagerð ykkur Geirs goða," segir Otkell.
"En hvar er mannfýla
sú," segir Gissur, "er þetta hefir logið?"
"Hann liggur sjúkur
heima að búð," segir Otkell.
"Þar er hann standi
aldrei upp," segir Gissur. "En nú skulum vér allir ganga að finna
Gunnar og bjóða honum sjálfdæmi og veit eg þó eigi hvort hann vill þau nú
taka."
Margir menn mæltu illt við
Skammkel og lá hann sjúkur um allt þingið.
Þeir Gissur gengu til búðar
Gunnars. Kennd var för þeirra og var sagt Gunnari inn í búðina. Þeir gengu út
allir og fylktu. Gissur hvíti gekk fyrstur.
Hann mælti er þeir fundust:
"Það er boð vort Gunnar að þú dæmir sjálfur málið ykkart Otkels."
"Fjarri mun það þá þínu
ráði," segir Gunnar, "er mér var stefnt."
"Eigi réð eg því,"
segir Gissur, "og hvorgi okkar Geirs."
"Þá muntu vilja synja
þess með skynsemd," segir Gunnar.
"Hvers beiðist þú
um?" segir Gissur.
"Þess að þú vinnir
eið," segir Gunnar.
"Það vil eg gera,"
segir Gissur, "ef þú vilt þiggja sjálfdæmið."
"Það bauð eg fyrir
stundu," segir Gunnar, "en nú þykir mér um meira að dæma."
Njáll mælti: "Eigi er að
níta sjálfdæminu, þess að meiri sæmdar er fyrir vert, er meira er málið."
Gunnar mælti: "Gera mun
eg til skaps vina minna að dæma málið. En það ræð eg Otkatli að ekki geri hann
til saka við mig síðan."
Þá var sent eftir Höskuldi og
Hrúti og komu þeir þangað til. Vann þá Gissur eið og Geir goði en Gunnar gerði
gerðina og réðst við engann mann um og síðan sagði hann upp gerðina.
"Það er gerð mín,"
sagði hann, "að eg geri verð húss og matar þess er inni var. En fyrir
þrælinn vil eg þér ekki bæta þar er þú leyndir annmarka á honum. Geri eg hann
þér til handa Otkell því að þar eru eyru sæmst sem óxu. Met eg svo sem þér
hafið stefnt mér til háðungar og fyrir það dæmi eg eigi minna til handa mér en
vert er þetta fé, húsið og það er inni brann. En ef yður þykir betra að vér
séum ósáttir þá læt eg þess enn kost en gert hefi eg þá enn eitt ráð fyrir mér
og skal það þá fram koma."
Gissur svarar: "Það
viljum vér að þú gjaldir ekki fé en þess beiðum vér að þú sért vinur
Otkels."
"Það skal verða
aldrei," segir Gunnar, "meðan eg lifi og mun hann hafa vináttu
Skammkels. Þeirri hefir hann lengi hlítt."
Gissur svarar: "Þó
viljum vér nú lúka málinu þó að þú ráðir einn skildaganum."
Voru þá handsalaðar þessar
sættir allar.
Gunnar mælti til Otkels:
"Ráðlegra er þér að fara til frænda þinna. En ef þú vilt vera þar í sveit
þá ger þú ekki til saka við mig."
Gissur mælti: "Þetta er
heilræði og skal hann svo gera."
Gunnar hafði mikla sæmd af
málinu. Riðu menn síðan heim af þingi. Situr nú Gunnar í búi sínu og er nú
kyrrt um hríð.
52. kafli
Runólfur hét maður sonur Úlfs
aurgoða. Hann bjó í Dal fyrir austan Markarfljót. Hann gisti Otkel er hann reið
af þingi. Otkell gaf honum uxa alsvartan, níu vetra gamlan. Runólfur þakkaði
honum gjöfina og bauð honum heim þá er hann vildi fara og stóð þetta heimboð
nokkurt skeið svo að hann fór eigi. Runólfur sendi honum oft menn og minnti á
að hann skyldi fara og hét hann jafnan ferðinni. Otkell átti hesta tvo
bleikálótta. Þeir voru bestir hestar að reið í héraðinu og svo elskir hvor að
öðrum að hvor rann eftir öðrum.
Austmaður var á vist með
Otkatli er Auðúlfur hét. Hann lagði hug á Signýju dóttur Otkels. Auðúlfur var
mikill maður vexti og styrkur.
53. kafli
Það var um vorið að Otkell
mælti að þeir mundu ríða austur í Dal að heimboði og létu allir vel yfir því.
Skammkell var í för með Otkatli og bræður hans tveir, Auðúlfur og þrír menn
aðrir. Otkell reið hinum bleikálótta hesti en annar rann hjá laus. Stefna þeir
austur til Markarfljóts. Hleypir hann nú fyrir Otkel. Ærast nú báðir hestarnir
og hlaupa af leiðinni upp til Fljótshlíðar. Fer Otkell nú meira en hann vildi.
Gunnar hafði farið heiman
einn samt af bæ sínum og hafði kornkippu í annarri hendi en handöxi í annarri.
Hann gengur á sáðland sitt og sáir þar niður korninu og lagði guðvefjarskikkju
sína niður hjá sér og öxina og sáir nú korninu um hríð.
Nú er að segja frá Otkatli að
hann ríður meira en hann vildi. Hann hefir spora á fótum og hleypir neðan um
sáðlandið og sér hvorgi þeirra Gunnars annan. Og í því er Gunnar stendur upp
ríður Otkell á hann ofan og rekur sporann við eyra Gunnari og rístur hann mikla
ristu og blæðir þegar mjög. Þar riðu þá félagar Otkels.
"Allir megið þér
sjá," segir Gunnar, "að þú hefir blóðgað mig og er slíkt ósæmilega
farið. Hefir þú stefnt mér fyrst en nú treður þú mig undir fótum og ríður á
mig."
Skammkell mælti: "Vel er
við orðið bóndi en hvergi varst þú óreiðulegri á þinginu þá er þú tókst sjálfdæmið
og þú hélst á atgeirinum."
Gunnar mælti: "Þá er við
finnumst næst skalt þú sjá atgeirinn."
Síðan skilja þeir að því.
Skammkell æpti upp og mælti:
"Hart ríðið þér sveinar."
Gunnar gekk heim og gat fyrir
engum manni um og ætluðu engir að þetta mundi af mannavöldum vera. Einu hverju
sinni var það að hann sagði Kolskeggi bróður sínum.
Kolskeggur mælti: "Þetta
skalt þú segja fleirum mönnum að eigi sé það mælt að þú gefir dauðum sök því að
þrætt mun vera í móti ef eigi vita vitni áður hvað þér hafið saman átt."
Gunnar sagði nábúum sínum og
var lítil orðræða á fyrst.
Otkell kemur austur í Dal og
er þar við þeim vel tekið og sitja þar viku. Otkell sagði Runólfi allt hversu
fór með þeim Gunnari. Einn maður varð til að spyrja að því hversu Gunnar varð við.
Skammkell mælti: "Það
mundi mælt ef ótiginn maður væri að grátið hefði."
"Illa er slíkt
mælt," segir Runólfur, "og munt þú það eiga til að segja næst er þið
finnist að úr sé grátraust úr skapi hans. Og væri það vel ef eigi gyldu betri
menn þinnar illsku. Líst mér nú hitt ráð þá er þér viljið heim fara að eg fari
með yður því að Gunnar mun eigi gera mér mein."
"Eigi vil eg það,"
segir Otkell, "og munum vér ríða neðarlega yfir fljótið."
Runólfur gaf Otkatli góðar
gjafar og kvað þá eigi sjást mundu oftar. Otkell bað hann þá muna syni sínum ef
svo bæri við það er með þeim var vel.
54. kafli
Nú er þar til máls að taka að
Gunnar var úti að Hlíðarenda og sér smalamann sinn hleypa að garði.
Smalamaðurinn reið heim í túnið.
Gunnar mælti: "Hví ríður
þú svo hart?"
"Eg vildi vera þér
trúlyndur," segir hann. "Eg sá menn ríða ofan með Markarfljóti átta
saman og voru fjórir í litklæðum."
Gunnar mælti: "Þar mun
vera Otkell."
"Vildi eg því segja
þér," segir smalamaðurinn, "að eg hefi oft heyrt mörg skapraunarorð
þeirra. Sagði svo Skammkell austur í Dal að þú hefðir grátið þá er þeir riðu á
þig ofan. Þykja mér ill vera orðtök vondra manna."
"Ekki skulum við vera
orðsjúkir," segir Gunnar, "en það eitt skalt þú vinna héðan í frá er
þú vilt."
"Skal eg nokkuð segja
Kolskeggi bróður þínum?" segir smalamaðurinn.
"Far þú og sof,"
segir Gunnar. "Eg mun segja Kolskeggi slíkt er mér líkar."
Sveinninn lagðist niður og
sofnaði þegar.
Gunnar tók smalahestinn og
lagði á söðul sinn. Hann tók skjöld sinn og gyrti sig sverðinu Ölvisnaut, setur
hjálm á höfuð sér, tekur atgeirinn og söng í honum hátt og heyrði Rannveig
móðir hans.
Hún gekk fram og mælti:
"Reiðulegur ert þú nú son minn og ekki sá eg þig slíkan fyrr."
Gunnar gengur út og stingur
niður atgeirinum og verpur sér í söðulinn og ríður braut. Rannveig gekk til
stofu. Þar var háreysti mikið.
"Hátt kveðið þér,"
segir hún, "en þó lét hærra atgeirinn er Gunnar gekk út."
Kolskeggur heyrði og mælti:
"Það mun eigi engra tíðinda vita."
"Það er vel," segir
Hallgerður, "nú munu þeir reyna hvort hann gengur grátandi undan
þeim."
Kolskeggur tekur vopn sín og
leitar sér að hesti og ríður eftir slíkt er hann mátti.
Gunnar ríður um Akratungu
þvera og svo til Geilastofna og þaðan til Rangár og ofan til vaðs hjá Hofi. Konur voru þar á stöðli. Gunnar
hljóp af hesti sínum og batt. Þá riðu hinir að. Móhellur voru í götunum við
vaðið.
Gunnar mælti til þeirra:
"Nú er að verja sig. Er hér nú atgeirinn. Munuð þér nú og reyna hvort eg
græt nokkuð fyrir yður."
Þeir hljópu þá allir af baki
og sóttu að Gunnari. Hallbjörn var fremstur.
"Sæk þú eigi að,"
segir Gunnar. "Þér vildi eg síst illt gera en eg mun þó engum hlífa ef eg
á hendur mínar að verja."
"Það mun ekki
gera," segir Hallbjörn. Þú munt þó drepa vilja bróður minn og er það skömm
ef eg sit hjá" og lagði til Gunnars tveim höndum miklu spjóti.
Gunnar skaut fyrir skildinum
en Hallbjörn lagði í gegn um skjöldinn. Gunnar skaut svo fast niður skildinum
að hann stóð fastur í jörðunni en tók til sverðsins svo skjótt að eigi mátti
auga á festa og hjó með sverðinu og kom á höndina Hallbirni fyrir ofan úlflið
svo að af tók.
Skammkell hljóp á bak Gunnari
og höggur til hans með mikilli öxi. Gunnar snerist skjótt að honum og lýstur
við atgeirinum og kom undir kverk öxinni og hraut hún úr hendi honum út á
Rangá. Gunnar leggur í annað sinn atgeirinum og í gegnum Skammkel og vegur hann
upp og kastar honum í leirgötuna að höfðinu. Auðólfur austmaður þreif upp spjót
og skaut að Gunnari. Gunnar tók á lofti spjótið og skaut aftur þegar og fló í
gegnum skjöldinn og austmanninn og niður í völlinn. Otkell höggur með sverði
til Gunnars og stefnir á fótinn fyrir neðan kné. Gunnar hljóp í loft upp og
missir Otkell hans. Gunnar leggur atgeirinum til hans og í gegnum hann. Þá
kemur Kolskeggur að og hleypur þegar að Hallkatli og höggur hann banahögg með
saxinu. Þar vega þeir þá átta.
Kona hljóp heim, er sá, og
sagði Merði og bað hann skilja þá.
"Þeir einir munu
vera," segir hann, "að eg hirði aldrei þó að drepist."
"Eigi munt þú það vilja
mæla," segir hún, "þar mun vera Gunnar frændi þinn og Otkell vinur
þinn."
"Klifar þú nokkuð jafnan
mannfýla þín," segir hann og lá hann inni meðan þeir börðust.
Gunnar reið heim og
Kolskeggur eftir verk þessi og ríða þeir hart upp eftir eyrunum og stökk Gunnar
af baki og kom standandi niður.
Kolskeggur mælti: "Hart
ríður þú nú frændi."
Gunnar mælti: "Það lagði
Skammkell mér til orðs er eg mælti svo: "Þér ríðið á mig ofan.""
"Hefnt hefir þú nú
þess," segir Kolskeggur.
"Hvað eg veit,"
segir Gunnar, "hvort eg mun því óvaskari maður en aðrir menn sem mér þykir
meira fyrir en öðrum mönnum að vega menn."
55. kafli
Nú spyrjast tíðindin og mæltu
það margir að eigi þætti þetta fyrr fram koma en líklegt var. Gunnar reið til
Bergþórshvols og sagði Njáli verk þessi.
Njáll mælti: "Mikið
hefir þú að gert og hefir þú verið mjög að þreyttur."
"Hversu mun nú ganga
síðan?" segir Gunnar.
"Vilt þú að eg segi þér
það," segir Njáll, "er eigi er fram komið? Þú munt ríða til þings og
munt þú njóta við ráða minna og fá af þessu máli hina mestu sæmd. Mun þetta
upphaf vígaferla þinna."
"Ráð þú mér heilræði
nokkur," segir Gunnar.
"Eg skal það gera,"
segir Njáll. "Veg þú aldrei meir í hinn sama knérunn en um sinn og rjúf
aldrei sætt þá er góðir menn gera meðal þín og annarra og þó síst á því
máli."
Gunnar mælti: "Öðrum
ætlaði eg að það skyldi hættara en mér."
"Svo mun vera,"
segir Njáll, "en þó skalt þú svo um þitt mál hugsa ef þetta ber saman að
þá munt þú skammt eiga ólifað en ella munt verða gamall maður."
Gunnar mælti: "Veist þú
hvað þér mun verða að bana?"
"Veit eg," segir
Njáll.
"Hvað?" segir
Gunnar.
"Það sem allir munu síst
ætla," segir Njáll.
Síðan reið Gunnar heim.
Maður var sendur Gissuri hvíta
og Geiri goða því að þeir áttu eftir Otkel að mæla. Fundust þeir þá að og
töluðu hversu með skyldi fara. Kom það ásamt með þeim að sótt mundi mál til
laga. Var þá að leitað hver við mundi vilja taka en engi var til þess búinn.
"Svo líst mér,"
segir Gissur, "að nú muni tveir kostir. Að annar hvor okkar sæki málið og
munum við þá verða að hluta með okkur eða ella mun vera maðurinn ógildur. Munum
við og svo mega til ætla að þungt mun að hræra málið. Er Gunnar frændmargur og
vinsæll. En sá okkar er eigi hlýtur skal til ríða og ekki úr ganga fyrr en til
enda kemur málið."
Síðan hlutuðu þeir og hlaut
Geir goði að fara með sökina.
Litlu síðar riðu þeir vestan
yfir ár og komu þar sem fundurinn hafði verið við Rangá og grófu upp líkamina
og nefndu votta að benjum. Síðan lýstu þeir og kvöddu níu búa um málið. Þeim
var sagt að Gunnar var heima við þrjá tigu manna. Spurði þá Geir goði hvort
Gissur vildi að ríða við hundrað manna.
"Eigi vil eg það,"
segir hann, "þó að mikill sé liðsmunur."
Riðu þeir þá aftur heim. Málatilbúnaður
spurðist um öll héruð og var sú orðræða á að róstumikið mundi verða þingið.
56. kafli
Skafti hét maður. Hann var
Þóroddsson. Móðir Þórodds var Þórvör. Hún var dóttir Þormóðar skafta,
Óleifssonar breiðs, Ölvissonar barnakarls. Þeir voru höfðingjar miklir feðgar
og lögmenn miklir. Þóroddur þótti nokkuð grályndur og slægur. Þeir veittu
Gissuri hvíta að hverju máli.
Þeir Hlíðverjar og Rangæingar
fjölmenntu mjög til þings. Var Gunnar svo vinsæll að allir sammæltust á það að
fylgja honum. Koma þeir nú allir til þings og tjalda búðir sínar.
Í sambandi með Gissuri hvíta
voru þessir höfðingjar: Skafti og Þóroddur, Ásgrímur Elliða-Grímsson, Oddur frá
Kiðjabergi, Halldór Örnólfsson.
Nú ganga menn til Lögbergs
einnhvern dag. Stóð þá upp Geir goði og lýsti vígsök á hendur Gunnari um víg
Otkels. Annarri vígsök lýsti hann á hendur Gunnari um víg Hallbjarnar hvíta, þá
um víg Auðólfs, þá um víg Skammkels. Þá lýsti hann vígsök á hendur Kolskeggi um
víg Hallkells. Og þá er hann hafði lýst öllum vígsökunum var það talað að honum
hefði vel mælst. Hann spurði að þingfesti og að heimilisfangi. Gengu menn síðan
frá Lögbergi.
Líður nú þingið þar til er
dómar skyldu fara út til sóknar. Fjölmenntu þá hvorirtveggju út liði sínu. Geir
goði og Gissur hvíti stóðu sunnan að Rangæingadómi. Gunnar og Njáll stóðu
norðan að dóminum. Geir goði býður Gunnari að hlýða til eiðspjalls síns. Síðan
vann hann eið. Eftir það sagði hann fram sök. Þá lét hann bera lýsingarvætti.
Þá lét hann bjóða búum í setu. Þá bauð hann til ruðningar um kviðinn. Þá beiddi
hann framburðar um kviðinn. Þá gengu búar að dóminum þeir er kvaddir höfðu
verið og nefndu sér votta og létu það standa fyrir kviðburði um mál Auðólfs að
aðili var í Noregi og þeir áttu eigi um að skila málið. Eftir það báru þeir kvið
um mál Otkels og báru Gunnar sannan að sökinni. Eftir það bauð Geir goði
Gunnari til varna og nefndi votta að öllum gögnum þeim er fram voru komin.
Gunnar bauð þá að móti Geiri
goða að hlýða til eiðspjalls síns og þeirra varna er hann mundi fram færa um
málið. Þá vann hann eið.
Þá mælti Gunnar síðan:
"Þá færi eg vörn fram um þetta mál að eg nefndi votta að eg óhelgaði Otkel
fyrir búum af þeirri blóðugri ben er Otkell veitti mér áverka með spora sínum.
En eg ver þér Geir goði lýriti mál þetta að sækja og svo dómöndum að dæma og
ónýti eg með þessu allan þinn málatilbúnað. Ver eg þér lagalýriti, efalausu
lýriti, fullu og föstu svo sem eg á að verja að alþingismáli réttu og
allsherjarlögum. Eg mun og segja þér aðra meðför mína," segir Gunnar.
"Munt þú þá skora mér á
hólm sem þú ert vanur," segir Geir, "og þola eigi lög."
"Eigi skal það,"
segir Gunnar. "Eg mun stefna þér að Lögbergi um það er þú kvaddir þess
kviðar er eigi átti máli að skipta um víg Auðólfs og telja þig um það sekan
fjörbaugsmann."
Njáll mælti: "Ekki má
þetta svo fara því að þetta mun nú verða mjög með kappi deilt. Hafa hér
hvorirtveggju mikið til síns máls að því sem mér líst. Eru þau sum víg að þú
munt ekki í móti mega mæla að þú munt sekur um verða. Hefir þú og þann málatilbúnað
á honum að hann mun og sekur um verða. Skalt þú og það vita Geir goði að enn er
eigi upp kastað þeirri skóggangssök er á þér stendur og skal sú eigi niðri
liggja ef þú vilt ekki gera fyrir mín orð."
Þóroddur goði mælti:
"Svo líst oss sem það muni friðlegast að sæst sé á málið eða hví leggur þú
svo fátt til Gissur hvíti?"
"Svo líst mér,"
segir Gissur, "sem rammar skorður muni þurfa við að setja að voru máli ef
duga skal. Má það sjá að nær standa vinir Gunnars og mun sá verða málahluti vor
bestur að góðir menn geri um ef Gunnar vill það."
"Sáttgjarn hefi eg verið
jafnan," segir Gunnar, "enda eigið þér nú eftir mikið að mæla en eg
þykist þó mjög neyddur til hafa verið."
Urðu þær nú málalyktir með
ráði hinna vitrustu manna að málin voru öll lagið í gerð. Skyldi gera um sex
menn. Var þá þegar gert um málið á
þingi. Var það gert að Skammkell skyldi ógildur en manngjöld skyldu vera jöfn
og sporahöggið en bætt voru önnur vígin sem vert þótti og gáfu frændur Gunnars
fé til að þegar voru bætt upp öll vígin þar á þinginu. Gengu þeir þá til
og veittu Gunnari tryggðir Geir goði og Gissur hvíti.
Reið Gunnar heim af þingi og
þakkaði mönnum liðveislu og gaf mörgum gjafar og fékk af hina mestu sæmd. Situr
Gunnar nú heima í sæmd sinni.
57. kafli
Starkaður hét maður. Hann var
sonur Barkar blátannarskeggs Þorkelssonar bundinfóta er land nam umhverfis
Þríhyrning. Hann var kvongaður maður og hét kona hans Hallbera. Hún var dóttir
Hróalds hins rauða og Hildigunnar dóttur Þorsteins tittlings. Móðir Hildigunnar
var Unnur dóttir Eyvindar karfa, systir Móðólfs hins spaka er Móðylfingar eru
frá komnir. Synir þeirra Starkaðar og Hallberu voru þeir Þorgeir og Börkur og
Þorkell. Hildigunnur læknir var systir þeirra. Þeir voru ofsamenn miklir í
skapi, harðlyndir og ódælir. Þeir sátu yfir hlut manna.
58. kafli
Egill hét maður. Hann var
Kolsson Óttarssonar ballar er land nam meðal Stotalækjar og Reyðarvatns. Bróðir
Egils var Önundur í Tröllaskógi, faðir Halla hins sterka er var að vígi
Holta-Þóris með sonum Ketils hins sléttmála. Egill bjó í Sandgili. Synir hans voru þeir Kolur og Óttar og Haukur.
Móðir þeirra var Steinvör systir Starkaðar undir Þríhyrningi. Synir Egils voru
miklir menn og kappsamir og hinir mestu ójafnaðarmenn. Þeir voru að einu máli
og synir Starkaðar. Systir þeirra var Guðrún náttsól. Hún var kvenna fríðust og
kurteisust.
Egill hafði tekið við
Austmönnum tveimur. Hét annar Þórir en annar Þorgrímur. Þeir voru frumferlar út
hingað, vinsælir og auðgir. Þeir voru vígir vel og fræknir um allt.
Starkaður átti hest góðan, rauðan
að lit, og þótti þeim svo sem engi hestur mundi hafa við þeim í vígi.
Einu hverju sinni var það að
þeir bræður úr Sandgili voru undir Þríhyrningi. Þeir höfðu viðurmæli mikið um
alla bændur í Fljótshlíð og þar kom að þeir töluðu hvort nokkur mundi vilja
etja hestum við þá. En þeir menn voru að mæltu það til sóma þeim og eftirlætis
að bæði mundu vera að engi mundi þora við að etja enda mundi engi eiga þvílíkan
hest.
Þá svaraði Hildigunnur:
"Veit eg þann mann er þora mun að etja við yður."
"Nefn þú þann,"
segja þeir.
Hún svarar: "Gunnar að
Hlíðarenda á hest brúnan og mun hann þora að etja við yður og við alla
aðra."
"Svo þykir yður
konum," segja þeir, "sem engi muni vera hans maki. En þó að
auvirðilega hafi farið fyrir honum Geir goði eða Gissur hvíti þá er eigi ráðið
að oss fari svo."
"Yður mun first um
fara," segir hún og varð þeim af hin mesta deila.
Starkaður mælti: "Á
Gunnar vildi eg að þér leituðuð síst manna því að erfitt mun yður verða að
ganga í móti giftu hans."
"Leyfa munt þú oss að
vér bjóðum honum hestaat?" segja þeir.
"Leyfa," segir
hann, "ef þér prettið hann í öngu."
Þeir kváðust svo gera mundu.
Riðu þeir nú til Hlíðarenda.
Gunnar var heima og gekk út. Kolskeggur og Hjörtur gengu út með honum og
fögnuðu þeim vel og spurðu hvert þeir ætluðu að fara.
"Eigi lengra,"
segja þeir. "Oss er sagt að þú eigir hest góðan og viljum vér bjóða þér
hestaat."
"Litlar sögur mega ganga
frá hesti mínum," segir Gunnar, "hann er ungur og óreyndur að
öllu."
"Kost munt þú láta að
etja," segja þeir, "og gat þess til Hildigunnur að þú mundir góður af
hestinum."
"Hví töluðuð þér um
það?" segir Gunnar.
"Þeir menn voru,"
segja þeir, "er það mæltu að þú mundir eigi þora að etja við vorn
hest."
"Þora mun eg að
etja," segir Gunnar, "en grálega þykir mér þetta mælt."
"Skulum vér til þess
ætla," segja þeir, "að þú munir etja?"
"Þá mun yður þykja för
yður best," segir Gunnar, "ef þér ráðið þessu. En þó vil eg þess
biðja yður að vér etjum svo hestunum að vér gerum öðrum gaman en oss engi
vandræði og þér gerið mér enga skömm. En ef þér gerið til mín sem til annarra
þá er eigi ráðið nema eg sveigi þann að yður að yður mun hart þykja undir að
búa. Mun eg þar eftir gera sem þér gerið fyrir."
Ríða þeir nú heim. Starkaður
spurði hversu þeim hefði farist. Þeir sögðu að Gunnar gerði góða ferð þeirra.
"Hann hét að etja hesti
sínum og kváðum vér á nær það hestavíg skyldi vera. Fannst það á í öllu að
honum þótti sig skorta við oss og baðst hann undan vandræðum."
"Það mun oft á
finnast," segir Hildigunnur, "að Gunnar er seinþreyttur til vandræða
en harðdrægur ef hann má eigi undan komast."
Gunnar reið að finna Njál og
sagði honum hestaatið og hversu orð fóru með þeim "eða hversu ætlar þú að
fari hestaatið?"
"Þú munt hafa meira
hlut," sagði Njáll, "en þó mun hér margs manns bani af
hljótast."
"Mun nokkuð hér af
hljótast minn bani?" segir Gunnar.
"Ekki mun það af þessu
hljótast," segir Njáll, "en þó munu þeir muna fornan fjandskap, og
nýjan munu þeir að þér færa og munt þú ekki annað mega en hrökkva við."
Gunnar reið þá heim.
59. kafli
Nú spyr Gunnar lát Höskuldar mágs síns. Fám nóttum
síðar varð léttari Þorgerður að Grjótá, dóttir Hallgerðar en kona Þráins, og
kom þar til sveinbarn. Sendi hún þá mann til móður sinnar og bað hana ráða
fyrir hvort heita skyldi eftir Glúmi föður hennar eða eftir Höskuldi móðurföður
hennar. Hún bað að Höskuldur skyldi heita. Var þá það nafn gefið
sveininum.
Gunnar og Hallgerður áttu tvo
sonu. Hét annar Högni en annar Grani. Högni var maður gervilegur og
hljóðlyndur, tortryggur og sannorður.
Nú ríða menn til hestavígs og
er þar komið fjölmenni mikið. Var þar Gunnar og bræður hans og Sigfússynir,
Njáll og synir hans allir. Þar var kominn Starkaður og synir hans, Egill og
hans synir. Þeir ræddu til Gunnars að þeir mundu saman leiða hrossin. Gunnar
svaraði að það væri vel.
Skarphéðinn mælti: "Vilt
þú að eg keyri hest þinn Gunnar frændi?"
"Eigi vil eg það,"
segir Gunnar.
"Hér er þó betur á
komið," segir Skarphéðinn. "Vér erum hvorirtveggju hávaðamenn."
"Þér munuð fátt
mæla," segir Gunnar, "eða gera áður en yður munu vandræði af standa
en hér mun verða um seinna þó að allt komi fyrir eitt."
Síðan voru hrossin saman
leidd. Gunnar bjó sig að keyra en Skarphéðinn leiddi fram hestinn. Gunnar var í
rauðum kyrtli og hafði digurt silfurbelti um sig og hestastaf mikinn í hendi.
Síðan rennast að hestarnir og bítast lengi svo að ekki þurfti á að taka og var
það hið mesta gaman.
Þá báru þeir saman ráð sitt,
Þorgeir og Kolur, að þeir mundu hrinda hesti sínum þá er á rynnust hestarnir og
vita ef Gunnar félli fyrir. Nú rennast á hestarnir og hlaupa þeir Þorgeir og
Kolur þegar á lend hesti sínum og hrinda sem þeir mega. Gunnar hrindir nú og
sínum hesti í móti og verður þar skjótur atburður, sá að þeir Þorgeir féllu
báðir á bak aftur og hesturinn á þá ofan. Þeir spretta upp skjótt og hlaupa að
Gunnari. Gunnar varpar sér undan og þrífur Kol og kastar honum á völlinn svo að
hann liggur í óviti. Þorgeir Starkaðarson laust hest Gunnars svo að út hljóp
augað. Gunnar laust Þorgeir með stafnum. Fellur Þorgeir í óvit.
En Gunnar gengur til hests
síns og mælti við Kolskegg: "Högg þú hestinn. Ekki skal hann lifa við
örkuml."
Kolskeggur hjó höfuð af
hestinum. Þá komst á fætur Þorgeir og tók vopn sín og vildi að Gunnari en það
varð stöðvað og varð þröng mikil.
Skarphéðinn mælti:
"Leiðist mér þóf þetta og er miklu drengilegra að menn vegist með
vopnum."
Gunnar var kyrr svo að honum
hélt einn maður og mælti ekki orð það er áfátt væri. Njáll mælti að þeir skyldu
sættast og setja grið. Þorgeir kvaðst hvorki vildu selja grið né taka, kvaðst
heldur vilja Gunnar dauðan fyrir höggið.
Kolskeggur mælti:
"Fastara hefir Gunnar staðið en hann hafi fallið fyrir orðum einum og mun
enn svo."
Nú ríða menn af hestaþingi
hver til síns heima. Veita þeir Gunnari engar aðfarar. Liðu svo þau misseri.
Á þingi um sumarið fann
Gunnar Ólaf pá mág sinn og bauð Ólafur honum heim en bað hann þó vera varan um
sig "því að þeir munu gera þér slíkt illt er þeir mega og far þú
fjölmennur jafnan."
Ólafur réð honum mörg
heilræði og mæltu þeir til hinnar mestu vináttu með sér.
60. kafli
Ásgrímur Elliða-Grímsson
hafði mál að sækja á þinginu. Það var erfðamál. Málinu átti að svara Úlfur
Uggason. Ásgrími tókst svo til sem sjaldan var vant að vörn var í máli hans. En
sú var vörnin að hann hafði nefnt fimm búa þar sem hann átti níu. Nú hafa þeir
þetta til varna.
Þá mælti Gunnar: "Eg mun
skora þér á hólm Úlfur Uggason ef menn skulu eigi ná af þér réttu máli."
"Ekki á eg þetta við
þig," segir Úlfur.
"Fyrir hitt mun þó
ganga," segir Gunnar, "og mundi það Njáll ætla og Helgi vinur minn að
eg mundi hafa nokkura vörn í máli með þér Ásgrímur ef þeir væru eigi við."
Lauk svo því máli að Úlfur
hlaut að greiða féið allt.
Þá mælti Ásgrímur til
Gunnars: "Heim vil eg þér bjóða í sumar og jafnan skal eg með þér vera í
málaferlum en aldrei í móti þér."
Ríður Gunnar heim af þingi.
Litlu síðar fundust þeir Njáll. Njáll bað Gunnar
vera varan um sig, kvað sér sagt að þeir undan Þríhyrningi ætluðu að fara að
honum og bað hann aldrei fara við fámenni og hafa jafnan vopn sín. Gunnar
kvað svo vera skyldu. Hann sagði Njáli að Ásgrímur hefði boðið honum heim
"og ætla eg að fara nú í haust."
"Lát þú enga menn
vita," segir Njáll, "áður þú ferð eða hversu lengi þú ert í brautu.
En eg býð þér þó að synir mínir ríði með þér og mun eigi þá á þig ráðið."
Réðu þeir það þá með sér.
Nú líður á sumarið til átta
vikna. Þá mælti Gunnar við Kolskegg: "Bú þú ferð þína því að nú skulum vér
ríða til heimboðs í Tungu."
"Skal nú ekki orð gera
Njálssonum?" sagði Kolskeggur.
"Ekki," sagði
Gunnar, "eigi skulu þeir hljóta vandræði af mér."
61. kafli
Þeir ríða þrír saman, Gunnar
og bræður hans. Gunnar hafði atgeirinn og sverðið Ölvisnaut en Kolskeggur hafði
saxið. Hjörtur hafði og alvæpni. Riðu þeir nú í Tungu. Ásgrímur tók vel við
þeim og voru þeir þar nokkura hríð. Þá lýstu þeir yfir því að þeir ætluðu þá
heim að fara. Ásgrímur gaf þeim góðar gjafar og bauð að ríða með þeim austur.
Gunnar kvað engis mundu við þurfa og fór hann eigi.
Sigurður svínhöfði hét maður.
Hann kom undir Þríhyrning. Hann bjó við Þjórsá. Hann hafði heitið að halda
njósn um ferðir Gunnars. Hann sagði þeim nú til ferða hans og kvað ekki mundu
verða vænna en svo "er hann er við hinn þriðja mann."
"Hversu marga munum vér
menn þurfa," segir Starkaður, "í fyrirsát?"
"Rýrt mun verða fyrir
honum smámennið," segir Sigurður, "og eigi er ráð að hafa færri en
þrjá tigu manna."
"Hvar skulum vér fyrir
sitja?" segir Starkaður.
"Við Knafahóla,"
segir Sigurður, "þar sér eigi fyrr en að er komið."
"Far þú í Sandgil,"
segir Starkaður, "og seg Agli að þeir búist þaðan fimmtán en vér munum
koma héðan aðrir fimmtán til Knafahóla."
Þorgeir mælti til
Hildigunnar: "Þessi hönd skal þér sýna Gunnar dauðan í kveld."
"En eg get," segir
hún, "að þú berir lágt höfuðið af ykkrum fundi."
Þeir fara fjórir feðgar undan
Þríhyrningi og ellefu menn aðrir. Fóru þeir til Knafahóla og biðu þar.
Sigurður svínhöfði kom í
Sandgil og mælti: "Eg er sendur hingað af Starkaði og sonum hans að segja
þér Egill að þér feðgar farið til Knafahóla að sitja fyrir Gunnari."
"Hversu margir skyldum
vér fara?" segir Egill.
"Fimmtán með mér,"
segir Sigurður.
Kolur mælti: "Nú ætla eg
mér í dag að reyna við Kolskegg."
"Mjög þykir mér þú ætla
þér," segir Sigurður.
Egill bað Austmenn sína fara.
Þeir kváðust engar sakar eiga
við Gunnar "enda þarf hér mikils við," segir Þórir, "er fjöldi
manns skal fara að þremur mönnum."
Gekk þá Egill í braut og var
reiður.
Húsfreyja mælti þá til
Austmannsins: "Illa hefir Guðrún dóttir mín brotið odd af oflæti sínu og
legið hjá þér er þú skalt eigi þora að fylgja mági þínum og munt þú vera ragur
maður," segir hún.
"Fara mun eg,"
segir hann, "með bónda þínum og mun hvorgi okkar aftur koma."
Síðan gekk hann til Þorgríms
félaga síns og mælti: "Tak þú við kistulyklum mínum því að eg mun þeim
eigi lúka oftar. Bið eg að þú eignist slíkt af fé okkru sem þú vilt en far utan
og ætla ekki til hefnda eftir mig. En ef þú ferð eigi utan þá verður það þinn
bani."
Austmaðurinn tekur vopn sín
og ræðst í flokk með þeim.
62. kafli
Nú er þar til máls að taka að
Gunnar ríður austur yfir Þjórsá. En er hann kom skammt frá ánni syfjaði hann
mjög og bað hann þá æja þar. Þeir gerðu svo. Hann sofnaði fast og lét illa í
svefni.
Kolskeggur mælti:
"Dreymir Gunnar nú."
Hjörtur mælti: "Vekja
vildi eg hann."
"Eigi skal það,"
segir Kolskeggur, "og skal hann njóta draums síns."
Gunnar lá mjög langa hríð.
Hann varp af sér skildinum er hann vaknaði og var honum orðið heitt mjög.
Kolskeggur mælti: "Hvað
hefir þig dreymt frændi?"
"Það hefir mig
dreymt," segir Gunnar, "að eg mundi eigi riðið hafa úr Tungu svo
fámennur ef mig hefði þá þetta dreymt."
"Seg þú okkur draum
þinn," segir Kolskeggur.
"Það dreymdi mig,"
segir Gunnar, "að eg þóttist ríða fram hjá Knafahólum. Þar þóttist eg sjá
varga mjög marga og sóttu þeir allir að mér en eg sneri undan fram að Rangá. Þá
þótti mér þeir sækja að öllum megin en eg varðist. Eg skaut alla þá er fremstir
voru þar til er þeir gengu svo að mér að eg mátti eigi boganum við koma. Tók eg
þá sverðið og vó eg með annarri hendi en lagði með atgeirinum annarri hendi.
Hlífði eg mér þá ekki og þóttist eg þá eigi vita hvað mér hlífði. Drap eg þá
marga vargana og þú með mér Kolskeggur en Hjört þótti mér þeir hafa undir og
slíta á honum brjóstið og hafði einn hjartað í munni sér. En eg þóttist verða
svo reiður að eg hjó varginn í sundur fyrir aftan bóguna og eftir það þóttu mér
stökkva vargarnir. Nú er það ráð mitt Hjörtur frændi að þú ríðir vestur aftur í
Tungu.
"Eigi vil eg það,"
segir Hjörtur. "Þótt eg viti vísan bana minn þá vil eg þér fylgja."
Síðan riðu þeir og komu
austur hjá Knafahólum.
Þá mælti Kolskeggur:
"Sérðu frændi mörg spjót koma upp hjá hólunum og menn með vopnum?"
"Ekki kemur mér það að
óvörum," segir Gunnar, "að draumur minn sannist."
"Hvað skal nú til ráðs
taka?" segir Kolskeggur. "Eg get að þú viljir eigi renna undan
þeim."
"Ekki skulu þeir að því
eiga að spotta," segir Gunnar, "en ríða munum vér fram að Rangá í
nesið. Þar er vígi nokkuð."
Ríða þeir nú fram í nesið og
bjuggust þar við.
Kolur mælti er þeir riðu hjá
fram: "Hvort skal nú renna Gunnar?"
Kolskeggur mælti: "Seg
þú svo fremi frá því er sjá dagur er allur."
63. kafli
Nú eggjar Starkaður sína
menn. Snúa þeir þá fram í nesið að þeim. Sigurður svínhöfði fór fyrstur og
hafði törguskjöld einbyrðan en sviðu í annarri hendi. Gunnar sér hann og skýtur
til hans af boganum. Hann brá upp við skildinum er hann sá örina hátt fljúga og
kom örin í gegnum skjöldinn og í augað svo að út kom í hnakkann og varð það víg
fyrst. Annarri ör skaut Gunnar að Úlfhéðni ráðamanni Starkaðar og kom sú á hann
miðjan og féll hann fyrir fætur bónda einum en bóndinn féll um hann þveran.
Kolskeggur kastar til steini og kom í höfuð bóndanum og varð það hans bani.
Þá mælti Starkaður:
"Ekki mun oss þetta duga að hann komi boganum við og göngum að fram vel og
snarplega."
Síðan eggjaði hver annan.
Gunnar varði sig með boganum meðan hann mátti. Síðan kastaði hann niður
boganum. Tók hann þá atgeirinn og sverðið og vegur með báðum höndum. Er
bardaginn þá hinn harðasti. Gunnar vegur þá drjúgan menn og svo Kolskeggur.
Þá mælti Þorgeir
Starkaðarsonur: "Eg hét að færa Hildigunni höfuð þitt Gunnar."
"Ekki mun henni það
þykja neinu varða hvort þú efnir það eða eigi," segir Gunnar, "en þó
munt þú nær ganga hljóta ef þú skalt það meðal handa hafa."
Þorgeir mælti þá við bræður
sína: "Hlaupum vér að honum fram allir senn. Hann hefir engan skjöld og
munum vér hafa ráð hans í hendi."
Þeir hljópu fram Börkur og
Þorkell og urðu skjótari en Þorgeir. Börkur höggur til Gunnars. Gunnar laust
við atgeirinum svo hart að sverðið hraut úr hendi Berki. Sér hann þá til
annarrar handar Þorkel standa í höggfæri við sig. Gunnar stóð nokkuð höllum
fæti. Hann sveiflaði þá til sverðinu og kom á hálsinn Þorkatli og fauk af
höfuðið.
Kolur mælti Egilsson:
"Látið mig fram að Kolskeggi. Eg hefi það jafnan mælt að við mundum mjög
jafnfærir til vígs."
"Slíkt megum við nú
reyna," segir Kolskeggur.
Kolur leggur til hans spjóti.
Kolskeggur vó þá mann og átti sem mest að vinna og kom hann eigi fyrir sig
skildinum og kom lagið í lærið utanfótar og gekk í gegnum.
Kolskeggur brást við fast og
óð að honum og hjó með saxinu á lærið og undan fótinn og mælti: "Hvort nam
eg þig eða eigi?"
"Þess galt eg nú,"
segir Kolur, "er eg var berskjaldaður" og stóð nokkura stund á hinn
fótinn og leit á stúfinn.
Kolskeggur mælti: "Eigi
þarft þú að líta á, jafnt er sem þér sýnist, af er fóturinn."
Kolur féll þá dauður niður.
En er þetta sér Egill faðir hans hleypur hann að Gunnari og höggur til hans.
Gunnar leggur í móti atgeirinum og kom á Egil miðjan. Gunnar vegur hann upp á
atgeirinum og kastar honum út á Rangá.
Þá mælti Starkaður:
"Alls vesall ert þú Þórir austmaður er þú situr hjá en nú er veginn Egill
húsbóndi þinn og mágur."
Þá spratt upp Austmaðurinn og
var reiður mjög. Hjörtur hafði orðið tveggja manna bani. Austmaðurinn hleypur
að honum og höggur framan á brjóstið og þar á hol. Hjörtur féll þá þegar dauður
niður. Gunnar sér þetta og varpar sér skjótt til höggs við Austmanninn og
sníður hann í sundur í miðju. Litlu síðar skýtur Gunnar til Barkar atgeirinum
og kom á hann miðjan og í gegnum hann og niður í völlinn. Þá höggur Kolskeggur
höfuð af Hauki Egilssyni en Gunnar höggur hönd af Óttari í olbogabót.
Þá mælti Starkaður:
"Flýjum nú, ekki er við menn um að eiga."
Gunnar mælti: "Það mun
ykkur feðgum þykja illt til frásagnar ef ekki skal mega sjá á ykkur að þið
hafið í bardaga verið."
Síðan hljóp Gunnar að þeim
feðgum og veitti þeim áverka. Eftir það skildu þeir og höfðu þeir Gunnar marga
þá særða er undan héldu.
Á fundinum létust fjórtán
menn en Hjörtur hinn fimmtándi. Gunnar reiddi Hjört heim á skildi sínum og var
hann þar heygður. Margir menn hörmuðu hann því að hann var vinsæll.
Starkaður kom og heim og
græddi Hildigunnur sár þeirra Þorgeirs og mælti: "Yður væri mikið gefanda
til að þér hefðuð ekki illt átt við Gunnar."
"Svo væri það,"
segir Starkaður.
64. kafli
Steinvör í Sandgili bað
Þorgrím austmann vera fyrir fjárforráðum sínum og fara ekki utan og muna svo
lát félaga síns og frænda.
Hann svaraði: "Það spáði
mér Þórir félagi minn að eg mundi falla fyrir Gunnari ef eg væri hér á landi og
mun hann það vitað hafa er hann vissi dauða sinn fyrir."
Hún mælti: "Eg mun gefa
þér til Guðrúnu dóttur mína og féið allt að helmingi við mig."
"Eigi vissi eg að þú
mundir það svo miklu kaupa," segir hann.
Síðan kaupa þau þessu að hann
skal fá hennar og var þá boð þegar það sumar.
Gunnar ríður til Bergþórshvols
og með honum Kolskeggur. Njáll var úti og synir hans og gengu í móti Gunnari og
fögnuðu þeim vel. Síðan gengu
þeir á tal.
Gunnar mælti: "Hingað er
eg kominn að sækja að þér traust og heilræði."
Njáll sagði að það var skylt.
Gunnar mælti: "Eg hefi
ratað í vandræði mikil og drepið marga menn og vil eg vita hversu þú vilt vera
láta."
"Það munu margir
mæla," segir Njáll, "að þú hafir mjög verið til neyddur. En nú skalt
þú gefa mér tóm til ráðagerðar."
Njáll gekk í braut einn saman
og hugsaði ráðið og kom aftur og mælti: "Nú hefi eg nokkuð hugsað málið og
líst mér sem þetta muni nokkuð með harðfengi og kappi verða að gera. Þorgeir
hefir barnað Þorfinnu frændkonu mína og mun eg selja þér í hendur
legorðssökina. Aðra skóggangssök sel eg þér á hendur Starkaði er hann hefir
höggvið í skógi mínum á Þríhyrningshálsum og skalt þú sækja þær sakar báðar. Þú
skalt fara þangað sem þér börðust og grafa upp hina dauðu og nefna votta að
benjum og óhelga þá alla hina dauðu fyrir það er þeir fóru með þann hug til
fundar við þig að veita þér ákomur og bráðan bana og bræðrum þínum. En ef þetta
er prófað á þingi og því sé við lostið að þú hafir áður lostið Þorgeir og megir
fyrir því hvorki sækja þína sök né annarra, þá mun eg svara því máli og segja
að eg helgaði þig á Þingskálaþingi svo að þú skyldir bæði mega sækja þitt mál
og annarra og mun þá verða svarað máli því. Þú skalt og finna Tyrfing í
Berjanesi og skal hann selja þér sök á hendur Önundi í Tröllaskógi er mál á
eftir Egil bróður sinn."
Reið þá Gunnar heim fyrst.
En nokkurum nóttum síðar riðu þeir Njálssynir og
Gunnar þangað til sem líkin voru og grófu þá upp alla sem jarðaðir voru. Stefndi
Gunnar þeim þá öllum til óhelgi fyrir aðför og fjörráð og reið heim eftir það.
65. kafli
Þetta haust hið sama kom út
Valgarður hinn grái og fór heim til Hofs. Þorgeir fór að finna þá Valgarð og
Mörð og sagði hver firn voru er Gunnar skyldi hafa óhelgað þá alla er hann
hafði vegið. Valgarður kvað það vera mundu ráð Njáls og þó eigi öll upp komin
þau sem hann mundi ráða honum. Þorgeir bað þá feðga liðveislu og atgöngu en
þeir fóru lengi undan og mæltu til fé mikið að lyktum. Var það í ráðagerðum að
Mörður skyldi biðja Þorkötlu dóttur Gissurar hvíta og skyldi Þorgeir þegar ríða
vestur um ár með þeim Valgarði og Merði.
Annan dag eftir riðu þeir
tólf saman og komu til Mosfells og var þeim þar vel fagnað, voru þar um
nóttina. Vekja þeir þá til við Gissur um bónorðið. Lýkur svo með þeim að ráðin
skyldu takast og skyldi boð vera á hálfs mánaðar fresti að Mosfelli. Ríða þeir heim. Síðan fjölmenna þeir
feðgar mjög til boðsins. Var þar og margt fyrirboðsmanna og fór það vel
fram. Fór Þorkatla heim með Merði og var fyrir búi en Valgarður fór utan um
sumarið.
Mörður eggjar Þorgeir á um
málatilbúnað við Gunnar. Þorgeir fór að finna Önund í Tröllaskógi, biður hann
nú búa til vígsmálið Egils bróður síns og sona hans "en eg mun búa til
vígsmál bræðra minna og áverkamál mitt og föður míns."
Önundur kvaðst þess albúinn.
Fara þeir þá og lýsa vígunum og kveðja níu vettvangsbúa.
Þessi málatilbúnaður spurðist
til Hlíðarenda. Ríður Gunnar þá að finna Njál og segir honum og spurði hvað
hann vildi þá láta að gera.
"Nú skalt þú,"
segir Njáll, "stefna vettvangsbúum og nábúum saman og nefna votta fyrir
búum og kjósa Kol til veganda að vígi Hjartar bróður þíns því að það er rétt.
Síðan skalt þú lýsa víginu á hendur Kol þó að hann sé dauður. Þá skalt þú nefna
þér votta og kveðja búa alþingisreiðar að bera um það hvort þeir væru í aðvist
og aðsókn þá er Hjörtur var veginn. Nú skalt þú og stefna Þorgeiri um legorðssökina
og svo Önundi í Tröllaskógi um sökina Tyrfings."
Gunnar fór með öllu sem Njáll
kenndi ráð til. Þetta þótti mönnum undarlegur málatilbúnaður. Fara nú þessi mál
til þings.
Gunnar reið til þings og
Njáll og synir hans og Sigfússynir. Gunnar hafði sendan mann mágum sínum að
þeir skyldu ríða til þings og fjölmenna mjög og kvað sér þetta mundu vera mjög
harðdrægt. Þeir fjölmenntu mjög vestan.
Mörður reið til þings og
Runólfur úr Dal og þeir undan Þríhyrningi og Önundur úr Tröllaskógi.
66. kafli
En er þessir menn komu til
þings ganga þeir í lið með Gissuri hvíta og Geir goða. Gunnar og Sigfússynir og
Njálssynir gengu allir í einum flokki og fóru svo snúðigt að menn urðu að gæta
sín ef fyrir voru að eigi féllu. Og var ekki jafntíðrætt um allt þingið sem um
málaferli þessi hin miklu.
Gunnar gekk til móts við mága
sína og fögnuðu þeir Ólafur honum vel. Þeir spurðu Gunnar um fundinn en hann
segir þeim frá gjörla og bar öllum vel söguna og sagði þeim hvað hann hafði
síðan að gert.
Ólafur mælti: "Mikils er vert hversu Njáll
stendur þér fast um alla ráðagerð."
Gunnar kvaðst aldrei það mundu launað geta en
beiddi þá liðveislu og atgöngu. Þeir kváðu það skylt vera.
Fara nú málin hvortveggi í
dóm. Flytja nú hvorir sitt mál fram. Mörður spurði hví sá maður skyldi hafa mál
fram er áður hafði unnið sér til óhelgi við Þorgeir svo sem Gunnar var.
Njáll svaraði: "Varst þú
á Þingskálaþingi um haustið?"
"Var eg víst,"
segir Mörður.
"Heyrðir þú," segir
Njáll, "að Gunnar bauð honum alsætti?"
"Heyrði eg víst,"
segir Mörður.
"Þá friðhelgaði eg
Gunnar," segir Njáll, "til allra löglegra mála."
"Rétt er þetta,"
segir Mörður, "en hví sætti það að Gunnar lýsti vígi Hjartar á hendur Kol
þar sem Austmaðurinn vó hann?"
"Rétt var það,"
segir Njáll, "þar sem hann kaus hann til veganda fyrir vottum."
"Rétt mun þetta
víst," segir Mörður, "en fyrir hvað stefndi Gunnar þeim öllum til
óhelgi er fallið höfðu?"
"Eigi þarft þú þessa að
spyrja," segir Njáll, "þar sem þeir fóru allir til áverka og
manndrápa."
"Eigi kom það fram við
Gunnar," segir Mörður.
"Bræður Gunnars voru
þeir Hjörtur og Kolskeggur," segir Njáll, "og hafði annar bana en
annar sár á sér."
"Lög hafið þér að
mæla," segir Mörður, "þó að hart sé undir að búa."
Þá gekk fram Hjalti
Skeggjason úr Þjórsárdal og mælti: "Ekki hefi eg hlutast til málaferla
yðvarra en nú vil eg vita hvað þú vilt Gunnar fyrir mín orð gera og
vináttu."
"Hvers beiðist þú,"
segir Gunnar.
"Þess," segir
Hjalti, "að þú leggir málin öll til jafnaðardóms og dæmi góðir menn."
Gunnar mælti: "Þá skalt
þú aldrei vera í móti mér við hverja sem eg á um."
"Því vil eg heita
þér," segir Hjalti.
Eftir það átti hann hlut að
við mótstöðumenn Gunnars og kom því við að þeir sættust allir og eftir það
veittu hvorir öðrum tryggðir. En fyrir áverka Þorgeirs kom legorðssökin en
skógarhöggið fyrir áverka Starkaðar. Bræður Þorgeirs voru bættir hálfum bótum
en hálfar féllu niður fyrir tilför við Gunnar en jafnt skyldi vera víg Egils og
sökin Tyrfings. Fyrir víg Hjartar skyldi koma víg Kols og Austmannsins. Þá voru
aðrir bættir hálfum bótum. Njáll var í gerð þessi og Ásgrímur Elliða-Grímsson
og Hjalti Skeggjason. Njáll átti fé mikið undir Starkaði og þeim í Sandgili og
gaf hann það allt Gunnari til bóta þessa. Svo átti Gunnar marga vini á þingi að
hann bætti þá þegar upp vígin en gaf gjafar mörgum höfðingjum þeim er honum
höfðu lið veitt og hafði hann af hina mestu sæmd af málinu. Og urðu allir á það
sáttir að engi væri hans jafningi í Sunnlendingafjórðungi.
Reið Gunnar heim af þingi og
situr nú um kyrrt. En þó öfunduðu mótstöðumenn hans mjög hans sæmd.
67. kafli
Nú er að segja frá Þorgeiri
Otkelssyni. Hann gerðist mannaður vel, mikill og sterkur, trúlyndur og óslægur
og nokkuð talhlýðinn. Hann var vinsæll af hinum bestum mönnum og ástsæll af frændum
sínum.
Einu hverju sinni hefir
Þorgeir Starkaðarson farið að finna Mörð frænda sinn.
"Illa uni eg við,"
segir hann, "málalok þau sem orðið hafa með oss Gunnari en eg hefi keypt
að þér liðveislu meðan við værum uppi báðir. Vil eg nú að þú hugsir nokkura
ráðagerð þá er Gunnari megi mein að vera og leggist nú djúpt. Mæli eg því svo
bert að eg veit að þú ert hinn mesti óvinur Gunnars og svo hann þinn. Skal eg
miklu auka sæmd þína ef þú sérð vel fyrir."
"Sýnist það
jafnan," segir Mörður, "að eg er fégjarn enda mun svo enn. Og er vant
fyrir að sjá að þú sért eigi griðníðingur eða tryggðarofsmaður en þú komir þó
þínu máli fram. En það er mér sagt að Kolskeggur ætli mál fram að hafa og rifta
fjórðunginn í Móeiðarhvoli er föður þínum var goldinn í sonarbætur. Hefir hann
mál þetta tekið af móður sinni og er þetta ráð Gunnars að gjalda lausafé en
láta eigi landið. Skal þess að bíða er þetta gengur fram og kalla hann þá rjúfa
sætt á yður. Hann hefir og tekið sáðland af Þorgeiri Otkelssyni og rofið svo
sætt á honum. Skalt þú fara að finna Þorgeir Otkelsson og koma honum í málið
með þér og fara að Gunnari. En þó að í bresti nokkuð um þetta og fáið þér hann
eigi veiddan þá skuluð þér þó fara að honum oftar. Mun eg segja þér að Njáll
hefir spáð Gunnari og sagt fyrir um ævi hans, ef hann vægi í hinn sama knérunn
oftar en um sinn að það mundi honum bráðast til bana, bæri það saman að hann
ryfi sætt þá er ger væri um það mál. Skalt þú því Þorgeiri koma í málið að
Gunnar hefir vegið föður hans áður og er þið eruð á einum fundi báðir þá skalt
þú hlífa þér en hann mun ganga fram vel og mun Gunnar vega hann. Hefir hann þá
vegið tvisvar í hinn sama knérunn en þú skalt flýja af fundinum. En ef honum
vill þetta til dauða draga þá mun hann rjúfa sættina. Er þar til að sitja."
Eftir þetta fer Þorgeir heim
og segir föður sínum af launungu. Réðu þeir það með sér að með þessa ráðagerð
skyldu þeir af hljóði fara.
68. kafli
Nokkuru síðar fór Þorgeir
Starkaðarson í Kirkjubæ að finna nafna sinn og gengu þeir á eintal og töluðu
dag allan hljótt. En að lyktum gaf Þorgeir Starkaðarson nafna sínum spjót
gullrekið og reið heim síðan. Gerðu þeir með sér hina kærustu vináttu.
Á Þingskálaþingi um haustið
sótti Kolskeggur til lands að Móeiðarhvoli en Gunnar nefndi sér votta og bauð
þeim undan Þríhyrningi lausafé eða land annað að löglegri virðingu. Þorgeir
nefndi sér votta að Gunnar ryfi sætt á þeim feðgum. Eftir það var lokið
þinginu.
Liðu nú þau misseri. Finnast
þeir nafnar jafnan og eru með þeim hinir mestu dáleikar.
Kolskeggur mælti til Gunnars:
"Sagt er mér að mikil sé vinátta þeirra Þorgeirs Otkelssonar og Þorgeirs
Starkaðarsonar. Og er það margra manna mál að þeir muni vera ótrúlegir og vildi
eg að þú værir var um þig."
"Koma mun til mín
feigðin," segir Gunnar, "hvar sem eg er staddur ef mér verður þess
auðið."
Skildu þeir þá talið.
Gunnar sagði fyrir um haustið
að þar skyldi vinna viku heima en aðra niðri í Eyjum og hætta þá heyverkum.
Sagði hann svo fyrir að allt skyldi fara manna af bænum nema hann og konur.
Þorgeir undan Þríhyrningi fer
að finna nafna sinn en þegar er þeir fundust töluðu þeir að vanda sínum.
Þorgeir Starkaðarson mælti:
"Eg vildi að við herðum okkur og færum að Gunnari."
"Svo að einu hafa fundir
orðið við Gunnar," sagði Þorgeir Otkelsson, "að fáir hafa af því
sigrast enda þykir mér illt að heita griðníðingur."
"Þeir hafa rofið sættina
en við eigi," segir Þorgeir Starkaðarson. "Tók Gunnar af þér sáðland
þitt en Móeiðarhvol af okkur feðgum."
Nú semja þeir það með sér að
fara að Gunnari. Segir þá Þorgeir Starkaðarson að Gunnar mundi á fárra nátta
fresti einn heima vera "skalt þú koma við hinn tólfta mann til móts við
mig en eg mun hafa jafnmarga."
Síðan reið Þorgeir heim.
69. kafli
Þá er þeir húskarlar og Kolskeggur höfðu verið
þrjár nætur í Eyjum þá hefir Þorgeir Starkaðarson njósn af þessu og gerir orð
nafna sínum að hann skyldi koma til móts við hann á Þríhyrningshálsa. Síðan
bjóst Þorgeir undan Þríhyrningi við hinn tólfta mann. Hann ríður upp á hálsinn
og bíður þar nafna síns. Gunnar er nú einn heima á bænum. Ríða þeir nafnar í
skóga nokkura. Þar kom að þeim svefnhöfgi og máttu þeir ekki annað en
sofa. Festu þeir skjöldu sína í limar en bundu hesta sína og settu hjá sér
vopnin.
Njáll var þessa nótt í
Þórólfsfelli og mátti ekki sofa og gekk ýmist út eða inn. Þórhildur spurði Njál
hví hann mætti ekki sofa.
"Margt ber nú fyrir augu
mér," sagði hann. "Eg sé margar fylgjur grimmlegar óvina Gunnars og
er nokkuð undarlega. Þær láta ólmlega og fara þó ráðlauslega."
Litlu síðar reið maður að dyrum
og steig af baki og gekk inn og var þar sauðamaður þeirra Þórhildar.
Hún mælti: "Hvort fannst
þú sauðina?"
"Fann eg það er meira
mundi varða," segir hann.
"Hvað var það?"
segir Njáll.
"Eg fann fjóra og
tuttugu menn," segir hann, "í skóginum uppi. Þeir höfðu bundið hesta
sína en sváfu sjálfir. Þeir höfðu fest skjöldu sína í limar."
En svo hafði hann gjörla að
hugað að hann sagði frá allra þeirra vopnabúnaði og klæðum.
Njáll vissi þá gjörla hver
hvergi hafði verið og mælti til hans: "Gott hjóna ert þú, ef slík væru
mörg, og skalt þú jafnan þessa njóta en þó vil eg nú senda þig."
Hann játti að fara.
"Þú skalt fara,"
segir Njáll, "til Hlíðarenda og segja Gunnari að hann fari til Grjótár og
sendi þaðan eftir mönnum en eg mun fara til móts við þá er í skóginum eru og
fæla þá í braut. Hefir þetta af því vel í móti borist að þeir munu engis afla í
þessi en láta mikið."
Sauðamaður fór og sagði
Gunnari sem gerst frá öllu. Reið þá Gunnar til Grjótár og stefndi að sér
mönnum.
Nú er að segja frá Njáli að
hann ríður til fundar við þá nafna.
"Óvarlega liggið
þér," segir hann, "eða til hvers skal för sjá ger hafa verið? Og er
Gunnar engi klekktunarmaður. En ef satt skal um tala þá eru þetta hin mestu
fjörráð. Skuluð þér það og vita að Gunnar er í liðsafnaði og mun hann hér brátt
koma og drepa yður nema þér ríðið undan og heim."
Þeir brugðust við skjótt og
varð þeim mjög um felmt og tóku vopn sín og stigu á hesta sína og hleyptu heim
undir Þríhyrning.
Njáll fór til móts við Gunnar
og bað hann ekki eyða fjölmenni "en eg mun fara í meðal og leita um
sættir. Munu þeir nú vera hóflega hræddir. En fyrir þessi fjörráð skal eigi
koma minna, er við alla þá er um að eiga, en eigi skal meira koma fyrir víg
annars hvors þeirra nafna þó að það kunni við að bera. Skal eg varðveita þetta
fé og svo fyrir sjá að þá sé þér innan handar er þú þarft til að taka."
70. kafli
Gunnar þakkaði Njáli tillögur
sínar. Njáll reið undir Þríhyrning og sagði þeim nöfnum að Gunnar mundi ekki
eyða flokkinum fyrr en úr sliti með þeim. Þeir buðu boð fyrir sig og voru
óttafullir og báðu Njál fara með sáttarboðum. Njáll kvaðst með því einu fara
mundu er eigi fylgdu svik. Þeir báðu hann vera í gerðinni og kváðust það halda
mundu er hann gerði. Njáll kvaðst eigi gera mundu nema á þingi og væru við
hinir bestu menn. Þeir játtu því. Gekk þá Njáll í meðal svo að hvorir
handsöluðu öðrum grið og sætt. Skyldi Njáll gera um og nefna þá til er hann
vildi.
Litlu síðar fundi þeir nafnar
Mörð Valgarðsson. Mörður taldi á þá mjög er þeir höfðu lagið mál undir Njál þar
sem hann var vinur Gunnars mikill, kvað þeim það illa duga mundu.
Ríða menn nú til alþingis að
vanda. Eru nú hvorirtveggju á þingi. Njáll kvaddi sér hljóðs og spyr alla
höfðingja og hina bestu menn er þar voru komnir hvert mál þeim þætti Gunnar eiga
á þeim nöfnum fyrir fjörráðin. Þeir svöruðu að þeim þótti slíkur maður mikinn
rétt á sér eiga. Njáll spurði hvort hann ætti á öllum þeim eða ættu fyrirmenn
einir að svara málinu. Þeir sögðu mest á fyrirmönnum en þó á öllum mikið.
"Það munu margir mæla,"
kvað Mörður, "að eigi hafi um sakleysi verið þar sem Gunnar rauf sætt við
þá nafna."
"Eigi er það
sættarrof," segir Njáll, "að hver hafi lög við annan því að með lögum
skal land vort byggja en eigi með ólögum eyða."
Sagði Njáll mönnum þá að
Gunnar hafði boðið land fyrir Móeiðarhvol eða annað fé. Þóttust þeir þá nafnar
falsaðir af Merði og töldu á hann mjög og kváðust af honum hljóta þetta
fégjald. Njáll nefndi tólf manna dóm á þessu máli. Galt þá hundrað silfurs hver
er til hafði farið en tvö hundruð hvor þeirra nafna. Tók Njáll við þessu fé og
varðveitti en hvorir veittu öðrum tryggðir og grið og mælti Njáll fyrir.
Reið Gunnar þá af þingi
vestur til Dala í Hjarðarholt. Tók Ólafur pái vel við honum. Sat hann þar
hálfan mánuð. Gunnar reið víða um Dala og tóku allir við honum fegins hendi.
En að skilnaði mælti Ólafur
til Gunnars: "Eg vil gefa þér þrjá gripi, gullhring og skikkju er átt
hefir Mýrkjartan Írakonungur og hund er mér var gefinn á Írlandi. Hann er
mikill og eigi verri til fylgdar en röskur maður. Það fylgir og að hann hefir
mannsvit. Hann mun og geyja að hverjum manni þeim er hann veit að óvinur þinn
er en aldrei að vinum þínum því að hann sér á hverjum manni hvort til þín er
vel eða illa. Hann mun og líf á leggja að vera þér trúr. Þessi hundur heitir
Sámur."
Síðan mælti hann við hundinn:
"Nú skalt þú Gunnari fylgja og vera honum slíkur sem þú mátt."
Hundurinn gekk þegar að
Gunnari og lagðist niður fyrir fætur honum.
Ólafur bað Gunnar vera varan
um sig og kvað hann marga eiga öfundarmenn "þar er þú þykir nú ágætastur
maður um allt land."
Gunnar þakkaði honum gjafar
og heilræði og ríður heim síðan. Situr Gunnar nú heima nokkura hríð og er
kyrrt.
71. kafli
Litlu síðar finnast þeir
nafnar og Mörður. Verða þeir eigi á sáttir. Þóttust þeir láta fé mikið fyrir
Merði en hafa ekki í móti og báðu hann setja aðra ráðagerð þá er Gunnari væri
til meins.
Mörður kvað svo vera skyldu
"er það nú ráð mitt að Þorgeir Otkelsson fífli Ormhildi frændkonu Gunnars
en Gunnar mun af því láta vaxa óþokka við þig. Skal eg þá ljósta upp þeim kvitt
að Gunnar muni eigi hafa svo búið við þig. Skuluð þið þá nokkuru síðar hafa
aðför við Gunnar en þó skuluð þið Gunnar eigi heim sækja því að það má sér engi
ætla meðan hundurinn lifir."
Sömdu þeir nú þessa ráðagerð
með sér að sjá skyldi fram koma.
Nú líður sumarið. Þorgeir venur komur
sínar til Ormhildar. Gunnari þótti það illa og gerðist óþokki mikill með þeim.
Fór svo fram um veturinn. Nú kemur sumar og verða þá enn oftlega fundir þeirra
á laun.
Þeir finnast jafnan Þorgeir
undan Þríhyrningi og Mörður og ráða aðför við Gunnar þá er hann riði ofan í
Eyjar að sjá verk húskarla sinna.
Eitt sinn varð Mörður var við
er Gunnar reið ofan í Eyjar og sendi mann undir Þríhyrning að segja Þorgeiri að
þá mundi vænast til að leita að fara að Gunnari. Þeir brugðu við skjótt og fara
ofan þaðan við hinn tólfta mann. En er þeir komu í Kirkjubæ þá voru þar fyrir
aðrir tólf. Þeir ræða um hvar þeir skulu sitja fyrir Gunnari og kom það ásamt
að þeir skyldu fara ofan til Rangár og sitja þar fyrir honum.
En er Gunnar reið neðan úr
Eyjum reið Kolskeggur með honum. Gunnar hafði boga sinn og örvar og atgeirinn.
Kolskeggur hafði saxið og alvæpni.
72. kafli
Sá atburður varð er þeir
Gunnar riðu neðan að Rangá að blóð féll á atgeirinn. Kolskeggur spurði hví það
mundi sæta.
Gunnar svaraði ef slíkir
atburðir yrðu að það væri kallað í öðrum löndum benrögn "og sagði svo
Ölvir bóndi í Hísing að það væri jafnan fyrir stórfundum."
Síðan riðu þeir til þess er
þeir sáu mennina við ána, sjá að þeir sitja en hafa bundið hestana.
Gunnar mælti: "Fyrirsát
er nú."
"Lengi hafa þeir
ótrúlegir verið," segir Kolskeggur, "eða hvað skal nú til ráða
taka?"
"Hleypa skulum við upp
hjá þeim," segir Gunnar, "til vaðsins og búast þar við."
Hinir sjá það og snúa þegar
að þeim. Gunnar bendir upp bogann og tekur örvarnar og steypir niður fyrir sig
og skýtur þegar er þeir komu í skotfæri. Særði Gunnar við það mjög marga menn
en drap suma.
Þá mælti Þorgeir Otkelsson:
"Þetta dugir oss ekki, göngum að sem harðast."
Þeir gerðu svo. Fyrstur gekk
Önundur hinn fagri, frændi Þorgeirs. Gunnar skaut atgeirinum til hans og kom á
skjöldinn og klofnaði hann í tvo hluti en atgeirinn hljóp í gegnum Önund.
Ögmundur flóki hljóp að baki Gunnari. Kolskeggur sá það og hjó undan Ögmundi
báða fætur og hratt honum út á Rangá og drukknaði hann þegar. Gerðist nú
bardagi mikill og harður og hjó Gunnar annarri hendi en lagði annarri.
Kolskeggur vó og drjúgan menn en særði marga.
Þorgeir Starkaðarson mælti
til nafna síns: "Alllítt sér það á að þú eigir föður þíns að hefna á
Gunnari."
Þorgeir Otkelsson svarar:
"Víst er eigi vel fram gengið en þó hefir þú eigi gengið mér í spor enda
skal eg eigi þola þín frýjuorð," hleypur að Gunnari af mikilli reiði og
lagði spjóti í gegnum skjöldinn og svo í gegnum hönd Gunnari. Gunnar snaraði
svo hart skjöldinn að spjótið brotnaði í falnum. Gunnar sér annan mann kominn í
höggfæri við sig og höggur þann banahöggi. Eftir það þrífur hann atgeirinn
tveim höndum. Þá var Þorgeir Otkelsson kominn nær honum með brugðnu sverði og
reiddi hart. Gunnar snýst að honum skjótt af mikilli reiði og rekur í gegnum
hann atgeirinn og bregður honum á loft og keyrir hann út á Rangá. Og rekur hann
ofan á vaðið og festi þar á steini einum og heitir þar síðan Þorgeirsvað.
Þorgeir Starkaðarson mælti:
"Flýjum vér nú, ekki mun oss sigurs verða auðið að svo búnu."
Snéru þeir þá allir í frá.
"Sækjum við nú eftir
þeim," segir Kolskeggur, "og tak þú bogann og örvarnar og munt þú
komast í skotfæri við Þorgeir Starkaðarson."
Gunnar svaraði: "Eyðast
munu fésjóðarnir um það er þessir eru bættir er hér liggja nú dauðir."
"Ekki mun þér féfátt
verða," sagði Kolskeggur, "en Þorgeir mun eigi fyrr af láta en hann
ræður þér bana."
"Standa munu nokkurir
hans makar á götu minni áður en eg hræðist þá," segir Gunnar.
Síðan ríða þeir heim og segja
tíðindin. Hallgerður fagnaði þessum tíðindum og lofaði mjög verkið.
Rannveig mælti: "Vera má
að gott sé verkið en verra verður mér við en eg ætli að gott muni af
leiða."
73. kafli
Þessi tíðindi spyrjast víða
og var Þorgeir mörgum mönnum harmdauði. Þeir Gissur hvíti og Geir goði riðu til
og lýstu vígunum og kvöddu búa til þings. Riðu þá vestur aftur.
Þeir Njáll og Gunnar fundust
og töluðu um bardagann.
Þá mælti Njáll til Gunnars:
"Ver þú nú var um þig. Nú hefir þú vegið tvisvar í hinn sama knérunn. Hygg
nú svo fyrir hag þínum að þar liggur við líf þitt ef þú heldur eigi þá sætt sem
ger er."
"Hvergi ætla eg mér af
að bregða," segir Gunnar, "en þó mun eg þurfa liðsinni yðvart á
þingi."
Njáll svaraði: "Halda
mun eg við þig mínum trúnaði til dauðadags."
Ríður Gunnar þá heim.
Líður nú til þings og
fjölmenna hvorirtveggju mjög. Er um þetta allfjölrætt á þingi hversu þessi mál
mundu lúkast.
Þeir Gissur hvíti og Geir
goði töluðu með sér hvor þeirra lýsa skyldi vígsökinni Þorgeirs. En þar kom að
Gissur tók undir sig málið og lýsti sök að Lögbergi og kvað svo að orði að
"eg lýsi lögmætu frumhlaupi á hönd Gunnari Hámundarsyni um það er hann
hljóp lögmætu frumhlaupi til Þorgeirs Otkelssonar og særði hann holundarsári
því er að ben gerðist en Þorgeir fékk bana af. Tel eg hann eiga að verða um sök
þá sekan skógarmann, óælan, óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Tel eg sekt
fé hans allt, hálft mér en hálft fjórðungsmönnum þeim er sektarfé eiga að taka
eftir hann að lögum. Lýsi eg til fjórðungsdóms þess er sökin á í að koma að
lögum, lýsi eg löglýsing, lýsi eg í heyranda hljóði að Lögbergi, lýsi eg nú til
sóknar í sumar og til sektar fullrar á hönd Gunnari Hámundarsyni."
Í annað sinn nefndi Gissur sér
votta og lýsti sök á hönd Gunnari Hámundarsyni um það er hann særði Þorgeir
Otkelsson holundarsári því er að ben gerðist en Þorgeir fékk bana af á þeim
vettvangi er Gunnar hljóp til Þorgeirs lögmætu frumhlaupi áður. Síðan lýsti
hann þessi lýsing sem hinni fyrri. Þá spurði hann að þingfesti og að
heimilisfangi. Eftir það gengu menn frá Lögbergi og mæltu allir að honum
mæltist vel. Gunnar var vel stilltur og lagði fátt til.
Líður nú þingið þar til er
dómar fara út. Gunnar stóð norðan að Rangæingadómi og hans menn en Gissur hinn
hvíti stóð sunnan að og hans menn og nefndi sér votta og bauð Gunnari að hlýða
til eiðspjalls síns og til framsögu sakar sinnar og til sóknargagna þeirra
allra sem hann hugði fram að færa. Eftir það vann hann eið. Þá sagði hann fram
sök sína svo skapaða í dóm sem hann lýsti. Þá lét hann bera lýsingarvætti. Þá
bauð hann búum í setu og til ruðningar um kviðinn.
74. kafli
Þá mælti Njáll: "Nú mun
eigi sitjanda hlut mega í eiga. Göngum nú þar til er búarnir sitja."
Þeir gengu þangað til og
ruddu fjóra búa úr kviðinum en kvöddu hina fimm bjargkviðar, er eftir voru, um
málið Gunnars, hvort þeir Þorgeir Starkaðarson eða Þorgeir Otkelsson hefðu
farið með þann hug til fundar að vinna á Gunnari ef þeir mættu. En allir báru
það skjótt að það hefði verið. Kallaði Njáll þetta lögvörn fyrir málið og
kvaðst mundu fram bera vörnina nema þeir legðu til sætta. Voru í þessu þá
margir höfðingjar að biðja sættanna og fékkst það af að tólf menn skyldu gera
um málið. Ganga hvorirtveggju þá til og handsala þessa sætt.
Eftir það var gert um málið
og ákveðið um fégjöld og skyldi allt greitt þegar þar á þingi en Gunnar skyldi
fara utan og Kolskeggur og vera í brautu þrjá vetur. En ef Gunnar færi eigi
utan og mætti hann komast þá skyldi hann dræpur fyrir frændum hins vegna.
Gunnar lét ekki á sig finna
að honum þætti eigi góð sættin. Gunnar spurði Njál að fé því er hann hafði
fengið honum til varðveislu. Njáll hafði ávaxtað féið og greiddi þá fram allt
og stóðst það á endum og það er Gunnar átti að gjalda fyrir sig.
Ríða menn nú heim.
Þeir Njáll og Gunnar riðu
báðir samt af þingi.
Þá mælti Njáll til Gunnars:
"Geym nú svo til félagi að þú halt sætt þessa og mun hvað við höfum við
mælst. Og svo sem þér varð hin fyrri utanferð mikil til sæmdar þá mun þér verða
sjá miklu meir til sæmdar. Munt þú koma út með mannvirðingu mikilli og verða
maður gamall og mun engi maður hér þá á sporði þér standa. En ef þú ferð eigi
utan og rýfur sætt þína þá munt þú drepinn vera hér á landi og er það illt að
vita þeim er vinir þínir eru."
Gunnar kvaðst ekki ætla að
rjúfa sættir.
Gunnar ríður heim og segir
sættina. Rannveig móðir hans kvað það vel að hann færi utan og ættu þeir við
annan að deila fyrst.
75. kafli
Þráinn Sigfússon sagði það
konu sinni að hann ætlaði að fara utan það sumar. Hún kvað það vel vera. Tók
hann sér þá fari með Högna hinum hvíta. Gunnar tók sér fari með Arnfinni hinum
víkverska og Kolskeggur bróðir hans.
Þeir Grímur og Helgi
Njálssynir báðu föður sinn að hann leyfði þeim að fara utan.
Njáll mælti: "Erfið mun
ykkur verða utanferð sjá svo að tvísýnt mun ykkur verða þykja hvort þið haldið
lífinu en þó munuð þið fá sæmd í sumu og mannvirðing en eigi örvænt að af leiði
vandræði er þið komið út."
Þeir báðu jafnan að fara og
það varð að hann bað þá fara ef þeir vildu. Réðu þeir sér þá far með Bárði
svarta og Ólafi syni Ketils úr Eldu. Og er nú mikil umræða á að mjög leysist á
braut hinir betri menn úr sveitinni.
Þeir voru þá frumvaxta synir
Gunnars, Högni og Grani. Þeir voru menn óskaplíkir. Hafði Grani mikið af
skaplyndi móður sinnar en Högni var vel að sér.
Gunnar lætur flytja vöru
þeirra bræðra til skips. Og þá er öll föng Gunnars voru til skips komin og skip
var mjög búið þá ríður Gunnar til Bergþórshvols og á aðra bæi að finna menn og
þakkaði liðveislu öllum þeim er honum höfðu lið veitt.
Annan dag eftir býr hann
snemmendis ferð sína til skips og sagði þá öllu liði að hann mundi ríða í braut
alfari og þótti mönnum það mikið en væntu þó tilkomu hans síðar. Gunnar hverfur
til allra heimamanna sinna er hann var búinn og gengu menn út með honum allir.
Hann stingur niður atgeirinum og stiklar í söðulinn og ríða þeir Kolskeggur í
braut. Þeir ríða fram að Markarfljóti. Þá drap hestur Gunnars fæti og stökk
hann af baki.
Honum varð litið upp til
hlíðarinnar og bæjarins að Hlíðarenda. Þá mælti hann: "Fögur er hlíðin svo
að mér hefir hún aldrei jafnfögur sýnst, bleikir akrar en slegin tún, og mun eg
ríða heim aftur og fara hvergi."
"Ger þú eigi þann
óvinafagnað," segir Kolskeggur, "að þú rjúfir sætt þína því að þér
mundi engi maður það ætla. Og munt þú það ætla mega að svo mun allt fara sem
Njáll hefir sagt."
"Hvergi mun eg
fara," segir Gunnar, "og svo vildi eg að þú gerðir."
"Eigi skal það,"
segir Kolskeggur, "hvorki skal eg á þessu níðast og á engu öðru því er mér
er til trúað og mun sjá einn hlutur svo vera að skilja mun með okkur en seg það
móður minni og frændum mínum að eg ætla ekki að sjá Ísland því að eg mun spyrja
þig látinn frændi og heldur mig þá ekki til útferðar."
Skilur þá með þeim. Ríður Gunnar
heim til Hlíðarenda en Kolskeggur ríður til skips og fer utan.
Hallgerður var fegin Gunnari
er hann kom heim en móðir hans lagði fátt til. Gunnar situr nú heima þetta
haust og veturinn og hafði ekki margt manna um sig. Líður nú vetur úr garði.
Ólafur pái sendi Gunnari mann
og bað hann fara vestur þangað og Hallgerði en fá bú í hendur móður sinni og
Högna syni sínum. Gunnari þótti það fýsilegt fyrst og játaði því en þá er að
kom þá vildi hann eigi.
En á þingi um sumarið lýsa
þeir Gissur sekt Gunnars að Lögbergi. En áður þinglausnir voru stefndi Gissur
öllum óvinum Gunnars í Almannagjá: Starkaði undan Þríhyrningi og Þorgeiri syni
hans, Merði og Valgarði hinum grá, Geir goða og Hjalta Skeggjasyni, Þorbrandi
og Ásbrandi Þorleikssonum, Eilífi og Önundi syni hans, Önundi úr Tröllaskógi,
Þorgrími austmanni úr Sandgili.
Gissur mælti: "Eg vil
bjóða yður að vér förum að Gunnari í sumar og drepum hann."
Hjalti mælti: "Því hét
eg Gunnari hér á þingi þá er hann gerði mest fyrir mín orð að eg skyldi aldrei
vera í aðförum við hann og skal svo vera."
Síðan gekk Hjalti í braut en
þeir réðu aðför við Gunnar er eftir voru og höfðu handtak að og lögðu við sekt
ef nokkur gengi úr. Mörður skyldi halda njósnum til nær best gæfi færi á
Gunnari og voru þeir fjórir tigir manna í þessu sambandi. Þótti þeim sér nú
lítið mundu fyrir verða að veiða Gunnar er í brautu var Kolskeggur og Þráinn og
margir aðrir vinir Gunnars. Riðu menn heim af þingi.
Njáll fór að finna Gunnar og
sagði honum sekt hans og ráðna aðför við hann.
"Vel þykir mér þér
fara," sagði Gunnar, "er þú gerir mig varan við."
"Nú vil eg," segir
Njáll, "að Skarphéðinn fari til þín og Höskuldur sonur minn og munu þeir
leggja sitt líf við þitt líf."
"Eigi vil eg það,"
segir Gunnar, "að synir þínir séu drepnir fyrir mínar sakar og átt þú
annað að mér."
"Fyrir ekki mun það
koma," sagði Njáll. "Þangað mun snúið vandræðum þá er þú ert látinn
sem synir mínir eru."
"Eigi er það
ólíklegt," segir Gunnar, "en eigi vildi eg að það hlytist af mér til.
En þess vil eg biðja þig og yður feðga að þér sjáið á með Högna syni mínum. En
eg tala þar ekki til er Grani er því að hann gerir margt ekki að mínu
skapi."
Njáll hét því og reið heim.
Það er sagt að Gunnar reið
til allra mannfunda og lögþinga og þorðu aldrei óvinir hans á hann að ráða. Fór
svo fram nokkura hríð að hann fór sem ósekur maður.
76. kafli
Um haustið sendi Mörður
Valgarðsson orð að Gunnar mundi vera einn heima en lið allt mundi vera niðri í
Eyjum að lúka heyverkum. Riðu þeir Gissur hvíti og Geir goði austur yfir ár
þegar þeir spurðu það og austur yfir sanda til Hofs. Þá sendu þeir orð Starkaði
undir Þríhyrningi. Og fundust þeir þar allir er að Gunnari skyldu fara og réðu
hversu þeir skyldu með fara.
Mörður sagði að þeir mundu
eigi koma á óvart Gunnari nema þeir tækju bónda af næsta bæ er Þorkell hét og
létu hann fara nauðgan með sér að taka hundinn Sám og færi hann einn heim á
bæinn.
Fóru þeir síðan austur til
Hlíðarenda en sendu menn að fara eftir Þorkatli. Þeir tóku hann höndum og gerðu
honum tvo kosti, að þeir mundu drepa hann ella skyldi hann taka hundinn en hann
kjöri heldur að leysa líf sitt og fór með þeim. Traðir voru fyrir ofan garðinn
að Hlíðarenda og námu þeir þar staðar með flokkinn. Þorkell bóndi gekk heim á
bæinn og lá rakkinn á húsum uppi og teygir hann rakkann á braut í geilarnar með
sér. Í því sér hundurinn að þar eru menn fyrir og hleypur á hann Þorkel upp og
grípur nárann og rífur þar á hol. Önundur úr Tröllaskógi hjó með öxi í höfuð
hundinum svo að allt kom í heilann. Hundurinn kvað við hátt svo að það þótti
þeim með ódæmum miklum vera og féll hann dauður niður.
77. kafli
Gunnar vaknaði í skálanum og
mælti: "Sárt ert þú leikinn Sámur fóstri og búið svo sé til ætlað að
skammt skuli okkar í meðal."
Skáli Gunnars var ger af viði
einum og súðþaktur utan og gluggar hjá brúnásunum og snúin þar fyrir speld.
Gunnar svaf í lofti einu í skálanum og Hallgerður og móðir hans.
En er þeir komu að bænum
vissu þeir eigi hvort Gunnar mundi heima vera. Gissur mælti að nokkur skyldi
fara heim á húsin og vita hvað af kannaði en þeir settust niður á völlinn
meðan. Þorgrímur austmaður gekk upp á skálann. Gunnar sér að rauðan kyrtil ber
við glugginum og leggur út með atgeirinum á hann miðjan. Þorgrími skruppu
fæturnir og varð laus skjöldurinn og hrataði hann ofan af þekjunni. Gengur hann
síðan að þeim Gissuri þar er þeir sátu á vellinum.
Gissur leit við honum og
mælti: "Hvort er Gunnar heima?"
"Vitið þér það en hitt
vissi eg að atgeir hans var heima." segir Austmaðurinn.
Féll hann þá niður dauður.
Þeir sóttu þá heim að húsunum. Gunnar skaut út örum að þeim og varðist vel og
gátu þeir ekki að gert. Þá hljópu sumir á húsin upp og ætluðu þaðan að að
sækja. Gunnar kom þangað að þeim örunum og gátu þeir ekki að gert og fór svo
fram um hríð. Þeir tóku hvíld og sóttu að í annað sinn. Gunnar skaut enn út
örunum og gátu þeir enn ekki að gert og hrukku frá í annað sinn.
Þá mælti Gissur hvíti:
"Sækjum að betur, ekki verður af oss."
Gerðu þeir þá hríð hina þriðju
og voru við lengi. Eftir það hrukku þeir frá.
Gunnar mælti: "Ör liggur
þar úti á þekjunni og er sú af þeirra örum og skal eg þeirri skjóta til þeirra.
Og er þeim það skömm ef þeir fá geig af vopnum sínum."
Móðir hans mælti: "Ger
þú eigi það son minn að þú vekir þá er þeir hafa áður frá horfið."
Gunnar þreif örina og skaut
til þeirra og kom á Eilíf Önundarson og fékk hann af sár mikið. Hann hafði
staðið einn saman og vissu þeir eigi að hann var særður.
"Hönd kom þar út,"
segir Gissur, "og var á gullhringur og tók ör er lá á þekjunni og mundi
eigi út leitað viðfanga ef gnógt væri inni og skulum vér nú sækja að."
Mörður mælti: "Brennum
vér hann inni."
"Það skal verða
aldrei," segir Gissur, "þó að eg viti að líf mitt liggi við. Er þér
sjálfrátt að leggja til ráð þau er dugi svo slægur maður sem þú ert
kallaður."
Strengir lágu á vellinum og
voru hafðir til að festa með hús jafnan.
Mörður mælti: "Tökum vér
strengina og berum um ásendana en festum aðra endana um steina og snúum í
vindása og vindum af ræfrið af skálanum."
Þeir tóku strengina og veittu
þessa umbúð alla og fann Gunnar eigi fyrr en þeir höfðu undið allt þakið af
skálanum. Gunnar skýtur þá af boganum svo að þeir komast aldrei að honum. Þá
mælti Mörður í annað sinn að þeir mundu brenna Gunnar inni.
Gissur svarar: "Eigi
veit eg hví þú vilt það mæla er engi vill annarra og skal það aldrei
verða."
Í þessu bili hleypur upp á
þekjuna Þorbrandur Þorleiksson og höggur í sundur bogastrenginn Gunnars. Gunnar
þrífur atgeirinn báðum höndum og snýst að honum skjótt og rekur í gegnum hann
atgeirinn og kastar honum dauðum á völlinn. Þá hljóp upp Ásbrandur bróðir hans.
Gunnar leggur til hans atgeirinum og kom hann skildi fyrir sig. Atgeirinn
renndi í gegn um skjöldinn og svo meðal handleggjanna. Snaraði Gunnar þá svo
fast atgeirinn að skjöldurinn klofnaði en brotnuðu báðir handleggirnir og féll
hann út af vegginum. Áður hafði Gunnar særða átta menn en vegið þá tvo. Þá fékk
Gunnar sár tvö og sögðu það allir menn að hann brygði sér hvorki við sár né við
bana.
Hann mælti til Hallgerðar:
"Fá mér leppa tvo úr hári þínu og snúið þið móðir mín saman til
bogastrengs mér."
"Liggur þér nokkuð
við?" segir hún.
"Líf mitt liggur
við," segir hann, "því að þeir munu mig aldrei fá sóttan meðan eg kem
boganum við."
"Þá skal eg nú,"
segir hún, "muna þér kinnhestinn og hirði eg aldrei hvort þú verð þig
lengur eða skemur."
"Hefir hver til síns
ágætis nokkuð," segir Gunnar, "og skal þig þessa eigi lengi biðja."
Rannveig mælti: "Illa
fer þér og mun þín skömm lengi uppi."
Gunnar varði sig vel og
fræknlega og særir nú aðra átta menn svo stórum sárum að mörgum lá við bana.
Gunnar ver sig þar til er hann féll af mæði. Þeir særðu hann þá mörgum stórum
sárum en þó komst hann úr höndum þeim og varði sig þá enn lengi en þó kom þar
að þeir drápu hann.
Um vörn hans orti Þorkell
Elfaraskáld í vísu þessi:
Spurðum
vér hve varðist
vígmóðr kjalar slóða
glaðstýrandi geiri,
Gunnar, fyrir Kjöl sunnan.
Sóknrýrir vann sára
sextán viðar mána
hríðar herðimeiða
hauðrmens en tvo dauða.
Gissur mælti: "Mikinn
öldung höfum vér nú að velli lagt og hefir oss erfitt veitt og mun hans vörn
uppi meðan landið er byggt."
Síðan gekk hann til fundar
við Rannveigu og mælti: "Vilt þú veita mönnum vorum tveimur jörð er dauðir
eru og séu hér heygðir?"
"Að heldur
tveimur," segir hún, "að eg mundi veita yður öllum."
"Vorkunn er þér til þess
er þú mælir," segir hann, "því að þú hefir mikils misst" og kvað
á að þar skyldi engu ræna og engu spilla. Fóru á braut síðan.
Þá mælti Þorgeir Starkaðarson: "Eigi megum
vér vera heima í búum vorum fyrir Sigfússonum nema þú Gissur hvíti eða Geir
goði sért suður hér nokkura hríð."
"Þetta mun svo vera," segir Gissur og
hlutuðu þeir og hlaut Geir eftir að vera.
Síðan fór hann í Odda og
settist þar. Hann átti sér son er Hróaldur hét. Hann var laungetinn og hét
Bjartey móðir hans og var systir Þorvalds hins veila er veginn var við Hestlæk
í Grímsnesi. Hann hrósaði því að hann hefði veitt Gunnari banasár. Hróaldur var
í Odda með föður sínum. Þorgeir Starkaðarson hrósaði öðru sári að hann hefði
Gunnari veitt. Gissur sat heima að Mosfelli.
Víg Gunnars spurðist og
mæltist illa fyrir um allar sveitir og var hann mörgum mönnum mjög harmdauði.
78. kafli
Njáll kunni illa láti Gunnars
og svo Sigfússynir. Þeir spurðu hvort Njáli þætti nokkuð eiga að lýsa vígsök
Gunnars og búa mál til. Hann kvað það ekki mega er maður var sekur orðinn og
kvað heldur mundu verða að veita þeim í því vegskarð að vega nokkura í hefnd
eftir hann.
Þeir urpu haug eftir Gunnar
og létu hann sitja upp í hauginum. Rannveig vildi eigi að atgeirinn færi í
hauginn og kvað þann einn skyldu á honum taka er hefna vildi Gunnars. Tók því
engi á atgeirinum. Hún var svo hörð við Hallgerði að henni hélt við að hún
mundi drepa hana og kvað hana valdið hafa vígi sonar síns. Stökk þá Hallgerður
til Grjótár og Grani sonur hennar. Var þá gert féskipti með þeim. Skyldi Högni
taka land að Hlíðarenda og bú á en Grani skyldi hafa leigulönd.
Sá atburður varð að
Hlíðarenda að smalamaður og griðkona ráku fé hjá haugi Gunnars. Þeim þótti
Gunnar vera kátur og kveða í hauginum. Fóru þau heim og sögðu Rannveigu móður
Gunnars atburðinn en hún bað þau fara til Bergþórshvols og segja Njáli. Þau
gerðu svo en hann lét segja sér þrem sinnum. Eftir það talaði hann lengi hljótt
við Skarphéðinn.
Síðan tók Skarphéðinn öxi
sína og fer með þeim til Hlíðarenda. Þau Högni og Rannveig tóku við honum
allvel og urðu honum fegin mjög. Rannveig bað að hann væri þar lengi. Hann hét
því. Þeir Högni gengu út og inn jafnan. Högni var maður vasklegur og vel að sér
ger og tortryggur og þorðu þau fyrir því eigi að segja honum fyrirburðinn.
Þeir Skarphéðinn og Högni
voru úti eitt kveld og voru fyrir sunnan haug Gunnars. Tunglskin var bjart en
stundum dró fyrir. Þeim sýndist haugurinn opinn og hafði Gunnar snúist í
hauginum og sá í móti tunglinu. Þeir þóttust sjá fjögur ljós í hauginum brenna
og bar hvergi skugga á. Þeir sáu að Gunnar var kátlegur og með gleðibragði
miklu. Hann kvað vísu og svo hátt að þó mátti heyra gjörla þó það þeir væru
firr:
Mælti
döggla deilir,
dáðum rakkr, sá er háði
bjartr með bestu hjarta
benrögn, faðir Högna:
Heldr kvaðst hjálmi faldinn
hjörþilju sjá vilja
vættidraugr en vægja,
val-Freyju stafr, deyja -
og val-Freyju stafr deyja.
Síðan laukst aftur haugurinn.
"Mundir þú trúa,"
segir Skarphéðinn, "ef aðrir segðu þér?"
"Trúa mundi eg,"
segir Högni, "ef Njáll segði því að það er sagt að hann ljúgi
aldrei."
"Mikið er um fyrirburði
slíka," segir Skarphéðinn, "er hann sjálfur vitraði okkur að hann
vildi heldur deyja en vægja fyrir óvinum sínum og kenndi okkur þau ráð."
"Engu mun eg til leiðar
koma," segir Högni, "nema þú viljir mér að veita."
"Nú skal eg það
muna," segir Skarphéðinn, "hversu Gunnari fór eftir víg Sigmundar
frænda yðvars. Skal eg nú veita þér slíkt er eg má. Hét faðir minn því Gunnari
þar er þú ættir hlut að eða móðir hans."
Gengu þeir síðan heim til
Hlíðarenda.
79. kafli
Skarphéðinn mælti: "Nú
skulum við fara þegar í nótt því að ef þeir spyrja að eg er hér þá munu þeir
vera varari um sig."
"Þínum ráðum vil eg fram
fara," segir Högni.
Eftir það tóku þeir vopn sín
þá er allir menn voru í rekkjum. Högni tekur ofan atgeirinn og söng í honum
hátt.
Rannveig spratt upp af æði
mikilli og mælti: "Hver tekur atgeirinn þar er eg bannaði öllum með að
fara?"
"Eg ætla," segir
Högni, "að færa föður mínum og hafi hann til Valhallar og beri þar fram á
vopnaþingi."
"Fyrri munt þú nú bera
hann," segir hún, "og hefna föður þíns því að atgeirinn segir manns
bana, eins eða fleiri."
Síðan gekk Högni út og sagði
Skarphéðni orðræðu þeirra ömmu hans.
Síðan fara þeir til Odda.
Hrafnar tveir flugu með þeim alla leið. Þeir komu um nóttina í Odda. Þeir ráku fénað heim á húsin. Þá hljóp út
Hróaldur og Tjörvi og ráku féið upp í geilarnar og höfðu með sér vopn sín.
Skarphéðinn spratt upp og mælti: "Eigi þarft
þú að hyggja að, jafnt er sem þér sýnist, menn eru hér."
Síðan höggur Skarphéðinn Tjörva banahögg. Hróaldur
hafði spjót í hendi. Högni hleypur að honum. Hróaldur leggur til Högna.
Högni hjó í sundur spjótskaftið með atgeirinum en rekur atgeirinn í gegnum
hann. Síðan gengu þeir frá þeim dauðum og snúa þaðan upp undir Þríhyrning.
Skarphéðinn hleypur á hús upp og reytir gras og ætluðu þeir er inni voru að fénaður
væri. Tóku þeir feðgar, Starkaður og Þorgeir, vopn sín og klæði og fóru út og
hljópu upp um garðinn. En er Starkaður sér Skarphéðinn hræðist hann og vildi
aftur snúa. Skarphéðinn höggur hann við garðinum. Þá kemur Högni í mót Þorgeiri
og vegur hann með atgeirinum.
Þaðan fara þeir til Hofs og
var Mörður á velli úti og bað sér griða og bauð alsætti.
Skarphéðinn sagði Merði víg
þeirra fjögurra. "Og slíka för," segir Skarphéðinn, "skalt þú
fara eða selja Högna sjálfdæmi ef hann vill taka."
Högni kvaðst hitt hafa ætlað
að sættast ekki við föðurbana sína en þó tók hann sjálfdæmi um síðir.
80. kafli
Njáll átti hlut að við þá er
eftirmál áttu eftir þá Starkað og Þorgeir að þeir skyldu taka sættum og var
héraðsfundur til lagður og teknir menn til gerðar og voru virðir í allir
hlutir, tilför við Gunnar þó að hann væri sekur. En slík fégjöld sem ger voru
þá galt Mörður allt því að þeir luku eigi fyrr upp gerð á hendur honum en gert
var áður um hitt málið og létu þeir það á endum standast. Voru þeir þá alsáttir.
En á þingi var umræða mikil
um mál þeirra Geirs goða og Högna og kom þar að þeir sættust og hélst sú sætt
með þeim síðan. Bjó Geir goði í Hlíð til dauðadags og er hann úr sögunni.
Njáll bað konu til handa
Högna, Álfeiðar dóttur Veturliða skálds, og var hún honum gefin. Þeirra son var
Ari er sigldi til Hjaltlands og kvongaðist þar. Frá honum er kominn Einar
Hjaltlendingur, hinn vaskasti maður. Högni hélt vináttu sinni við Njál og er
hann úr sögunni.
81. kafli
Nú er að segja frá Kolskeggi
að hann kemur til Noregs og er í Vík austur um veturinn en um sumarið eftir fer
hann austur til Danmerkur og felst á hendi Sveini konungi tjúguskegg og hafði
þar virðingar miklar.
Eina hverja nótt dreymir hann
að maður kom að honum. Sá var ljós og þótti honum hann vekja sig.
Hann mælti við hann:
"Statt upp þú og far með mér."
"Hvað vilt þú mér?"
segir Kolskeggur.
Hann mælti: "Eg skal fá
þér kvonfang og skalt þú vera riddari minn."
Hann þóttist játa því. Eftir
það vaknaði hann. Síðan fór hann til spekings eins og sagði honum drauminn en
hann réð svo að hann mundi fara suður í lönd og verða guðs riddari.
Kolskeggur tók skírn í
Danmörku en nam þar þó eigi yndi og fór í Garðaríki og var þar einn vetur. Þá
fór hann þaðan út í Miklagarð og gekk þar á mála. Spurðist það til hans að hann
kvongaðist þar og var höfðingi fyrir væringjaliði og var þar til dauðadags og
er hann úr sögu þessi.
82. kafli
Nú er þar til máls að taka að
Þráinn Sigfússon kom til Noregs. Þeir komu norður við Hálogaland og héldu suður
til Þrándheims og svo inn til Hlaða. En þegar er Hákon jarl spurði það sendi
hann menn til þeirra og vildi vita hvað manna væri á skipi þeirra er
höfuðburður væri að. Þeir komu aftur og sögðu honum hverjir voru. Jarlinn sendi
þá eftir Þráni Sigfússyni og kom hann á hans fund. Jarl spurði hverrar ættar
hann væri. Hann segir að hann væri skyldur mjög Gunnari að Hlíðarenda.
Jarl mælti: "Njóta skalt
þú þess því að séð hefi eg marga íslenska menn og engan hans maka."
Þráinn mælti: "Herra,
viljið þér að eg sé með yður í vetur?"
Jarl tók við honum. Var
Þráinn þar um veturinn og virðist vel.
Kolur hét maður. Hann var
víkingur mikill. Hann var son Ásmundar eskisíðu austan úr Smálöndum. Hann lá í
Gautelfi austur og hafði fimm skip og lið mikið. Þaðan hélt Kolur úr Elfinni
til Noregs og gekk upp á Foldinni og kom á óvart Hallvarði sóta og fundu hann í
lofti einu. Hann varðist þaðan vel þar til er þeir báru eld að. Þá gafst hann
upp en þeir drápu hann og tóku þar fé mikið og héldu þaðan til Ljóðhúsa.
Þessi tíðindi spurði Hákon
jarl og lét dæma Kol útlagan um allt ríki sitt og lagði fé til höfuðs honum.
Einu hverju sinni var það að
jarl tók svo til orða: "Of fjarri er oss nú Gunnar að Hlíðarenda. Hann
mundi drepa útlaga minn ef hann væri hér en nú munu Íslendingar drepa hann og
er það illa er hann hefir eigi til vor farið."
Þráinn Sigfússon svaraði:
"Eigi er eg Gunnar en þó er eg skyldur Gunnari og vil eg bjóðast til
þessar ferðar."
Jarl mælti: "Það vil eg
gjarna. Skal og þína för allvel búa."
Síðan tók Eiríkur son hans
til orða: "Við marga hafið þér heit góð en misjafnt þykir út seljast. Er
þetta hin torveldlegasta för því að víkingur sjá er harður og illur
viðureignar. Munt þú þurfa að vanda til ferðar þessar bæði skip og menn."
Þráinn mælti: "Þó skal
nú fara að ferðin sé eigi rífleg."
Síðan fékk jarl honum fimm
sip og öll vel skipuð. Með Þráni var Gunnar Lambason og Lambi Sigurðarson.
Gunnar var bróðurson Þráins og hafði komið til hans ungur og unni hvor öðrum
mikið. Eiríkur jarlsson gekk til með þeim og hugði að mönnum og vopnaafla og
skipti þar um er honum þótti þurfa. Síðan er þeir voru búnir fékk Eiríkur þeim
leiðsögumann.
Sigldu þeir þá suður með
landi. En hvar sem þeir kæmu við þá heimilaði jarl þeim slíkt er þeir þyrftu að
hafa. Þeir héldu austur til Ljóðhúsa. Þar spurðu þeir að Kolur var farinn suður
til Danmerkur. Héldu þeir þá suður þangað. En er þeir komu suður til
Helsingjaborgar fundu þeir þar menn á báti og sögðu þeir að þar var Kolur fyrir
og mundi þar dveljast um hríð.
Veðurdagur var góður. Þá sá
Kolur skipin er að fóru og kvað sig dreymt hafa Hákon jarl um nóttina og kvað
þetta vera mundu menn hans og bað alla menn sína taka vopn sín. Síðan bjuggust
þeir við og tekst þar orusta. Berjast þeir lengi svo að eigi verða umskipti. Kolur
hljóp þá upp á skip Þráins og ruddist um fast og drepur margan mann. Hann hafði
gylltan hjálm. Nú sér Þráinn að eigi mun duga, eggjar nú mennina með sér en
hann gengur sjálfur fyrstur og mætir Kol. Kolur höggur til hans og kom í
skjöldinn Þráins og klauf ofan skjöldinn. Þá fékk Kolur steinshögg á höndina.
Féll þá niður sverðið. Þráinn hjó til Kols og kom á fótinn svo að af tók. Eftir
það drápu þeir Kol. Hjó Þráinn höfuð af honum en steypti búkinum fyrir borð en
varðveitti höfuðið.
Þeir tóku þar fé mikið, héldu
þá norður til Þrándheims og fara á fund jarls. Tók hann vel við Þráni. Hann
sýndi jarli höfuð Kols. Jarl þakkaði honum verk það. Eiríkur kvað meira vert en
orða einna. Jarlinn svaraði að svo var og bað þá ganga með sér. Gengu þeir
þangað sem jarl hafði látið gera skip góð. Jarl hafði látið gera skip það eitt
er eigi var gert sem langskip. Þar var gammshöfuð á og búið mjög.
Jarl mælti: "Þú ert
skrautmenni mikið Þráinn og hefir þú það af Gunnari frænda þínum. Vil eg nú
gefa þér skip þetta en skipið heitir Gammur. Þar skal fylgja með vinátta mín.
Vil eg að þú sért með mér svo lengi sem þú vilt."
Þráinn þakkaði jarli
velgerning sinn og kveðst ekki fýsast til Íslands að svo búnu.
Jarl átti ferð austur til
landamæris að finna Svíakonung. Fór Þráinn með honum um sumarið og var
skipstjórnarmaður og stýrði Gamminum. Hann sigldi svo mikið að fáir þurftu við
hann. Hann var öfundaður mjög en það fannst á jafnan að jarl virti mikils
Gunnar því að hann setti þá harðlega aftur alla er á Þráin leituðu. Var Þráinn
með jarli allan þann vetur. En um vorið spurði jarl Þráin hvort hann vildi þar
vera eða fara til Íslands en hann kvaðst eigi það hafa ráðið við sig og sagðist
vita vilja áður tíðindi af Íslandi. Jarl sagði að svo skyldu vera sem honum
þætti henta. Var Þráinn með jarli.
Þá spurðust tíðindi af
Íslandi þau er mörgum þótti mikil, lát Gunnars frá Hlíðarenda. Þá vildi jarl
eigi að Þráinn færi út og var hann þá enn með jarli.
83. kafli
Nú er þar til máls að taka að
þeir Grímur og Helgi synir Njáls fóru af Íslandi það sumar sem þeir Þráinn fóru
utan og voru á skipi með þeim Ólafi eldu Ketilssyni og Bárði hinum svarta. Þeir
tóku norðanveður svo hörð að þá bar suður í haf og rak yfir myrkur svo mikið að
þeir vissu eigi hvar þeir fóru og höfðu þeir útivist langa. Þá komu þeir þar er
grunnsævi var mikið og þóttust þeir vita að það mundi vera nær löndum. Þeir
Njálssynir spurðu ef Bárður vissi nokkuð til hverjum löndum þeir mundu næst
vera.
"Mörg eru til,"
segir hann, "að því sem vér höfum veðurföll haft, Eyjar eða Skotland eða
Írland."
Tveim nóttum síðar sáu þeir
lönd á bæði borð en boða mikinn inn á fjörðinn. Þeir köstuðu akkerum fyrir utan
boðann. Þá tók að lægja veðrið en um morguninn var logn. Sjá þeir þá fara
þrettán skip út að sér.
Þá mælti Bárður: "Hvað
skal nú til ráða taka því að menn þessir munu veita oss aðsókn?"
Síðan ræddu þeir um hvort
þeir skyldu verja sig eða gefast upp en áður þeir höfðu ráðið komu að víkingar.
Spurðu þá hvorir aðra að nöfnum, hvað fyrirmenn hétu. Þá nefndust fyrirmenn
kaupmanna og spurðu í móti hverjir fyrir víkingum væru. Annar nefndist
Grjótgarður en annar Snækólfur, synir Moldans úr Dungalsbæ í Skotlandi, frændur
Melkólfs Skotakonungs "og eru kostir tveir af oss gervir," segir
Grjótgarður, "að þér gangið á land en vér munum taka fé yðvart. Hinn er
annar að vér munum sækja að yður og drepa hvern mann er vér náum."
Helgi svarar: "Það vilja
kaupmenn að verja sig."
Þá mæltu kaupmenn: "Mæl
þú alls vesall. Hverja vörn munum vér veita? Og er fé fjörvi firra.
Grímur tók það ráð að hann
æpti á víkinga og lét þá eigi heyra illan kurr kaupmanna.
Bárður og Ólafur mæltu:
"Hyggið þér eigi að Íslendingar muni gera spott að látum yðrum? Takið nú
heldur vopn yður og verjum oss." Tóku þeir þá allir vopn sín og festu það
með sér að þeir skyldu aldrei upp gefast meðan þeir mættu verja sig.
84. kafli
Víkingar skjóta nú á þá og
tókst nú orusta og verja kaupmenn sig vel. Snækólfur hleypur að Ólafi og leggur
í gegnum hann með spjóti. Grímur leggur til Snækólfs spjóti og svo fast að hann
féll útbyrðis. Helgi sneri þá til móts við Grím og ráku þeir ofan alla víkinga
og jafnan voru þeir Njálssynir þar er mest þurfti. Víkingar kölluðu og báðu
kaupmenn upp gefast en þeir sögðu að þeir skyldu aldrei upp gefast.
Í þessu varð þeim litið til
hafs. Sjá þeir þá að skip fara sunnan fyrir nesið og voru eigi færri en tíu.
Þeir róa mikinn og stefna að þangað. Er þar skjöldur við skjöld. En á því skipi
er fyrst fór stóð maður við siglu. Sá var í silkitreyju og hafði gylltan hjálm
en hárið bæði mikið og fagurt. Sjá maður hafði spjót gullrekið í hendi.
Hann spurði: "Hverjir
eiga hér leik svo ójafnan?"
Helgi segir til sín og sagði
að í móti voru þeir Grjótgarður og Snækólfur.
"En hverjir eru
stýrimenn?" sagði sjá.
Helgi svaraði: "Bárður
svarti er lifir en annar er fallinn hér fyrir víkingum og hét sá Ólafur en
bróðir minn heitir Grímur er mér fylgir."
"Eruð þið íslenskir
menn?" segir sjá.
"Svo er víst,"
segir Helgi.
Hann spurði hvers synir þeir
væru. Þeir sögðu.
Þá kannaðist hann við og
mælti: "Nafnfrægir eruð þér feðgar."
"Hver ert þú?"
segir Helgi.
"Kári heiti eg og er
Sölmundarson."
"Hvaðan komst þú
að?" segir Helgi.
"Úr Suðureyjum,"
segir Kári.
"Þá ert þú vel að
kominn," segir Helgi, "ef þú vilt veita oss nokkuð."
"Veita slíkt sem þér
þurfið," segir Kári, "eða hvers beiðið þér?"
"Veita þeim
atlögu," segir Helgi.
Kári sagði að svo skyldi
vera.
Lögðu þeir þá að þeim og
tókst þá bardagi í annað sinn. En er þeir hafa barist um hríð hleypur Kári upp
á skip til Snækólfs. Hann snýr í móti Kára og höggur til hans. Kári hleypur
yfir slá eina er lá um þvert skipið aftur öfugur. Snækólfur hjó í slána svo að
fal báða eggteina sverðsins. Kári höggur til hans og kom sverðið á öxlina og
varð höggið svo mikið að hann klauf frá ofan höndina og hafði Snækólfur þegar
bana. Grjótgarður skaut spjóti til Kára. Kári sá það og hljóp í loft upp en
spjótið missti hans. Í því voru þeir Grímur og Helgi komnir til móts við Kára.
Hleypur þá Helgi að Grjótgarði og leggur sverði í gegnum hann og varð það hans
bani. Gengu þeir þá um skip öll með báðum borðum. Menn báðu sér þá griða. Gáfu
þeir þá grið öllum en tóku fé allt. Eftir það leggja þeir skipin öll undir
eyjarnar út og hvíldust þar um hríð.
85. kafli
Sigurður hét jarl er réð fyrir
Orkneyjum. Hann var Hlöðvisson Þorfinnssonar hausakljúfs, Torf-Einarssonar,
Rögnvaldssonar, jarls af Mæri, Eysteinssonar glumru.
Kári var hirðmaður Sigurðar
jarls og hafði tekið skatta af Suðureyjum af Gilla jarli. Biður hann þá
Njálssonu fara með sér til Hrosseyjar og sagði að jarl mundi vel við þeim taka.
Þeir þágu það og fóru með Kára og komu til Hrosseyjar.
Kári fylgir þeim á fund jarls
og sagði hverjir menn þeir voru.
"Hversu komu þeir,"
sagði jarl, "á þinn fund?"
"Eg fann þá," segir
Kári, "í Skotlandsfjörðum og börðust þeir við sonu Moldans úr Dungalsbæ og
vörðust þeir svo vel að þeir urpu sér jafnan meðal viðanna og voru þar jafnan
sem mest var raunin. Og vil eg nú biðja þeim hirðvistar með yður herra."
"Því skalt þú
ráða," segir jarl. "Tekist hefir þú svo mikið á hendur við þá
áður."
Þeir voru þá með jarli um
veturinn og voru vel virðir.
En er á leið veturinn gerðist
Helgi hljóður. Jarl þóttist eigi vita hví það mundi sæta og spurði hví hann
væri hljóður eða hvað honum þætti "eða þykir þér hér eigi gott?"
"Gott þykir mér
hér," segir Helgi.
"Hvað hugsar þú
þá?" segir jarl.
"Eigið þér nokkurs ríkis
að gæta á Skotlandi?" Segir Helgi.
"Svo mun oss
þykja," segir jarl, "eða hvað er að því?"
Helgi svarar: "Skotar
munu hafa tekið sýslumann yðvarn af lífi og tekið njósnir allar að engar skyldu
ganga mega yfir Pettlandsfjörð."
Jarl mælti: "Ert þú
forspár maður?"
Helgi svarar: "Lítt er
það reynt."
"Auka skal eg sæmd
þína," segir jarl, "ef þetta er svo. Ella mun þér gjald að
verða."
"Ekki er hann þess
háttar maður," segir Kári, "og mun hann satt til segja því að faðir
hans er forspár."
Síðan sendi jarl menn suður
til Straumeyjar Arnljóti sýslumanni sínum. Eftir það sendi Arnljótur menn suður
yfir Pettlandsfjörð og tóku þar njósnir og fréttu það að Hundi jarl og Melsnati
jarl höfðu tekið af lífi Hávarð í Þrasvík mág Sigurðar jarls. Sendi þá
Arnljótur orð Sigurði jarli að hann skyldi koma suður með lið mikið og reka
jarla þessa af ríkinu en þegar er jarl spurði þetta dró hann her saman um allar
eyjar.
86. kafli
Síðan fór jarl suður með
herinn og var Kári í för með honum og svo Njálssynir. Þeir komu suður við
Katanes. Jarl átti þessi ríki í Skotlandi: Ros og Mýræfi, Syðrilönd og Dali.
Komu þar að móti þeim menn af þeim ríkjum og sögðu að jarlar voru þaðan skammt
í braut með her mikinn. Þá snýr Sigurður jarl þangað herinum og heitir þar
Dungalsgnípa er fundurinn var fyrir ofan. Laust þegar í bardaga mikinn með
þeim. Skotar höfðu látið fara sumt liðið laust og kom það í opna skjöldu jarlsmönnum
og varð þar mannfall mikið þar til er þeir Njálssynir sneru í móti þeim og
börðust við þá og komu þeim á flótta. Verður þá þó bardaginn harður. Snúa þeir
Grímur og Helgi þá fram hjá merkinu jarls og berjast hið djarflegasta. Nú snýr
Kári í móti Melsnata jarli. Melsnati skaut spjóti að Kára. Kári henti og skaut
aftur spjótinu og í gegnum jarlinn. Þá flýði Hundi jarl en þeir ráku flóttann
allt þar til er þeir spurðu til Melkólfs Skotakonungs að hann dró her saman í
Dungalsbæ. Átti jarl þá ráð við menn sína og sýndist það öllum ráð að snúa
aftur og berjast eigi við svo mikinn landher. Sneru þeir þá aftur.
En er jarl kom í Straumey
skipti hann þar herfangi. Síðan fór hann norður til Hrosseyjar. Njálssynir
fylgdu honum og Kári. Jarl gerði þá veislu mikla og að þeirri veislu gaf jarl
Kára sverð gott og spjót gullrekið en Helga gullhring og skikkju en Grími
skjöld og sverð. Eftir það gerði hann þá hirðmenn sína Grím og Helga og þakkaði
þeim framgöngu góða.
Þeir voru með jarli þann
vetur og um sumarið þar til er Kári fór í hernað. Þeir fóru með honum. Þeir herjuðu víða um
sumarið og fengu hvervetna sigur. Þeir börðust við Guðröð konung úr Mön og
sigruðu hann og fóru við það aftur og höfðu fengið mikið fé. Voru þeir með
jarli um veturinn og sátu þar í góðu yfirlæti.
Um vorið beiddust þeir Njálssynir að fara til
Noregs. Jarl mælti að þeir skyldu fara sem þeim líkaði og fékk þeim gott skip
og röskva menn. Kári sagði þeim að hann mundi þetta sumar koma til Noregs með
skatta Hákonar jarls og "munum vér þá þar finnast," segir Kári. Og á
það sammæltust þeir að finnast þar.
Síðan létu þeir Njálssynir út og sigldu til
Noregs og komu norður við Þrándheim. Dvöldust þeir þar.
87. kafli
Kolbeinn hét maður og var
kallaður Arnljótarson. Hann var þrænskur maður. Hann sigldi það sumar út til
Íslands er Þráinn og Njálssynir fóru utan. Hann var þann vetur í Breiðdal
austur. En um sumarið eftir bjó hann skip sitt í Gautavík. Og þá er þeir voru
mjög búnir reri að þeim maður á báti og festi bátinn við skipið en gekk síðan
upp á skipið til fundar við Kolbein. Kolbeinn spurði þenna mann að nafni.
"Hrappur heiti eg,"
segir hann.
"Hvers son ert þú?"
segir Kolbeinn.
Hrappur svarar: "Eg er
son Örgumleiða Geirólfssonar gerpis."
"Hvað vilt þú mér?"
segir Kolbeinn.
"Eg vil biðja þig,"
segir Hrappur, "að þú flytjir mig um haf."
Kolbeinn spyr: "Hver
nauðsyn er þér á?"
"Eg hefi vegið víg
eitt," segir Hrappur.
"Hvert víg er það,"
segir Kolbeinn, "eða hverjir eru til eftirmáls?"
Hrappur svarar: "Eg hefi
vegið Örlyg Ölvisson Hróðgeirssonar hins hvíta en til eftirmáls eru
Vopnfirðingar."
"Þess get eg að sá hafi
verr er þig flytur," segir Kolbeinn.
Hrappur mælti: "Vinur er
eg vinar míns en geld eg það er illa er til mín gert enda skortir mig eigi fé
til að leggja fyrir farið."
Síðan tók Kolbeinn við
Hrappi.
Litlu síðar gaf byr og sigla
þeir í haf. Hrapp þraut vistir í hafi. Settist hann þá að með þeim er næstir
voru. Þeir spruttu upp með illyrðum og svo kom að þeir ráðast á og hefir
Hrappur þá þegar undir tvo menn. Þá var sagt Kolbeini og bauð hann Hrappi í
mötuneyti sitt og hann þá það.
Þeir koma af hafi og leggja
utan við Agðanes. Þá spyr Kolbeinn Hrapp: "Hvar er fé það er þú bauðst í
leigu undir þig?"
"Það er út á
Íslandi," segir Hrappur.
Kolbeinn mælti: "Vera
munt þú fleirum prettóttur en mér en þó vil eg þér nú upp gefa alla
leiguna."
Hrappur bað hann hafa þökk
fyrir "eða hvað leggur þú nú til ráðs með mér?"
"Það fyrst," segir
Kolbeinn, "að þú far sem bráðast frá skipi því að allir Austmenn munu illa
túlka fyrir þér en þó ræð eg þér það annað heilræði að þú svík aldrei
lánardrottinn þinn."
Síðan gekk Hrappur á land upp
með vopnum sínum og hafði öxi eina mikla í hendi, vafinskeftu. Hann fer þar til
er hann kemur til Guðbrands í Dala. Hann var hinn mesti vin Hákonar jarls. Þeir
áttu hof báðir saman og var því aldrei upp lokið nema þá er jarl kom þangað.
Það var annað mest hof í Noregi en annað á Hlöðum. Þrándur hét sonur Guðbrands
en Guðrún dóttir. Hrappur gekk fyrir Guðbrand og kvaddi hann vel. Guðbrandur
spyr hvað manna hann væri. Hrappur sagði til nafns síns og það með að hann væri
utan af Íslandi. Síðan biður hann Guðbrand að hann taki við honum.
Guðbrandur mælti: "Ekki
líst mér svo á þig sem þú munir gæfumaður vera."
"Mjög þykir mér og logið
frá þér," segir Hrappur, "er það var sagt að þú tækir við öllum þeim
er þig bæðu og engi maður væri jafnágætur sem þú. Mun eg því í móti mæla ef þú
tekur eigi við mér."
Guðbrandur mælti: "Hér
munt þú vera hljóta."
"Hvar vísar þú mér til
sess?" segir Hrappur.
"Á hinn óæðra
bekk," segir Guðbrandur, "gegnt öndvegi mínu."
Hrappur fór í sæti sitt. Hann
kunni frá mörgu að segja. Var það fyrst að Guðbrandi þótti gaman að og mörgum
öðrum en þó kom svo að mörgum þótti ofkerski.
Og þar kom að hann slóst á
tal við Guðrúnu dóttur Guðbrands svo að það töluðu menn að hann mundi fífla
hana. En er Guðbrandur varð þess var taldi hann á hana mjög er hún átti tal við
Hrapp og bað hana að varast að mæla nokkuð við hann svo að eigi heyrðu allir
menn. Hún hét góðu um fyrst en þó dró til vanda um tal þeirra. Þá setti
Guðbrandur til Ásvarð verkstjóra sinn að ganga með henni hvert er hún færi.
Einu hverju sinni var það að
hún beiddist að fara á hnotskóg að skemmta sér og fylgdi Ásvarður henni.
Hrappur leitar eftir þeim og finnur þau á hnotskóginum. Hann tók í hönd Guðrúnu
og leiddi hana eina saman. Síðan fór Ásvarður að leita hennar og fann þau í
runni einum liggja bæði saman. Hann hleypur að með öxi reidda og hjó til fótar
Hrapps en Hrappur brást við fast og missti Ásvarður hans. Hrappur spratt á
fætur sem skjótast og þreif öxi sína. Síðan vildi Ásvarður undan snúast.
Hrappur höggur í sundur í honum hrygginn.
Þá mælti Guðrún: "Nú
hefir þú unnið er þú munt eigi með föður mínum lengur vera. En þó er það sumt
er honum mun enn verr þykja því að eg fer með barni."
Hrappur svarar: "Eigi
skal hann þetta af öðrum spyrja og skal eg fara heim og segja honum
hvorttveggja."
"Þá munt þú eigi með
fjörvi í braut komast," segir hún.
"Á það skal hætta,"
segir hann.
Eftir það fylgir hann henni
til kvenna annarra en hann fór heim.
Guðbrandur sat í öndvegi og
var fátt manna í stofunni. Hrappur gekk fyrir hann og bar hátt öxina.
Guðbrandur spurði: "Hví
er blóðug öx þín?"
"Eg gerði að bakverk
Ásvarðar verkstjóra þíns," segir Hrappur.
"Það mun eigi af
góðu," segir Guðbrandur. "Þú munt hafa vegið hann."
"Svo er víst,"
segir Hrappur.
"Hvað var til
saka?" segir Guðbrandur.
"Lítið mundi yður
þykja," segir Hrappur. "Hann vildi höggva af mér fótinn."
"Hvað hafðir þú til gert
áður?" segir Guðbrandur.
"Það er hann átti enga
sök á," segir Hrappur.
"Þó mátt þú segja hvað
það var," segir Guðbrandur.
Hrappur mælti: "Ef þú
vilt það vita þá lá eg hjá Guðrúnu dóttur þinni og þótti honum það illa."
Guðbrandur mælti:
"Standi menn upp og taki hann og skal hann drepa."
"Alllítt lætur þú mig
njóta mágsemdar," segir Hrappur, "en eigi hefir þú það mannval að
þetta muni skjótlega gera."
Þeir stóðu upp en hann hopaði
út undan. Þeir hlaupa eftir en hann kemst á skóg undan og höfðu þeir hans ekki.
Guðbrandur safnar liði og lét kanna skóginn og finna þeir hann eigi því að
skógurinn var mikill og þröngur.
Hrappur fer um skóginn þar
til er hann kom í rjóður nokkurt. Þar fann hann húsabæ og mann úti og klauf
skíð. Hann spurði þenna mann að nafni og nefndist hann Tófi. Tófi spurði að
hans nafni og nefndist Hrappur sem hann hét. Hrappur spyr hví bóndi byggi svo
fjarri öðrum mönnum.
"Því," sagði hann,
"að eg þykist hér lítt þurfa að amast við aðra menn."
"Við förum kynlega með
okkur um málin," segir Hrappur, "og mun eg fyrri segja þér hver eg
er. Eg hefi verið með Guðbrandi í Dölum og stökk eg þaðan fyrir það er eg drap
verkstjóra hans. En eg veit að við erum báðir illmenni því að þú mundir ekki
hér kominn frá öðrum mönnum nema þú værir nokkurs manns útlagi. Og geri eg þér
tvo kosti að eg mun segja til þín eða við njótum báðir jafnt þess er hér
er."
Bóndi mælti: "Þetta er
jafnt sem þú segir. Eg nam konu þessa er hér er hjá mér og hefir margur maður
eftir mér leitað."
Síðan leiddi hann Hrapp inn
með sér. Þar voru hús lítil og vel ger. Bóndi sagði húsfreyju sinni að hann
hafði Hrapp ráðið með sér.
"Flestir munu af manni
þessum illt hljóta," segir hún, "en þó munt þú ráða vilja."
Síðan var Hrappur þar. Hann
var förull mjög og var aldrei heima. Hann fær náð fundi Guðrúnar jafnan. Þeir
sátu um hann feðgar, Þrándur og Guðbrandur, og varð það aldrei að þeir fengju
færi á honum. Og fór svo fram öll þau misseri.
Guðbrandur lét segja Hákoni
jarli hver vandræði hann hafði af Hrappi. Jarl lét dæma Hrapp útlaga og lagði
fé til höfuðs honum en hét þá að fara sjálfur að leita eftir honum en það fórst
þó fyrir og þótti jarli þeim sjálfrátt að taka hann er hann fór svo óvarlega.
88. kafli
Þetta sumar hið sama komu
þeir Njálssynir til Noregs af Orkneyjum og voru þar í kaupstefnu og biðu þar
Kára Sölmundarsonar sem þeir höfðu við mælst. Þráinn Sigfússon bjó þá skip sitt
til Íslands og var nú mjög búinn.
Þá fór Hákon jarl á veislu
til Guðbrands. Um nóttina fór Víga-Hrappur til goðahúss þeirra jarls og
Guðbrands. Hann gekk inn í húsið. Hann sá Þorgerði hölgabrúði sitja og var hún
svo mikil sem maður roskinn. Hún hafði mikinn gullhring á hendi og fald á
höfði. Hann sviptir faldinum hennar og tekur af henni gullhringinn. Þá sér hann
kerru Þórs og tekur af honum annan gullhring. Hann tók hinn þriðja af Irpu og
dró þau öll út og tók af þeim allan búnaðinn. Síðan lagði hann eld í goðahúsið
og brenndi upp. Eftir það gengur
hann braut. Tók þá að morgna. Hann gengur um akurland nokkurt. Þar spruttu
upp sex menn með vopnum og sækja þegar að honum en hann verst vel. Verða þær
málalyktir að hann vegur þrjá menn en særir Þránd til ólífis en eltir tvo til
skógar svo að þeir báru enga njósn jarli.
Hann gekk þá að Þrándi og
mælti: "Kosti á eg nú að vega þig og vil eg það eigi. Skal eg meira virða
mágsemd við þig en þér virðið við mig."
Hrappur ætlar nú að snúa
aftur á skóginn. Sér hann nú að menn eru komnir meðal skógarins og hans.
Treystist hann þá eigi þangað á að leita. Leggst hann þá niður í runna nokkura
og liggur þar um stund.
Þeir Hákon jarl og Guðbrandur
gengu þenna morgun snemma til goðahússins og fundu það brunnið upp en úti þrjú
goðin og úr öllum skrúðanum.
Þá tók Guðbrandur til orða:
"Mikill máttur er gefinn goðum vorum er þau hafa gengið sjálf úr
eldinum."
"Eigi munu goðin þessu
valda," segir jarl. "Maður mun brennt hafa hofið en borið út goðin.
En goð hefna eigi alls þegar. Mun sá maður braut rekinn úr Valhöllu og þar
aldrei koma er þetta hefir gert."
Í því bili hljópu þangað menn
jarls fjórir og sögðu þeim ill tíðindi, kváðust fundið hafa á akrinum þrjá menn
vegna en særðan Þránd til ólífis.
"Hver mun slíku
valda?" segir jarl.
"Víga-Hrappur,"
sögðu þeir.
"Þá mun hann hafa brennt
goðahúsið," segir jarl.
Þeim þótti hann víst til þess
líklegur.
"Hvar mun hann nú
vera?" sagði jarl.
Þeir sögðu að Þrándur segði
að hann hefði lagst niður í runna nokkura.
Jarl fer þangað að leita og
var Hrappur þá allur í brautu. Skipaði jarl þá til að leita hans og fundu þeir
hann eigi. Jarl var sjálfur í leitinni og bað hann þá hvílast fyrst.
Jarl gekk þá einn saman braut
frá öðrum mönnum og bað engan mann með sér ganga og dvaldist um stund. Hann
féll á knébeð og hélt fyrir augu sér. Síðan gekk hann aftur til þeirra.
Hann mælti: "Gangið þér
með mér."
Þeir gengu með honum. Hann gekk þvers af
leiðinni þeirri er þeir höfðu áður farið og komu að dalverpi einu. Þar spratt
Hrappur upp fyrir þeim og hafði hann þar fólgið sig áður. Jarl eggjar menn að
hlaupa eftir honum en Hrappur var svo fóthvatur að þeir komust hvergi í nánd
honum.
Hrappur stefndi til Hlaða.
Þar voru þeir þá búnir til hafs hvorirtveggju, Þráinn Sigfússon og Njálssynir.
Hrappur hleypur þar að sem þeir eru fyrir Njálssynir.
Hann mælti: "Bjargið mér
góðir drengir því að jarl vill drepa mig."
Helgi leit við honum og
mælti: "Ógæfusamlega líst mér á þig og mun sá betur hafa er eigi tekur við
þér."
"Það mundi eg
vilja," segir Hrappur, "að þið hlytuð af mér mest illt."
"Menn erum við til
þess," segir Helgi, "að launa þér það þá er stundir líða."
Hrappur sneri þá til móts við
Þráin Sigfússon og bað hann ásjá.
"Hvað er þér á
höndum?" segir Þráinn.
Hrappur mælti: "Brennt
hefi eg goðahús fyrir jarli og drepið menn nokkura og mun hann hér kona brátt
því að hann er sjálfur í eftirleitinni."
"Varla samir mér
það," segir Þráinn, "svo mikið gott sem jarl hefir mér gert."
Þá sýndi Hrappur Þráni
gripina þá er hann hafði borið úr goðahúsinu og bauð að gefa honum féið. Þráinn
sagði að hann mundi eigi þiggja nema annað fé kæmi í mót.
Hrappur mælti: "Hér mun
eg stað nema og skal mig hér drepa fyrir augum þér og munt þú þá bíða af hvers
manns ámæli."
Þá sjá þeir ferð jarls og
manna hans. Þá tók Þráinn við Hrappi en lét skjóta báti og fluttist út á
skipið.
Þráinn mælti: "Nú er
þetta fylgsni helst að brjóta botn úr tunnum tveim og skalt þú þar fara
í."
Svo var gert að hann fór í
tunnurnar og voru bundnar saman síðan og látnar fyrir borð.
Þá kemur jarl með liði sínu
til Njálssona og spurði ef Hrappur hefði komið þar. Þeir sögðu að hann kom.
Jarl spurði hvert hann færi þaðan. Þeir kváðust eigi reiður hafa á hent.
Jarl mælti: "Sá skyldi
mikla sæmd af mér hafa er mér segði til Hrapps."
Grímur mælti hljótt við
Helga: "Fyrir hví skulum við eigi segja? Eg veit eigi nema Þráinn launi
okkur engu góðu."
"Eigi skulum við segja
að heldur," segir Helgi, "þar er líf hans liggur við."
Grímur mælti: "Vera kann
að jarl snúi á okkur hefndinni því að hann er svo reiður að niður mun nokkur
verða að koma."
"Ekki munum við að því
fara," segir Helgi, "en þó skulum við nú í braut leggja skipinu og í
haf þegar er gefur."
"Skulum við nú ekki bíða
Kára?" segir Grímur.
"Ekki mun eg um það
hirða nú," segir Helgi.
Þeir leggja út undir eyna og
bíða þar byrjar.
Jarl gekk að skipamönnum og
leitaði við alla þá en allir duldu að né eitt vissu til Hrapps.
Þá mælti jarl: "Nú munum
vér fara að finna Þráin félaga minn og mun hann selja fram manninn ef hann veit
nokkuð til."
Eftir það tóku þeir langskip
eitt og fóru út til kaupskipsins. Þráinn kennir ferð jarls og stendur upp og
fagnar honum blíðlega.
Jarl tók því vel og mælti
svo: "Manns þess leitum vér er heitir Hrappur og er íslenskur. Hann hefir
gert oss hvetvetna illt. Viljum vér nú þess biðja yður að þér seljið hann fram
eða segið til hans."
Þráinn mælti: "Vissuð
þér að eg drap útlaga yðvarn herra og hætti þar til lífi mínu og þá eg fyrir
það af yður stórsæmdir."
"Meiri sæmdir skalt þú
nú hafa," segir jarl.
Þráinn hugsaði fyrir sér og
þóttist eigi vita hvað jarl mundi mest meta. Þrætir nú þó að Hrappur sé þar og
bað jarl leita. Jarl hafði lítið við það og gekk á land og í braut frá öðrum
mönnum og var þá reiður mjög svo að engi maður þorði við hann að mæla.
Jarl mælti: "Vísið mér
til Njálssona og skal eg nauðga þeim til að þeir segi mér hið sanna."
Þá var honum sagt að þeir
höfðu út látið.
"Ekki má það þá,"
segir jarl, "en vatnkeröld tvö voru þar við skipið Þráins og má þar maður
vel hafa fólgist í. Og ef Þráinn hefir fólgið hann þá mun hann þar í hafa verið
og munum vér nú fara í annað sinn að finna Þráin."
Þráinn sér þetta, að jarl
ætlar enn út, og mælti: "Svo reiður sem jarl var næstum þá mun hann nú
vera hálfu reiðari og liggur nú við líf allra manna þeirra er á skipinu eru ef
nokkur segir til Hrapps."
Þeir hétu allir að leyna því
að hver var um sig mjög hræddur. Þeir tóku sekka nokkura úr búlkanum en létu
Hrapp koma þar í staðinn. Fóru nú aðrir sekkar á hann ofan þeir er léttir voru.
Nú kemur jarl er þeir höfðu um Hrapp búið. Þráinn kvaddi vel jarl. Jarl tók
kveðju hans og ekki skjótt. Sáu þeir að jarl var allmjög reiður.
Jarl mælti til Þráins:
"Sel þú fram Hrapp því að eg veit víst að þú hefir fólgið hann."
"Hvar mun eg hafa fólgið
hann herra?" segir Þráinn.
"Þér mun það
kunnigast," segir jarl, "en ef eg skal geta til þá ætla eg að þú
hafir áðan fólgið hann í vatnkeröldum þeim er hér voru við skipið."
"Eigi vildi eg
herra," segir Þráinn, "að þér vænduð mig lygi heldur vildi eg að þér
leituðuð um skipið."
Þá fór jarl upp á skipið og
leitaði og fann eigi.
Þráinn mælti: "Berið þér
mig nú undan herra?"
"Fjarri fer það,"
segir jarl, "en eigi veit eg hví vér finnum hann eigi. Eg þykist sjá allt
í gegnum þá er eg kem á land en þá sé eg ekki til er eg kem hér."
Lætur hann þá róa til lands
með sig. Hann var svo reiður að ekki mátti við hann mæla. Sveinn son hans var
þar með honum.
Hann mælti: "Undarlegt
skaplyndi er það að láta óverða menn gjalda reiði sinnar."
Jarl gekk þá enn einn frá
öðrum mönnum. Síðan gekk hann þegar aftur til þeirra og mælti. Róum vér enn út
til þeirra."
Þeir gerðu svo.
"Hvar mun hann fólginn
hafa verið?" segir Sveinn.
Jarl svaraði: "Eigi mun
það nú skipta því að hann mun nú í brautu vera þaðan. Sekkar tveir lágu þar hjá
búlkanum og mun Hrappur þar hafa komið í staðinn þeirra í búlkann."
Þráinn tók til orða: "Fram
hrinda þeir enn skipinu og munu enn ætla út hingað til vor. Skulum vér nú taka
hann úr búlkanum og koma öðru í staðinn en þó skulu sekkarnir lausir."
Þeir gerði svo. Þá mælti
Þráinn: "Látum vér Hrapp nú í seglið, það er heflað upp við rána."
Þeir gera svo. Jarl kemur nú
til þeirra.
Var hann þá allreiður og
mælti: Vilt þú nú selja fram manninn Þráinn? Og er nú verra en fyrr."
Þráinn svarar: "Fyrir
löngu seldi eg hann fram ef hann væri í minni varðveislu eða hvar mun hann
verið hafa?"
"Í búlkanum," segir
jarl.
"Hví leituðuð þér hans
eigi þar þá?" segir Þráinn.
"Eigi kom oss það þá í
hug," segir jarl.
Síðan leituðu þeir hans um
allt skipið og fundu hann eigi.
Þá mælti Þráinn: "Viljið
þér mig nú undan bera herra?"
"Víst eigi," segir
jarl, "því að eg veit að þú hefir fólgið manninn þó að eg finni hann eigi.
En heldur vil eg að þú níðist á mér en eg á þér."
Fór jarl þá til lands.
"Nú þykist eg sjá,"
sagði jarl, "hvar Þráinn hefir fólgið Hrapp."
"Hvar?" sagði
Sveinn son hans.
"Í seglinu," segir
jarl, "er var heflað upp við rána."
Þá rann á byr og sigldi
Þráinn út úr firðinum til hafs. Hann mælti þá þetta er lengi hefir uppi verið
haft síðan:
Látum geisa Gamminn,
gerrat Þráinn vægja.
En er jarl spurði orð Þráins þá
mælti hann: "Eigi ber hér til óviska mín heldur það samband þeirra er þeim
dregur báðum til bana."
Þráinn var skamma stund í
hafi og kom til Íslands og fór heim til bús síns. Hrappur fór með Þráni og var
með honum þau misseri en um vorið eftir fékk Þráinn honum bú á Hrappstöðum og
bjó Hrappur þar. Hann var þó lengstum að Grjótá og þótti þar öllu spilla. Það
mæltu sumir menn að vingott væri með þeim Hallgerði og hann fífldi hana en
sumir mæltu því í móti.
Þráinn fékk skipið Merði
órækju frænda sínum. Sá Mörður vó Odd Halldórsson austur í Gautavík í
Berufirði.
Allir frændur Þráins héldu
hann nú fyrir höfðingja.
89. kafli
Nú er þar til máls að taka er
Hákon jarl missti Þráins. Hann mælti þá við Svein son sinn: "Tökum
langskip fjögur og förum að Njálssonum og drepum þá því að þeir munu vitað hafa
með Þráni."
"Það er eigi gott
ráð," segir Sveinn, "að snúa sökum á óvalda menn en láta þann undan
setja er sökina ber á baki."
"Eg skal þessu
ráða," segir jarl.
Halda þeir nú eftir
Njálssonum og leita þeirra og finna þá undir eyjunni.
Grímur sá fyrst skip jarlsins
og mælti til Helga: "Herskip fara hér og kenni eg að hér fer jarl og mun
hann oss engan frið bjóða."
"Það er mælt,"
segir Helgi, "að hver sé vaskur er sig ver við hvern sem hann á um. Skulum
vér og verja oss."
Allir báðu hann fyrir sjá.
Tóku þeir þá vopn sín.
Jarl kemur nú að og kallaði á
þá og bað þá upp gefast. Helgi svarar að þeir mundu verjast meðan þeir mættu.
Jarl bauð öllum grið, þeim er eigi vildu verja hann, en svo var Helgi vinsæll
að allir vildu heldur deyja með honum. Jarl sækir nú að og hans menn en hinir
verjast vel og voru þeir Njálssynir þar jafnan sem mest var raunin. Jarl bauð þeim oft griðin. Þeir
svöruðu jafnan hinu sama og kváðust aldrei upp skyldu gefast. Þá sótti að þeim
fast Áslákur úr Langeyju, lendur maður jarls, og komst upp á skipið þremur
sinnum.
Þá mælti Grímur: "Þú
sækir fast að og væri vel að þú hefðir erindi."
Grímur þreif þá upp spjót og
skaut undir kverk Ásláki og hafði hann þegar bana. Litlu síðar vó Helgi Egil merkismann
jarls. Þá sótti að Sveinn Hákonarson og lét bera að þeim skjöldu og urðu þeir
þá handteknir báðir Njálssynir.
Jarl vildi þegar láta drepa
þá en Sveinn kvað það eigi skyldu og sagði að væri nótt.
Þá mælti jarl: "Drepið
þá á morgun en bindið þá rammlega í nótt."
"Svo mun vera
verða," segir Sveinn, "en eigi hefi eg vaskari menn fyrir fundið en
þessa og er það hinn mesti mannskaði að taka þá af lífi."
Jarl mælti: "Þeir hafa
drepið tvo hina vöskustu vora menn og skulum vér þeirra svo hefna að þessa skal
drepa."
"Menn voru þeir að
vaskari," segir Sveinn, "en þó mun þetta gera verða sem þú
vilt."
Voru þeir þá bundnir og
fjötraðir.
Eftir það sofnaði jarl og
hans menn. En er þeir voru sofnaðir mælti Grímur til Helga: "Braut vildi
eg komast ef eg mætti."
"Leitum í nokkurra
bragða þá," segir Helgi.
Grímur segir að þar nær honum
liggur öx og horfir upp eggin. Grímur skreið þangað til og fær skorið af sér
bogastrenginn við öxinni en þó fékk hann sár mikil í höndunum. Þá leysti hann
Helga. Eftir það skreiddust þeir fyrir borð og komust á land svo að þeir jarl
urðu ekki varir við. Þeir brutu af sér fjötrana og gengu annan veg á eyna. Tók
þá að morgna. Þeir fundu þar skip og kenndu að þar var kominn Kári Sölmundarson.
Fóru þeir þegar á fund hans og sögðu honum hrakning sína og sýndu honum sár sín
og kváðu þá mundi jarl í svefni.
Kári mælti: "Illa verður
slíkt er þeir skulu taka hrakningar fyrir vonda menn er saklausir eru eða hvað
er nú gert næst skapi ykkru?"
"Fara að jarli,"
sögðu þeir, "og drepa hann."
"Ekki mun oss þess auðið
verða." segir Kári, "en ekki skortir ykkur áhuga. En þó skulum vér
vita hvort hann er þar nú."
Síðan fóru þeir þangað og var
þá jarl í brautu.
Þá fór Kári inn til Hlaða á
fund jarls og færði honum skatta sína.
Jarl mælti: "Hefir þú
tekið Njálssonu til þín?"
"Svo er víst,"
segir Kári.
"Vilt þú selja mér
þá?" segir jarl.
"Það vil eg eigi,"
sagði Kári.
"Vilt þú sverja þess að
þú vildir eigi að mér fara eftir?" segir jarl.
Þá mælti Eiríkur jarlsson:
"Ekki er slíks að leita. Hefir
Kári jafnan verið vinur vor. Og skyldi eigi svo farið hafa ef eg hefði
við verið. Njálssynir skyldu öllu hafa haldið heilu en hinir skyldu hafa haft
refsing er til höfðu gert. Þætti mér nú sannlegra að gefa Njálssonum sæmilegar
gjafar fyrir hrakningar þær er þeir hafa haft og sárafar."
Jarl mælti: "Svo mundi
vera víst en eigi veit eg hvort þeir munu taka vilja sættir."
Þá mælti jarl við Kára að
hann skyldi leita um sættir við þá Njálssonu. Síðan ræddi Kári við Helga hvort
hann vildi taka sæmdir af jarli.
Helgi svaraði: "Taka vil
eg af syni hans, Eiríki, en eg vil ekki eiga um við jarl."
Þá segir Kári Eiríki svör
þeirra bræðra.
"Svo skal þá vera,"
segir Eiríkur, "að þeir skulu af mér taka sæmdina ef þeim þykir það betra
og segið þeim það að eg býð þeim til mín og skal faðir minn ekki mein gera
þeim."
Þetta þágu þeir og fóru til
Eiríks og voru með honum þar til er Kári var búinn vestur að sigla. Þá gerði
Eiríkur Kára veislu og gaf honum góðar gjafar og svo Njálssonum.
Síðan fóru þeir Kári vestur
um haf á fund Sigurðar jarls og tók hann við þeim allvel og voru með jarli um
veturinn.
En um vorið bað Kári
Njálssonu að þeir færu í hernað með honum en Grímur kveðst það mundu gera ef
hann vildi þá fara með þeim til Íslands. Kári hét því. Fóru þeir þá með honum í
hernað. Þeir herjuðu suður um Öngulseyjar og allar Suðureyjar. Þá héldu þeir
til Saltíris og gengu þar upp og börðust við landsmenn og fengu þar fé mikið og
fóru til skipa. Þaðan fóru þeir suður til Bretlands og herjuðu þar. Þá héldu
þeir til Manar. Þar mættu þeir Guðröði konungi úr Mön og börðust þeir við hann
og höfðu sigur og drápu Dungal son konungs. Þar tóku þeir fé mikið. Þaðan héldu
þeir norður til Kolu og fundu þar Gilla jarl og tók hann við þeim vel og
dvöldust þeir með honum nokkura hríð. Jarl fór með þeim til Orkneyja á fund
Sigurðar jarls. En um vorið gifti Sigurður jarl Gilla jarli Nereiði systur
sína. Fór hann þá í Suðureyjar.
90. kafli
Þetta sumar bjuggust þeir
Kári og Njálssynir til Íslands. Og þá er þeir voru albúnir gengu þeir á fund
jarls. Hann gaf þeim góðar gjafar og skildu þeir með mikilli vináttu.
Láta þeir nú í haf. Þeir hafa
útivist skamma og gaf þeim vel byri og komu við Eyrar. Þeir fengu sér hesta og
ríða frá skipi og riðu til Bergþórshvols. En er þeir komu heim urðu allir menn
þeim fegnir. Þeir fluttu heim fé sitt og réðu skipi til hlunns.
Þar var Kári þann vetur með
Njáli.
En um vorið bað Kári Helgu
dóttur Njáls og fluttu þeir Grímur og Helgi með honum og lauk svo að hún var
föstnuð Kára og var ákveðið á brúðlaupsstefnu og var boðið hálfum mánuði fyrir
mitt sumar. Voru þau með Njáli þann vetur. En um vorið keypti Kári land að
Dyrhólmum austur í Mýrdal og gerði þar bú. Þau fengu þar fyrir ráðamann og
ráðakonu en þau voru með Njáli jafnan.
91. kafli
Hrappur átti bú á Hrappstöðum
en þó var hann jafnan að Grjótá og þótti hann þar öllu spilla. Þráinn var vel
til hans.
Einu hverju sinni var það þá
er Ketill úr Mörk var að Bergþórshvoli, þá sögðu Njálssynir frá hrakningum
sínum og kváðust mikið eiga að heimta að Þráni nær sem þeir töluðu til. Njáll
sagði að það væri best að Ketill talaði til við Þráin bróður sinn.
Hann hét því. Gáfu þeir Katli
tómstund til að tala við Þráin.
Litlu síðar innti Ketill til
við Þráin. Njálssynir fréttu Ketil en hann kveðst fátt mundu frá herma orðum
þeirra "en það fannst á að Þráni þótti eg mikils virða mágsemd við
yður."
Síðan hættu þeir talinu og
þóttust þeir sjá að erfiðlega horfði og spurðu föður sinn ráðs hversu með
skyldi fara, kváðust eigi una að svo búið stæði.
Njáll svaraði: "Eigi er
slíkt svo óvant. Það mun þykja um sakleysi ef þeir eru drepnir og er það mitt
ráð að skjóta að sem flestum um að tala við þá, að sem flestum verði
heyrinkunnigt ef þeir svara illa og skal Kári um tala því að hann er
skapdeildarmaður. Mun þá vaxa óþokki með yður því að þeir munu hlaða illyrðum
saman er menn eiga hlut að. Þeir eru menn heimskir. Það kann og vera að mælt sé
að synir mínir séu seinir til aðgerða og skuluð þér það þola um stundarsakir
því að allt orkar tvímælis þá er gert er. En svo fremi skuluð þér orði á koma
er þér ætlið nokkuð að að gera ef yðvar er illa leitað. En ef þér hefðuð við
mig um ráðið í fyrstu þá mundi aldrei orði á hafa verið komið og mundi yður þá
engi svívirðing að verða. En nú hafið þér af hina mestu raun og mun það þó svo
aukanda fara um yðra svívirðing að þér munuð ekki fá að gert fyrr en þér leggið
vandræði á yður og vegið með vopnum og er því langa nót til að draga."
Eftir það hættu þeir talinu
og varð hér margs manna umræða á.
Einu hverju sinni var það að
þeir bræður töluðu til að Kári mundi fara til Grjótár. Kári kveðst önnur ferð
þykja betri en þó læst hann fara mundu við það er þetta voru ráð Njáls. Síðan
fer Kári til fundar við Þráin. Tala þeir þá um málið og þykir þeim eigi einn
veg báðum. Kári kemur heim og spyrja Njálssynir hversu orð fóru með þeim Þráni.
Kári kvaðst ekki herma mundu
orð þeirra "því að mér er von að mælt sé slíkt svo að þér heyrið."
Þráinn hafði sextán karla
víga á bæ sínum og riðu átta með honum hvert er hann fór. Þráinn var
skrautmenni mikið. Hann reið jafnan í blárri kápu og hafði gylltan hjálm og
spjót í hendi jarlsnaut og fagran skjöld og gyrður sverði. Með honum var jafnan
í för Gunnar Lambason og Lambi Sigurðarson og Grani son Gunnars frá Hlíðarenda.
Víga-Hrappur gekk honum þó næst jafnan. Loðinn hét og heimamaður hans. Hann var
og í ferðum með Þráni. Tjörvi hét bróðir Loðins er enn var í ferðum með Þráni.
Þeir lögðu verst til þeirra Njálssona Víga-Hrappur og Grani Gunnarsson og ollu
því mest er þeim var engi sæmd ger eða boðin.
Synir Njáls ræddu nú um við
Kára að hann mundi fara með þeim til Grjótár. Og það gerði hann og kvað það vel
að þeir heyrðu svör Þráins. Bjuggust þeir þá fjórir Njálssynir og Kári hinn
fimmti. Þeir fara til Grjótár. Þar var anddyri breitt og máttu margir menn
standa jafnfram.
Kona ein var úti og sá ferð
þeirra og segir Þráni. Hann bað menn ganga í anddyrið og taka vopn sín. Þeir
gerðu svo. Stóð Þráinn í miðjum dyrum en þeir stóðu til sinnar handar hvor
Víga-Hrappur og Grani Gunnarsson, þar næst Gunnar Lambason, þá Loðinn og
Tjörvi, þá Lambi Sigurðarson, þá hver að hendi því að karlar voru allir heima.
Þeir Skarphéðinn ganga að
neðan og gekk hann fyrstur, þá Kári, þá Höskuldur, þá Grímur, þá Helgi. En er
þeir koma að dyrunum féllust þeim allar kveðjur er fyrir voru.
Þá mælti Skarphéðinn:
"Allir séum vér velkomnir."
Hallgerður stóð í anddyrinu
og hafði talað hljótt við Hrapp. Hún mælti: "Það mun engi mæla sá er fyrir
er að þér séuð velkomnir."
Skarphéðinn mælti: "Ekki
munu mega orð þín því að þú ert annaðhvort hornkerling eða púta."
"Goldin skulu þér þessi
orð áður þú ferð heim," segir Hallgerður.
Helgi mælti: "Þig er eg
kominn að finna Þráinn ef þú vilt gera mér sæmd nokkura fyrir hrakningar þær er
eg hlaut í Noregi fyrir þínar sakir."
Þráinn mælti: "Aldrei
vissi eg að þið bræður munduð gera drengskap ykkarn til fjár eða hversu lengi
skal fjárbón sjá yfir standa?"
"Það munu margir
mæla," segir Helgi, "að þú ættir að bjóða sæmdina þar sem líf þitt lá
við."
Þá mælti Hrappur: "Þar
gerði nú gæfumuninn er sá hlaut skellinn er skyldi og dró yður undir
hrakningina en oss undan."
"Lítil var það
gæfa," segir Helgi "að bregða trúnaði sínum við jarl en taka þig
við."
"Þykist þú eigi að mér
eiga bótina?" segir Hrappur. "Eg mun bæta þér því sem mér þykir
maklegt."
"Þau ein skipti munum
við við eigast," segir Helgi, "að þér mun ekki betur gegna."
Skarphéðinn mælti:
"Skiptið ekki orðum við Hrapp en gjaldið honum rauðan belg fyrir
grán."
Hrappur mælti: "Þegi þú
Skarphéðinn, ekki skal eg spara að bera mína öxi að höfði þér."
"Reynt mun slíkt
verða," segir Skarphéðinn, "hver grjóti hleður að höfði öðrum."
"Farið heim
taðskegglingar," segir Hallgerður, "og munum vér yður svo jafnan
kalla héðan í frá en föður yðvarn karl hinn skegglausa."
Þeir fóru eigi fyrr heim en
allir urðu sekir þessa orða, þeir er fyrir voru, nema Þráinn. Hann þekti menn
af orðum þessum.
Þeir fóru í braut Njálssynir
og fóru þar til er þeir komu heim. Þeir sögðu föður sínum.
"Nefnduð þér nokkura
votta að orðunum?" segir Njáll.
"Enga," sagði
Skarphéðinn, "vér ætlum ekki að sækja þetta nema á vopnaþingi."
"Það mun engi nú
ætla," segir Bergþóra, "að þér þorið handa að hefja."
"Haf þú lítinn við
húsfreyja," segir Kári, "að eggja sonu þína því að þeir munu þó ærið
framgjarnir."
Eftir það tala þeir lengi
hljótt allir feðgar og Kári.
92. kafli
Nú verður umræða mikil um
deild þeirra og þóttust allir vita að eigi mundi svo gert sjatna.
Runólfur son Úlfs aurgoða
austur í Dal var vin Þráins mikill og hafði boðið Þráni heim og var ákveðið að
hann skyldi koma austur er þrjár vikur væru af vetri eða mánuður.
Þráinn bað til þessar ferðar
Hrapp með sér og Grana Gunnarsson, Gunnar Lambason, Lamba Sigurðarson og Loðin
og Tjörva. Þeir voru átta. Þær
skyldu og fara mæðgur Hallgerður og Þorgerður. Því lýsti og Þráinn að hann
ætlaði að vera í Mörk með Katli bróður sínum og kvað á hversu margar nætur hann
ætlaði heiman að vera. Þeir höfðu allir alvæpni. Riðu þeir austur yfir
Markarfljót og fundu þar konur snauðar. Þær báðu að þær skyldi reiða vestur
yfir fljótið. Þeir gerðu svo.
Þá riðu þeir í Dal og höfðu
þar góðar viðtökur. Þar var fyrir Ketill úr Mörk. Sátu þeir þar tvær nætur.
Runólfur og Ketill báðu Þráin að hann mundi semja við Njálssonu en hann lést
aldrei mundu fé gjalda og svaraði styggt og kveðst hvergi þykjast varbúinn við
Njálssonum hvar sem þeir fyndust.
"Vera má að svo
sé," segir Runólfur, "en eg hefi hina skilning að engi sé þeirra maki
síð er Gunnar að Hlíðarenda lést og er það líkara að hér dragi öðrum hvorum til
bana."
Þráinn kveðst ekki það mundu
hræðast.
Þá fór Þráinn upp í Mörk og
var þar tvær nætur. Síðan reið hann ofan í Dal og var hann hvartveggja út
leystur með sæmilegum gjöfum.
Markarfljót féll í meðal
höfuðísa og voru á smár spengur hér og hvar. Þráinn sagði að hann ætlaði heim
að ríða um kveldið. Runólfur mælti að hann skyldi eigi heim ríða, sagði það
varlegra vera að fara eigi sem hann hefði sagt.
Þráinn svarar: "Hræðsla
er það og vil eg það eigi."
Göngukonur þær er þeir Þráinn
reiddu yfir fljótið komu til Bergþórshvols og spurði Bergþóra hvaðan þær væru
en þær sögðust vera austan undan Eyjafjöllum.
"Hver reiddi yður yfir
Markarfljót?" segir Bergþóra.
"Þeir er mestir oflátar
voru," segja þær.
"Hverjir voru
þeir?" segir Bergþóra.
"Þráinn Sigfússon,"
sögðu þær, "og fylgdarmenn hans en það þótti oss að er þeir voru svo
fjölorðir og illorðir hingað til bónda þíns og sona hans."
Bergþóra mælti: "Margir
kjósa eigi orð á sig."
Síðan fóru þær í braut og gaf
Bergþóra þeim gýligjafar og spurði þær hvenær Þráinn mundi heim koma. Þær sögðu
að hann mundi vera heiman fjórar nætur eða fimm. Síðan sagði Bergþóra sonum
sínum og Kára mági sínum og töluðu þau lengi leynilega.
En þann morgun hinn sama er
þeir Þráinn riðu austan þá vaknaði Njáll snemma og heyrði að öx Skarphéðins kom
við þili. Stendur þá Njáll upp og gengur út. Hann sér að synir hans eru með
vopnum allir og svo Kári mágur hans. Skarphéðinn var fremstur. Hann var í blám
stakki og hafði törguskjöld og öxi sína reidda um öxl. Næst honum gekk Kári. Hann hafði
silkitreyju og hjálm gylltan, skjöld og var dreginn á leó. Næst honum gekk
Helgi. Hann hafði rauðan kyrtil og hjálm og rauðan skjöld og markaður á
hjörtur. Allir voru þeir í litklæðum.
Njáll kallar á Skarphéðinn:
"Hvert skal fara frændi?"
"Í sauðaleit," sagði hann.
"Svo var og eitt sinn
fyrr," segir Njáll, "og veidduð þér þá menn."
Skarphéðinn hló að og mælti:
"Heyrið þér hvað hann karlinn segir faðir vor. Eigi er hann
grómlaus."
"Hvenær mæltir þú þetta
fyrr?" segir Kári.
"Þá vó eg Sigmund hinn
hvíta frænda Gunnars," segir Skarphéðinn.
"Fyrir hvað?" sagði
Kári.
"Hann hafði drepið Þórð
leysingjason fóstra vorn," segir Skarphéðinn.
Njáll gekk inn en þeir fóru
upp í Rauðaskriður og biðu þar. Máttu þeir þaðan sjá þegar hinir riðu austan
frá Dal. Sólskin var um daginn og heiðviðri.
Nú ríða þeir Þráinn ofan frá
Dal eftir eyrunum.
Lambi Sigurðarson mælti:
"Skildir blika við í Rauðaskriðum er sólin skín á og mun þar vera nokkurra
manna fyrirsát."
"Þá skulum vér snúa ofan
með fljótinu," segir Þráinn, "og munu þeir þá til móts við oss ef
þeir eiga við oss nokkur erindi."
Sneru þeir Þráinn þá ofan með
fljótinu.
Skarphéðinn mælti: "Nú
hafa þeir séð oss, því snúa þeir nú leiðinni og er oss nú engi annar til en
hlaupa ofan fyrir þá."
Kári mælti: "Margir munu
fyrir sitja og hafa eigi þann veg liðsmun sem vér. Eru þeir átta en vér
fimm."
Snúa þeir nú og ofan með
fljótinu og sjá yfir spöng niðri og ætla þar yfir.
Þeir Þráinn námu staðar upp
frá spönginni á ísinum.
Þráinn mælti: "Hvað munu
menn þessir vilja? Þeir eru fimm en
vér erum átta."
Lambi Sigurðarson mælti: Þess get eg að þó mundu
þeir til hætta þó að manni stæði fleira fyrir."
Þráinn fer af kápunni og
tekur af sér hjálminn.
Það varð Skarphéðni er þeir
hljópu ofan með fljótinu að stökk í sundur skóþvengur hans og dvaldist honum
eftir.
"Hví hvikast þér svo
Skarphéðinn?" kvað Grímur.
"Bind eg skó minn,"
segir Skarphéðinn.
"Förum vér fyrir,"
segir Kári, "svo líst mér á Skarphéðinn sem hann muni ekki seinni verða en
vér."
Snúa þeir nú ofan til
spangarinnar og fara mikinn. Skarphéðinn spratt upp þegar er hann hafði bundið skóinn
og hafði upp öxina Rimmugýgi. Hann hleypur að fram að fljótinu en fljótið var
svo djúpt að langt var um ófært. Mikið svell var hlaupið upp fyrir austan
fljótið og svo hált sem gler og stóðu þeir Þráinn á miðju svellinu. Skarphéðinn
hefur sig á loft og hleypur yfir fljótið meðal höfuðísa og stöðvar sig ekki og
rennir þegar af fram fótskriðu. Svellið var hált mjög og fór hann svo hart sem
fugl flygi. Þráinn ætlaði í því að setja á sig hjálminn. Skarphéðinn bar nú upp
að fyrr og höggur til Þráins með öxinni Rimmugýgi og kom í höfuðið og klauf
ofan í jaxlana svo að þeir féllu niður á ísinn. Þessi atburður varð með svo
skjótri svipan að engi kom höggi á hann. Hann renndi þegar frá ofan óðfluga.
Tjörvi renndi fyrir hann törgu og steðjaði hann yfir upp og stóðst þó og rennir
á enda svellsins. Þá koma þeir Kári að neðan í mót honum.
"Karlmannlega er að
farið," segir Kári.
"Eftir er enn yðvar
hluti," segir Skarphéðinn.
Snúa þeir þá upp að þeim.
Þeir Grímur og Helgi sjá hvar Hrappur var og sneru þegar að honum. Hrappur
höggur þegar til Gríms með öxinni. Helgi sér þetta og höggur á höndina Hrappi
svo að af tók en niður féll öxin.
Hrappur mælti: "Hér
hefir þú mikið nauðsynjaverk unnið því að þessi hönd hefir mörgum manni mein
gert og bana."
"Hér skal nú endir á
verða," segir Grímur og leggur spjóti í gegnum hann. Hrappur féll þá
dauður niður. Tjörvi snýr í móti Kára og skýtur að honum spjóti. Kári hljóp í
loft upp og flaug spjótið fyrir neðan fætur honum. Kári hleypur að honum og
höggur til hans með sverðinu og kom á brjóstið og gekk þegar á hol og hafði
hann þegar bana.
Skarphéðinn grípur þá báða
senn, Gunnar Lambason og Grana Gunnarsson, og mælti: "Tekið hefi eg hér
hvelpa tvo eða hvað skal við gera?"
"Kost átt þú,"
segir Helgi, "að drepa hvorntveggja ef þú vilt þá feiga."
"Eigi nenni eg,"
segir Skarphéðinn, "að hafa það saman að veita Högna en drepa bróður
hans."
"Koma mun þar einu
hverju sinni," segir Helgi, "að þú mundir vilja hafa drepið þá því að
þeir munu þér aldrei trúir verða og engi þeirra er nú eru hér."
"Ekki mun eg hræðast
þá," segir Skarphéðinn.
Síðan gáfu þeir grið Grana
Gunnarssyni og Gunnari Lambasyni og Lamba Sigurðarsyni og Loðni.
Eftir það sneru þeir heim og
spurði Njáll tíðinda. Þeir segja honum öll sem gerst.
Njáll mælti: "Mikil eru
tíðindi þessi og er það líkara að hér leiði af dauða eins sonar míns ef eigi
verður meira að."
Gunnar Lambason flutti lík
Þráins með sér til Grjótár og var hann þar heygður.
93. kafli
Ketill í Mörk átti Þorgerði
dóttur Njáls sem fyrr var sagt en var bróðir Þráins og þóttist hann við vant um
kominn. Hann reið til Njáls og spurði hvort hann vildi nokkuð bæta víg Þráins.
Njáll svaraði: "Bæta vil
eg svo að vel sé. Og vil eg að þú leitir þess við bræður þína þá er bauga eiga
að taka að þeir taki sættum."
Ketill kvaðst það vildu gera
gjarna. Var það þá ráð þeirra að Ketill skyldi fara og finna þá alla er gjöld
áttu að taka og koma á griðum. Síðan reið Ketill heim.
Ketill fer nú að finna bræður
sína og stefndi þeim öllum saman til Hlíðarenda. Tekur hann þar umræðu við þá
og var Högni með honum í allri umræðu og kom svo að menn voru til gerðar teknir
og lagður til fundur og voru ger manngjöld fyrir víg Þráins og tóku þeir allir
við bótum sem lög stóðu til. Síðan var mælt fyrir tryggðum og búið um sem
trúlegast. Greiddi Njáll fé allt af hendi vel og skörulega. Var þá kyrrt um
stund.
Einu hverju sinni reið Njáll
upp í Mörk og töluðu þeir Ketill dag allan. Reið Njáll heim um kveldið og vissi
engi maður hvað í ráðagerð hafði verið.
Litlu síðar fór Ketill til
Grjótár. Hann mælti til Þorgerðar: "Lengi hefi eg mikið unnt Þráni bróður
mínum. Mun eg enn það sýna því að eg vil bjóða til fósturs Höskuldi syni
Þráins."
"Gera skal þér kost á
þessu," segir hún. "Þú skalt veita þessum sveini allt það er þú mátt
þá er hann er roskinn og hefna hans ef hann er með vopnum veginn og leggja fé
til kvonarmundar honum og skalt þú þetta allt sverja."
Hann játtaði þessu öllu. Fer
Höskuldur nú heim með Katli og er með honum nokkura hríð.
94. kafli
Einu hverju sinni ríður Njáll
upp í Mörk og var tekið við honum vel og var hann þar um nóttina. Um kveldið
gekk sveinninn að honum og kallaði Njáll á hann. Gekk hann þegar til hans.
Njáll hafði fingurgull á hendi og sýndi sveininum. Sveinninn tók við gullinu og
hugði að og dró á fingur sér.
Njáll mælti: "Vilt þú
þiggja gullið að gjöf?"
"Þiggja vil eg
víst," segir sveinninn.
"Veist þú," segir
Njáll, "hvað föður þínum varð að bana?"
Sveinninn svarar: "Veit
eg að Skarphéðinn vó hann og þurfum við ekki á það að minnast er sæst hefir á
verið og fullar bætur hafa fyrir komið."
"Betur er svarað,"
segir Njáll, "en eg spurði og munt þú verða góður maður."
"Góðar þykja mér
spásögur þínar," segir Höskuldur, "því að eg veit að þú ert forspár
og ólyginn."
Njáll mælti: "Nú vil eg
bjóða þér fóstur ef þú vilt þiggja."
Höskuldur kvaðst þiggja vilja
bæði þann góða og annan þann sem hann gerði honum. Urðu þær málalyktir að
Höskuldur fór heim með Njáli til fósturs. Hann lét sveininum ekki í mein og
unni mikið. Synir Njáls leiddu hann eftir sér og gerðu honum allt til sóma.
Nú líður þar til er Höskuldur
er frumvaxti. Hann var bæði mikill og sterkur, manna fríðastur sýnum og hærður
vel, manna best vígur, blíður í máli, örlátur, stilltur vel, orðgóður til allra
manna og vinsæll. Njálssonu og Höskuld skildu hvorki á orð né verk.
95. kafli
Maður er nefndur Flosi. Hann
var sonur Þórðar Freysgoða, Össurarsonar, Ásbjarnarsonar,
Heyjangurs-Bjarnarsonar, Helgasonar, Bjarnarsonar bunu. Móðir Flosa var Ingunn
dóttir Þóris af Espihóli, Hámundarsonar heljarskinns, Hjörssonar, Hálfssonar
konungs er réð fyrir Hálfsrekkum, Hjörleifssonar hins kvensama. Móðir Þóris var
Ingunn dóttir Helga hins magra er nam Eyjafjörð. Flosi átti Steinvöru dóttur
Halls af Síðu. Hún var laungetin og hét Salvör móðir hennar, dóttir Herjólfs
hins hvíta.
Flosi bjó að Svínafelli og
var höfðingi mikill. Hann var mikill vexti og styrkur, manna kappsamastur.
Bróðir hans hét Starkaður.
Hann var eigi sammæðra við Flosa. Móðir Starkaðar var Þraslaug dóttir Þorsteins
tittlings Geirleifssonar en móðir Þraslaugar var Unnur dóttir Eyvindar karfa
landnámamanns og systir Móðólfs hins spaka. Bræður Flosa voru þeir Þorgeir og
Steinn, Kolbeinn og Egill.
Hildigunnur hét dóttir Starkaðar bróður Flosa. Hún
var skörungur mikill og kvenna fríðust sýnum. Hún var svo hög að fár konur voru
jafn hagar. Hún var allra kvenna grimmust og skaphörðust en drengur góður þar
sem vel skyldi vera.
96. kafli
Hallur hét maður er kallaður
var Síðu-Hallur. Hann var Þorsteinsson Böðvarssonar. Móðir Halls hét Þórdís og
var Össurardóttir, Hróðlaugssonar, Rögnvaldssonar jarls af Mæri, Eysteinssonar
glumru. Hallur átti Jóreiði Þiðrandadóttur hins spaka, Ketilssonar þryms,
Þórissonar þiðranda úr Veradal. Bróðir Jóreiðar var Ketill þrymur í Njarðvík og
Þorvaldur faðir Helga Droplaugarsonar. Hallkatla var systir Jóreiðar, móðir
Þorkels Geitissonar og þeirra Þiðranda. Þorsteinn hét bróðir Halls og var
kallaður breiðmagi. Son hans var Kolur er Kári vegur í Bretlandi. Synir Halls
af Síðu voru þeir Þorsteinn og Egill, Þorvarður og Ljótur og Þiðrandi sá er
drápu dísir.
Þórir hét maður og var
kallaður Holta-Þórir. Hans synir voru þeir Þorgeir skorargeir og Þorleifur
krákur og Þorgrímur hinn mikli.
97. kafli
Nú er þar til máls að taka að
Njáll talaði við Höskuld fóstra sinn: "Ráðs vildi eg þér leita fóstri og
kvonfangs."
Höskuldi kveðst það vel að
skapi og bað hann fyrir sjá "eða hvar vilt þú helst á leita?"
Njáll svarar: "Kona
heitir Hildigunnur og er Starkaðardóttir Þórðarsonar Freysgoða. Þann veit eg
kost bestan."
Höskuldur mælti: "Sjá þú
einn fyrir fóstri minn. Það skal mitt ráð sem þú vilt vera láta."
"Hér munum við á
leita," segir Njáll.
Litlu síðar kvaddi Njáll menn
til ferðar með sér. Fóru þeir Sigfússynir og synir Njáls allir og Kári
Sölmundarson. Þeir ríða austur til Svínafells. Fá þeir þar góðar viðtökur.
Um daginn eftir ganga þeir
Njáll of Flosi á tal.
Þar koma niður ræður Njáls að
hann segir svo: "Það er erindi mitt hingað að vér förum bónorðsför og
mælum til mægða við þig Flosi en til eiginorðs við Hildigunni bróðurdóttur
þína."
"Fyrir hvers hönd?"
segir Flosi.
"Fyrir hönd Höskulds
Þráinssonar fóstra míns," segir Njáll.
"Vel er slíkt
stofnað," segir Flosi, "en þó hafið þér mikið í hættu hvorir við aðra
eða hvað segir þú frá Höskuldi?"
"Gott má eg frá honum
segja," segir Njáll, "og skal eg svo fé til leggja að yður þyki
sæmilega ef þér viljið þetta mál að álitum gera."
"Kalla munum vér á
hana," segir Flosi, "og vita hversu henni lítist maðurinn."
Var þá sent eftir henni og
kom hún þangað.
Flosi segir henni bónorðið.
Hún kvaðst vera kona skapstór
"og veit eg eigi hversu mér er hent við það er þar eru svo menn fyrir en
það þó eigi síður að sjá maður hefir ekki mannaforráð. Og hefir þú það mælt að
þú mundir eigi gifta mig goðorðslausum manni."
"Það er ærið eitt
til," segir Flosi, "ef þú vilt eigi giftast Höskuldi að þá mun eg
engan kost á gera."
"Það mæli eg eigi,"
segir hún, "að eg vilji eigi giftast Höskuldi ef þeir fá honum
mannaforráð. En ellegar mun eg engan kost á gera."
Njáll mælti: "Þá vil eg
bíða láta mín um þetta mál þrjá vetur."
Flosi svaraði að svo skyldi
vera.
"Þann hlut vildi eg til
skilja," segir Hildigunnur, "ef þessi ráð tækjust að við værum austur
hér."
Njáll kvaðst það vilja skilja
undir Höskuld en Höskuldur kvaðst mörgum vel trúa en engum betur en fóstra
sínum.
Nú ríða þeir austan.
Njáll leitaði Höskuldi um
mannaforráð og vildi engi selja sitt goðorð.
Líður nú sumarið til
Alþingis. Þetta sumar voru þingdeildir miklar. Gerði þá margur sem vant var að
fara til fundar við Njál en hann lagði það til mála manna sem ekki þótti
líklegt að eyddust sóknir og varð af því þræta mikil er málin máttu eigi lúkast
og riðu menn heim af þingi ósáttir.
Líður nú þar til er kemur
annað þing. Njáll reið til þings. Og er fyrst kyrrt þingið allt þar til er
Njáll talar að mönnum væri mál að lýsa sökum sínum.
Margir mæltu að til lítils
þætti það koma er engi kæmi sínu máli fram þó að til alþingis væri stefnt
"og viljum vér heldur," segja þeir, "heimta vort mál með oddi og
eggju."
"Svo má eigi vera,"
segir Njáll, "og hlýðir það hvergi að hafa eigi lög í landi. En þó hafið
þér mikið til yðvars máls um það og kemur það til vor er lögin kunnum og þeim
skulum stýra. Þykir mér það ráð að vér köllumst saman allir höfðingjar og tölum
um."
Þeir gengu þá til lögréttu.
Njáll mælti: "Þig kveð
eg að þessu Skafti Þóroddsson og aðra höfðingja að mér þykir sem málum vorum sé
komið í ónýtt efni ef vér skulum sækja mál í fjórðungsdómum og verði svo vafið
að eigi megi lúkast né fram ganga. Þykir mér það ráðlegast að vér ættum hinn
fimmta dóm og sæktum þar þau mál er eigi mega lúkast í fjórðungsdómi."
"Hversu skalt þú,"
sagði Skafti, "nefna fimmtardóminn, er fyrir forn goðorð er nefndur
fjóðungsdómur, þrennar tylftir úr fjórðungi hverjum?"
"Sjá mun eg ráð til
þess," segir Njáll, "að taka upp ný goðorð, þeir er best eru til
fallnir úr fjórðungi hverjum, og segist þeir í þing með þeim er það
vilja."
"Þennan kost viljum
vér," segir Skafti, "eða hversu vandar sóknir skulu hér vera?"
"Þau mál skulu hér í
koma," segir Njáll, "um alla þingsafglöpun ef menn bera ljúgvitni eða
ljúgkviðu. Hér skulu og í koma vefangsmál öll þau er menn vefengja í
fjórðungsdómi og skal þeim stefna til fimmtardóms. Svo og ef menn bjóða fé eða taka
fé til liðs sér og innihafnir þræla eða skuldarmanna. Í þessum dómi skulu vera
allir hinir styrkjustu eiðar og fylgja tveir menn hverjum eiði er það skulu
leggja undir þegnskap sinn er hinir sverja. Svo skal og ef annar fer með rétt
mál en annar með rangt, þá skal eftir þeim dæma er rétt fara að sókn. Hér skal
og sækja hvert mál sem í fjóðungsdómi utan það er nefndar eru fernar tylftir í
fimmtardóm, þá skal sækjandi nefna sex menn úr dómi en verjandi aðra sex. En ef
hann vill eigi úr nefna þá skal sækjandi nefna þá úr sem hina sem verjandi
átti. En ef sækjandi nefnir eigi úr þá er ónýtt málið því að þrennar tylftir
skulu um dæma. Vér skulum og hafa þá lögréttuskipun að þeir er sitja á miðjum
pöllum skulu réttir að ráða fyrir lofum og lögum og skal þá velja til þess er
vitrastir eru og best að sér. Þar skal og vera fimmtardómur. En ef þeir verða
eigi á sáttir er í lögréttu sitja hvað þeir vilja lofa eða í lög leiða, þá
skulu þeir ryðja lögréttu til og skal ráða afl með þeim. En ef sá er nokkur
fyrir utan lögréttu að eigi nái inn að ganga eða þykist borinn vera máli þá
skal hann verja lýriti svo að heyri í lögréttu og hefir hann þá ónýtt fyrir
þeim öll lof þeirra og allt það er þeir mæltu til lögskila og varði
lýriti."
Eftir það leiddi Skafti
Þóroddsson í lög fimmtardóm og allt þetta er nú var talið. Eftir það gengu menn
til Lögbergs. Tóku menn þá upp ný goðorð. Í Norðlendingafjórðungi voru þessi ný
goðorð: Melmannagoðorð í Miðfirði og Laufæsingagoðorð í Eyjafirði.
Þá kvaddi Njáll sér hljóðs og
mælti: "Það er mörgum mönnum kunnigt hversu farið hefir með oss sonum
mínum og Grjótármönnum að þeir drápu Þráin Sigfússon en var sæst á málið og eg
tók við Höskuldi syni Þráins. Hefi eg nú ráðið honum kvonfang ef hann fær
goðorð nokkuð en engi vill selja sitt goðorð. Vil eg nú biðja yður að þér
leyfið að eg taki upp nýtt goðorð á Hvítanesi til handa Höskuldi."
Hann fékk það lof af öllum.
Tekur Njáll nú upp goðorðið til handa Höskuldi og var hann síðan kallaður
Höskuldur Hvítanesgoði.
Eftir þetta ríða menn heim af
þingi.
Njáll dvaldist skamma stund
heima áður hann reið austur til Svínafells og synir hans og Höskuldur og vekur
bónorðið við Flosa en hann kveðst efna mundu öll mál við þá. Var þá Hildigunnur
föstnuð Höskuldi og kveðið á brúðlaupsstefnu og lýkur svo með þeim. Ríða þeir
þá heim.
En í annað sinn riðu þeir til
brúðlaups. Leysti Flosi út allt fé Hildigunnar eftir boðið og greiddi vel af
hendi. Fóru þau til Bergþórshvols og voru þar þau misseri og fór allt vel með
þeim Hildigunni og Bergþóru. Um vorið eftir keypti Njáll land í Ossabæ og fær
það Höskuldi og fer hann þangað byggðum sínum. Njáll réð honum hjón öll. Og svo
var dátt með þeim öllum saman að engum þótti ráð ráðið nema þeir réðu allir um.
Bjó Höskuldur í Ossabæ lengi svo að hvorir studdu annarra sæmd og voru synir
Njáls í ferðum með Höskuldi. Svo var ákaft um vináttu þeirra að hvorir buðu
öðrum heim hvert haust og gáfu stórgjafar. Fer svo lengi fram.
98. kafli
Maður hét Lýtingur. Hann bjó
á Sámsstöðum. Hann átti þá konu er Steinvör hét. Hún var Sigfúsdóttir, systir
Þráins. Lýtingur var mikill maður vexti og styrkur og auðigur að fé, illur
viðureignar.
Það var einu hverju sinni að
Lýtingur hafði boð inni á Sámsstöðum. Hann hafði þangað boðið Höskuldi
Hvítanesgoða og Sigfússonum. Þeir komu þar allir. Þar var og Grani Gunnarsson
og Gunnar Lambason og Lambi Sigurðarson.
Höskuldur Njálsson átti bú í
Holti og móðir hans og reið hann jafnan til bús síns frá Bergþórshvoli og lá
leið hans um garð á Sámsstöðum. Höskuldur átti son er Ámundi hét. Hann hafði
blindur verið borinn. Hann var þó mikill vexti og öflugur.
Lýtingur átti bræður tvo. Hét
annar Hallsteinn en annar Hallgrímur. Þeir voru hinir mestu óeirðarmenn og voru
þeir jafnan með Lýtingi bróður sínum því að aðrir menn komu ekki skapi við þá.
Lýtingur var úti löngum um
daginn en stundum gekk hann inn. Hann gekk til sætis síns. Þá kom kona inn er
úti hafði verið.
Hún mælti: "Of fjarri
voruð þér úti að sjá er oflátinn reið um garð."
"Hver ofláti var
sá," segir Lýtingur, "er þú segir frá?"
"Höskuldur Njálsson reið
hér um garð," segir hún.
Lýtingur mælti: "Oft
ríður hann hér um garð og er mér eigi skapraunarlaust og býðst eg til þess
Höskuldur mágur að fara með þér ef þú vilt hefna föður þíns og drepa Höskuld
Njálsson."
"Það vil eg eigi,"
segir Höskuldur, "og launa eg þá verr en vera skyldi Njáli fóstra mínum og
þrífst þú aldrei fyrir heimboð" og spratt upp undan borðinu og lét taka
hesta sína og reið heim.
Lýtingur mælti þá til Grana
Gunnarssonar: "Þú varst hjá er Þráinn var veginn og mun þér það minnisamt
og svo þú Gunnar Lambason og þú Lambi Sigurðarson. Vil eg nú að vér ráðum að
Höskuldi Njálssyni og drepum hann í kveld er hann ríður heim."
"Nei," segir Grani,
"ekki mun eg fara að Njálssonum og rjúfa sætt þá er góðir menn
gerðu."
Slíkum orðum mælti hver
þeirra og svo Sigfússynir og tóku það ráð allir að ríða í braut.
Þá mælti Lýtingur er þeir
voru í brautu: "Það vita allir menn að eg hefi við engum bótum tekið eftir
Þráin mág minn. Skal eg og aldrei una því að engi komi mannhefnd eftir hann."
Síðan kvaddi hann til ferðar
með sér bræður sína tvo og húskarla þrjá. Þeir fóru á leið fyrir Höskuld og
sátu fyrir honum norður frá garði í gróf nokkurri og biðu þar til þess er var
miður aftan. Þá reið Höskuldur að þeim. Þeir spretta þá upp allir með vopnum og
sækja að honum. Höskuldur varðist svo vel að þeir fá lengi eigi sóttan hann. En
þar kom um síðir að hann særði Lýting á hendi en drap heimamenn hans tvo og
féll síðan. Þeir særðu Höskuld sextán sárum en eigi hjuggu þeir höfuð af honum.
Þeir fóru í skógana fyrir austan Rangá og fálu sig þar.
Þetta kveld hið sama hafði
smalamaður Hróðnýjar fundið Höskuld dauðan og fór heim og sagði Hróðnýju víg
sonar síns.
Hún mælti: "Ekki mun
hann dauður vera eða var af höfuðið?"
"Eigi var það,"
segir hann.
"Vita mun eg ef eg
sé," segir hún, "og tak þú hest minn og akfæri."
Hann gerði svo og bjó um með
öllu og síðan fóru þau þangað sem Höskuldur lá.
Hún leit á sárin og mælti:
"Svo er sem mig varði að hann mundi ekki dauður með öllu og mun Njáll
græða stærri sár."
Síðan tóku þau og lögðu hann
í vagarnar og óku til Bergþórshvols og báru þar inn í sauðahús og láta hann
sitja upp við vegginn. Síðan gengu þau heim bæði og drápu á dyr og gekk húskarl
einn til dyra. Hún snarar þegar inn hjá honum og fer þar til er hún kemur að
hvílu Njáls. Hún spurði hvort Njáll vekti. Hann kveðst sofið hafa þar til
"en nú er eg vaknaður. Eða hví ert þú hér komin svo snemma?"
Hróðný mælti: "Statt þú
upp úr binginum frá elju minni og gakk út með mér og svo hún og synir
þínir."
Þau stóðu upp og gengu út.
Skarphéðinn mælti:
"Tökum vér vopn vor og höfum með oss."
Njáll lagði ekki til þess og
hljópu þeir inn og gengu út vopnaðir. Fer Hróðný fyrir til þess er þau koma að
sauðahúsinu.
Hún gengur inn og bað þau
ganga eftir.
Hún vatt upp skriðljósi og
mælti: "Hér er nú, Njáll, Höskuldur son þinn og hefir fengið á sér sár
mörg og mun hann nú þurfa lækningar."
Njáll mælti: "Dauðamörk
sé eg á honum en engi lífsmörk eða hví hefir þú eigi veitt honum nábjargir er
opnar eru nasarnar?"
"Það ætlaði eg
Skarphéðni," segir hún.
Skarphéðinn gekk að og veitti
honum nábjargir.
Skarphéðinn mælti þá við
föður sinn: "Hver segir þú að hann hafi vegið?"
Njáll svarar: "Lýtingur
af Sámsstöðum mun hafa vegið hann og bræður hans."
Hróðný mælti: "Þér fel
eg á hendi Skarphéðinn að hefna bróður þíns og vænti eg að þér muni vel fara þó
að hann sé eigi skilgetinn og þú munir mest eftir ganga."
Bergþóra mælti:
"Undarlega er yður farið er þér vegið víg þau er yður rekur lítið til en
meltið slíkt og sjóðið fyrir yður svo að ekki verður af og mun hér koma skjótt
Höskuldur Hvítanesgoði og biðja yður sætta og munuð þér veita honum það og er
nú til að ráða ef þér viljið."
Skarphéðinn mælti:
"Eggjar móðir vor oss nú lögeggjan."
Síðan hljópu þeir út allir.
Hróðný gekk með Njáli og var þar um nóttina.
99. kafli
Nú er að segja frá þeim
Skarphéðni að þeir stefna upp til Rangár.
Skarphéðinn mælti:
"Stöndum vér nú og hlýðum til."
Þeir gerðu svo.
Síðan mælti hann: "Förum
vér nú hljótt því að eg heyri mannamál upp með ánni. Eða hvort viljið þið
heldur eiga við Lýting einn eða við bræður hans báða?"
Þeir kváðust heldur vilja
eiga við Lýting einn.
"Í honum er þó veiðurin
meiri," segir Skarphéðinn, "og þykir mér illa ef undan ber en eg
treysti mér best um að eigi dragi undan."
"Til skulum við svo
stefna," segir Helgi, "ef við komumst í færi að eigi reki
undan."
Síðan gengu þeir þangað sem
Skarphéðinn hafði heyrt mannamálið og sjá hvar þeir Lýtingur eru við læk einn.
Skarphéðinn hleypur þegar yfir lækinn og í melbakkann öðrum megin. Þar stóð
Hallgrímur á uppi og þeir bræður. Skarphéðinn höggur á lærið Hallgrími svo að
þegar tók undan fótinn en þrífur Hallkel annarri hendi. Lýtingur lagði til
Skarphéðins. Helgi kom þá að og brá við skildinum og kom þar í lagið. Lýtingur
tók upp stein og laust Skarphéðin og varð Hallkell laus. Hallkell hleypur þá
upp á melbakkann og kemst eigi á upp annan veg en hann skýtur niður knjánum.
Skarphéðinn slæmir til hans öxinni Rimmugýgi og höggur í sundur í honum
hrygginn. Lýtingur snýr nú undan en þeir Grímur og Helgi eftir og kemur sínu
sári á hann hvor þeirra. Lýtingur kemst út á ána undan þeim og svo til hrossa
og hleypir til þess er hann kemur í Ossabæ. Höskuldur var heima. Lýtingur
finnur hann þegar og segir honum verkin.
"Slíks var þér
von," segir Höskuldur, "þú fórst rasandi mjög. Mun hér sannast það
sem mælt er að skamma stund verður hönd höggi fegin. Þykir mér sem þér þyki nú
ísjávert hvort þú munt fá haldið þig fyrir Njálssonum."
"Svo er víst,"
segir Lýtingur, "að eg komst nauðulega undan en þó vildi eg nú að þú kæmir
mér í sætt við Njál og sonu hans og mætti eg halda búi mínu."
"Svo skal vera,"
segir Höskuldur.
Síðan lét Höskuldur söðla
hest sinn og reið til Bergþórshvols við hinn sétta mann. Þá voru synir Njáls
heima komnir og höfðu lagst til svefns. Höskuldur fór þegar að finna Njál og
gengu þeir á tal.
Höskuldur mælti til Njáls:
"Hingað er eg kominn að biðja fyrir Lýtingi mági mínum. Hefir hann stórt
af gert við yður, rofið sætt og drepið son þinn."
Njáll mælti: "Lýtingur mun
þykjast mikið afhroð goldið hafa í láti bræðra sinna. En ef eg geri nokkurn
kost á þá mun eg þín láta að njóta og mun eg þó það skilja fyrir sættina að
bræður Lýtings skulu óhelgir fallið hafa. Lýtingur skal og ekki hafa fyrir sár
sín en bæta Höskuld fullum bótum."
"Það vil eg," segir
Höskuldur, "að þú einn dæmir."
Njáll svarar: "Það mun
eg nú gera sem þú vilt."
"Vilt þú nokkuð,"
segir Höskuldur, "að synir þínir séu við?"
Njáll svarar: "Ekki mun
þá nær sættinni en áður en halda munu þeir þá sætt er eg geri."
Þá mælti Höskuldur:
"Lúkum við þá málinu og sel þú Lýtingi grið fyrir sonu þína."
"Svo skal vera,"
segir Njáll.
"Það vil eg," segir
Njáll, "að Lýtingur gjaldi tvö hundruð silfurs fyrir víg Höskulds en búi á
Sámsstöðum og þykir mér þó ráðlegra að hann selji land sitt og ráðist í braut.
En eigi fyrir því, ekki mun eg rjúfa tryggðir á honum né synir mínir. En þó
þykir mér vera mega að nokkur rísi sá upp í sveit að honum sé viðsjávert. En ef
svo þykir sem eg geri hann héraðssekan þá leyfi eg að hann sé hér í sveit en
hann ábyrgist mestu til."
Síðan fór Höskuldur heim.
Þeir vöknuðu Njálssynir og spurðu föður sinn hvað
komið hefði en hann sagði þeim að Höskuldur var þar, fóstri hans.
"Hann mundi biðja fyrir
Lýtingi," segir Skarphéðinn.
"Svo var," segir
Njáll.
"Það var illa,"
segir Grímur.
"Ekki mundi Höskuldur
hafa skotið skildi fyrir hann," segir Njáll, "ef þú hefðir drepið
hann þá er þér var ætlað."
"Teljum vér ekki á föður
vorn," segir Skarphéðinn.
Nú er að segja frá því að
sætt þessi helst með þeim síðan.
100. kafli
Höfðingjaskipti varð í
Noregi. Hákon jarl var liðinn undir lok en kominn í staðinn Ólafur Tryggvason.
Urðu þau örlög Hákonar jarls að Karkur þræll skar hann á háls á Rimul í
Gaulardal. Það spurðist með tíðindum þessum að siðaskipti var orðið í Noregi.
Og höfðu þeir kastað hinum forna átrúnaði en Ólafur konungur hafði kristnað
Vesturlönd, Hjaltland og Orkneyjar og Færeyjar.
Það mæltu margir menn svo að
Njáll heyrði að slíkt væru mikil firn að hafna fornum sið og átrúnaði.
Njáll sagði þá: "Svo
líst mér sem hinn nýi átrúnaður muni vera miklu betri og sá muni sæll er þann
fær heldur. Og ef þeir menn koma út hingað er þann sið bjóða þá skal eg það vel
flytja."
Hann mælti það oft. Hann fór oft frá öðrum mönnum
einn saman og þuldi.
Þetta hið sama haust kom skip út austur í Fjörðum
í Berufirði þar sem heitir Gautavík. Hét Þangbrandur stýrimaður. Hann
var son Vilbaldús greifa úr Saxlandi. Þangbrandur var sendur út hingað af Ólafi
konungi Tryggvasyni að bjóða trú rétta. Með honum fór sá maður íslenskur er
Guðleifur hét. Hann var son Ara Mássonar, Atlasonar, Úlfssonar hins skjálga,
Högnasonar hins hvíta, Ótryggssonar, Óblauðssonar, Hjörleifssonar hins kvensama
Hörðalandskonungs. Guðleifur var vígamaður mikill og manna hraustastur og
harðger í öllu.
Bræður tveir bjuggu á
Berunesi. Hét annar Þorleifur en annar Ketill. Þeir voru Hólmsteinssynir
Össurarsonar hins breiðdælska. Þeir lögðu til fund og bönnuðu mönnum að eiga
kaup við þessa menn.
Þetta spurði Hallur af Síðu.
Hann bjó að Þvottá í Álftafirði. Hann reið til skips við þrjá tigu manna.
Hann fer þegar á fund
Þangbrands og mælti til hans: "Hvort ganga ekki mjög kaupin?"
Hann sagði að svo var.
"Nú vil eg segja þér
mitt erindi," segir Hallur, "að eg vil bjóða yður öllum heim til mín
og hætta á hvort eg geti kaup fyrir yður."
Þangbrandur þakkaði honum og
fór til Þvottár.
Um haustið var það að
Þangbrandur var úti einn morgun snemma og lét skjóta sér tjaldi og söng messu í
tjaldinu og hafði mikið við því að hátíð var mikil.
Hallur mælti til Þangbrands:
"Í hverja minning heldur þú þennan dag?"
"Mikael engill á
daginn," segir hann.
"Hver rök fylgja engli
þeim?" segir Hallur.
"Mörg," segir
Þangbrandur. "Hann skal meta allt það sem þú gerir bæði gott og illt og er
hann svo miskunnsamur að hann metur allt það meira sem vel er gert."
Hallur mælti: "Eiga
vildi eg hann mér að vin."
"Það munt þú mega,"
segir Þangbrandur, "og gefst þú honum þá í dag með guði."
"Það vil eg þá til
skilja," segir Hallur, "að þú heitir mér því fyrir hann að hann sé þá
fylgjuengill minn."
"Því mun eg heita
þér," segir Þangbrandur.
Tók Hallur þá skírn og öll
hjú hans.
101. kafli
Um vorið eftir fór
Þangbrandur að boða kristni og Hallur með honum. En er þeir komu vestur um
Lónsheiði til Stafafells þá bjó þar Þorkell. Hann mælti mest í móti trúnni og
skoraði Þangbrandi á hólm. Þá bar Þangbrandur róðukross fyrir skjöldinn en þó
lauk svo með þeim að Þangbrandur hafði sigur og drap Þorkel.
Þaðan fóru þeir til
Hornafjarðar og gistu í Borgarhöfn fyrir vestan Heinabergssand. Þar bjó Hildir
hinn gamli. Hans son var Glúmur er fór til brennu með Flosa. Þar tók við trú
Hildir og hjú hans öll.
Þaðan fóru þeir til
Fellshverfis og gistu að Kálfafelli. Þar bjó Kolur Þorsteinsson frændi Halls og
tók hann við trú og hjú hans öll.
Þaðan fóru þeir til Breiðár.
Þar bjó Össur Hróaldsson frændi Halls og tók við prímsigning.
Þaðan fóru þeir til
Svínafells og tók Flosi prímsigning en hét að fylgja þeim á þingi.
Þaðan fóru þeir vestur til
Skógahverfis og gistu í Kirkjubæ. Þar bjó Surtur Ásbjarnarson Þorsteinssonar
Ketilssonar hins fíflska. Þeir höfðu allir verið kristnir langfeðgar.
Eftir það fóru þeir úr
Skógahverfi og til Höfðabrekku. Þá
spurðist allt um ferð þeirra.
Maður hét Galdra-Héðinn er bjó í Kerlingardal. Þar
keyptu heiðnir menn að honum að hann skyldi deyða Þangbrand og föruneyti hans. Hann
fór upp á Arnarstakksheiði og efldi þar blót mikið.
Þá er Þangbrandur reið austan þá brast í sundur
jörðin undir hesti hans en hann hljóp af hestinum og komst upp á bakkann en
jörðin svalg hestinn með öllum reiðingi og sáu þeir hann aldrei síðan. Þá
lofaði Þangbrandur guð.
102. kafli
Guðleifur leitar nú Galdra-Héðins og finnur hann á
heiðinni og eltir hann ofan að Kerlingardalsá og komst í skotfæri við hann og
skýtur til hans spjóti og í gegnum hann.
Þaðan fóru þeir til Dyrhólma og áttu þar fund og
boðaði Þangbrandur þar trú og kristnaði þar Ingjald son Þorkels Háeyjartyrðils.
Þaðan fóru þeir til Fljótshlíðar og boðuðu þar
trú. Þar mælti mest í mót Veturliði skáld og Ari son hans og fyrir það
vógu þeir Veturliða. Og er þar um kveðin vísa þessi:
Ryðfjónar
gekk reynir
randa suðr á landi
beðs í bæna smiðju
Baldrs sigtólum halda.
Siðreynir lét síðan
snjallr morðhamar gjalla
hauðrs í hattar steðja
hjaldrs Vetrliða skaldi.
Þaðan fór Þangbrandur til Bergþórshvols og tók
Njáll við trú og öll hjú hans. En Mörður Valgarðsson gekk mest í móti.
Þeir fóru þaðan út yfir ár. Þeir fóru í Haukadal og skírðu þar Hall og var hann
þá þrevetur.
Þaðan fóru þeir til
Grímsness. Þar efldi flokk í móti þeim Þorvaldur hinn veili og sendi orð Úlfi
Uggasyni að hann skyldi fara að Þangbrandi og drepa hann og kvað til vísu
þessa:
Yggs
bjálfa mun eg Úlfi
Endils um boð senda,
mér er við stála stýri
stugglaust, syni Ugga,
að gnýskúta Geitis
goðvarg fyrir argan,
þann er við rögn um regnir,
reki hann en eg annan.
Úlfur Uggason kvað aðra vísu
í móti:
Tekka
eg, sunds þótt sendi
sannreynir boð, tanna
hvarfs við hleypiskarfi,
Hárbarðs véa fjarðar.
Erat ráfáka rækis,
röng eru mál á gangi,
sé eg við mínu meini,
mínlegt flugu að gína.
"Og ætla eg ekki," sagði Úlfur, "að
vera ginningarfífl hans. En gæti hann að honum vefjist eigi tungan um
höfuð."
Og eftir það fór sendimaður aftur til Þorvalds
hins veila og sagði honum orð Úlfs. Þorvaldur hafði margt manna um sig og hafði
það við orð að sitja fyrir þeim á Bláskógaheiði.
Þeir Þangbrandur og Guðleifur riðu úr Haukadal. Þeir
mættu manni einum er reið í mót þeim.
Sjá spurði að Guðleifi og er hann fann hann mælti
hann: "Njóta skalt þú Þorgils bróður þíns á Reykjahólum að eg vil gera þér
njósn að þeir hafa margar fyrirsátir og það með að Þorvaldur hinn veili er með
flokk sinn við Hestlæk í Grímsnesi."
"Ekki skulum vér ríða að síður," segir
Guðleifur, "til fundar við hann."
Og sneru þeir síðan ofan til
Hestlækjar. Þorvaldur var þá kominn yfir lækinn.
Guðleifur mælti til
Þangbrands: "Hér er nú Þorvaldur og hlaupum nú að honum."
Þangbrandur skaut spjóti í
gegnum Þorvald en Guðleifur hjó á öxlina og frá ofan höndina og var það hans
bani.
Eftir það ríða þeir á þing
upp og hafði svo nær að frændur Þorvalds mundu ganga að þeim. Veittu þeir Njáll
og Austfirðingar Þangbrandi. Hjalti Skeggjason kvað kviðling þenna:
Spari
eg eigi goð geyja.
Grey þykir mér Freyja.
Æ mun annað tveggja
Óðinn grey eða Freyja.
Hjalti fór utan um sumarið og
Gissur hvíti. En skip Þangbrands braut austur við Búlandsnes og hét skipið
Vísundur.
Þangbrandur fór allt vestur
um sveitir.
Steinunn kom í mót honum,
móðir Skáld-Refs. Hún boðaði Þangbrandi heiðni og taldi lengi fyrir honum.
Þangbrandur þagði meðan hún talaði en talaði lengi eftir og sneri því öllu er
hún hafði mælt í villu.
"Hefir þú heyrt
það," sagði hún, "er Þór bauð Kristi á hólm og þorði Kristur eigi að
berjast við Þór?"
"Heyrt hefi eg,"
segir Þangbrandur, "að Þór var ekki nema mold og aska ef guð vildi eigi að
hann lifði."
"Veist þú," segir
hún, "hver brotið hefir skip þitt?"
"Hvað segir þú
til?" segir hann.
"Það mun eg segja
þér," segir hún:
Braut fyrir bjöllu gæti,
bönd ráku val strandar,
mögfellandi mellu,
mástalls, Vísund allan.
Hlífðit Kristr, þá er kneyfði
knörr, málmfeta varra.
Lítt ætla eg að guð gætti
Gylfa hreins að einu.
Og enn kvað hún aðra vísu:
Þór
brá Þvinnils dýri
Þangbrands úr stað löngu,
hristi búss og beysti
barðs og laust við jörðu.
Muna skíð um sjá síðan
sundfært Atals grundar,
hregg því að hart tók leggja,
hánum kennt, í spánu.
Eftir það skildu þau
Þangbrandur og Steinunn og fóru þeir vestur til Barðastrandar.
103. kafli
Gestur Oddleifsson bjó í Haga
á Barðaströnd. Hann var manna vitrastur svo að hann sá fyrir örlög manna. Hann
gerði veislu í móti þeim Þangbrandi. Þeir fóru í Haga við sex tigu manna. Þá
var sagt að þar væru fyrir tvö hundruð heiðinna manna og þangað væri von
berserks þess er Ótryggur hét og voru allir við hann hræddir. Frá honum var
sagt svo mikið að hann hræddist hvorki eld né egg og voru heiðnir menn hræddir mjög.
Þá spurði Þangbrandur ef menn vildu taka við trú en allir heiðnir menn mæltu í
móti.
"Kosti mun eg yður
gera," segir Þangbrandur, að vér skulum reyna hvor betri er trúan. Vér
skulum gera elda þrjá. Skuluð þér heiðnir menn vígja einn en eg annan en hinn
þriðji skal óvígður vera. En ef berserkurinn hræðist þann einn eldinn er eg
vígi en veður hina báða þá skuluð þér taka við trú."
"Þetta er vel
mælt," segir Gestur, "og mun eg þessu játa fyrir mig og heimamenn
mína."
Og er Gestur hafði þetta mælt
þá játuðu miklu fleiri.
Þá var sagt að berserkurinn
færi að bænum og voru þá gervir eldarnir og brunnu. Tóku menn þá vopn sín og
hljópu upp í bekkina og biðu svo. Berserkurinn hleypur að með vopnum og inn í
dyrnar. Hann kemur innar í stofuna og veður þegar þann eldinn er hinir heiðnu
menn höfðu vígðan og svo hinn óvígða. Hann kemur að þeim eldinum er Þangbrandur
hafði vígt og þorir eigi að vaða og kvaðst brenna allur. Hann höggur sverðinu
upp á bekkinn og kom í þvertréð er hann reiddi hátt. Þangbrandur laust með
róðukrossi á höndina og varð jartegn svo mikil að sverðið féll úr hendi
berserkinum. Þá leggur Þangbrandur sverði fyrir brjóst honum en Guðleifur hjó á
höndina svo að af tók. Gengu þá margir að og drápu berserkinn. Eftir það spurði
Þangbrandur ef menn vildu taka við trú. Gestur kveðst það eitt um hafa mælt er
hann ætlaði að halda. Skírði Þangbrandur þá Gest og öll hjú hans og marga menn
aðra.
Réðst þá Þangbrandur um við
Gest hvort hann skyldi nokkuð fara í fjörðu vestur en Gestur latti þess og kvað
þar vera menn harða og illa viðureignar "en ef það er ætlað fyrir að trúa
þessi skuli við gangast þá mun á alþingi við gangast og munu þar þá vera allir
höfðingjar úr hverju héraði."
"Flutti eg á
þingi," segir Þangbrandur, "og varð mér þar erfiðlegast um."
"Þó hefir þú mest að
gert," segir Gestur, "þó að öðrum verði auðið í lög að leiða. En það
er sem mælt er að eigi fellur tré við hið fyrsta högg."
Síðan gaf Gestur Þangbrandi
góðar gjafar og fóru þeir suður aftur.
Þangbrandur fór í
Sunnlendingafjórðung og svo til Austfjarða. Hann gisti að Bergþórshvoli og gaf
Njáll honum góðar gjafar. Þá reið hann austur í Álftafjörð til móts við
Síðu-Hall. Hann lét bæta skip sitt og kölluðu heiðnir menn það Járnmeis. Á því
skipi fór Þangbrandur utan og Guðleifur með honum.
104. kafli
Þetta sama sumar varð Hjalti
Skeggjason sekur á þingi um goðgá.
Þangbrandur sagði Ólafi
konungi frá meingerðum Íslendinga við sig, sagði þá vera svo fjölkunnga að
jörðin spryngi í sundur undir hesti hans og tæki hestinn. Þá varð Ólafur konungur
svo reiður að hann lét taka alla íslenska menn og setja í myrkvastofu og ætlaði
þá til dráps.
Þá gengu þeir Gissur hvíti að
og Hjalti og buðu að leggja sig í veð fyrir þessa menn og fara út til Íslands
og boða trú. Konungur tók þessu vel og þágu þeir þá alla undan.
Þá bjuggu þeir Gissur og
Hjalti skip sitt til Íslands og urðu snemmbúnir. Þeir tóku land á Eyrum er tíu vikur voru af sumri.
Þeir fengu sér þegar hesta en fengu menn til að ryðja skip. Ríða þeir þá
þrír tigir manna til þings og gerðu þá orð kristnum mönnum að við búnir skyldu
vera. Hjalti var eftir að Reyðarmúla því að þeir spurðu að hann var sekur
orðinn um goðgá. En þá er þeir komu í Vellandkötlu ofan frá Gjábakka þá kom
Hjalti þar eftir þeim og kveðst ekki vilja sýna það heiðnum mönnum að hann
hræddist þá. Riðu nú margir kristnir menn í móti þeim og riðu þeir með fylktu
liði á þing. Heiðnir menn höfðu og fylkt fyrir og var þá svo nær að allur
þingheimur mundi berjast en þó varð það eigi.
105. kafli
Þorgeir hét maður. Hann var
Tjörvason Þorkelssonar langs. Móðir hans hét Þórunn og var Þorsteinsdóttir,
Sigmundarsonar, Gnúpa-Bárðarsonar. Guðríður hét kona hans. Hún var dóttir
Þorkels hins svarta úr Hleiðrargarði. Hans bróðir var Ormur töskubak, faðir
Hlenna hins gamla úr Saurbæ. Þeir Þorkell voru synir Þóris snepils, Ketilssonar
brimils, Örnólfssonar, Björnólfssonar, Grímssonar loðinkinna, Ketilssonar
hængs, Hallbjarnarsonar hálftrölls úr Hrafnistu. Þorgeir bjó að Ljósavatni og
var höfðingi mikill og manna vitrastur.
Kristnir menn tjölduðu búðir
sínar og voru þeir Gissur og Hjalti í Mosfellingabúð.
Um daginn eftir gengu
hvorirtveggju til Lögbergs og nefndu hvorir votta, kristnir menn og heiðnir, og
sögðust hvorir úr lögum annarra og varð þá svo mikið óhljóð að Lögbergi að engi
nam annars mál. Síðan gengu menn í braut og þótti öllum horfa til hinna mestu
óefna.
Kristnir menn tóku sér til
lögsögumanns Hall af Síðu. En Hallur fór að finna Þorgeir goða lögsögumann frá
Ljósavatni og gaf honum til þrjár merkur silfurs að hann segði upp lögin. En
það var þó ábyrgðarráð er hann var heiðinn.
Þorgeir lá dag allan og
breiddi feld á höfuð sér svo að engi maður mælti við hann.
En annan dag gengu menn til
Lögbergs.
Þá beiddi Þorgeir sér hljóðs
og mælti: "Svo líst mér sem málum vorum sé komið í ónýtt efni ef vér
skulum eiga hafa ein lög allir. En ef sundur skipt er lögunum þá mun sundur
skipt friðinum og mun eigi mega við það búa. Nú vil eg þess spyrja heiðna menn
og kristna hvort þeir vilja hafa lög þau er eg segi upp."
Því játuðu allir. Hann kvaðst
vilja hafa svardaga af þeim og festu að halda. Þeir játuðu því allir og tók
hann af þeim festu.
"Það er upphaf laga
vorra," sagði hann, "að menn skulu allir vera kristnir hér á landi og
trúa á einn guð, föður og son og anda helgan, en láta af allri skurðgoðavillu,
bera eigi út börn og eta eigi hrossakjöt. Skal fjörbaugssök á vera ef víst
verður en ef leynilega er með farið þá skal vera vítislaust."
En þessi heiðni var af tekin
öll á fárra vetra fresti að eigi skyldi þetta heldur gera leynilega en opinberlega.
Hann sagði þá um drottinsdagahald og föstudaga, jóladaga og páskadaga og allra
hinna stærstu hátíða.
Þóttust heiðnir menn mjög
sviknir vera en þó var þá í lög leidd trúan og allir menn kristnir gervir hér á
landi.
Fara menn við það heim af þingi.
106. kafli
Sá atburður varð þrem vetrum
síðar á Þingskálaþingi að Ámundi hinn blindi var þar, son Höskulds Njálssonar.
Hann lét leiða sig búða í meðal. Hann kom í búð þá er Lýtingur var inni af
Sámsstöðum. Hann lætur leiða sig inn í búðina og þar fyrir sem Lýtingur sat.
Hann mælti: "Er hér
Lýtingur af Sámsstöðum?"
"Já," segir
Lýtingur, "eða hvað vilt þú mér?"
"Eg vil vita,"
segir Ámundi, "hverju þú vilt bæta mér föður minn. Eg er laungetinn og
hefi eg við engum bótum tekið."
"Bætt hefi eg föður þinn
fullum bótum," segir Lýtingur, "og tók við föðurfaðir þinn og
föðurbræður en bræður mínir voru ógildir. Og varð bæði að eg hafði illa til
gert enda kom eg allhart niður."
"Ekki spyr eg að
því," segir Ámundi, "að þú hefir bætt þeim. Veit eg að þér eruð
sáttir. Og spyr eg að því hverju þú vilt mér bæta."
"Alls engu," segir Lýtingur.
"Eigi skil eg," segir Ámundi, "að
það muni rétt fyrir guði svo nær hjarta sem þú hefir mér höggvið. Enda kann eg
að segja þér ef eg væri heileygur báðum augum að hafa skyldi eg annaðhvort
fyrir föður minn fébætur eða mannhefndir enda skipti guð með okkur."
Eftir það gekk hann út. En er hann kom í
búðardyrnar snýst hann innar eftir búðinni. Þá lukust upp augu hans.
Þá mælti hann: "Lofaður
sért þú guð, drottinn minn. Sé eg nú hvað þú vilt."
Eftir það hleypur hann innar
eftir búðinni þar til er hann kemur fyrir Lýting og höggur með öxi í höfuð
honum svo að hún stóð á hamri og kippir að sér öxinni. Lýtingur fellur áfram og
var þegar dauður. Ámundi gengur út í búðardyrnar. Og er hann kom í þau hin sömu
spor sem augu hans höfðu upp lokist þá lukust nú aftur og var hann alla ævi
blindur síðan.
Eftir það lætur hann fylgja
sér til Njáls og sona hans. Hann segir þeim víg Lýtings.
"Ekki má saka þig um
þetta," segir Njáll, "því að slíkt er mjög ákveðið en viðvörunarvert
ef slíkir atburðir verða að stinga eigi af stokki við þá er svo nær
standa."
Síðan bauð Njáll sætt frændum
Lýtings. Höskuldur Hvítanesgoði átti hlut að við frændur Lýtings að þeir tækju
sættum og var þá lagið mál í gerð og féllu hálfar bætur niður fyrir sakastaði
þá er Ámundi þótti á eiga. Eftir það gengu menn til tryggða og veittu frændur
Lýtings Ámunda tryggðir.
Menn riðu heim af þingi og er
nú kyrrt lengi.
107. kafli
Valgarður hinn grái kom þetta
sumar út. Hann var þá heiðinn. Hann fór til Hofs til Marðar sonar síns og var
þar um veturinn.
Hann mælti til Marðar:
"Riðið hefi eg hér um byggðina víða og þykir mér eigi mega kenna að hin
sama sé. Kom eg á Hvítanes og sá eg þar búðartóftir margar og umbrot mikil. Og
kom eg á Þingskálaþing og sá eg þar ofan brotna búð vora alla eða hví sæta firn
slík?"
Mörður svarar: "Hér eru
tekin upp ný goðorð og fimmtardómslög og hafa menn sagt sig úr þingi frá mér og
í þing með Höskuldi."
Valgarður mælti: Illa hefir
þú launað mér goðorðið er eg fékk þér í hendur að fara svo ómannlega með. Vil
eg nú að þú launir þeim því að þeim dragi öllum til bana. En það er til þess að
þú rægir þá saman og drepi synir Njáls Höskuld. En þar eru margir til eftirmáls
um hann og munu þá Njálssynir af þeim sökum drepnir verða."
"Eigi mun eg það gert
geta," segir Mörður.
"Eg skal leggja ráðin
til," segir Valgarður. "Þú skalt bjóða Njálssonum heim og leysa þá út
með gjöfum. En svo fremi skalt þú rógið frammi hafa er orðin er vinátta með
yður mikil og þeir trúa þér eigi verr en sér. Máttu svo hefnast við Skarphéðin
þess er hann tók féið af þér eftir lát Gunnars. Munt þú svo fremi taka
höfðingskap er þessir eru allir dauðir."
Þessa ráðagerð festu þeir með
sér að sjá skyldi fram koma.
Mörður mælti: "Það vildi
eg faðir að þú tækir við trú. Þú ert
maður gamall."
"Eigi vil eg það," segir Valgarður,
"heldur vil eg að þú kastir trúnni og sjá hversu þá fari."
Mörður kvaðst það eigi gera mundu.
Valgarður braut krossa fyrir Merði og öll heilög
tákn. Litlu síðar tók Valgarður sótt og andaðist og var hann heygður.
108. kafli
Nokkuru síðar reið Mörður til
Bergþórshvols og fann þá Skarphéðinn. Hann sló á mikið fagurmæli við þá og
talaði hann dag allan og kveðst við þá margt vilja eiga. Skarphéðinn tók því
öllu vel en kvað hann ekki þess leitað hafa fyrr.
Svo gerðist að hann kom sér í
svo mikla vináttu við þá að hvorigum þótti ráð ráðið nema við aðra réðust um.
Njáli þótti ávallt illt er Mörður kom þangað og fór svo jafnan að hann amaðist
við.
Einu hverju sinni var það að
Mörður kom til Bergþórshvols.
Hann mælti til þeirra
Njálssona: "Veislu hefi eg þar stofnaða og ætla eg að drekka erfi eftir
föður minn. En til þeirrar veislu vil eg bjóða yður Njálssonum og Kára og því
heita að þér skuluð eigi gjafalaust í braut fara."
Þeir hétu að fara. Fer Mörður nú heim og
býr veisluna. Hann bauð þangað mörgum bóndum og var veisla sú fjölmenn. Koma
þangað Njálssynir og Kári. Mörður gaf Skarphéðni gullsylgju mikla en Kára
silfurbelti en Grími og Helga góðar gjafar.
Þeir koma heim og hrósa
gjöfum þessum og sýna Njáli.
Hann segir að þeir mundu
fullu keypt hafa "og hyggið að því að þér launið eigi því sem hann mundi
vilja."
109. kafli
Litlu síðar höfðu þeir
heimboð með sér, Höskuldur og Njálssynir, og buðu þeir fyrri Höskuldi.
Skarphéðinn átti hest brúnan, fjögurra vetra gamlan, bæði mikinn og sjálegan.
Hann var graður og hafði ekki verið fram leiddur. Þann hest gaf Skarphéðinn
Höskuldi og með hross tvö. Allir gáfu þeir Höskuldi gjafar og mæltu til vináttu.
Síðan bauð Höskuldur þeim
heim í Ossabæ. Hann hafði þar marga fyrirboðsmenn og mikið fjölmenni. Hann
hafði látið taka ofan skála sinn en hann átti útibúr þrjú og voru þau búin
mönnum að sofa í. Þeir koma þar allir er hann hafði boðið. Veislan fór allvel
fram. Og er menn skyldu heim fara valdi Höskuldur mönnum góðar gjafar og fór á
leið með Njálssonum. Sigfússynir fylgdu honum og fjölmennið allt. Mæltu hvorir
að engir skyldu í millum þeirra komast.
Nokkuru síðar kom Mörður í
Ossabæ og kallaði Höskuld til máls við sig. Þeir gengu á tal.
Mörður mælti: "Mikill verður mannamunur
með yður Njálssonum. Þú gafst þeim góðar gjafar en þeir gáfu þér gjafar með
miklu spotti."
"Hvað færir þú til þess?" segir
Höskuldur.
"Þeir gáfu þér hest er
þeir kölluðu vonfola og gerðu það til spotts við þig því að þeim þótti þú og
óreyndur. Eg kann og það að segja þér að þeir öfunda þig um goðorðið. Tók
Skarphéðinn því upp á þingi er þú komst eigi til þings á fimmtardómsstefnu.
Ætlar Skarphéðinn og aldrei laust að láta goðorðið."
"Eigi er það,"
segir Höskuldur, "eg tók við á leiðmóti í haust."
"Njáll hefir því valdið
þá," segir Mörður. "Þeir rufu og," segir Mörður, "sætt á
Lýtingi."
"Ekki ætla eg það þeim
að kenna," segir Höskuldur.
"Eigi munt þú mæla í
móti því." segir Mörður, "þá er þið Skarphéðinn fóruð austur að
Markarfljóti féll öx undan belti honum og hafði hann ætlað að drepa þig."
"Það var," segir
Höskuldur, "viðaröx hans og sá eg er hann lét undir belti sér. Og er hér
svo skjótt frá mér að segja," segir Höskuldur, "að þú segir aldrei
svo illt frá Njálssonum að eg muni því trúa. En þó að því sé að skipta og segir
þú það satt að annaðhvort sé að eg drepi þá eða þeir mig þá vil eg miklu heldur
þola dauða af þeim en eg geri þeim nokkuð mein. En þú ert maður að verri er þú
hefir þetta mælt."
Síðan fór Mörður heim.
Nokkuru síðar fer Mörður að finna Njálssonu. Hann
talar margt við þá bræður og Kára.
"Sagt er mér,"
segir Mörður, "að Höskuldur Hvítanesgoði hafi mælt að þú Skarphéðinn hafir
rofið sætt á Lýtingi. En eg varð þess vís að honum þótti þú hafa haft við sig
fjörráð er þið fóruð austur til Markarfljóts. En mér þykja þau ekki minni
fjörráð er hann bauð þér til veislu og skipaði þér í útibúr það er first var
húsum og var þar borinn að viður alla nóttina og ætlaði hann að brenna yður
inni. En það bar við að Högni Gunnarsson kom um nóttina. Og varð þá ekki af því
að þeir gengju að því að þeir hræddust hann. Síðan fylgdi hann þér á leið og
mikill flokkur manna. Þá ætlaði hann þér aðra atgöngu að veita og setti þá til
Grana Gunnarsson og Gunnar Lambason að vega að þér en þeim varð bilt og þorðu
þeir eigi á þig að ráða."
En er hann hafði þetta mælt
þá mæltu þeir fyrst í mót. En þar kom að þeir trúðu og gerðust þá í fáleikar af
þeirra hendi til Höskulds og mæltu nær ekki við hann hvar sem þeir fundust. En
Höskuldur gaf þeim lítið tillæti og fór svo fram um hríð.
Höskuldur fór austur til
Svínafells um haustið að heimboði og tók Flosi vel við honum. Hildigunnur var
þar og.
Flosi mælti til Höskulds:
"Það segir Hildigunnur mér að fáleikar séu miklir með yður Njálssonum og
þykir mér það illa. Og vil eg bjóða þér að þú ríðir eigi vestur og mun eg fá
þér bústað í Skaftafelli en eg mun senda Þorgeir bróður minn að búa í Ossabæ."
"Það munu þá sumir menn
mæla," segir Höskuldur, "að eg flýi þaðan fyrir hræðslu sakir og vil
eg það eigi."
"Þá er það líkara,"
segir Flosi, "að stórvandræði leiði af."
"Illa er það,"
segir Höskuldur, "því að heldur vildi eg vera ógildur en margir hlytu illt
af mér."
Höskuldur bjóst heim fám
nóttum síðar en Flosi gaf honum skarlatsskykkju og var hlaðbúin í skaut niður.
Reið Höskuldur heim í Ossabæ. Er nú
kyrrt um hríð.
Höskuldur var maður svo vinsæll að fáir voru hans
óvinir. En hin sama er óþykkt með þeim allan veturinn.
Njáll hafði tekið til fósturs son Kára er Þórður
hét. Hann hafði og fóstrað Þórhall son Ásgríms Elliða-Grímssonar. Þórhallur
var röskur maður og harðger í öllu. Hann hafði numið svo lög að Njáli að hann
var hinn þriðji mestur lögmaður á Íslandi.
Nú vorar snemma um vorið og
færðu menn snemma niður sæði sín.
110. kafli
Það var einn dag að Mörður
kom til Bergþórshvols. Þeir gengu þegar á tal, Njálssynir og Kári. Mörður rægir
Höskuld að vanda sínum og hefir nú enn margar nýjar sögur og eggjar einart
Skarphéðin og þá að drepa Höskuld og kvað hann mundu verða skjótara að bragði
ef þeir færu eigi þegar að honum.
"Gera skal þér kost á
þessu," segir Skarphéðinn, "ef þú vilt fara með oss og gera að
nokkuð."
"Það vil eg til
vinna," segir Mörður. Og bundu þeir það með fastmælum og skyldi hann þar
koma um kveldið.
Bergþóra spurði Njál:
"Hvað tala þeir úti?"
"Ekki er eg í ráðagerð
með þeim," segir Njáll. "Sjaldan var eg þá frá kvaddur er hin góðu
voru ráðin."
Skarphéðinn lagðist ekki
niður um kveldið og ekki bræður hans né Kári. Þessa nótt hina sömu kom Mörður
ofanverða. Tóku þeir þá vopn sín Njálssynir og Kári og riðu í braut.
Þeir fóru þar til er þeir
komu í Ossabæ og biðu þar hjá garði nokkurum. Veður var gott og sól upp komin.
111. kafli
Í þenna tíma vaknaði
Höskuldur Hvítanesgoði. Hann fór í klæði sín og tók yfir sig skikkjuna
Flosanaut. Hann tók kornkippu og sverð í aðra hönd og fer til gerðisins og sáir
niður korninu.
Þeir Skarphéðinn höfðu það
mælt með sér að þeir skyldu allir á honum vinna. Skarphéðinn spratt upp undan
garðinum. En er Höskuldur sá hann vildi hann undan snúa.
Þá hljóp Skarphéðinn að honum
og mælti: "Hirð eigi þú að hopa á hæl, Hvítanesgoðinn" og höggur til
hans og kom í höfuðið og féll Höskuldur á knéin.
Hann mælti þetta við er hann
féll: "Guð hjálpi mér en fyrirgefi yður."
Hljópu þeir þá að honum allir
og unnu á honum.
Eftir það mælti Mörður:
"Ráð kemur mér í hug."
"Hvert er það?"
segir Skarphéðinn.
"Það er eg mun fara heim
fyrst en síðan mun eg fara upp til Grjótár og segja þeim tíðindin og láta illa
yfir verkinu. En eg veit víst að Þorgerður mun biðja mig að eg lýsi víginu og
mun eg það gera því að þeim mega það mest málaspell verða. Eg mun og senda mann
í Ossabæ og vita hversu skjótt þau taki til ráða og mun sá spyrja þar tíðindin
og mun eg láta sem eg taki af þeim."
"Far þú svo með
víst," segir Skarphéðinn.
Þeir bræður fóru heim og
Kári. Og er þeir komu heim sögðu þeir Njáli tíðindin.
"Hörmuleg tíðindi eru
þetta," segir Njáll, "og er slíkt illt að vita því að það er satt að
segja að svo fellur mér þetta nær um trega að mér þætti betra að hafa látið tvo
sonu mína og lifði Höskuldur."
"Það er nokkur
vorkunn," segir Skarphéðinn. "Þú ert maður gamall og er von að þér
falli nær."
"Eigi er það síður en
elli," segir Njáll, "að eg veit gerr en þér hvað eftir mun
koma."
"Hvað mun eftir
koma?" segir Skarphéðinn.
"Dauði minn," segir
Njáll, "og konu minnar og allra sona minna."
"Hvað spáir þú fyrir
mér?" segir Kári.
"Erfitt mun þeim veita
að ganga í mót giftu þinni," segir Njáll, "því að þú munt þeim öllum
drjúgari verða."
Sjá einn hlutur var svo að
Njáli féll svo nær að hann mátti aldrei óklökkvandi um tala.
112. kafli
Hildigunnur vaknaði og fann
að Höskuldur var í brautu úr rúminu. Hún mælti: "Harðir hafa draumar verið
og eigi góðir og leitið þér að honum Höskuldi."
Þeir leituðu hans um bæinn og
fundu hann eigi. Þá hafði
Hildigunnur klædda sig. Fer hún þá og tveir menn með henni til gerðisins
og finna þar Höskuld veginn.
Þar kom þá og smalamaður
Marðar Valgarðssonar og segir henni að þeir Njálssynir hefðu farið neðan þaðan
"og kallaði Skarphéðinn á mig og lýsti víginu á hönd sér."
"Karlmannlegt verk væri
þetta," sagði Hildigunnur, "ef einn hefði að verið."
Hún tók skikkjuna og þerraði
með blóðið allt og vafði þar í innan blóðlifrarnar og braut svo saman og lagði
niður í kistu sína.
Nú sendir hún mann upp til
Grjótár að segja þangað tíðindin. Þar var Mörður fyrir og hafði sagt áður
tíðindin. Þar var og kominn Ketill úr Mörk.
Þorgerður mælti til Ketils:
"Nú er Höskuldur dauður sem við vitum. Og mun þú nú hverju þú hést þá er
þú tókst hann til fósturs."
"Það má vera,"
segir Ketill, "að eg hafi þá ærið mörgu heitið því að eg ætlaði ekki að
þessir dagar mundu verða sem nú eru orðnir. Enda er eg við vant um kominn því
að náið er nef augum þar sem eg á dóttur Njáls."
"Hvort vilt þú,"
segir Þorgerður, "að Mörður lýsi víginu?"
"Eigi veit eg það,"
segir Ketill, "því að fleirum þykir mér sem illt leiði af honum en
gott."
En þegar er Mörður talaði við
Ketil þá fór honum sem öðrum að svo þótti sem Mörður mundi honum vera trúr og
varð það ráð þeirra að Mörður skyldi lýsa víginu og búa mál að öllu til þings.
Fór Mörður þá ofan í Ossabæ.
Þangað komu níu búar þeir er næstir bjuggu vettvangi. Mörður hafði tíu menn með
sér. Hann sýnir búum sár Höskulds og nefnir votta að benjum og nefnir mann til
hvers sárs nema eins. Það lét hann eigi sem hann vissi hver því hefði sært en
því hafði hann sjálfur sært. En hann lýsti víginu á hendur Skarphéðni en sárum
á hendur bræðrum hans og Kára. Síðan kvaddi hann heiman vettvangsbúa níu til
alþingis. Eftir það reið hann heim.
Hann fann nær aldrei
Njálssonu en þó var styggt með þeim þá er þeir fundust og var það ráðagerð
þeirra.
Víg Höskulds spurðist um
allar sveitir og mæltist illa fyrir.
Þeir Njálssynir fóru að finna
Ásgrím Elliða-Grímsson og báðu hann liðveislu.
"Þess megið þér von
vita," segir hann, "að eg mun yður veita að öllum hinum stærrum
málum. En þó segir mér þungt hugur um málin því að margir eru til eftirmáls en
víg þetta mælist allilla fyrir um allar sveitir."
Nú fara Njálssynir heim.
113. kafli
Maður er nefndur Guðmundur
hinn ríki er bjó á Möðruvöllum í Eyjafirði. Hann var Eyjólfsson, Einarssonar,
Auðunarsonar rotins, Þórólfssonar smjörs, Þorsteinssonar skrofa, Grímssonar
kambans. Móðir Guðmundar hét Hallbera dóttir Þórodds hjálms en móðir Hallberu
hét Reginleif dóttir Sæmundar hins suðureyska. Við þann er kennd Sæmundarhlíð í
Skagafirði. Móðir Eyjólfs, föður Guðmundar, var Valgerður Runólfsdóttir. Móðir
Valgerðar hét Valborg. Hennar móðir var Jórunn hin óborna dóttir Ósvalds
konungs hins helga. Móðir Jórunnar var Bera dóttir Játmundar konungs hins
helga. Móðir Einars, föður Eyjólfs, var Helga dóttir Helga hins magra er nam
Eyjafjörð. Helgi var son Eyvindar Austmanns og Raförtu dóttur Kjarvals
Írakonungs. Móðir Helgu, dóttur Helga, var Þórunn Hyrna dóttir Ketils Flatnefs,
Bjarnarsonar bunu, Grímssonar hersis. Móðir Gríms var Hervör en móðir Hervarar
var Þorgerður dóttir Háleygs konungs af Hálogalandi.
Þorlaug hét kona Guðmundar
hins ríka, dóttir Atla hins ramma, Eilífssonar arnar, Bárðarsonar í Ál,
Ketilssonar refs, Skíðasonar hins gamla. Herdís hét móðir Þorlaugar, dóttir
Þórðar að Höfða Bjarnarsonar byrðusmjörs, Hróaldssonar hryggs, Bjarnarsonar
járnsíðu, Ragnarssonar Loðbrókar, Sigurðarsonar hrings, Randvéssonar,
Ráðbarðssonar. Móðir Herdísar, dóttur Þórðar, var Þorgerður Skíðadóttir. Hennar
móðir var Friðgerður dóttir Kjarvals Írakonungs.
Guðmundur var höfðingi
mikill. Hann var auðigur maður að fé. Hann hafði hundrað hjóna. Hann sat yfir
virðingu allra höfðingja fyrir norðan Öxnadalsheiði svo að sumir létu bústaði
sína en suma tók hann af lífi en sumir létu goðorð sín fyrir honum. Og er frá
honum komið allt hið mesta mannaval á landinu: Oddverjar og Sturlungar og
Hvammverjar og Fljótamenn og Ketill biskup og margir hinir bestu menn.
Guðmundur var vinur Ásgríms
Elliða-Grímssonar og ætlaði Ásgrímur þar til liðveislu.
114. kafli
Snorri hét maður er kallaður
var goði. Hann bjó að Helgafelli áður Guðrún Ósvífursdóttir keypti að honum
landið, og bjó hún þar til elli en Snorri fór þá til Hvammsfjarðar og bjó í
Sælingsdalstungu. Þorgrímur hét faðir Snorra og var son Þorsteins þorskabíts,
Þórólfssonar Mostrarskeggs, Örnólfssonar fiskreka. En Ari hinn fróði segir hann
vera son Þorgils reyðarsíðu. Þórólfur Mostrarskegg átti Ósku dóttur Þorsteins
hins rauða. Móðir Þorgríms hét Þóra dóttir Óleifs feilans, Þorsteinssonar hins
rauða, Óleifssonar hins hvíta, Ingjaldssonar Helgasonar, en móðir Ingjalds hét
Þóra dóttir Sigurðar orms í auga, Ragnarssonar loðbrókar. En móðir Snorra goða
var Þórdís Súrsdóttir, systir Gísla.
Snorri var vinur mikill
Ásgríms Elliða-Grímssonar og ætlaði hann þar til liðveislu.
Snorri var vitrastur maður á
Íslandi þeirra er eigi voru forspáir. Hann var góður vinum sínum en grimmur
óvinum.
Í þenna tíma var þingreið
mikil úr öllum landsfjórðungum og höfðu menn mörg mál til búin.
115. kafli
Flosi spyr víg Höskulds mágs
síns og fær honum það mikillar áhyggju og reiði og var hann þó vel stilltur.
Honum var sagður málatilbúnaður sá sem hafður hafði verið eftir víg Höskulds og
lét hann sér fátt um finnast. Hann sendi orð Halli af Síðu mági sínum og Ljóti
syni hans að þeir skyldu fjölmenna mjög til þings. Ljótur þótti best höfðingjaefni
austur þar. Honum var það fyrir spáð ef hann riði þrjú sumur til þings og kæmi
hann heill heim að þá mundi hann verða mestur höfðingi í ætt sinni og elstur.
Hann hafði þá riðið eitt sumar til þings en nú ætlaði hann annað. Flosi sendi
orð Kol Þorsteinssyni og Glúmi syni Hildis hins gamla, Geirleifi syni Önundar
töskubaks og Móðólfi Ketilssyni og riðu þeir allir til móts við Flosa. Hallur
hét og að fjölmenna mjög.
Flosi reið þar til er hann
kom í Kirkjubæ til Surts Ásbjarnarsonar. Þá sendi Flosi eftir Kolbeini
Egilssyni bróðursyni sínum og kom hann þar.
Þaðan reið hann til
Höfðabrekku. Þar bjó Þorgrímur skrauti son Þorkels hins fagra.
Flosi bað hann ríða til
alþingis með sér en hann játaði ferðinni og mælti til Flosa: "Oftar hefir
þú glaðari verið bóndi en nú og er þó nokkur vorkunn á þó að svo sé."
Flosi mælti: "Það hefir
nú víst að hendi borið er eg mundi gefa til mikla mína eigu að það hefði eigi
fram komið. Er illu korni til sáið enda mun illt af gróa."
Þaðan reið hann um
Arnarstakksheiði og á Sólheima um kveldið. Þar bjó Löðmundur Úlfsson. Hann var
vinur Flosa mikill. Flosi var þar um nóttina. En um morguninn reið Löðmundur
með honum í Dal og voru þar um nótt. Þar bjó Runólfur son Úlfs aurgoða.
Flosi mælti til Runólfs:
"Hér munum vér hafa sannar sögur um víg Höskulds Hvítanesgoða. Ert þú
maður sannorður og kominn nær frétt og mun eg því trúa öllu er þú segir mér frá
hvað til saka hefir orðið með þeim."
Runólfur mælti: "Ekki
þarf það orðum að fegra að hann hefir meir en saklaus veginn verið og er hann
öllum mönnum harmdauði. Þykir engum jafnmikið sem Njáli fóstra hans."
"Þá mun þeim verða illt
til liðveislumanna," segir Flosi.
"Svo mun það,"
segir Runólfur, "ef ekki dregur til."
"Hvað er nú að
gert?" segir Flosi.
"Nú eru kvaddir
búar," segir Runólfur, "og lýst víginu."
"Hver gerði það?"
segir Flosi.
"Mörður
Valgarðsson," segir Runólfur.
"Hve trútt mun
það?" segir Flosi.
"Skyldur er hann
mér," segir Runólfur, "en þó mun eg satt frá segja að fleiri hljóta
af honum illt en gott. Þess vil eg nú biðja þig Flosi að þú gefir ró reiði og
takir það upp að minnst vandræði hljótist af því að Njáll mun góð boð bjóða og
aðrir hinir bestu menn."
Flosi mælti: "Ríð þú þá
til þings Runólfur og skulu mikið þín orð mega við mig nema til verra dragi um
en vera skyldi."
Síðan hætta þeir talinu og
hét Runólfur ferðinni. Runólfur sendi orð Hafri hinum spaka frænda sínum. Hann
reið þegar þangað.
Flosi reið þaðan í Ossabæ.
116. kafli
Hildigunnur var úti og mælti:
"Nú skulu allir heimamenn mínir vera úti er Flosi ríður í garð en konur
skulu ræsta húsin og tjalda og búa Flosa öndvegi."
Síðan reið Flosi í túnið.
Hildigunnur sneri að honum og mælti: "Kom heill og sæll frændi og er fegið
orðið hjarta mitt tilkomu þinni."
"Hér skulum vér,"
segir Flosi, "eta dagverð og ríða síðan."
Þá voru bundnir hestar þeirra.
Flosi gekk inn í stofuna og settist niður og
kastaði í pallinn undan sér hásætinu og mælti: "Hvorki er eg konungur né
jarl og vil eg ekki láta gera hásæti undir mér og þarf ekki að spotta
mig."
Hildigunnur var nær stödd og mælti: "Það er
illa ef þér mislíkar því að þetta gerðum vér af heilum hug."
Flosi mælti: "Ef þú hefir heilan hug við mig
þá mun sjálft leyfa sig, mun og sjálft lasta sig ef illa er."
Hildigunnur hló að kaldahlátur þann og mælti:
"Ekki er enn mark að, nær munum við gangast verða áður en lýkur."
Hún settist niður hjá Flosa
og töluðu þau lengi hljótt.
Síðan voru borð tekin en
Flosi tók laugar og lið hans. Flosi hugði að handklæðinu og var það raufar
einar og numið til annars endans. Hann kastaði í bekkinn og vildi eigi þerra
sér á og reist af borðdúkinum og þerraði sér þar á og kastaði til manna sinna.
Síðan settist Flosi undir borð og bað menn sína eta.
Þá kom Hildigunnur í stofuna
og gekk fyrir Flosa og greiddi hárið frá augum sér og grét.
Flosi mælti: "Skapþungt
er þér nú frændkona er þú grætur en þó er það vel er þú grætur góðan
mann."
Hún tók þá til orða:
"Hvert eftirmæli skal eg nú af þér hafa eða liðveislu?"
Flosi mælti: "Sækja mun
eg mál þitt til fullra laga eða veita til þeirra sætta er góðir menn sjá að vér
séum vel sæmdir af í alla staði."
Hún mælti: "Hefna mundi
Höskuldur þín ef hann ætti eftir þig að mæla."
Flosi svaraði: "Eigi
skortir þig grimmleik og séð er hvað þú vilt."
Hildigunnur mælti:
"Minna hafði misgert Arnór Örnólfsson úr Fossárskógum við Þórð Freysgoða
föður þinn og vógu bræður þínir hann á Skaftafellsþingi, Kolbeinn og
Egill."
Hildigunnur gekk þá fram í
skálann og lauk upp kistu sína. Tók hún þá upp skikkjuna þá er Flosi hafði
gefið Höskuldi. Í þeirri skikkju hafði Höskuldur veginn verið og hafði hún þar
varðveitt í blóðið allt. Hún gekk þá innar í stofuna með skikkjuna. Hún gekk
þegjandi að Flosa. Þá var Flosi mettur og af borið af borðinu. Hildigunnur
lagði yfir Flosa skikkjuna. Dundi þá blóðið um hann allan.
Hún mælti þá: "Þessa
skikkju gafst þú, Flosi, Höskuldi og vil eg nú gefa þér aftur. Var hann í þessi
veginn. Skýt eg því til guðs og góðra manna að eg særi þig fyrir alla krafta
Krists þíns og fyrir manndóm og karlmennsku þína að þú hefnir þeirra allra sára
sem Höskuldur hafði á sér dauðum eða heit hvers manns níðingur ella."
Flosi kastaði af sér
skikkjunni og rak í fang henni og mælti: "Þú ert hið mesta forað og vildir
að vér tækjum það upp er öllum oss gegnir verst og eru köld kvenna ráð."
Flosa brá svo við að hann var
í andliti stundum rauður sem blóð en stundum fölur sem gras en stundum blár sem
hel.
Þeir Flosi fóru til hesta
sinna og riðu í braut. Hann reið til Holtsvaðs og bíður þar Sigfússona og
annarra vina sinna.
Ingjaldur bjó að Keldum, bróðir
Hróðnýjar móður Höskulds Njálssonar. Þau voru börn Höskulds hins hvíta
Ingjaldssonar hins sterka Geirfinnssonar hins rauða Sölvasonar Gunnsteinssonar
berserkjabana. Ingjaldur átti Þraslaugu dóttur Egils Þórðarsonar Freysgoða.
Móðir Egils var Þraslaug dóttir Þorsteins tittlings. Móðir Þraslaugar var Unnur
dóttir Eyvindar karfa, systir Móðólfs hins spaka.
Flosi sendi orð Ingjaldi að
hann kæmi til móts við hann. Ingjaldur fór þegar við hinn fimmtánda mann. Þeir
voru allir heimamenn hans. Ingjaldur var mikill maður og styrkur. Fálátur var
hann jafnan heima og hinn hraustasti karlmaður og fédrengur góður við vini
sína.
Flosi fagnaði Ingjaldi vel og
mælti til hans: "Mikill vandi er kominn að hendi oss og er nú vant úr að
ráða. Bið eg þig þess mágur að þú skiljist eigi við mitt mál fyrr en yfir lýkur
vandræði þessi."
Ingjaldur mælti: "Við
vant er eg um kominn fyrir tengdar sekir við Njál og sonu hans og annarra
stórra hluta er hér hvarfa í milli."
Flosi mælti: "Það ætlaði
eg þá er eg gifti þér bróðurdóttur mína að þú hétir mér því að veita mér að
hverju máli."
"Það er og líkast,"
segir Ingjaldur, "að eg geri svo en þó vil eg nú heim ríða fyrst og þaðan
til þings."
117. kafli
Sigfússynir spurðu að Flosi
var við Holtsvað og riðu þangað til móts við hann og var þar Ketill úr Mörk og
Lambi bróðir hans, Þorkell og Mörður og Sigmundur Sigfússynir. Þar var og Lambi
Sigurðarson og Gunnar Lambason og Grani Gunnarsson, Vébrandur Hámundarson.
Flosi stóð uppi í móti og fagnaði þeim öllum blíðlega.
Þeir gengu fram að ánni.
Flosi hafði af þeim sannar sögur og skilur þá hvergi á og Runólf í Dal.
Flosi mælti til Ketils úr
Mörk: "Þig kveð eg að þessu. Hversu harðsnúinn ert þú á þetta mál eða
aðrir Sigfússynir?"
Ketill mælti: "Það vildi
eg að sættir yrðu með oss. En þó hefi eg svarið eiða að skiljast eigi við þessi
mál fyrr en yfir lýkur með nokkuru móti og leggja líf á."
Flosi mælti: "Drengur
ert þú mikill og er slíkum mönnum allvel farið."
Þeir tóku báðir senn til orða
Grani Gunnarsson og Gunnar Lambason: "Sektir viljum vér að fram komi og
mannráð."
Flosi mælti: "Eigi er
ráðið að bæði sé að vér kjósum og deilum."
Grani mælti: "Það var
mér þá í hug er þeir drápu Þráinn á Markarfljóti en síðan Höskuld son hans að
eg mundi aldrei sættast við þá heilum sáttum því að eg vildi vera þar gjarna er
þeir væru allir drepnir."
Flosi mælti: "Setið
hefir þú svo nær að þú mættir hafa hefnt þessa ef þú hefðir haft til þrek og
karlmennsku. Þykir mér sem þess biðjir þú nú og margur annarra er mundir mikið
fé til gefa er stundir líða að þú hefðir eigi orðið við staddur. Sé eg það
gjörla þó að oss veitti það að vilja að vér dræpum Njál eða sonu hans, þá eru
þeir svo mikils háttar menn og stórættaðir að þar mun svo mikið eftirmál verða
að vér munum fyrir margs manns kné ganga verða og biðja oss liðs áður vér komum
oss í sætt og úr þessum vanda. Megið þér og svo til ætla að þeir munu margir
snauðir er áður eiga stórfé en sumir munu láta bæði féið og lífið."
Mörður Valgarðsson reið til
fundar við Flosa og kvaðst ríða vilja til þings með honum með öllu liði sínu.
Flosi tók því vel og hóf bónorð við hann að hann skyldi gifta Rannveigu dóttur
sína Starkaði er bjó að Stafafelli, bróðursyni Flosa. Gekk Flosa það til að
hann þóttist svo ráða undir sig trúnað hans og fjölmenni. Mörður tók vænlega á
og veik undir Gissur hinn hvíta og bað tala um á þingi. Mörður átti Þorkötlu
dóttur Gissurar hvíta. Þeir Mörður og Flosi riðu báðir saman til þings og
töluðu alla daga.
118. kafli
Njáll mælti til Skarphéðins:
"Hverja ráðagerð hafið þér nú fyrir yður bræður og Kári?"
Skarphéðinn mælti: "Lítt
rekjum vér drauma til flestra hluta. En þér til að segja þá munum vér ríða í
Tungu til Ásgríms Elliða-Grímssonar og þaðan til þings. En hvað ætlar þú um ferð
þína faðir?"
Njáll svaraði: "Ríða mun
eg til þings því að það er sómi minn að skiljast eigi við yðvart mál meðan eg
lifi. Væntir mig þess að margir verpi þar vel orðum á mig og njótið þér mín en
gjaldið hvergi."
Þar var Þórhallur Ásgrímsson
fóstri Njáls. Þeir Njálssynir hlógu að honum er hann var í kasti mórendu og
spurði hve lengi hann ætlaði að hafa það.
Þórhallur svaraði:
"Kastað skal eg því hafa þá er eg á að mæla eftir fóstra minn."
Njáll mælti: "Þá munt þú
best gefast er mest liggur við."
Þeir búast nú allir heiman
þaðan og voru nær þrír tigir manna og riðu þar til er þeir komu til Þjórsár. Þá
komu þeir eftir frændur Njáls, Þorleifur krákur og Þorgrímur hinn mikli. Þeir
voru synir Holta-Þóris og buðu lið sitt Njálssonum og atgöngu og þeir þágu það.
Ríða þá allir saman yfir Þjórsá og þar til er þeir komu á Laxárbakka og æja
þar. Þar kom til móts við þá Hjalti Skeggjason og tóku þeir Njáll tal með sér
og töluðu lengi hljótt.
Hjalti mælti: "Það mun
eg sýna jafnan að eg er ekki myrkur í skapi. Njáll hefir beðið mig liðveislu.
Hefi eg og í gengið og heitið honum mínu liðsinni. Hefir hann áður selt mér
laun og mörgum öðrum í heilræðum sínum."
Hjalti segir Njáli allt um
ferðir Flosa.
Þeir sendu Þórhall fyrir í
Tungu að segja Ásgrími að þeir mundu þangað um kveldið. Ásgrímur bjóst þegar
við og var úti er Njáll reið í tún. Njáll var í blárri kápu og hafði þófahött á
höfði og taparöxi í hendi. Ásgrímur tók Njál af hesti og bar hann inn og setti
hann í hásæti. Síðan gengu þeir inn allir Njálssynir og Kári. Ásgrímur gekk þá
út. Hjalti vildi snúa í braut og þótti þar of margt vera. Ásgrímur tók í
taumana og kvað hann eigi skyldu ná í braut að ríða og lét taka af hestum
þeirra og fylgdi Hjalta inn og setti hann hjá Njáli en þeir Þorleifur sátu á
annan bekk og menn þeirra.
Ásgrímur settist á stól fyrir
Njál og spurði: "Hversu segir þér hugur um mál vor?"
Njáll svarar: "Heldur
þunglega því að mig uggir að hér muni eigi gæfumenn í hlut eiga. En það vildi
eg vinur að þú sendir eftir öllum þingmönnum þínum og ríð til þings með
mér."
"Það hefi eg
ætlað," segir Ásgrímur, "og því mun eg heita þér með að úr yðrum
málum mun eg aldrei ganga meðan eg fæ nokkura menn að með mér."
En allir þökkuðu honum þeir
er inni voru og kváðu slíkt drengilega mælt.
Þar voru þeir um nóttina en um daginn eftir kom
þar allt lið Ásgríms. Síðan ríða þeir allir saman þar til er þeir koma á þing
upp og voru áður tjaldaðar búðir þeirra.
119. kafli
Flosi var þá kominn á þing og
skipaði alla búð sína. Runólfur skipaði Dalverjabúð en Mörður Rangæingabúð.
Hallur af Síðu var lengst kominn austan en nær ekki annarra manna. Hallur hafði
þó fjölmennt mjög úr sinni sveit og fór þegar í lið með Flosa og bað hann
sáttar og friðar. Hallur var vitur maður og góðgjarn. Flosi svaraði öllu vel og
tók þó lítið af. Hallur spurði hverjir honum hefðu liðsinni heitið.
Flosi nefndi til Mörð
Valgarðsson og kvaðst hafa beðið dóttur hans til handa Starkaði frænda sínum.
Hallur kvað góðan kost í
konunni en segir allt illt við Mörð að eiga "og munt þú það reyna áður
þessu þingi sé lokið."
Síðan hættu þeir talinu.
Það var einnhvern dag að þeir
Njáll og Ásgrímur töluðu lengi hljótt.
Þá spratt Ásgrímur upp og
mælti til Njálssona: "Ganga munum vér og leita oss vina að vér verðum eigi
bornir ofurliði því að þetta mál mun verða sótt með kappi."
Ásgrímur gekk þá út og næst
honum Helgi Njálsson, þá Kári Sölmundarson, þá Grímur Njálsson, þá Skarphéðinn,
þá Þórhallur Ásgrímsson, þá Þorgrímur hinn mikli, þá Þorleifur krákur. Þeir
gengu til búðar Gissurar hins hvíta og gengu inn í búðina. Gissur stóð upp í
móti þeim og bað þá sitja og drekka.
Ásgrímur svarar: "Eigi
veit þannig við og skal þetta ekki á mutur mæla. Hverrar liðveislu skal eg þar
von eiga er þú ert frændi?"
Gissur svaraði: "Það
mundi Jórunn systir mín ætla að eg mundi eigi undan skerast að veita þér. Skal
og svo vera nú og oftar að eitt skal ganga yfir okkur báða."
Ásgrímur þakkaði honum og
gekk í braut síðan.
Þá spurði Skarphéðinn:
"Hvert skal nú ganga?"
Ásgrímur svarar: "Til
búðar Ölfusinga."
Síðan gengu þeir þangað.
Ásgrímur spurði hvort Skafti Þóroddsson væri að búð. Honum var sagt að hann var
þar. Gengu þeir þá inn í búðina. Skafti sat á pallinum og fagnaði Ásgrími. Hann
tók því vel. Skafti bauð Ásgrími að sitja hjá sér.
Ásgrímur kveðst skamma dvöl
eiga mundu "en þó er við þig erindið."
"Lát heyra það,"
segir Skafti.
"Eg vil biðja þig
liðsinnis," segir Ásgrímur, "að þú veitir mér lið og mágum
mínum."
"Hitt hafði eg
ætlað," segir Skafti, "að ekki skyldu koma vændræði yður í híbýli
mín."
Ásgrímur svarar: "Illa
er slíkt mælt að verða mönnum þá síst að liði er mest liggur við."
"Hver er sá maður,"
segir Skafti, "er fjórir menn ganga fyrri, mikill maður og fölleitur,
ógæfusamlegur, harðlegur og tröllslegur?"
Hann svarar:
"Skarphéðinn heiti eg og hefir þú séð mig jafnan á þingi en vera mun eg
því vitrari en þú að eg þarf eigi að spyrja þig hvað þú heitir. Þú heitir
Skafti Þóroddsson en fyrr kallaðir þú þig burstakoll þá er þú hafðir drepið
Ketil úr Eldu. Gerðir þú þér þá koll og barst tjöru í höfuð þér. Síðan keyptir
þú að þrælum að rísta upp jarðarmen og skreiðst þú þar undir um nóttina. Síðan
fórst þú til Þórólfs Loftssonar á Eyrum og tók hann við þér og bar þig út í
mjölsekkjum sínum."
Eftir það gengu þeir Ásgrímur
út.
Skarphéðinn mælti:
"Hvert skulum vér nú ganga?"
"Til búðar Snorra
goða," segir Ásgrímur.
Síðan gengu þeir til búðar
Snorra. Þar var einn maður úti fyrir búðinni. Ásgrímur spurði hvort Snorri væri
í búð. Sá sagði að hann var þar. Ásgrímur gekk inn í búðina og þeir allir.
Snorri sat á palli. Ásgrímur gekk fyrir hann og kvaddi hann vel. Snorri tók
honum blíðlega og bað hann sitja.
Ásgrímur kveðst þar mundu
eiga skamma dvöl "en þó er við þig erindið."
Snorri bað hann segja það.
Ásgrímur mælti: "Eg
vildi að þú færir til dóma með mér og veittir mér lið því að þú ert vitur og
framkvæmdarmaður mikill."
"Þungt ganga oss nú
málaferlin," segir Snorri, "og draga sig margir mjög fram í mót oss
og erum vér því trauðir að taka vandræði manna í aðra fjórðunga."
"Vorkunn er það,"
segir Ásgrímur, "því að þú átt oss ekki varlaunað."
"Veit eg að þú ert góður
drengur," segir Snorri, "og vil eg því heita þér að eg skal hvergi í
mót þér vera og eigi veita lið óvinum þínum."
Ásgrímur þakkaði honum.
Snorri mælti: "Hver er
sá maður er fjórir ganga fyrri, fölleitur og skarpleitur og glottir við tönn og
hefir öxi reidda um öxl?"
"Héðinn heiti eg,"
segir hann, "en sumir menn kalla mig Skarphéðinn öllu nafni eða hvað vilt
þú fleira til mín tala?"
Snorri mælti: "Það að
mér þykir þú maður harðlegur og mikilfenglegur en þó get eg að þrotin sé nú þín
hin mesta gæfa og skammt get eg eftir þinnar ævi."
"Vel er það," segir
Skarphéðinn, "því að þá skuld eiga allir að gjalda. En þó er þér meiri
nauðsyn að hefna föður þíns en að spá mér slíkar spár."
"Margir hafa það mælt
áður," segir Snorri, "og mun eg ekki við slíku reiðast."
Eftir það gengu þeir út og
fengu þar enga liðveislu. Þaðan fóru þeir til búðar Skagfirðinga. Þá búð átti
Hafur hinn auðgi. Hann var son Þorkels Eiríkssonar úr Goðdölum,
Geirmundarsonar, Hróaldssonar, Eiríkssonar örðigskeggja er felldi Grjótgarð í
Sóknadal í Noregi. Móðir Hafurs hét Þórunn og var dóttir Ásbjarnar Myrkárskalla
Hross-Bjarnarsonar. Þeir Ásgrímur gengu inn í búðina. Hafur sat í miðri búðinni
og talaði við mann. Ásgrímur gekk að honum og heilsaði á hann. Hafur tók honum
vel og bauð honum að sitja.
Ásgrímur mælti: "Hins
vildi eg biðja þig að þú veittir mér lið og mágum mínum."
Hafur svaraði skjótt og
kvaðst ekki mundu taka undir vandræði þeirra "en þó vil eg spyrja hver sá
er hinn fölleiti er fjórir menn ganga fyrr og er svo illilegur sem genginn sé
út úr sjávarhömrum."
Skarphéðinn mælti: "Hirð
ekki þú það, mjólki þinn, hver eg er því að eg mun þora þar fram að ganga er þú
situr fyrir og mundi eg allóhræddur þó að slíkir sveinar væru á götu minni. Er
þér og skyldara að sækja Svanlaugu systur þína er Eydís járnsaxa og þau
Steðjakollur tóku í braut úr híbýlum þínum og þorðir þú ekki að að hafa."
Ásgrímur mælti: "Göngum
út. Ekki er hér von liðveislu."
Síðan gengu þeir til
Möðruvellingabúðar og spurðu hvort Guðmundur hinn ríki væri í búð en þeim var
sagt að hann var þar. Þeir gengu þá inn í búðina. Hásæti var í miðri búðinni og
sat þar Guðmundur ríki. Ásgrímur gekk fyrir Guðmund og kvaddi hann. Guðmundur
tók honum vel og bauð honum að sitja.
Ásgrímur mælti: "Eigi
vil eg sitja en biðja vil eg þig liðsinnis því að þú ert kappsamur og mikill
höfðingi."
Guðmundur mælti: "Ekki
skal eg í móti þér vera. En ef mér sýnist að veita þér lið þá munum við vel
mega tala um það síðar" og tók á öllu vel.
Ásgrímur þakkaði honum orð
sín.
Guðmundur mælti: "Maður
er sá einn í liði þínu er eg hefi horft á um hríð og líst mér ólíkur flestum
mönnum þeim er eg hefi séð."
"Hver er sá?" segir
Ásgrímur.
"Fjórir menn ganga fyrri
en hann," segir Guðmundur, "jarpur á hár og föllitaður, mikill vöxtum
og ernlegur og svo skjótlegur til karlmennsku að heldur vildi eg hans fylgi
hafa en tíu annarra. Og er þó maðurinn ógæfusamlegur."
Skarphéðinn mælti: "Veit
eg að þú þykist til mín mæla og er eigi einn veg farið ógæfu okkarri. Eg hefi
ámæli af vígi Höskulds Hvítanesgoða sem vorkunn er en þeir gerðu illmæli um þig
Þorkell hákur og Þórir Helgason og hefir þú af því hina mestu skapraun."
Gengu þeir þá út. Skarphéðinn
mælti þá. "Hvert skulum vér nú ganga?"
"Til
Ljósvetningabúðar," segir Ásgrímur.
Þá búð hafði tjaldað Þorkell
hákur. Hann var son Þorgeirs goða Tjörvasonar, Þorkelssonar langs, en móðir
Þorgeirs var Þórunn Þorsteinsdóttir, Sigmundarsonar, Gnúpa-Bárðarsonar. Móðir
Þorkels háks hét Guðríður. Hún var dóttir Þorkels hins svart úr Hleiðrargarði,
Þórissonar snepils, Ketilssonar brimils, Örnólfssonar, Björnólfssonar,
Grímssonar loðinkinna, Ketilssonar hængs, Hallbjarnarsonar hálftrölls. Þorkell
hákur hafði verið utan og framið sig í öðrum löndum. Hann hafði drepið
spellvirkja austur á Jamtaskógi. Síðan fór hann austur í Svíþjóð og fór til
lags með Sörkvi karli og herjuðu þeir í austurveg. En fyrir austan
Bálagarðssíðu átti Þorkell að sækja þeim vatn eitt kveld. Þá mætti hann
finngálkni og varðist því lengi en svo lauk með þeim að hann drap finngálknið.
Þaðan fór hann austur í Aðalsýslu. Þar vó hann að flugdreka. Síðan fór hann
aftur til Svíþjóðar og þaðan til Noregs og síðan út til Íslands. Og lét hann
gera þrekvirki þessi yfir lokhvílu sinni og á stóli fyrir hásæti sínu. Hann
barðist og á Ljósvetningaleið við Guðmund hinn ríka með bræðrum sínum og höfðu
Ljósvetningar sigur. Gerðu þeir síðan illmæli um Guðmund, Þórir Helgason og
Þorkell hákur. Þorkell mælti svo að sá væri engi á Íslandi að hann mundi eigi
ganga til einvígis við eða á hæl hopa fyrir. Var hann fyrir því kallaður
Þorkell hákur að hann eirði hvorki í orðum né verkum við hvern sem hann átti.
120. kafli
Ásgrímur Elliða-Grímsson og
þeir félagar gengu til búðar Þorkels háks.
Ásgrímur mælti þá til félaga
sinna: "Þessa búð á Þorkell hákur, kappi mikill, og væri oss mikið undir
að vér fengjum liðsinni hans. Skulum vér hér til gæta í alla staði því að hann
er einlyndur og skapvandur. Vil eg nú biðja þig Skarphéðinn að þú létir ekki
til þín taka um tal vort."
Skarphéðinn glotti við og var
svo búinn að hann var í blám kyrtli og í blárendum brókum og uppháva svarta
skúa á fótum. Hann hafði silfurbelti um sig og öxi þá í hendi er hann hafði
drepið Þráin með og hann kallaði Rimmugýgi og törgubuklara og silkihlað um
höfuð og greitt hárið aftur um eyrun. Hann var allra manna hermannlegastur og
kenndu því hann allir ósénn. Hann gekk sem honum var skipað og hvorki fyrr né
síðar.
Þeir gengu nú inn í búðina og
í innanverða. Þorkell sat á miðjum palli og menn hans alla vega út í frá honum.
Ásgrímur kvaddi hann. Þorkell tók því vel.
Ásgrímur mælti til hans:
"Til þess erum vér hingað komnir að biðja þig liðveislu að þú gangir til
dóma með oss."
Þorkell mælti: "Hvað
munduð þér þurfa minnar liðveislu við þar sem þér genguð til Guðmundar? Og
mundi hann heita yður liði sínu."
"Ekki fengum vér hans
liðsinni," segir Ásgrímur.
Þorkell mælti: "Þá þótti
Guðmundi óvinsælt vera málið og mun svo og vera því að slík verk hafa verst
verið unnin. Og veit eg hvað þér hefir til gengið hingað að fara að þú ætlaðir
að eg mundi vera óhlutvandari en Guðmundur og mundi eg vilja fylgja að röngu
máli."
Ásgrímur þagnaði þá og þótti
þungt fyrir.
Þorkell mælti: "Hver er
sá hinn mikli og hinn feiknlegi er fjórir menn ganga fyrri, fölleitur og
skarpleitur, ógæfusamlegur og illmannlegur?"
Skarphéðinn mælti: "Eg
heiti Skarphéðinn og er þér skuldlaust að velja mér hæðiyrði, saklausum manni.
Hefir mig aldrei það hent að eg hafi kúgað föður minn og barist við hann sem þú
gerðir við þinn föður. Hefir þú og lítt riðið til alþingis eða starfað í
þingdeildum og mun þér kringra að hafa ljósverk að búi þínu að Öxará í
fásinninu. Er þér og nær að stanga úr tönnum þér rassgarnarendann merarinnar er
þú ást áður en þú riðir til þings og sá smalamaður þinn og undraðist hann er þú
gerðir slíka fúlmennsku."
Þá spratt Þorkell upp af
mikilli reiði og þreif sax sitt og mælti: "Þetta sax fékk eg í Svíþjóðu og
drap eg til hinn mesta kappa en síðan vó eg margan mann með. Og þegar er eg næ
til þín skal eg reka það í gegnum þig og skalt þú það hafa fyrir fáryrði
þín."
Skarphéðinn stóð með reidda
öxina og glotti við og mælti: "Þessa öxi hafði eg í hendi þá er eg hljóp
tólf álna yfir Markarfljót og vó eg Þráin Sigfússon og stóðu þeir átta fyrir og
fékk engi þeirra fang á mér. Hefi eg og aldrei svo reitt vopn að manni að eigi
hafi við komið."
Síðan hratt hann þeim frá
bræðrum sínum og Kára mági sínum og óð fram að Þorkatli.
Skarphéðinn mælti þá:
"Ger þú nú annaðhvort Þorkell hákur að þú slíðra saxið og sest niður eða
eg keyri öxina í höfuð þér og klýf þig í herðar niður."
Þorkell slíðraði saxið og
sest niður þegar og hafði hvorki orðið á fyrir honum áður né síðan. Þeir
Ásgrímur gengu þá út.
Skarphéðinn mælti:
"Hvert skulum vér nú ganga?"
Ásgrímur svaraði: "Heim
til búðar vorrar."
"Þá förum vér bónleiðir
til búðar," segir Skarphéðinn.
Ásgrímur snérist við honum og
mælti: "Margstaðar hefir þú heldur verið orðhvass en hér er Þorkell átti í
hlut að, þykir mér þú það eitt hafa á hann lagið er maklegt er."
Gengu þeir þá heim til búðar
sinnar og sögðu Njáli frá öllu sem gerst.
Hann mælti: "Búið arki
að auðnu til hvers sem draga vill."
Guðmundur hinn ríki spurði nú
hversu farið hafði með þeim Skarphéðni og Þorkatli og mælti svo: "Kunnigt
mun yður vera hversu farið hefir með oss Ljósvetningum og hefi eg aldrei farið
jafnmikla skömm né sneypu fyrir þeim sem nú fór Þorkell fyrir Skarphéðni og er
þetta allvel orðið."
Síðan mælti Guðmundur til
Einars Þveræings bróður síns: "Þú skalt fara með öllu liði mínu og veita
Njálssonum þá er dómar fara út en ef þeir þurfa liðs annað sumar þá skal eg
sjálfur veita þeim lið."
Einar játaði þessu og lét
segja Ásgrími.
Ásgrímur mælti: "Ólíkur
er Guðmundur flestum mönnum að höfðingsskap."
Ásgrímur sagði síðan Njáli.
121. kafli
Annan dag eftir fundust þeir
Ásgrímur og Gissur hinn hvíti, Hjalti Skeggjason og Einar Þveræingur. Þar var
þá og Mörður Valgarðsson. Hann hafði þá látið af höndum sökina og selt í hendur
Sigfússonum.
Þá mælti Ásgrímur: "Þig
kveð eg að þessu fyrstan, Gissur hinn hvíti, og Hjalta og Einar, að eg vil
segja yður hvers efni í eru. Yður mun það kunnigt að Mörður hefir sótt málið.
En svo er við vaxið að Mörður hefir verið að vígi Höskulds og sært hann því
sári er engi var til nefndur. Sýnist mér sem það mál muni ónýtt vera fyrir laga
sakir."
"Þá viljum vér það fram
bera þegar," segir Hjalti.
Þórhallur Ásgrímsson mælti:
"Það er ekki ráð að eigi fari þetta leynt allt þar til er dómar fara
út."
"Hverju skiptir
það?" segir Hjalti.
Þórhallur svarar: "Ef
þeir vita nú það þegar að rangt hafi verið til búið málið þá mega þeir svo
bjarga sökinni að senda þegar mann heim af þingi og stefna heiman til þings en
kveðja búa á þingi og er þá rétt sótt málið."
"Vitur maður ert þú
Þórhallur," segja þeir, "og skal þín ráð hafa."
Eftir þetta gekk hver til
sinnar búðar.
Sigfússynir lýstu sökum að
Lögbergi og spurðu að þingfesti og heimilisfangi en föstunáttina skyldu fara út
dómar til sóknar. Er nú kyrrt þingið þar til. Margir menn leituðu um sættir með
þeim og var Flosi erfiður en aðrir þó miklu orðfleiri og þótti óvænlega horfa.
Nú kemur að því sem dómar
skyldu út fara föstukveldið. Gekk þá allur þingheimur til dóma. Flosi stóð sunnan
að Rangæingadómi og lið hans. Þar var með honum Hallur af Síðu og Runólfur úr
Dal son Úlfs aurgoða og aðrir þeir sem Flosa höfðu liði heitið. En norðan að
Rangæingadómi stóðu þeir Ásgrímur Elliða-Grímsson og Gissur hvíti, Hjalti
Skeggjason og Einar Þveræingur en Njálssynir voru heima við búð og Kári og
Þorleifur krákur og Þorgrímur hinn mikli. Þeir sátu allir með vopnum og var
þeirra flokkur óárennilegur.
Njáll hafði beðið dómendur að
ganga í dóminn. Sigfússynir sækja nú málið. Þeir nefndu votta og buðu
Njálssonum að hlýða til eiðspjalls síns. Síðan unnu þeir eið. Þá sögðu þeir
fram sök. Þá létu þeir bera lýsingarvætti. Þá buðu þeir búum í setu. Þá buðu
þeir til ruðningar um kviðinn.
Þá stóð upp Þórhallur
Ásgrímsson og nefndi votta og varði lýriti kviðburðinn og fann það til að sá
hafði lýst sökinni er sannir lagalestir voru á og sjálfur var útlagi.
"Til hvers mælir þú
þetta?" segir Flosi.
Þórhallur svarar:
"Mörður Valgarðsson fór til vígs Höskulds með Njálssonum og særði hann því
sári er engi maður var til nefndur þá er vottar voru nefndir að benjum. Megið
þér eigi í móti mæla að ónýtt er málið."
122. kafli
Njáll stóð þá upp og mælti:
"Þess bið eg Hall af Síðu og Flosa og alla Sigfússonu og alla vora menn að
þér gangið eigi í braut og heyrið mál mitt."
Þeir gerðu svo.
"Hann mælti þá:
"Svo sýnist mér sem mál þetta sé komið í ónýtt efni og er það að líkindum
því að af illum rótum hefir upp runnið. Vil eg yður það kunnigt gera að eg unni
meira Höskuldi en sonum mínum og þá er eg spurði að hann var veginn þótti mér
slökkt hið sætasta ljós augna minn og heldur vildi eg misst hafa allra sona
minna, og lifði hann. Nú bið eg þess Hall af Síðu og Runólf úr Dal, Gissur
hvíta og Einar Þveræing og Hafur hinn spaka að eg nái að sættast á víg þetta
fyrir hönd sona minna og vil eg að geri um þeir er best eru til fallnir."
Þeir Gissur og Einar og Hafur
töluðu langt erindi sínu sinni hver þeirra og báðu Flosa sættast og hétu honum
sinni vináttu í mót. Flosi svaraði þá öllu vel og hét þó eigi.
Hallur af Síðu mælti þá til
Flosa: "Vilt þú nú efna orð þín og veita mér bæn mína er þú hést að veita
mér þá er eg kom utan Þorgrími syni Digur-Ketils frænda þínum þá er hann hafði
vegið Halla hinn rauða?"
Flosi mælti: "Veita vil
eg þér mágur því að þú munt þess eins biðja að mín sæmd sé þá meiri en
áður."
Hallur mælti: "Þá vil eg
að þú sættist skjótt og látir góða menn gera um og kaupir þú þér svo vináttu
hinna bestu manna."
Flosi mælti: "Það vil eg
yður kunnigt gera að eg vil gera fyrir orð Halls mágs míns og annarra hinna
bestu drengja að hér geri um sex menn af hvorra hendi löglega til nefndir.
Þykir mér Njáll maklegur vera að eg unni honum þessa."
Njáll þakkaði honum og þeim
öllum og aðrir þeir er hjá voru og kváðu Flosa vel fara.
Flosi mælti: "Nú vil eg
nefna mína gerðarmenn. Nefni eg fyrstan Hall mág minn og Össur frá Breiðá, Surt
Ásbjarnarson úr Kirkjubæ, Móðólf Ketilsson" - hann bjó þá í Ásum -
"Hafur hinn spaka og Runólf úr Dal og mun það einmælt að þessir séu best
til fallnir af öllum mínum mönnum."
Bað hann nú Njál nefna sína
gerðarmenn.
Njáll stóð þá upp og mælti:
"Til þess nefni eg fyrstan Ásgrím Elliða-Grímsson og Hjalta Skeggjason,
Gissur hvíta og Einar Þveræing, Snorra goða og Guðmund hinn ríka."
Síðan tókust þeir í hendur,
Njáll og Flosi og Sigfússynir, og handsalaði Njáll fyrir alla sonu sína og Kára
mág sinn það sem þessir tólf menn dæmdu. Og mátti svo að kveða að allur
þingheimur yrði þessu feginn. Voru þá sendir menn eftir Snorra og Guðmundi því
að þeir voru í búðum sínum. Var þá mælt að dómendur skyldu sitja í lögréttu en
allir aðrir gengju í braut.
123. kafli
Snorri goði mælti svo:
"Nú erum vér hér tólf dómendur er málum þessum er til skotið. Vil eg nú
biðja yður alla að vér höfum enga trega í málum þessum svo að þeir megi eigi
sáttir verða."
Guðmundur mælti: "Viljið
þér nokkuð héraðssektir gera eða utanferðir?"
"Engar," segir
Snorri, "því að það hefir oft eigi efnst og hafa menn fyrir það drepnir
verið og orðið ósáttir. En gera vil eg fésætt svo mikla að engi maður hafi
dýrri verið hér á landi en Höskuldur."
Hans orð mæltust vel fyrir.
Síðan töluðu þeir um og urðu eigi á sáttir hver fyrst skyldi upp kveða hversu
mikil fésekt vera skyldi. Og kom svo að þeir hlutuðu um og hlaut Snorri upp að
kveða.
Snorri mælti: "Ekki mun
eg lengur yfir þessu sitja. Mun eg nú segja yður hvað mitt ákvæði er, að eg vil
Höskuld bæta láta þrennum manngjöldum en það eru sex hundruð silfurs. Skuluð
þér nú að gera ef yður þykir of mikið eða of lítið."
Þeir svöruðu að þeir skyldu
hvergi að gera.
"Það skal og
fylgja," sagði hann, "að hér skal allt féið upp gjaldast á
þinginu."
Þá mælti Gissur hvíti:
"Þetta þykir mér varla vera mega því að þeir munu hér lítinn einn hlut
hafa að gjalda fyrir sig."
Guðmundur hinn ríki mælti:
"Eg veit hvað Snorri vill. Það vill hann að vér gefum til allir gerðarmenn
slíkt sem vor er drengskapur til og mun þar þá margur eftir gera."
Hallur af Síðu þakkaði honum
og kveðst gjarna vilja til gefa sem sá er mest gæfi. Játuðu því þá allir
gerðarmenn. Eftir það gengu þeir í braut og réðu það með sér að Hallur skyldi
segja upp gerðina að Lögbergi.
Eftir það var hringt og gengu
allir menn til Lögbergs.
Hallur af Síðu stóð upp og
mælti: "Mál þessi, er vér höfum gert um, höfum vér orðið vel á sáttir og
höfum gert sex hundruð silfurs. Skulum vér gjalda upp helminginn gerðarmenn og
skal hér allt upp gjaldast á þinginu. En það er bænarstaður minn til allrar
alþýðu að nokkurn hlut gefi til fyrir guðs sakir."
Því svöruðu allir vel. Nefndi
Hallur þá votta að gerðinni að hana skyldi engi rjúfa mega. Njáll þakkaði þeim
gerðina. Skarphéðinn stóð hjá og þagði og glotti við. Gengu menn þá frá
Lögbergi og til búða sinna.
En gerðarmenn báru saman í
bóndakirkjugarði fé það sem þeir höfðu heitið til að leggja. Njálssynir seldu
fram fé það er þeir höfðu og svo Kári og var það hundrað silfurs. Njáll tók þá
fé það er hann hafði og var það annað hundrað silfurs. Síðan var fé þetta borið
allt saman í Lögréttu og gáfu menn þá svo mikið til að engan pening vantaði á.
Njáll tók þá silkislæður og bóta og lagði á hrúguna ofan.
Síðan mælti Hallur til Njáls
að hann skyldi ganga eftir sonum sínum "en eg mun ganga eftir Flosa og
veiti nú hvorir öðrum tryggðir."
Njáll gekk þá heim til búðar
sinnar og mælti til sona sinna: "Nú er málum vorum komið í gott efni. Vér
erum nú menn sáttir en fé allt komið í einn stað. Skulu nú hvorirtveggju ganga
til og veita öðrum grið og tryggðir. Vil eg þess nú biðja yður sonu mína að þér
spillið í engu um."
Skarphéðinn strauk um ennið
og glotti við. Ganga þeir nú allir til Lögréttu.
Hallur gekk til móts við
Flosa og mælti: "Gakk þú nú til Lögréttu því að nú er féið allt vel af
hendi goldið og saman komið í einn stað."
Flosi bað þá Sigfússonu ganga
til með sér. Gengu þeir þá út allir. Þeir gengu austan að Lögréttu. Njáll gekk
vestan að Lögréttu og synir hans. Skarphéðinn gekk á meðalpallinn og stóð þar.
Flosi gekk í Lögréttu að
hyggja að fénu og mælti: "Þetta fé er bæði mikið og gott og vel af höndum
greitt sem von er að."
Síðan tók hann upp slæðurnar
og spurði hver þær mundi hafa til gefið en engi svaraði honum. Í annað sinn
veifði hann slæðunum og spurði hver til mundi hafa gefið og hló að og svaraði
honum engi."
Flosi mælti þá: "Hvort
er að engi yðvar veit hver þenna búning hefir átt eða þorið þér eigi að segja
mér?"
Skarphéðinn mælti: "Hvað
ætlar þú hver til hafi gefið?"
Flosi mælti: "Ef þú vilt
það vita þá mun eg það segja þér hvað eg ætla. Það ætla eg að til hafi gefið
faðir þinn, karl hinn skegglausi, því að margir vita eigi er hann sjá hvort
hann er heldur kona eða karlmaður."
Skarphéðinn mælti:
"Slíkt er illa mælt að sneiða honum afgömlum er engi hefir áður til orðið
dugandi maður. Megið þér og það vita að hann er karlmaður því að hann hefir
sonu átt við konu sinni. Hafa fáir vorir frændur legið óbættir hjá garði vorum
svo að vér höfum eigi hefnt."
Síðan tók Skarphéðinn til sín
slæðurnar en kastaði brókum blám til Flosa og kvað hann þeirra meir
þurfa."
Flosi mælti: "Hví mun eg
þeirra meir þurfa?"
Skarphéðinn svarar: "Því
þá ef þú ert brúður Svínfellsáss sem sagt er hverja hina níundu nótt og geri
hann þig að konu."
Flosi hratt þá fénu og kveðst
þá engan pening hafa skyldu af, kvað þá vera skyldu annaðhvort að Höskuldur
skyldi vera ógildur ella skildu þeir hefna hans.
Vildi þá Flosi engi grið
selja og engi taka og mælti til Sigfússona: "Göngum vér nú heim. Eitt skal
yfir oss líða alla."
Síðan gengu þeir heim til
búðar.
Hallur mælti: "Helsti
miklir ógæfumenn eiga hér í hlut að."
Þeir Njáll og synir hans
gengu heim til búðar.
Njáll mælti: "Nú kemur
það fram sem mér sagði löngu hugur um að oss mundu þungt falla þessi mál."
"Eigi er það,"
segir Skarphéðinn, "því að þeir mega aldrei sækja oss að landslögum."
"Þá mun það fram
koma," segir Njáll, "er öllum mun verst gegna."
Þeir menn töluðu um er gefið
höfðu féið að þeir mundu í braut taka.
Guðmundur hinn ríki mælti þá:
"Þá skömm kýs eg mér eigi til handa að taka það aftur er eg gef hvorki hér
né annars staðar."
"Vel er þetta
mælt," sögðu þeir.
Vildi þá og engi í braut
taka.
Snorri goði mælti: "Það
er mitt ráð að Gissur hinn hvíti og Hjalti Skeggjason varðveiti fé þetta til
annars alþingis. Segir mér svo hugur um að eigi muni langt líða áður til muni
þurfa að taka þessa fjár."
Hjalti tók og varðveitti
helming fjárins en Gissur sumt. Gengu menn þá heim til búða sinna.
124. kafli
Flosi stefndi öllum sínum
mönnum upp í Almannagjá og gekk þangað sjálfur. Þá voru þar komnir allir hans
menn og voru það tíu tigir manna.
Flosi mælti til Sigfússona:
"Hversu veiti eg yður þess að málum að yður sé skapfelldlegast?"
Gunnar Lambason mælti:
"Ekki líkar oss fyrr en þeir bræður eru allir drepnir, Njálssynir."
Flosi mælti: "Því vil eg
heita Sigfússonum að skiljast eigi fyrr við þetta mál en aðrir hvorir hníga
fyrir öðrum. Vil eg og það vita hvort nokkur er sá hér að oss vilji eigi veita
að þessu máli."
En allir kváðust þeim veita
vilja.
Flosi mælti: "Gangi nú
allir til mín og sverji eiða að engi skerist úr þessu máli."
Gengu þá allir til Flosa og
sóru honum eiða.
Flosi mælti: "Vér skulum
og allir hafa handtak að því að sá skal hver hafa fyrirgert fé og fjörvi er úr
þessu máli gengur fyrr en yfir lýkur.
Þessir voru höfðingjar með
Flosa: Kolur son Þorsteins breiðmaga, bróðurson Halls af Síðu, Hróaldur
Össurarson frá Breiðá, Össur Önundarson töskubaks, Þorsteinn hinn fagri
Geirleifsson, Glúmur Hildisson hins gamla, Móðólfur Ketilsson, Þórir son Þórðar
illuga úr Mörtungu, frændur Flosa Kolbeinn og Egill, Ketill Sigfússon og Mörður
bróðir hans, Þorkell og Lambi, Grani Gunnarsson, Gunnar Lambason og Sigurður
bróðir hans, Ingjaldur frá Keldum, Hróar Hámundarson.
Flosi mælti til Sigfússona:
"Takið þér yður nú höfðingja þann er yður þykir best til fallinn því að
einhver mun fyrir þurfa að vera málinu."
Ketill úr Mörk svaraði:
"Ef undir oss bræður skal koma kjörið þá munum vér það skjótt kjósa að þú
sért fyrir. Heldur þar margt til þess. Þú ert maður ættstór og höfðingi mikill,
harðdrægur og vitur. Virðum vér og svo að þú setjist fyrir vora nauðsyn í
málið."
Flosi mælti: "Það er
líkast að eg játist undir þetta sem bæn yður stendur til. Mun eg nú og ákveða
hverja aðferð vér skulum hafa. Og er það mitt ráð að hver maður ríði heim af
þingi og sjái um bú sitt í sumar meðan töður manna eru undir. Eg mun og heim
ríða og vera heima í sumar. En drottinsdag, þann er átta vikur eru til vetrar,
þá mun eg láta syngja mér messu heima og ríða síðan vestur yfir Lómagnúpssand.
Hver vor skal hafa tvo hesta. Ekki mun eg lið auka úr því sem nú hefir til eiða
gengið því að vér höfum það ærið margt ef oss kemur það vel að haldi. Eg mun
ríða drottinsdaginn og svo nóttina með. En annan dag vikunnar mun eg kominn á
Þríhyrningshálsa fyrir miðjan aftan. Skuluð þér þá þar allir komnir er
eiðsvarar eruð við þetta mál. En ef nokkur er sá þá eigi þar kominn er í mál
þessi hefir gengið þá skal engu fyrir týna nema lífinu ef vér megum ráða."
Ketill mælti: "Hversu má
það saman fara að þú ríðir drottinsdag heiman en komir annan dag vikunnar á
Þríhyrningshálsa?"
Flosi mælti: "Eg mun
ríða upp úr Skaftártungu og fyrir norðan Eyjafjallajökul og ofan í Goðaland og
mun þetta endast ef eg ríð hvatlega. Mun eg nú og segja yður alla mína
fyrirætlan að þá er vér komum þar saman skulum vér ríða til Bergþórshvols með
öllu liðinu og sækja Njálssonu með eldi og járni og ganga eigi fyrr frá en þeir
eru allir dauðir. Skuluð þér þessi ráðagerð leyna því að líf vort allra liggur
við. Munum vér nú láta taka hesta vora og ríða heim.
Gengu þeir þá allir til búða
sinna.
Síðan lét Flosi söðla hesta
sína og biðu engra manna og ríða síðan heim. Flosi vildi eigi finna Hall mág
sinn því að hann þóttist vita að Hallur mundi letja allra stórvirkja.
Njáll reið heim af þingi og
synir hans og voru þeir heima allir um sumarið. Njáll spurði Kára mág sinn
hvort hann mundi nokkuð ríða austur til Dyrhólma til bús síns.
Kári svaraði: "Ekki skal
eg austur ríða því að eitt skal ganga yfir mig og sonu þína."
Njáll þakkaði honum og kvað
slíks að honum von. Þar var jafnan nær þrem tigum vígra karla með húskörlum.
Það var einu hverju sinni að
Hróðný Höskuldsdóttir, móðir Höskulds Njálssonar, kom til Keldna. Ingjaldur
bróðir hennar fagnaði henni vel. Hún tók ekki kveðju hans en bað hann þó ganga
út með sér. Ingjaldur gerði svo að hann gekk út með henni og gengu úr garði
bæði saman. Síðan þreif hún til hans og settust þau niður bæði.
Hróðný mælti: "Hvort er
það satt að þú hefir svarið eið að fara að Njáli og drepa hann og sonu
hans?"
Hann svaraði: "Satt er
það."
"Allmikill níðingur ert
þú," segir hún, "þar sem Njáll hefir þrisvar leyst þig úr
skógi."
"Svo er nú þó
komið," segir Ingjaldur, "að líf mitt liggur við ef eg geri eigi
þetta."
"Eigi mun það,"
segir hún, "lifa munt þú allt að einu og heita góður maður ef þú svíkur
eigi þann er þú átt bestur að vera."
Hún tók þá línhúfu úr pússi
sínu alblóðga og raufótta og mælti: "Þessa húfu hafði Höskuldur Njálsson
og systurson þinn á höfði sér þá er þeir vógu hann. Þykir mér þér því verr fara
að veita þeim er þaðan standa að."
Ingjaldur svarar: "Svo
mun nú og fara að eg mun eigi vera í móti Njáli hvað sem á bak kemur. En þó
veit eg að þeir munu að mér snúa vandræðum."
Hróðný mælti: "Þá mátt
þú nú mikið lið veita Njáli og sonum hans ef þú segir honum þessa ráðagerð
alla."
"Það mun eg eigi
gera," segir Ingjaldur, "því að þá er eg hvers manns níðingur ef eg
segi það er þeir trúðu mér til. En það er karlmannlegt bragð að skiljast við
þetta mál þar sem eg veit vísrar hefndar von. En seg það Njáli og sonum hans að
þeir séu varir um sig þetta sumar allt því að það er þeim heilræði og hafi
margt manna."
Síðan fór hún til
Bergþórshvols og sagði Njáli þessa viðræðu alla.
Njáll þakkaði henni og kvað
hana vel hafa gert "því að honum mundi helst misgert í vera að fara að mér
allra manna."
Hún fór þá heim en Njáll
sagði þetta sonum sínum.
Kerling var sú að
Bergþórshvoli er Sæunn hét. Hún var fróð að mörgu og framsýn en þá var hún
gömul mjög og kölluðu Njálssynir hana gamalæra er hún mælti margt en þó gekk
það flest eftir. Það var einn dag að hún þreif lurk í hönd sér og gekk upp um
hús eftir og að arfasátu einni er þar stóð. Hún laust arfasátuna og bað hana
aldrei þrífst svo vesöl sem hún var. Skarphéðinn hló að og spurði hví hún
abbaðist upp á arfasátuna.
Kerlingin mælti: "Þessi
arfasáta mun vera tekin og kveiktur við eldur þá er Njáll bóndi er inni
brenndur og Bergþóra fóstra mín. Og berið þér hana á vatn," segir hún,
"eða brennið hana upp sem skjótast."
"Eigi munum vér það
gera," segir Skarphéðinn, "því að fást mun annað til eldkveikna ef
þess verður auðið þó að hún sé eigi."
Kerling klifaði allt sumarið
um arfasátuna að inn skyldi bera en þó fórst það fyrir ávallt.
125. kafli
Að Reykjum á Skeiðum bjó
Runólfur Þorsteinsson. Hildiglúmur
hét son hans. Hann gekk út drottinsdagsnótt þá er tólf vikur voru til vetrar. Hann
heyrði brest mikinn svo að honum þótti skjálfa bæði jörð og himinn. Síðan leit
hann í vesturáttina. Hann þóttist sjá þangað hring og eldslit á og í hringinum
mann á grám hesti. Hann bar skjótt yfir og fór hann hart. Hann hafði
logandi eldbrand í hendi. Hann reið svo nær honum að hann mátti gjörla sjá
hann. Hann var svartur sem bik. Hann kvað vísu þessa með mikilli raust:
Eg
ríð hesti
hélugbarða,
úrigtoppa,
ills valdanda.
Eldr er í endum,
eitr er í miðju.
Svo er um Flosa ráð
sem fari kefli
og svo er um Flosa ráð
sem fari kefli.
Þá þótti honum hann skjóta
brandinum austur til fjallanna fyrir sig og þótti honum hlaupa upp eldur mikill
í móti svo að hann þóttist ekki sjá til fjallanna fyrir. Honum sýndist sjá
maður ríða austur undir eldinn og hvarf þar. Síðan gekk hann inn og til rúms
síns og fékk langt óvit og rétti þó við úr því. Hann mundi allt það er fyrir
hann hafði borið og sagði föður sínum en hann bað hann segja Hjalta
Skeggjasyni. Hann fór og sagði Hjalta.
"Þú hefir séð
gandreið," segir Hjalti, "og er það jafnan fyrir stórtíðindum."
126. kafli
Flosi bjó sig austan þá er
tveir mánuðir voru til vetrar og stefndi til sín öllum sínum mönnum þeim er
honum höfðu liði og ferð heitið. Hver þeirra hafði tvo hesta og góð vopn. Þeir
komu allir til Svínafells og voru þar um nóttina. Flosi lét snemma veita sér
tíðir drottinsdaginn en síðan gekk hann til borðs. Hann sagði fyrir öllum
heimamönnum sínum hvað hvergi skyldi starfa meðan hann væri í brautu. Síðan
gekk hann til hesta sinna.
Þeir Flosi riðu vestur á
sand. Flosi bað þá fyrst ekki allákaft ríða og kvað þó hinn veg lúka mundu.
Hann bað alla bíða ef nokkur þyrfti að dveljast. Þeir riðu vestur til
Skógahverfis og komu í Kirkjubæ. Flosi bað alla menn koma til kirkju og biðjast
fyrir. Menn gerðu svo.
Síðan stigu þeir á hesta sína
og riðu upp á fjall og svo til Fiskivatna og riðu nokkuru fyrir vestan vötnin
og stefndu svo vestur á sandinn. Létu þeir þá Eyjafjallajökul á vinstri hönd
sér og svo ofan í Goðaland og svo til Markarfljóts og komu um nónskeið annan
dag vikunnar á Þríhyrningshálsa og biðu til miðs aftans.
Komu þar þá allir nema
Ingjaldur frá Keldum. Sigfússynir töldu á hann mjög en Flosi bað þá ekki ámæla
Ingjaldi meðan hann væri eigi hjá "en þó skulum vér gjalda honum
síðar."
127. kafli
Nú er þar til máls að taka að
Bergþórshvoli að þeir Grímur og Helgi fóru til Hóla, þar voru þeim fóstruð
börn, og sögðu það föður sínum að þeir mundu ekki heim um kveldið.
Þeir voru í Hólum allan daginn. Þar komu
konum fátækar og kváðust komnar að langt. Þeir bræður spurðu þær tíðinda. Þær
kváðust engi kunna tíðindi að segja "en segja kunnum vér nýlundu
nokkura."
Þeir spurðu hverja nýlundu
þær segðu og báðu þær eigi leyna. Þær sögðu svo vera skyldu.
"Vér komum að ofan úr
Fljótshlíð og sáum vér Sigfússonu alla ríða með alvæpni og stefnu þeir upp á
Þríhyrningshálsa og voru fimmtán í flokki. Vér sáum og Grana Gunnarsson og
Gunnar Lambason og voru þeir fimm saman. Þeir stefndu hina sömu leið. Og kalla
má að nú sé allt á för og á flaug um héraðið."
Helgi Njálsson mælti:
"Þá mun Flosi kominn austan og munu þeir allir komnir til móts við hann og
skulum við Grímur vera þar sem Skarphéðinn er."
Grímur kvað svo vera skyldu
og fóru þeir heim.
Þenna aftan hinn sama mælti
Bergþóra til hjóna sinna: "Nú skuluð þér kjósa yður mat í kveld að hver
hafi það er mest fýsir til því að þenna aftan mun eg bera síðast mat fyrir hjón
mín."
"Það skyldi eigi
vera," sögðu þeir er hjá voru.
"Það mun þó vera,"
segir hún, "og má eg miklu fleira af segja ef eg vil og mun það til merkja
að þeir Grímur og Helgi munu heim koma í kveld áður menn eru mettir. Og ef
þetta gengur eftir þá mun svo fara fleira sem eg segi."
Síðan bar hún mat á borð.
Njáll mælti: "Undarlega sýnist mér nú. Ég
þykist sjá um alla stofuna og þykir mér sem undan séu gaflveggirnir báðir en
blóð eitt allt borðið og maturinn."
Öllum fannst þá mikið um öðrum en Skarphéðni.
Hann bað menn ekki syrgja né láta öðrum herfilegum látum svo að menn mættu orð
á því gera "mun oss vandara gert en öðrum að vér berum oss vel og er það
jafnt að vonum."
Þeir Grímur og Helgi komu heim áður borð voru
ofan tekin og brá mönnum mjög við það. Njáll spurði hví þeir færu svo hverft en
þeir sögðu slíkt sem þeir höfðu frétt. Njáll bað engan mann til svefns
fara og vera vara um sig.
128. kafli
Nú er þar til að taka er
Flosi er.
Hann mælti: "Nú munum
vér ríða til Bergþórshvols og koma þar fyrir náttmál."
Þeir gera nú svo. Dalur var í
hvolinum og riðu þeir þangað og bundu þar hesta sína og dvöldust þar til þess
er mjög leið á kveldið.
Flosi mælti: "Nú skulum
vér ganga heim að bænum og ganga þröngt og fara seint og sjá hvað þeir taki til
ráðs."
Njáll stóð úti og synir hans
og Kári og allir heimamenn og skipuðust fyrir á hlaðinu og var það nær þrír
tigir manna.
Flosi nam staðar og mælti:
"Nú skulum vér að hyggja hvað þeir taka til ráðs því að mér líst svo ef
þeir standa úti fyrir sem vér munum þá aldrei sótta geta."
"Þá er vor för
ill," segir Grani Gunnarsson, "ef vér skulum eigi þora að að
sækja."
"Það skal og eigi
vera," segir Flosi, "og skulum vér að ganga þó að þeir standi úti. En
það afhroð munum vér gjalda að margur mun eigi kunna frá að segja hvorir
sigrast."
Njáll mælti til sinna manna:
"Hvað sjáið þér til hversu mikið lið þeir hafa?"
"Þeir hafa bæði mikið
lið og harðsnúið," segir Skarphéðinn, "en því nema þeir þó nú stað að
þeir ætla að þeim muni illa sækjast að vinna oss."
"Það mun ekki
vera," segir Njáll, "og vil eg að menn gangi inn því að illa sóttist
þeim Gunnar að Hlíðarenda og var hann einn fyrir. Eru hér hús rammleg sem þar
voru og munu þeir eigi sótt geta."
"Þetta er ekki þann veg
að skilja," segir Skarphéðinn. "Gunnar sóttu heim þeir höfðingjar er
svo voru vel að sér að heldur vildu frá hverfa en brenna hann inni. En þessir
munu þegar sækja oss með eldi er þeir mega eigi annan veg því að þeir munu allt
til vinna að yfir taki við oss. Munu þeir það ætla sem eigi er ólíklegt að það
sé þeirra bani ef oss dregur undan. Eg er og þess ófús að láta svæla mig inni
sem melrakka í greni."
Njáll mælti: "Nú mun sem
oftar að þér munuð bera mig ráðum, synir mínir, og virða mig engis. En þá er
þér voruð yngri gerðuð þér það eigi og fór yðvart ráð þá betur fram."
Helgi mælti: "Gerum vér sem faðir vor vill. Það
mun oss best gegna."
"Eigi veit eg það
víst," segir Skarphéðinn, "því að hann er nú feigur. En vel má eg
gera það til skaps föður míns að brenna inni með honum því að eg hræðist ekki
dauða minn."
Hann mælti þá við Kára:
"Fylgjumst vér vel mágur svo að engi vor skilji við annan."
"Það hefi eg
ætlað," segir Kári, "en ef annars verður auðið þá mun það verða fram
að koma og mun ekki mega við því gera."
"Hefn þú vor,"
segir Skarphéðinn, "en vér skulum þín ef vér lifum eftir."
Kári kvað svo vera skyldu.
Gengu þeir þá inn allir og skipuðust í dyrnar.
Flosi mælti: "Nú eru
þeir feigir er þeir hafa inn gengið. Skulum vér nú heim ganga sem skjótast og
skipast sem þykkvast fyrir dyrin og geyma þess að engi komist í braut hvorki
Kári né Njálssynir því að það er vor bani."
Þeir Flosi komu nú heim og
skipuðust umhverfis húsin ef nokkurar væru laundyr á. Flosi gekk framan að
húsunum og hans menn. Hróaldur Össurarson hljóp að þar sem Skarphéðinn var
fyrir og lagði til hans. Skarphéðinn hjó spjótið af skafti fyrir honum og hljóp
að honum og hjó til hans og kom öxin ofan í skjöldinn og bar að Hróaldi þegar
allan skjöldinn en hyrnan sú hin fremri tók andlitið og féll hann á bak aftur
og þegar dauður.
Kári mælti: "Lítt dró
enn undan við þig Skarphéðinn og ert þú vor fræknastur."
"Eigi veit eg það
víst," segir Skarphéðinn og brá við grönum og glotti að.
Þeir Kári og Grímur og Helgi
lögðu út mörgum spjótum og særðu marga menn en þeir Flosi gátu ekki að gert.
Flosi mælti: "Vér höfum
fengið mikinn skaða á mönnum vorum. Eru margir sárir en sá veginn er vér mundum
síst til kjósa. Nú er það séð að vér fáum þá aldrei með vopnum sótta. Er sá nú
margur er eigi gengur jafnskörulega að sem létu en þó eggjuðu mest. Mæli eg
þetta mest til Grana Gunnarssonar og Gunnars Lambasonar er sér létu verst eira.
En þó munum vér nú verða að gera annað ráð fyrir oss. Eru nú tveir kostir til
og er hvorgi góður. Sá annar að hverfa frá og er það vor bani, hinn annar að
bera að eld og brenna þá inni og er það stór ábyrgðarhlutur fyrir guði er vér
erum menn kristnir sjálfir. En þó munum vér það bragðs taka."
129. kafli
Þeir tóku nú eld og gerðu bál
mikið fyrir dyrunum.
Þá mælti Skarphéðinn:
"Eld kveikið þér nú sveinar eða hvort skal nú búa til seyðis?"
Grani Gunnarsson svaraði:
"Svo skal það vera og skalt þú eigi þurfa heitara að baka."
Skarphéðinn mælti: "Því
launar þú mér sem þú ert maður til er eg hefndi föður þíns og virðir það meira
er þér er óskyldara."
Þá báru konur sýru í eldinn
og slökktu niður fyrir þeim. Sumar báru vatn eða hland.
Kolur Þorsteinsson mælti til
Flosa: "Ráð kemur mér í hug. Eg hefi séð loft í skálanum á þvertrjám og
skulum vér þar inn bera eldinn og kveikja við arfasátu þá er hér stendur fyrir
ofan húsin."
Síðan tóku þeir arfasátuna og
báru þar inn eldinn. Fundu þeir eigi fyrr, er inni voru, en logaði ofan allur
skálinn. Gerðu þeir Flosi þá stór bál fyrir öllum dyrum. Tók þá kvennaliðið
illa að þola það er inni var.
Njáll mælti til þeirra:
"Verðið vel við og mælið eigi æðru því að él eitt mun vera og skyldi langt
til annars slíks. Trúið þér og því að guð er miskunnsamur og mun hann oss eigi
láta brenna bæði þessa heims og annars."
Slíkar fortölur hafði hann
fyrir þeim og aðrar hraustlegri.
Nú taka öll húsin að loga. Þá
gekk Njáll til dyra og mælti: "Hvort er Flosi svo nær að hann megi heyra
mál mitt?"
Flosi kvaðst heyra mega.
Njáll mælti: "Vilt þú
nokkuð taka sættum við sonu mína eða leyfa nokkurum mönnum útgöngu?"
Flosi svarar: "Eigi vil
eg taka sættum við sonu þína og skal nú yfir lúka með oss og eigi frá ganga
fyrr en þeir eru allir dauðir. En lofa vil eg útgöngu konum og börnum og
húskörlum."
Njáll gekk þá inn og mælti
við fólkið: "Út skulu þeir nú allir ganga er leyft er. Og gakk þú út
Þórhalla Ásgrímsdóttir og allur lýður með þér sá er lofað er."
Þórhalla mælti: "Annar
verður nú skilnaður okkar Helga en eg ætlaði um hríð en þó skal eg eggja föður
minn og bræður að þeir hefni þessa mannskaða er hér er ger."
Njáll mælti: "Vel mun
þér fara því að þú ert góð kona."
Síðan gekk hún út og margt
lið með henni.
Ástríður af Djúpárbakka mælti
við Helga Njálsson: "Gakk þú út með mér og mun eg kasta yfir þig
kvenskikkju og falda þig með höfuðdúki."
Hann taldist undan fyrst en
þó gerði hann þetta fyrir bæn þeirra. Ástríður vafði höfuðdúki að höfði Helga
en Þórhildur kona Skarphéðins lagði yfir hann skikkjuna og gekk hann út á meðal
þeirra. Og þá gekk út Þorgerður Njálsdóttir og Helga systir hennar og margt
annað fólk.
En er Helgi kom út þá mælti
Flosi: "Sú er há kona og mikil um herðar er þar fer. Takið og haldið
henni."
En er Helgi heyrði þetta
kastaði hann skikkjunni. Hann hafði haft sverð brugðið undir hendi sér og hjó
til manns og kom í skjöldinn og af sporðinn og fótinn af manninum. Þá kom Flosi
að og hjó á hálsinn Helga svo að þegar tók af höfuðið.
Flosi gekk þá að dyrum og
mælti að Njáll skyldi ganga til máls við hann og svo Bergþóra. Þau gerðu svo.
Flosi mælti: "Útgöngu vil eg bjóða þér Njáll
bóndi því að þú brennur ómaklegur inni."
Njáll mælti: "Eigi vil
eg út ganga því eg er maður gamall og er eg lítt til búinn að hefna sona minna
en eg vil eigi lifa við skömm."
Flosi mælti þá til Bergþóru:
"Gakk þú út húsfreyja því að eg vil þig fyrir engan mun inni brenna."
Bergþóra mælti: "Eg var
ung gefin Njáli og hefi eg því heitið honum að eitt skyldi ganga yfir okkur
bæði."
Síðan gengu þau inn bæði.
Bergþóra mælti: "Hvað
skulum við nú til ráða taka?"
"Ganga munum við til
hvílu okkarrar," segir Njáll, "og leggjast niður, hefi eg lengi
værugjarn verið."
Hún mælti þá við sveininn
Þórð Kárason: "Þig skal bera út og skalt þú eigi inni brenna."
"Hinu hefir þú mér
heitið amma," segir sveinninn, "að við skyldum aldrei skilja meðan eg
vildi hjá þér vera. En mér þykir miklu betra að deyja með ykkur Njáli en lifa
eftir."
Hún bar þá sveininn til
hvílunnar.
Njáll mælti við bryta sinn:
"Nú skalt þú sjá hvar við leggjumst niður og hversu eg bý um okkur því að
eg ætla héðan hvergi að hrærast hvort sem mér angrar reykur eða bruni. Mátt þú
nú nær geta hvar beina okkarra er að leita."
Hann sagði að svo skyldi
vera. Þar hafði slátrað verið uxa einum og lá þar húðin. Njáll mælti við
brytann að hann skyldi breiða yfir þau húðina og hann hét því. Þau leggjast nú
niður bæði í rúmið og leggja sveininn í millum sín. Þá signdu þau sig og
sveininn og fálu önd sína guði á hendi og mæltu það síðast svo að menn heyrðu.
Þá tók brytinn húðina og breiddi yfir þau og gekk út síðan. Ketill úr Mörk tók
í mót honum og kippti honum út. Hann spurði vandlega að Njáli mági sínum en
brytinn sagði allt hið sanna.
Ketill mælti: "Mikill
harmur er að oss kveðinn er vér skulum svo mikla ógæfu saman eiga."
Skarphéðinn hafði séð er
faðir hans hafði niður lagst og hversu hann hafði um sig búið.
Hann mælti þá: "Snemma
fer faðir vor í rekkju og er það sem von er. Hann er maður gamall."
Þá tóku þeir Skarphéðinn og
Kári og Grímur brandana jafnskjótt sem ofan duttu og skutu út á þá og gekk því
um hríð. Þá skutu þeir spjótum inn að þeim en þeir tóku öll á lofti og sendu út
aftur.
Flosi bað þá hætta að skjóta
"því að oss munu öll vopnaskipti þungt ganga við þá. Megið þér nú vel bíða
þess er eldurinn vinnur þá."
Þeir gera nú svo. Þá féllu
ofan stórviðirnir úr ræfrinu.
Skarphéðinn mælti þá:
"Nú mun faðir minn dauður vera og hefir hvorki heyrt til hans styn né
hósta."
Þeir gengu þá í skálaendann.
Þar var fallið ofan þvertréið og var brunnið mjög í miðju.
Kári mælti til Skarphéðins:
"Hlaup þú hér út og mun eg beina að mér þér en eg mun hlaupa þegar eftir
og munum við þá báðir í braut komast ef við breytum svo því að hingað leggur
allan reykinn."
Skarphéðinn mælti: "Þú
skalt hlaupa fyrri en eg mun þegar á hæla þér."
"Ekki er það ráð,"
segir Kári, "því að eg má vel komast annars staðar út þó að hér gangi
eigi."
"Eigi vil eg það,"
segir Skarphéðinn, "hlaup þú út fyrri en eg mun þegar eftir."
Kári mælti: "Það er
hverjum manni boðið að leita sér lífs meðan kostur er og skal eg og svo gera.
En þó mun nú sá skilnaður með okkur verða að við munum aldrei sjást síðan því
að ef eg hleyp út úr eldinum þá mun eg eigi hafa skap til að hlaupa inn aftur í
eldinn til þín og mun þá sína leið fara hvor okkar."
"Það hlægir mig,"
segir Skarphéðinn, "ef þú kemst í braut mágur að þú munt hefna vor."
Þá tók Kári einn setstokk
logandi í hönd sér og hleypur út eftir þvertrénu. Slöngvir hann þá stokkinum út
af þekjunni og féll hann ofan að þeim er úti voru fyrir. Þeir hljópu þá undan.
Þá loguðu klæðin öll á Kára og svo hárið. Hann steypir sér þá út af þekjunni og
stiklar svo með reykinum.
Þá mælti einn maður er þar
var næstur: "Hvort hljóp þar maður út af þekjunni?"
"Fjarri fór það,"
sagði annar, "og kastaði Skarphéðinn þar eldistokki að oss."
Síðan grunuðu þeir það ekki.
Kári hljóp til þess er hann
kom að læk einum og kastaði sér í ofan og slökkti á sér eldinn. Þaðan hljóp
hann með reykinum í gróf nokkura og hvíldi sig og er það síðan kölluð Káragróf.
130. kafli
Nú er að segja frá Skarphéðni
að hann hleypur út á þvertréið þegar eftir Kára. En er hann kom þar er mest var
brunnið þvertréið þá brast niður undir honum. Skarphéðinn kom fótum undir sig
og réð þegar til í annað sinn og rennur upp vegginn. Þá reið að honum brúnásinn
og hrataði hann inn aftur.
Skarphéðinn mælti þá:
"Séð er nú hversu vera vill."
Gekk hann þá fram með
hliðvegginum.
Gunnar Lambason hljóp upp á
vegginn og sér Skarphéðinn. Hann mælti svo: "Hvort grætur þú nú Skarphéðinn?"
"Eigi er það,"
segir Skarphéðinn, "en hitt er satt að súrnar í augunum. En hvort er sem
mér sýnist, hlærð þú?"
"Svo er víst,"
segir Gunnar, "og hefi eg aldrei fyrr hlegið síðan þú vóst Þráin á
Markarfljóti."
Skarphéðinn mælti: "Þá
er þér hér nú minjagripurinn."
Tók hann þá jaxl úr pússi
sínum er hann hafði höggvið úr Þráni og kastaði til Gunnars og kom í augað svo
að þegar lá úti á kinninni. Féll Gunnar þá ofan af þekjunni.
Skarphéðinn gekk þá til Gríms
bróður síns. Héldust þeir þá í hendur og tróðu eldinn. En er þeir komu í miðjan
skálann þá féll Grímur dauður niður. Skarphéðinn gekk þá til enda hússins. Þá
varð brestur mikill. Reið þá ofan öll þekjan. Varð Skarphéðinn þá þar í millum
og gaflhlaðsins. Mátti hann þaðan hvergi hrærast.
Þeir Flosi voru við eldana
þar til er morgnað var mjög. Þá kom þar maður einn ríðandi að þeim.
Flosi spurði þann að nafni en
hann nefndist Geirmundur og kveðst vera frændi Sigfússona "þér hafið mikið
stórvirki unnið," segir hann.
Flosi svarar: "Bæði munu
menn þetta kalla stórvirki og illvirki. En þó má nú ekki að hafa."
"Hversu margt hefir hér
fyrirmanna látist?" segir Geirmundur.
Flosi svarar: "Hér hefir
látist Njáll og Bergþóra og synir þeirra allir, Þórður Kárason og Kári
Sölmundarson, Þórður leysingi. En þá vitum vér ógjörla um fleiri menn þá er oss
eru ókunnari."
Geirmundur mælti:
"Dauðan segir þú þann nú er vér höfum hjalað við í morgun."
"Hver er sá?" segir
Flosi.
"Kára Sölmundarson
fundum við Bárður búi minn," segir Geirmundur, "og fékk Bárður honum
hest sinn og var brunnið af honum hárið og svo klæðin."
"Hafði hann nokkuð
vopna?" segir Flosi.
"Hafði hann sverðið
Fjörsváfni," segir Geirmundur, "og var blánaður annar eggteinninn og
sögðum við Bárður að dignað mundi hafa en hann svaraði því að hann skyldi herða
í blóði Sigfússona eða annarra brennumanna."
Flosi mælti: "Hvað sagði
hann til Skarphéðins?"
Geirmundur svarar: "Á
lífi sagði hann þá Grím báða þá er þeir skildu en þó kvað hann þá nú mundu
dauða."
Flosi mælti: "Sagt hefir
þú oss þá sögu er oss mun eigi setugrið bjóða því að sá maður hefir nú á braut
komist er næst gengur Gunnari að Hlíðarenda um alla hluti. Skuluð þér það nú og
hugsa Sigfússynir og aðrir vorir menn að svo mikið eftirmál mun hér verða um
brennu þessa að margan mun það gera höfuðlausan en sumir munu ganga frá öllu
fénu. Grunar mig nú það að engi yðvar Sigfússona þori að sitja í búi sínu og er
það rétt að vonum. Vil eg nú bjóða yður öllum austur til mín og láta eitt ganga
yfir oss alla."
Þeir þökkuðu honum boð sitt
og kváðust það þiggja mundu.
Þá kvað Móðólfur Ketilsson
vísu:
Stafr
lifir einn, þar er inni
unnfúrs viðir brunnu,
synir ollu því snjallir
Sigfúss, Níals húsa.
Nú er, Gollnis sonr, goldinn,
gekk eldr of sjöt rekka,
ljós brann hyr í húsum,
Höskulds bani hins röskva.
"Öðru nokkuru munum vér
hælast mega," segir Flosi, "en því er Njáll hefir inni brunnið því að
það er engi frami."
Flosi gekk þá upp á
gaflhlaðið og Glúmur Hildisson og nokkurir menn aðrir.
Þá mælti Glúmur: "Hvort
mun Skarphéðinn nú dauður?"
En aðrir sögðu hann fyrir
löngu dauðan mundu vera.
Þar gaus upp stundum eldurinn
en stundum slokknaði niður. Þeir heyrðu þá niðri í eldinum fyrir sér að kveðin
var vísa:
Mundit mellu kindar
miðjungs brúar Iðja
Gunnr um geira sennu
galdrs bráregni halda,
er hræstykkins hlakka
hraustr síns vinir mínu
tryggvi eg óð og eggjar
undgengin spjör dundu.
Grani Gunnarsson mælti: "Hvort mun
Skarphéðinn hafa kveðið vísu þessa lífs eða dauður?"
"Engum getum mun eg um það leiða," segir
Flosi.
"Leita viljum vér," segir Grani,
"Skarphéðins eða annarra manna þeirra sem hér hafa inni brunnið."
"Eigi skal það," segir Flosi, "og
eru slíkt heimskir menn sem þú ert þar sem menn munu safna liði um allt
héraðið. Mun sá allur einn er nú á dvalar og hinn er þá mun verða svo hræddur
að eigi mun vita hvert hlaupa skal og er það mitt ráð að vér ríðum allir í
braut sem skjótast."
Flosi gekk þá skyndilega til
hesta sinna og allir hans menn.
Flosi mælti til Geirmundar:
"Hvort mun Ingjaldur heim að Keldum?"
Geirmundur kveðst ætla að hann mundi heima vera.
"Þar er sá maður,"
segir Flosi, "er rofið hefir eiða við oss og allan trúnað."
Flosi mælti þá til
Sigfússona: "Hvern kost viljið þér nú gera Ingjaldi? Hvort viljið þér gefa
honum upp eða skulum vér nú fara að honum og drepa hann?"
Þeir svöruðu allir að þeir
vildu nú fara að honum og drepa hann.
Þá hljóp Flosi á hest sinn og
allir þeir og riðu í braut. Flosi reið fyrir og stefndi upp til Rangár og upp
með ánni. Þá sá hann mann ríða ofan öðrum megin árinnar. Hann kenndi að þar var
Ingjaldur frá Keldum. Flosi kallar á hann. Ingjaldur nam þá staðar og sneri við
fram að ánni.
Flosi mælti til hans:
"Þú hefir rofið eiða við oss og hefir þú fyrirgert fé og fjörvi. Eru hér
nú Sigfússynir og vilja gjarna drepa þig. En mér þykir þú við vant um kominn og
mun eg gefa þér líf ef þú vilt selja mér sjálfdæmi."
Ingjaldur svarar: "Fyrr
skal eg nú ríða til móts við Kára en selja þér sjálfdæmi. En eg vil því svara
Sigfússonum að eg skal eigi hræddari við þá en þeir eru við mig."
"Bíð þú þá," segir
Flosi, "ef þú ert eigi ragur því að eg skal senda þér sending."
"Bíða skal eg
víst," segir Ingjaldur.
Þorsteinn Kolbeinsson
bróðurson Flosa reið fram hjá honum og hafði spjót í hendi. Hann var röskvastur
maður með Flosa einhver og mest verður. Flosi þreif af honum spjótið og skaut
til Ingjalds og kom á hina vinstri hliðina og í gegnum skjöldinn fyrir neðan
mundriðann og klofnaði hann allur í sundur. En spjótið hljóp í fótinn fyrir
ofan knéskelina og svo í söðulfjölina og nam þar staðar.
Flosi mælti þá til Ingjalds:
"Hvort kom á þig?"
"Á mig kom víst,"
segir Ingjaldur, "og kalla eg þetta skeinu en ekki sár."
Ingjaldur kippti þá spjótinu
úr sárinu og mælti til Flosa: "Bíð þú nú ef þú ert eigi blauður."
Hann skaut þá spjótinu aftur
yfir ána. Flosi sér að spjótið stefnir á hann miðjan. Hopar hann þá hestinum
undan en spjótið fló fyrir framan brjóst Flosa og missti hans. Spjótið kom á
Þorstein miðjan og féll hann þegar dauður af hestinum. Ingjaldur hleypir nú í
skóginn og náðu þeir honum ekki.
Flosi mælti þá til sinna
manna: "Nú höfum vér fengið mikinn mannskaða. Megum vér nú og vita er
þetta hefir að borist hvert heillaleysi vér höfum. Er það nú mitt ráð að vér
ríðum á Þríhyrningshálsa. Megum vér þaðan sjá mannareiðir um allt héraðið því
að þeir munu nú hafa sem mestan liðssafnað og munu þeir ætla að vér höfum riðið
austur til Fljótshlíðar af Þríhyrningshálsum. Og munu þeir þá ætla að vér ríðum
austur á fjall og svo austur til héraða. Mun þangað eftir ríða eftir mestur
hluti liðsins en sumir munu ríða hið fremra austur til Seljalandsmúla og mun
þeim þó þykja þangað vor minni von. En eg mun nú gera ráð fyrir oss og er það
mitt ráð að vér ríðum upp í fjallið Þríhyrning og bíðum þar til þess er þrjár
sólir eru af himni."
Þeir gera nú svo að þeir ríða
upp í fjallið og í dal einn er síðan er kallaður Flosadalur. Sjá þeir nú þaðan
allra manna ferðir um héraðið.
131. kafli
Nú er að segja frá Kára að
hann fór úr gróf þeirri er hann hafði hvílt sig og þar til er hann mætti Bárði
og fóru svo orð með þeim sem Geirmundur hafði sagt. Reið Kári þaðan til Marðar
Valgarðssonar og sagði honum tíðindin. Hann harmaði mjög. Kári kvað þá annað
karlmannlegra en gráta þá dauða og bað hann heldur safna liði og koma öllu til
Holtsvaðs.
Síðan reið Kári í Þjórsárdal
til Hjalta Skeggjasonar. Og þá er hann kom upp með Þjórsá sér hann mann ríða
eftir sér hvatlega. Kári beið mannsins og kennir að þar var Ingjaldur frá
Keldum. Hann sér að hann var alblóðugur um lærið. Kári spurði Ingjald hver hann
hefði særðan en hann sagði.
"Hvar fundust þið?"
segir Kári.
"Við Rangá," segir
Ingjaldur, "og skaut hann yfir ána til mín."
"Gerðir þú nokkuð í
móti?" segir Kári.
"Aftur skaut eg
spjótinu," segir Ingjaldur, "og sögðu þeir að maður yrði fyrir og
væri sá þegar dauður."
"Vissir þú eigi,"
segir Kári, "hver fyrir varð?"
"Líkt þótti mér vera
Þorsteini bróðursyni Flosa," segir Ingjaldur.
"Njót þú heill
handa," segir Kári.
Síðan riðu þeir báðir saman
til móts við Hjalta Skeggjason og sögðu honum tíðindin.
Hann tók illa á verkum þessum
og kvað hina mestu nauðsyn að ríða eftir þeim og drepa þá alla. Síðan safnaði
hann liði og kveður upp almenning. Ríða þeir Kári nú við þetta lið til móts við
Mörð Valgarðsson og fundust þeir við Holtsvað. Var Mörður þar fyrir með allmiklu
liði. Þá skiptu þeir leitinni. Riðu sumir hið fremra austur til Seljalandsmúla
en sumir upp til Fljótshlíðar en sumir hið efra um Þríhyrningshálsa og svo ofan
í Goðaland. Þá riðu þeir norður allt til sands en sumir til Fiskivatna og hurfu
þar aftur. Sumir riðu austur í Holt hið fremra og sögðu Þorgeiri tíðindin og
spurðu þeir hann hvort þeir Flosi hefðu þar ekki um riðið.
Þorgeir mælti: "Þann veg
er þó að eg sé ekki mikill höfðingi þá mun Flosi þó annað ráð taka en ríða
fyrir augu mér þar sem hann hefir drepið Njál föðurbróðir minn og sonu hans
bræðrunga mína. Og er yður engi annar á ger en snúa aftur því að þér munuð hafa
leitað langt um skammt fram. En segið það Kára að hann ríði hingað til mín og
veri hér með mér ef hann vill. En þó að hann vilji eigi austur hingað þá mun eg
annast um bú hans að Dyrhólmum ef hann vill. Segið honum og það að eg mun veita
honum slíkt er eg má og ríða til alþingis með honum. Mun hann og vita það að
vér bræður erum aðilar um eftirmálið. Ætlum vér og svo að ganga málinu að
sektir skuli verða ef vér megum ráða og síðan mannhefndir. En eg fer af því
hvergi nú með yður að eg veit að ekki mun gera og munu þeir nú vera sem
varastir um sig."
Ríða þeir nú aftur og fundust
allir að Hofi og töluðu þar um með sér að þeir hefðu svívirðing af fengið er
þeir höfðu eigi fundið þá. Mörður kvað það ekki vera. Þá eggjuðu margir að fara
skyldi til Fljótshlíðar og taka upp bú þeirra allra er að þessum verkum höfðu
verið en þó var því vikið til atkvæða Marðar. Hann kvað það vera hið mesta óráð.
Þeir spurðu hví hann mælti það.
"Því," segir hann,
"ef bú þeirra standa þá munu þeir vitja þeirra og kvenna sinna og mun þá
þar mega veiða á, er stundir líða. Skuluð þér nú ekki efa yður að eg skal trúr
Kára í öllum ráðum því að eg á fyrir sjálfan mig að svara."
Hjalti bað hann svo gera sem
hann hét. Þá bauð Hjalti Kára til sín. Hann kvaðst þangað mundu fyrst ríða.
þeir sögðu og hvað Þorgeir hafði boðið honum en hann lést þess boðs síðar neyta
skyldu en kvað sér vel hug um segja ef slíkir væru margir. Dreifðu þeir þá öllu
liðinu.
Þeir Flosi sáu öll tíðindi
þar sem þeir voru í fjallinu.
Flosi mælti: "Nú skulum
vér taka hesta vora og ríða í braut því að nú mun oss það vel hlýða."
Þeir Sigfússynir spurðu hvort
þeim myndi duga að koma til búa sinna og segja fyrir.
"Það mun Mörður
ætla," segir Flosi, "að þér munuð vitja kvenna yðvarra og er það geta
mín að það sé ráð hans að standa skuli bú yður órænt. Og er það mitt ráð að
engi vor skiljist nú við annan og ríði allir austur með mér."
Tóku þeir það þá til ráðs
allir. Riðu þeir þá í braut og fyrir norðan jökul og svo uns þeir komu til
Svínafells. Flosi sendi þegar menn að draga að föng svo að engan hlut skyldi
skorta.
Flosi hældist aldrei um verk
þessi enda fann engi maður hræðslu á honum. Og var hann heima allan veturinn
fram um jól.
132. kafli
Kári bað Hjalta fara að leita
beina Njáls "því að því munu allir trúa er þú segir frá og þér
sýnist."
Hjalti kvaðst það gjarna gera
vilja að flytja bein Njáls til kirkju.
Síðan riðu þeir þaðan fimmtán
menn. Þeir riðu austur yfir Þjórsá og kvöddu þar upp menn með sér til þess er
þeir höfðu hundrað manna með nábúum Njáls. Þeir komu til Bergþórshvols að
hádegi dags.
Hjalti spurði Kára hvar Njáll
mundi undir liggja en Kári vísaði þeim til og var þar mikilli ösku af að moka.
Þar fundu þeir undir húðina og var sem hún væri skorpnuð við eld. Þeir tóku upp
húðina og voru þau bæði óbrunnin undir. Allir lofuðu guð fyrir það og þótti
stór jartegn í vera. Síðan var tekinn sveinninn er legið hafði í millum þeirra
og var af honum brunninn fingurinn einn er hann hafði rétt upp undan húðinni.
Njáll var út borinn og svo Bergþóra. Síðan gengu til allir menn að sjá líkami
þeirra.
Hjalti mælti: "Hversu
sýnast yður líkamir þessir?"
Þeir svöruðu: "Þinna
atkvæða viljum vér að bíða."
Hjalti mælti: "Ekki mun
mér um þetta einarðarfátt verða. Líkami Bergþóru þykir mér að líkindum og þó
vel. En líkami Njáls og ásjóna sýnist mér svo bjartur að eg hefi engis dauðs
manns líkama séð jafnbjartan."
Allir sögðu að svo var. Þá
leituðu þeir Skarphéðins. Þar vísuðu heimamenn til sem þeir Flosi heyrðu að
vísan var kveðin og var þar þekjan fallin að gaflinum og þar mælti Hjalti að
til skyldi grafa. Síðan gerðu þeir svo og fundu þar líkama Skarphéðins og hafði
hann staðið upp við gaflhlaðið og voru brunnir fætur af honum mjög svo neðan
til knjá en allt var annað óbrunnið á honum. Hann hafði bitið á kampinum. Augu
hans voru opin og óþrútin. Hann hafði rekið öxina í gaflhlaðið svo fast að
gengið hafði allt upp á miðjan fetann og var hún ekki af því dignuð. Síðan var
hann út borinn og öxin.
Hjalti tók upp öxina og
mælti: "Þetta er fágætt vopn og munu fáir bera mega."
Kári mælti: "Sé eg mann
til hver bera skal öxina."
"Hver er sá?" segir
Hjalti.
"Þorgeir
skorargeir," segir Kári, "sá er eg ætla nú mestan mann í þeirri ætt
vera."
Þá var Skarphéðinn færður af
klæðum því að þau voru ekki brunnin. Hann hafði lagið hendur sínar í kross og á
ofan hina hægri. Díla fundu þeir á honum í millum herðanna en annan á bringunni
og var hvortveggi brenndur í kross og ætluðu menn að hann mundi sig sjálfur
brennt hafa. Allir menn mæltu það að betra þætti hjá Skarphéðni dauðum en þeir
ætluðu því að engi maður hræddist hann.
Þeir leituðu Gríms og fundu
bein hans í miðjum skálanum. Þeir fundu þar gegnt honum undir hliðvegginum Þórð
leysingja en í vefjastofunni fundu þeir Sæunni kerlingu og þrjá menn aðra. Alls fundu þeir þar bein af ellefu mönnum.
Fluttu þeir nú líkin til kirkju.
Þá reið Hjalti heim og Kári
með honum.
Blástur kom í fótinn
Ingjaldi. Fór hann þá til Hjalta og græddi hann Ingjald og var hann þó jafnan
haltur síðan.
Kári reið í Tungu til Ásgríms
Elliða-Grímssonar. Þá var Þórhalla heim komin og hafði hún þá sagt áður
tíðindin. Ásgrímur tók við Kára báðum höndum og bað að hann skyldi vera þar öll
þau misseri. Kári kvað svo vera skyldu. Ásgrímur bauð því öllu liði til sín er
að Bergþórshvoli hafði verið.
Kári segir að það var vel
boðið "og skal þetta þiggja fyrir þeirra hönd."
Var þá flutt þangað allt
liðið.
Þórhalli Ásgrímssyni brá svo
við er honum var sagt að Njáll fóstri hans var dauður og hann hafði inni
brunnið að hann þrútnaði allur og blóðbogi stóð úr hvorritveggju hlustinni og
varð eigi stöðvað og féll hann í óvit og þá stöðvaðist.
Eftir það stóð hann upp og
kvað sér lítilmannlega verða "en það mundi eg vilja að eg hefndi þessa á
þeim nokkurum er hann brenndu inni er nú hefir mig hent."
En aðrir sögðu að engi mundi
honum þetta virða til skammar en hann kvaðst ekki taka mega af því hvað mælt
væri.
Ásgrímur spurði Kára hvers trausts hann mundi eiga
von af þeim fyrir austan ár. Kári segir að Mörður Valgarðsson og Hjalti
Skeggjason mundu veita honum slíkan styrk sem þeir mættu og Þorgeir skorargeir
og þeir allir bræður. Ásgrímur sagði það mikinn afla.
"Hvern styrk skulum vér
af þér hafa?" segir Kári.
"Allan þann sem eg má
veita," segir Ásgrímur, "og skal eg líf á leggja."
"Ger þú svo," segir
Kári.
Ásgrímur mælti: "Eg hefi
og komið Gissuri hvíta í málið og spurði eg hann að ráðum hversu með skyldi
fara."
"Það er vel," segir
Kári, "eða hvað lagði hann til?"
Ásgrímur svarar: "Það
lagði hann til að vér skyldum öllu kyrru fyrir halda til vors en ríða þá austur
og búa mál til á hendur Flosa um víg Helga og kveðja búa heiman og lýsa á þingi
brennumálum og kveðja þar hinu sömu búa í dóm. Eg spurði og Gissur hver sækja
skyldi vígsmálið en hann sagði að Mörður skyldi sækja hvort sem honum þætti
gott eða illt "skal hann því þungast af hafa að honum hafa öll málin verst
farið hér til. Kári skal og síreiður jafnan er hann finnur Mörð og mun hann
slíkt til draga og forsjá mín í annan stað," sagði Gissur."
Kári mælti þá: "Þínum
ráðum munum vér fram fara meðan þeirra er kostur og þú vilt fyrir vera."
Svo er að segja frá Kára að
hann mátti ekki sofa um nætur. Ásgrímur vaknaði eina nótt og heyrði að Kári
vakti.
Ásgrímur mælti: "Hvort
verður ekki svefnsamt á næturnar?"
Kári kvað þá vísu:
Kemrat, Ullr, um alla,
álmsíma, mér grímu,
beðhlíðar man eg beiði
bauga, svefn á augu,
síð brandviðir brenndu
böðvar nausts á hausti,
eg er að mínu meini
minnigr, Níal inni.
Engra manna gat Kári jafnoft
sem Njáls og Skarphéðins. Aldrei ámælti hann óvinum sínum og aldrei heitaðist
hann við þá.
133. kafli
Eina nótt bar svo til að
Svínafelli að Flosi lét illa í svefni. Glúmur Hildisson vakti hann og var lengi
áður en hann gæti vakið hann. Flosi mælti þá: "Kallið mér Ketil úr
Mörk."
Ketill kom þangað.
Flosi mælti: "Segja vil
eg þér draum minn."
"Það má vel," segir
Ketill.
"Mig dreymdi það,"
segir Flosi, "að eg þóttist staddur að Lómagnúpi og ganga út og sjá upp
til gnúpsins. Og opnaðist hann og gekk maður út úr gnúpinum og var í geithéðni
og hafði járnstaf í hendi. Hann fór kallandi og kallaði á menn mína, suma fyrr
en suma síðar, og nefndi þá á nafn. Hann kallaði fyrstan Grím hinn rauða frænda
minn og Árna Kolsson. Þá þótti mér undarlega við bregða. Mér þótti hann þá
kalla Eyjólf Bölverksson og Ljót son Halls af Síðu og nokkura sex menn. Þá
þagði hann stund nokkura. Síðan kallaði hann fimm menn af voru liði og voru þar
Sigfússynir, bræður þínir. Þá kallaði hann aðra fimm menn og var þar Lambi og
Móðólfur og Glúmur. Þá kallaði hann þrjá menn. Síðast kallaði hann Gunnar
Lambason og Kol Þorsteinsson. Eftir það gekk hann að mér. Eg spurði hann
tíðinda. Hann lést kunna að segja tíðindin. Þá spurði eg hann að nafni en hann
nefndist Járngrímur. Eg spurði hvert hann skyldi fara. Hann kvaðst fara skyldu
til alþingis. "Hvað skalt þú þar gera?" sagði eg. Hann svaraði:
"Fyrst skal eg ryðja kviðu en þá dóma en þá vígvöll fyrir vegöndum."
Síðan kvað hann þetta:
Höggorma
mun hefjast
herði-Þundr á landi.
Sjá munu menn á moldu
margar heila borgir.
Nú vex blárra brodda
beystisullr í fjöllum.
Koma mun sumra seggja
sveita dögg á leggi.
Hann laust niður stafnum og
varð brestur mikill. Gekk hann þá inn í fjallið en mér bauð ótta. Vil eg nú að
þú segir hvað þú ætlar draum minn vera."
"Það er hugboð
mitt," segir Ketill, "að þeir muni allir feigir er kallaðir voru.
Sýnist mér það ráð að þenna draum segjum við engum manni að svo búnu."
Flosi kvað svo vera skyldu.
Nú líður veturinn þar til er
lokið var jólum.
Flosi mælti þá til sinna
manna: "Nú ætla eg að vér skulum fara heiman því að mér þykir sem vér
munum eigi setugrið hafa mega. Skulum vér nú fara í liðsbón. Mun nú það sannast
sem eg sagði yður að vér mundum mörgum fyrir kné ganga verða áður en lokið er
þessum málum."
134. kafli
Síðan bjuggust þeir heiman
allir. Flosi var í leistabrókum því að hann ætlaði að ganga. Vissi hann að þá
mundi öðrum minna fyrir þykja að ganga. Þeir fóru heiman á Hnappavöll en annan
aftan til Breiðár en frá Breiðá til Kálfafells, þaðan í Bjarnanes í Hornafjörð,
þaðan til Stafafells í Lón en þá til Þvottár til Síðu-Halls. Flosi átti
Steinvöru dóttur hans. Hallur tók við þeim allvel.
Flosi mælti til Halls:
"Biðja vil eg þig mágur að þú ríðir til þings með mér með alla þingmenn
þína."
Hallur svaraði: "Nú er
svo orðið sem mælt er að skamma stund verður hönd höggi fegin. Og er sá nú allur
einn í þínu liði er nú hefur eigi höfuðs og hinn er þá eggjaði hins versta
verks er eigi var fram komið. En liðveislu mína er skylt að eg leggi til alla
slíka sem eg má."
Flosi mælti: "Hvað
leggur þú nú til ráðs með mér þar sem nú er komið?"
Hann svarar: "Fara skalt
þú allt norður til Vopnafjarðar og biðja alla höfðingja liðsinnis og munt þú þó
þurfa þeirra allra áður en þingi sé lokið."
Flosi dvaldist þar þrjár
nætur og hvíldi sig og fór þaðan austur til Geitahellna og svo til Berufjarðar.
Þar voru þeir um nótt. Þaðan fóru
þeir austur til Breiðdals í Heydali. Þar bjó Hallbjörn hinn sterki. Hann átti
Oddnýju, systur Sörla Brodd-Helgasonar, og hafði Flosi þar góðar viðtökur. Hallbjörn
spurði margs úr brennunni en Flosi sagði honum frá öllu gjörla. Hallbjörn
spurði hversu langt Flosi ætlaði norður í fjörðuna. Hann kvaðst fara
ætla til Vopnafjarðar. Flosi tók þá fésjóð af belti sér og kvaðst vildu gefa
Hallbirni.
Hann tók við fénu en kveðst
þó ekki gjafar eiga að Flosa "en þó vil eg vita hverju þú vilt að eg launi
þér."
"Ekki þarf eg
fjár," segir Flosi, "en það vildi eg að þú riðir til þings með mér og
veittir að málum mínum. En þó á eg hvorki að telja til við þig mægðir né
frændsemi."
Hallbjörn mælti: "Því
mun eg heita þér að ríða til þings með þér og veita þér að málum sem eg mundi
bróður mínum."
Flosi þakkaði honum.
Þaðan fóru þeir
Breiðdalsheiði og svo á Hrafnkelsstaði. Þar bjó Hrafnkell Þórisson,
Hrafnkelssonar, Hrafnssonar. Flosi hafði þar góðar viðtökur og leitaði hann
eftir um þingreið við Hrafnkel og liðveislu. Hrafnkell fór lengi undan en þó
kom þar að hann hét að Þórir son hans mundi ríða við alla þingmenn þeirra og
vera í slíkri liðveislu sem samþingisgoðar hans.
Flosi þakkaði honum og fór í
braut og á Bersastaði. Þar bjó Hólmsteinn Spak-Bersason og tók hann allvel við
Flosa. Flosi bað hann liðveislu. Hólmsteinn
kvað hann löngu hafa laun selt um liðveislu.
Þaðan fóru þeir á Valþjófsstaði. Þar bjó Sörli
Brodd-Helgason, bróðir Bjarna Brodd-Helgasonar. Hann átti Þórdísi dóttur
Guðmundar hins ríka á Möðruvöllum. Þeir höfðu það góðar viðtökur. En um
morguninn vakti Flosi til við Sörla að hann mundi ríða til Alþingis með honum
og bauð honum fé til.
"Eigi veit eg það,"
segir Sörli, "meðan eg veit eigi hvaðan Guðmundur hinn ríki stendur að,
mágur minn, því að eg ætla honum að veita hvaðan sem hann stendur að."
Flosi mælti: "Finn eg
það á svörum þínum að þú hefir kvonríki."
Flosi stóð þá upp og bað taka
klæði þeirra og vopn. Fóru þeir þá í braut og fengu þar enga liðveislu.
Þeir fóru fyrir neðan
Lagarfljót og yfir heiði til Njarðvíkur. Þar bjuggu bræður tveir, Þorkell
fullspakur og Þorvaldur. Þeir voru synir Ketils þryms Þiðrandasonar hins spaka,
Ketilssonar þryms, Þórissonar þiðranda. Móðir þeirra Þorkels fullspaks og
Þorvalds var Yngveldur Þorkelsdóttir fullspaks. Flosi hafði þar góðar viðtökur.
Hann sagði þeim bræðrum deili á um erindi sín og bað þá liðveislu en þeir
synjuðu áður en hann gaf þeim þrjár merkur silfurs hvorum þeirra til liðveislu.
Þá játuðu þeir að veita Flosa.
Yngveldur móðir þeirra var
hjá stödd er þeir hétu alþingisreiðinni og grét.
Þorkell mælti: "Hví
grætur þú móðir?"
Hún svarar: "Mig dreymdi
að Þorvaldur bróðir þinn væri í rauðum kyrtli og þótti mér svo þröngur vera sem
saumaður væri að honum. Mér þótti hann og vera í rauðum hosum undir og vafið að
vondum dreglum. Mér þótti illt á að sjá er eg vissi að honum var svo óhægt en
eg mátti ekki að gera."
Þeir hlógu að og kváðu vera
loklausu og sögðu geip hennar ekki skyldu standa fyrir þingreiðum sínum.
Flosi þakkaði þeim vel og fór
þaðan til Vopnafjarðar og komu til Hofs. Þar bjó þá Bjarni Brodd-Helgason
Þorgilssonar, Þorsteinssonar hins hvíta, Ölvissonar, Eyvaldssonar,
Öxna-Þórissonar. Móðir Bjarna var Halla Lýtingsdóttir. Móðir Brodd-Helga var
Ásvör dóttir Þóris Graut-Atlasonar, Þórissonar þiðranda. Bjarni Brodd-Helgason
átti Rannveigu Þorgeirsdóttur, Eiríkssonar úr Goðdölum, Geirmundarsonar,
Hróaldssonar, Eiríkssonar örðigskeggja.
Bjarni tók við Flosa báðum
höndum. Flosi bauð Bjarna fé til liðveislu.
Bjarni mælti: "Aldrei
hefi eg selt karlmennsku mína við fémútu eða liðveislu. En nú er þú þarft liðs
mun eg gera þér um vinveitt og ríða til þings með þér og veita þér sem eg mundi
bróður mínum."
"Þá snýrðu öllum vanda á
hendur mér," segir Flosi, "en þó var mér slíks að þér von."
Þaðan fóru þeir Flosi til
Krossavíkur. Þar bjó Þorkell Geitisson. Þorkell var vinur Flosa mikill áður.
Flosi sagði honum erindi sitt. Þorkell kvað það skylt vera að hann veitti honum
slíkt er hann væri til fær og skiljast eigi við hans mál. Þorkell gaf Flosa
góðar gjafar að skilnaði.
Þá fór Flosi norðan úr
Vopnafirði og upp í Fljótsdalshérað og gisti að Hólmsteins Spak-Bersasonar.
Flosi sagði honum að allir hefðu vel staðið undir hans nauðsyn og erindi nema
Sörli Brodd-Helgason. Hólmsteinn kvað það til þess bera að hann væri engi
ofstopamaður. Hólmsteinn gaf Flosa góðar gjafar. Flosi fór upp Fljótsdal og
þaðan suður á fjall um Öxarhraun og ofan Sviðinhornadal og út með Álftafirði
fyrir vestan og lauk Flosi eigi ferð fyrr en hann kom til Þvottár til Halls
mágs síns. Þar var Flosi hálfan mánuð og menn hans og hvíldu sig.
Flosi spurði Hall hvað hann
legði til ráðs með honum, hversu hann skyldi nú með fara eða breyta högum
sínum.
Hallur mælti: "Það ræð
eg að þú sért heima við bú þitt og Sigfússynir en þeir sendi menn til að skipa
til búa sinna en þér farið heim að sinni. En þá er þér ríðið til þings, ríðið
allir saman og dreifið ekki flokki yðrum. Fari þá Sigfússynir að hitta konur
sínar. Eg mun og ríða til þings og Ljótur sonur minn með alla þingmenn okkra og
veita þér slíkt lið sem eg má mér við koma."
Flosi þakkaði honum. Hallur
gaf honum góðar gjafar að skilnaði.
Flosi fór þá frá Þvottá og er
ekki um hans ferð að tala fyrr en hann kemur heim til Svínafells. Er hann þá
heima það er eftir var vetrarins og sumarið allt til þings framan.
135. kafli
Nú er þar til máls að taka að
Kári Sölmundarson og Þórhallur Ásgrímsson riðu einhvern dag til Mosfells að
finna Gissur hvíta. Hann tók við þeim báðum höndum og voru þeir þar mjög langa
hríð.
Það var einu hverju sinni þá
er þeir Gissur töluðu um brennu Njáls að Gissur kvað það allmikla giftu er Kári
hafði í braut komist.
Þá varð Kára vísa á munni:
Hjálmskassa
fór hvessir,
herðimeiðr, af reiði
út úr elris sveita
ófús Níals húsa
þá er eld-Gunnar inni
óðrunnar þar brunnu.
Menn nemi mál sem eg inni
mín, harmsakir tínum.
Þá mælti Gissur:
"Vorkunn er það er þér sé minnisamt og skulum við nú ekki um tala fleira
að sinni."
Kári sagði að hann ætlaði þá
heim að ríða.
Gissur mælti: "Eg mun nú
gera mér dælt um ráðagerð við þig. Þú skalt eigi heim ríða en þó skalt þú í
braut ríða og austur undir Eyjafjöll að finna Þorgeir skorargeir og Þorleif
krák. Þeir skulu ríða austan með þér því að þeir eru aðiljar sakanna. Með þeim
skal ríða Þorgrímur hinn mikli bróðir þeirra. Þér skuluð ríða til Marðar
Valgarðssonar. Skalt þú segja honum orð mín til að hann taki við vígsmáli eftir
Helga Njálsson á hendur Flosa. En ef hann mælir nokkuru orði í móti þessu þá
skalt þú gera þig sem reiðastan og lát sem þú munir hafa öxi í höfði honum. Þú
skalt og í annan stað segja á reiði mína ef hann lætur illa að komast. Þar með
skalt þú segja að eg mun láta sækja Þorkötlu dóttur mína og láta hana fara heim
til mín en það mun hann eigi þola því að hann ann henni sem augum í höfði
sér."
Kári þakkaði honum sína
ráðagerð. Ekki talaði Kári um liðveislu við hann því að hann ætlaði að það
mundi honum fara vinveittlega sem annað.
Kári reið þaðan austur yfir
ár og svo til Fljótshlíðar og austur yfir Markarfljót og svo til
Seljalandsmúla. Þeir ríða austur í Holt. Þorgeir tók við þeim með hinni mestu
blíðu. Hann sagði þeim um ferðir Flosa og hversu mikið lið hann hafði þegið í
Austfjörðum. Kári sagði að það var vorkunn að hann bæði sér liðs svo mörgu sem
hann mundi svara eiga.
Þorgeir mælti: "Því betur er þeim fer öllum
verr af."
Kári segir Þorgeiri tillögur
Gissurar.
Síðan riðu þeir austan á
Rangárvöllu til Marðar Valgarðssonar. Hann tók vel við þeim. Kári sagði honum
orðsending Gissurar mágs hans. Hann tók seinlega undir það og kvað meira að
sækja Flosa einn en tíu aðra.
Kári mælti: "Jafnt fer
þér þetta sem hann ætlaði því að þér eru allir hlutir illa gefnir. Þú ert bæði
hræddur og huglaus enda skal það á bak koma sem þér er maklegt að Þorkatla skal
fara heim til föður síns."
Hún bjóst þegar og kvaðst
þess fyrir löngu búin að skildi með þeim Merði. Mörður skipti þá skjótt skapi
sínu og svo orðum og bað af sér reiði og tók þegar við málinu.
Kári mælti þá: "Nú hefir
þú tekið við málinu og sæk nú óhræddur því að líf þitt liggur við."
Mörður kvaðst allan hug
skyldu á leggja að gera þetta vel og drengilega.
Eftir það stefndi Mörður til
sín níu búum. Þeir voru allir vettvangsbúar.
Mörður tók þá í hönd Þorgeiri
og nefndi votta tvo "í það vætti að Þorgeir Þórisson selur mér vígsök á
hendur Flosa Þórðarsyni að sækja um víg Helga Njálssonar með sóknargögnum þeim
öllum er sökinni eiga að fylgja. Selur þú mér sök þessa að sækja og að sættast
á, svo allra gagna að njóta sem eg sé réttur aðili. Selur þú með lögum en eg
tek með lögum."
Í annað sinn nefndi Mörður
sér votta "í það vætti," segir hann, "að eg lýsi lögmætu
frumhlaupi á hönd Flosa Þórðarsyni er hann veitti Helga Njálssyni heilundar sár
eða holundar eða mergundar það er að ben gerðist en Helgi fékk bana af. Lýsi eg
fyrir búum fimm" - og nefndi hann þá alla - "lýsi eg löglýsing. Lýsi
eg handseldri sök Þorgeirs Þórissonar."
Í öðru sinni nefndi hann
votta "í það vætti að eg lýsi heilundarsári eða holundar eða mergundar á
hönd Flosa Þórðarsyni, því sári er að ben gerðist en Helgi fékk bana af á þeim
vettvangi er Flosi Þórðarson hljóp til Helga Njálssonar lögmætu frumhlaupi
áður. Lýsi eg fyrir búum fimm" - síðan nefndi hann þá alla - "lýsi eg
löglýsing. Lýsi eg handseldri sök Þorgeirs Þórissonar."
Þá nefndi Mörður sér votta
hið þriðja sinn "í það vætti," segir hann, "að eg kveð
vettvangsbúa þá alla níu" - og nefndi þá alla á nafn -
"alþingisreiðar og búakviðar að bera um það hvort Flosi Þórðarson hljóp
lögmætu frumhlaupi til Helga Njálssonar á þeim vettvangi er Flosi Þórðarson
veitti Helga Njálssyni heilundarsár eða holundar eða mergundar það er að ben
gerðist en Helgi fékk bana af. Kveð eg yður þeirra orða allra er yður skylda
lög til um að bera og eg vil yður að dómi beitt hafa og þessu máli eiga að
fylgja. Kveð eg yður lögkvöð svo að þér heyrið á sjálfir. Kveð eg um handselt
mál Þorgeirs Þórissonar."
Mörður nefndi sér votta
"í það vætti," segir hann, "að eg kveð vettvangsbúa þessa níu
alþingisreiðar og búakviðar að bera um það hvort Flosi Þórðarson særði Helga
Njálsson heilundarsári eða mergundar eða holundar, því sári er að ben gerðist
en Helgi fékk bana af á þeim vettvangi er Flosi Þórðarson hljóp til Helga
Njálssonar áður lögmætu frumhlaupi. Kveð eg yður þeirra orða allra er yður
skylda lög til um að bera og eg vil yður að dómi beitt hafa og þessu máli eiga
að fylgja. Kveð eg yður svo að þér heyrið á sjálfir. Kveð eg yður um handselt
mál Þorgeirs Þórssonar."
Þá mælti Mörður: "Nú er
hér mál til búið sem þér beiddust. Vil eg nú biðja þig Þorgeir skorargeir að þú
komir til mín er þú ríður til þings og ríðum við þá báðir saman með
hvorntveggja flokkinn og höldum okkur sem best saman því að flokkur minn skal
þegar búinn til öndverðs þings og skal eg yður í öllum hlutum trúr vera."
Þeir tóku því öllu vel og var
þetta bundið svardögum að engi skyldi við annan skilja fyrr en Kári vildi og
hver þeirra skyldi leggja sitt líf við annars líf. Skildu þeir nú með vináttu
og mæltu mót með sér á þingi.
Reið þá Þorgeir austur aftur
en Kári reið vestur yfir ár þar til er hann kom í Tungu til Ásgríms. Ásgrímur
tók við honum ágæta vel. Kári sagði Ásgrími alla ráðagerð Gissurar hvíta og
málatilbúnaðinn.
"Slíks var mér að honum
von," segir Ásgrímur, "að honum mundi vel fara enda hefir hann það nú
sýnt."
"Ásgrímur mælti:
"Hvað spyrðu austan frá Flosa?"
Kári svarar: "Hann fór
allt austur í Vopnafjörð og hafa nálega allir höfðingjar heitið honum liðveislu
og alþingisreið. Þeir vænta sér og liðs af Reykdælum og Ljósvetningum og
Öxfirðingum."
Þeir töluðu þar margt um. Líða nú stundir
allt framan til alþingis.
Þórhallur Ásgrímsson tók
fótarmein svo mikið að fóturinn fyrir ofan ökkla var svo digur og þrútinn sem
konulær og mátti hann ekki ganga nema við staf. Hann var mikill maður vexti og
rammur að afli, dökkur á hár og svo á skinnslit, vel orðstilltur og þó
skapbráður. Hann var hinn þriðji maður mestur lögmaður á Íslandi.
Nú kemur að því að er menn
skyldu heiman ríða til þings.
Ásgrímur mælti til Kára:
"Þú skalt ríða til öndverðs þings og tjalda búðir vorar og með þér
Þórhallur son minn því að þú munt best og hóglegast með hann fara er hann er
fótlami en vér munum hans mest þurfa á þessu þingi. Með ykkur skulu ríða
tuttugu menn aðrir."
Eftir það var búin ferð
þeirra og riðu þeir síðan til þings og tjölduðu búðir og bjuggust vel um.
136. kafli
Flosi reið austan og þeir tíu
tigir manna er að brennu höfðu verið með honum. Þeir riðu þar til er þeir komu
til Fljótshlíðar. Skipuðu þá Sigfússynir til búa sinna og dvöldust þar um
daginn en um kveldið riðu þeir vestur yfir Þjórsá og sváfu þar um nóttina. En
um morguninn snemma tóku þeir hesta sína og riðu fram á leið.
Flosi mælti til manna sinna:
"Nú munum vér ríða í Tungu til Ásgríms Elliða-Grímssonar til dagverðar og
troða illsakar við hann."
Þeir kváðu það vel gert. Þeir
ríða nú þar til er þeir eiga skammt í Tungu.
Ásgrímur stóð úti og nokkurir
menn með honum. Þeir sjá þegar flokkinn er mátti heiman.
Menn Ásgríms mæltu: "Þar
mun vera Þorgeir skorargeir."
Ásgrímur mælti: "Ekki in
heldur ætla eg það því að þessir menn fara með hlátri og gapi en frændur Njáls,
slíkir sem Þorgeir er, munu eigi hlægja fyrr en nokkuð er hefnt brennunnar. Og
mun eg geta annars til og má vera að yður þyki það ólíklegt. Það er ætlun mín
að vera muni Flosi og brennumenn með honum og munu þeir ætla að troða illsakar
við oss og skulum vér nú inn ganga allir."
Þeir gera nú svo. Ásgrímur
lét sópa hús og tjalda og setja borð og bera mat á. Hann lét setja forsæti með
endilöngum bekkjum um alla stofuna.
Flosi reið í túnið og bað
menn stíga af hestum og ganga inn. Þeir gerðu svo. Þeir Flosi komu í stofuna.
Ásgrímur sat á palli. Flosi leit á bekkina og sá að allt var reiðubúið það er
menn þurftu að hafa.
Ásgrímur kvaddi þá ekki en
mælti til Flosa: "Því eru borð sett að heimull er matur þeim er hafa
þurfa."
Flosi sté undir borð og allir
menn hans en lögðu vopn sín upp að þili. Þeir sátu á forsætum er eigi máttu
uppi sitja á bekkjunum en fjórir menn stóðu með vopnum fyrir framan þar sem
Flosi sat meðan þeir mötuðust. Ásgrímur þagði um matmálið og var svo rauður á
að sjá sem blóð. En er þeir voru
mettir báru konur af borðum en sumar báru innar handlaugar. Flosi fór að
engu óðara en hann væri heima. Bolöx lá í pallshorninu. Ásgrímur þreif hana
tveim höndum og hljóp upp á pallsstokkinn og hjó til höfuðs Flosa. Glúmur
Hildisson gat séð tilræðið og hljóp upp þegar og gat tekið öxina fyrir framan
hendur Ásgrími og sneri þegar egginni að Ásgrími því að Glúmur var rammur að
afli. Þá hljópu upp miklu fleiri menn og vildu ráða á Ásgrím en Flosi kvað
engan mann skyldu Ásgrími mein gera "því að vér höfum gert honum ofraun en
hann gerði það eina að er hann átti og sýndi hann það að hann var
ofurhugi."
Flosi mælti til Ásgríms:
"Hér munum vér nú skiljast heilir og finnast á þingi og taka þar til óspilltra
mála."
"Svo mun vera,"
segir Ásgrímur, "og mundi eg það vilja, um það er þessu þingi er lokið, að
þér færuð lægra."
Flosi svaraði engu. Gengu
þeir þá út og stigu á hesta sína og riðu í braut.
Þeir riðu þar til er þeir
komu til Laugarvatns og voru þar um nóttina. En um morguninn riðu þeir fram á Beitivöllu og áðu þar. Þar riðu að
þeim flokkar margir. Var þar Hallur af Síðu og allir Austfirðingar. Flosi
fagnaði þeim allvel og sagði þeim frá ferðum sínum og viðskiptum þeirra
Ásgríms. Margir lofuðu þetta og sögðu slíkt rösklega gert vera.
Þá mælti Hallur: "Þetta
líst mér annan veg en yður því að þetta þykir mér óviturlegt bragð. Mundu þeir
þó muna harmsakar sínar þó að þeir væru eigi af nýju á minntir en þeim mönnum
allvant um er svo leita annarra manna þunglega."
Fannst það á Halli að honum
þótti þetta mjög ofgert.
Þeir riðu þaðan allir saman
þar til er þeir komu á Völlu hina efri og fylktu þar liði sínu og riðu síðan á
þing ofan. Flosi hafði látið tjalda Byrgisbúð áður hann riði til þings en Austfirðingar
riðu til sinna búða.
137. kafli
Nú er þar frá að segja að
Þorgeir skorargeir reið austan með miklu liði. Voru þeir bræður hans með honum,
Þorleifur krákur og Þorgrímur hinn mikli. Þeir riðu þar til er þeir komu til
Hofs til Marðar Valgarðssonar og biðu þar til þess er hann var búinn. Mörður
hafði safnað hverjum manni er vopnfær var og fundu þeir það eina á að hann var
hinn öruggasti í öllu.
Riðu þeir nú þar til er þeir
komu vestur yfir ár. Þá biðu þeir Hjalta Skeggjasonar. Hann kom þá er þeir höfðu
skamma stund beðið. Fögnuðu þeir honum vel og riðu síðan allir saman til þess
er þeir komu til Reykja í Biskupstungu og biðu þeir þar Ásgríms
Elliða-Grímssonar og kom hann þar til móts við þá.
Riðu þeir þá vestur yfir
Brúará. Ásgrímur segir þeim þá allt sem farið hafði með þeim Flosa.
Þorgeir mælti: "Það
mundi eg vilja að vér reyndum karlmennsku þeirra áður lyki þinginu."
Riðu þeir allt þar til er
þeir komu á Beitivöllu. Kom þar til móts við þá Gissur hinn hvíti með allmikið
fjölmenni. Tóku þeir þá tal langt með sér. Riðu þeir þá á Völlu hina efri og
fylktu þeir þar öllu liði sínu og riðu svo á þing ofan.
Flosi og menn hans hljópu til
vopna allir og var þá við sjálft að þeir mundu berjast en þeir Ásgrímur og
þeirra sveit gerðust ekki til þess og riðu til búða sinna. Var nú kyrrt þann
dag svo að þeir áttust ekki við.
Þar voru komnir höfðingjar úr
öllum fjórðungum á landinu og hafði aldrei verið þing jafnfjölmennt áður svo að
menn myndu.
138. kafli
Eyjólfur hét maður. Hann var
Bölverksson, Eyjólfssonar hins grá úr Otradal, Þórðarsonar gellis, Óleifssonar
feilans. Móðir Eyjólfs hins grá var Hróðný dóttir Miðfjarðar-Skeggja
Skinna-Bjarnarsonar, Skútaðar-Skeggjasonar. Eyjólfur Bölverksson var virðingamaður
mikill og allra manna lögkænastur svo að hann var hinn þriðji maður mestur
lögmaður á Íslandi. Hann var allra manna fríðastur sýnum, mikill og sterkur og
hið besta höfðingjaefni. Hann var fégjarn sem aðrir frændur hans.
Flosi gekk einn dag til búðar
Bjarna Brodd-Helgasonar. Bjarni tók við honum báðum höndum og settist Flosi
niður hjá honum. Þeir töluðust margt við.
Flosi mælti til Bjarna:
"Hvað skulum vér nú til ráða taka?"
Bjarni svaraði: Eg ætla nú úr
vöndu að ráða en það sýnist mér þó ráðlegast að biðja sér liðs því að þeir
draga afla að yður. Eg vil og spyrja þig Flosi hvort nokkur er allmikill
lögmaður í liði yðru því að yður eru tveir kostir til. Annar er sá að biðja
sætta og er sá allgóður, hinn er annar að verja mál með lögum ef varnir verða
til þó að það þyki með kappið að gengið. Þykir mér því þann verða upp að taka
að þér hafið áður með ofstopa að farið og samir nú eigi að þér minnkið
yður."
Flosi mælti: "Þar er þú
spurðir eftir um lögmenn þá mun eg þér því skjótt svara að sá er engi í vorum
flokki og engis veit eg von nema Þorkels Geitissonar frænda þíns."
Bjarni mælti: "Ekki
munum við hann telja. Þó að hann sé lögvitur þá er hann þá forsjáll mjög. Þarf
það engi maður að ætla að hafa hann að skotspæni en fylgja mun hann þér sem sá
annar er best fylgir því að hann er ofurhugi. En eg mun segja þér að það verður
þess manns bani er vörn færir fram fyrir brennumálið en eg ann eigi þess
Þorkatli frænda mínum. Munum við því verða að leita annars staðar á."
Flosi kveðst eigi vita skyn á
hverjir lögmenn væru mestir.
Bjarni mælti: "Eyjólfur
heitir maður og er Bölverksson. Hann er mestur lögmaður í Vestfirðingafjórðungi
og mun honum þurfa að gefa til fé mikið ef honum skal verða komið í málið en þó
munum vér ekki að því fara. Vér skulum og ganga með vopnum til allra lögskila
og vera sem varastir um oss en ráða eigi á þá nema vér eigum hendur vorar að
verja. Mun eg nú ganga með þér og fara í liðsbónina því að mér þykir sem nú
muni eigi mega kyrru fyrir halda."
Síðan gengu þeir út úr
búðinni og til þeirra Öxfirðinga. Talaði Bjarni þá við Lýting og Blæng og Hróa
Arnsteinsson og fékk hann skjótt af þeim slíkt er hann beiddi.
Þá fóru þeir til fundar við
Kol son Víga-Skútu og Eyvind Þorkelsson Áskelssonar goða og báðu þá liðveislu
en þeir fóru lengi undan en þó kom svo að þeir tóku til þrjár merkur silfurs og
gengu þá í málið með þeim.
Þá gengu þeir til
Ljósvetningabúðar og dvöldust þar nokkura hríð. Flosi beiddi Ljósvetninga
liðveislu en þeir voru erfiðir og torsóttir.
Flosi mælti þá með mikilli
reiði: "Illa er yður farið. Þér eruð ágjarnir heima í héraði og ranglátir
en viljið mönnum ekki að liði verða á þingum þó að menn krefji yður. Það mun og
lagið mjög til ámælis við yður og að brigslum haft við yður á þingum ef þér
munið eigi hrakningar þær er Skarphéðinn hrakti yður Ljósvetninga."
Í annan stað hafði hann við
þá hljóðmæli og bauð þeim fé til liðveislu og lokkaði þá svo með fagurmælum.
Þar kom að þeir hétu liðveislu og gerðu þeir sig þá svo örugga að þeir kváðust
berjast skyldu með Flosa þó að þess þyrfti við.
Bjarni mælti þá til Flosa:
"Vel er þér farið. Þú ert höfðingi mikill og röskur maður og einarður og
sker lítt af manni."
Síðan fóru þeir í braut og
vestur yfir Öxará og svo til Hlaðbúðar. Þeir sáu margt manna úti fyrir búðinni.
Þar var einn maður sá er hafði skarlatsskikkju á herðum sér og gullhlað um
höfuð og öxi silfurrekna í hendi.
Bjarni mælti: "Hér ber
vel til. Hér er hann nú Eyjólfur Bölverksson ef þú vilt finna hann Flosi."
Síðan gengu þeir til móts við
Eyjólf og kvöddu hann. Eyjólfur kenndi þegar Bjarna og tók honum vel. Bjarni
tók í hönd Eyjólfi og leiddi hann upp í Almannagjá. Menn þeirra Bjarna og Flosa
gengu eftir. Menn Eyjólfs gengu og með honum. Þeir báðu þá vera uppi á
gjárbakkanum og sjást þaðan um.
Þeir Flosi gengu þar til er
þeir koma þar er gatan liggur ofan af hinni efri gjánni. Flosi kvað þar gott að
sitja og mega víða sjá. Þeir settust þá niður. Þeir voru þar fjórir menn saman
og eigi fleiri.
Bjarni mælti þá til Eyjólfs:
"Þig erum vér komnir að finna, vinur, því að vér þurfum mjög þinnar
liðveislu í alla staði."
Eyjólfur mælti: "Hér er
nú gott mannval á þinginu og mun yður lítið fyrir að finna þá menn er yður er
miklu meiri styrkur að en hér sem eg er."
Bjarni mælti: "Það er
ekki svo. Þú hefir marga þá hluti er engi er þér meiri maður hér á þinginu. Það
fyrst að þú ert ættaður svo vel sem allir þeir menn eru komnir eru frá Ragnari
Loðbrók. Hafa og foreldrar þínir jafnan í stórmælum staðið víða á þingum og
heima í héraði og höfðu jafnan hinn meira hlut. Þykir oss því líklegt til að þú
munir vera sigursæll í málunum."
Eyjólfur mælti: "Vel
mælir þú Bjarni en lítið ætla eg að eg muni í eiga."
Flosi mælti þá: "Ekki
þarf hér að munda til þess er oss er í hug. Liðveislu viljum vér þig biðja
Eyjólfur að þú veitir að málum vorum og gangir að dómum með oss og takir varnir
ef verða og færir fram fyrir vora hönd og veitir oss um alla hluti á þingi
þessu þá er til kunna falla."
Eyjólfur spratt upp reiður og
sagði svo að engi maður þarf sér það að ætla að hafa hann að ginningarfífli eða
forhleypi fyrir sér ef hann dregur ekki til."
"Eg sé nú og,"
segir hann, "hvað yður hefir til gengið fagurmælis þess er þér höfðuð við
mig."
Hallbjörn hinn sterki þreif
til hans og setti hann niður hjá sér í millum þeirra Bjarna og mælti:
"Eigi fellur tré við hið fyrsta högg, vinur, og sit hér fyrst hjá
oss."
Flosi dró þá gullhring af
hendi sér og mælti: "Þenna hring vil eg gefa þér Eyjólfur til vináttu og
liðveislu og sýna þér svo að eg vil eigi ginna þig. Er þér fyrir því best að
þiggja hringinn að engi er hér sá á þingi að eg hafi þvílíka gjöf gefið."
Hringurinn var svo góður og
mikill og vel ger að hann tók tólf hundruð mórend. Hallbjörn dró á hönd Eyjólfi
hringinn.
Eyjólfur mælti: "Það er
nú líkara að eg þiggi hringinn svo vel sem þér fer. Munt þú og til þess ætla
mega að eg mun taka við vörn og gera að slíkt er þarf."
Bjarni mælti: "Nú fer
hvorumtveggja ykkrum vel. Eru menn hér nú vel til fallnir að vera vottarnir,
þar sem við Hallbjörn erum, að þú takir við málinu.
Stóð þá Eyjólfur upp og svo
Flosi og tókust í hendur. Tók Eyjólfur þá varnargögn öll af Flosa og svo ef
sakar nokkurar gerðust af vörninni því að það er oft annars máls vörn er annars
er sókn. Þá tók hann þau öll sóknargögn er þessum sökum áttu að fylgja hvort
sem sækja skyldi í fjórðungsdóm eða fimmtardóm. Flosi seldi að lögum en
Eyjólfur tók að lögum.
Hann mælti þá til Flosa og
Bjarna: "Nú hefi eg hér tekið við máli sem þér beidduð. Nú vil eg þó að
þér leynið þessu fyrst. En ef málið kemur í fimmtardóm þá skuluð þér það mest
varast að segja að þér hafið fé gefið til liðveislunnar."
Flosi stóð þá upp og svo
Bjarni og allir þeir. Gengu þeir Flosi og Bjarni hvor til sinnar búðar en
Eyjólfur gekk til búðar Snorra goða og settist niður hjá honum. Þeir töluðust
við margt. Snorri goði þreif til handarinnar Eyjólfi og fletti upp af erminni
og sér að hann hafði gullhring mikinn á hendi.
Snorri goði mælti:
"Hvort er þessi hringur keyptur eða gefinn?"
Eyjólfi fannst um fátt og
varð orðfall.
Snorri mælti: "Eg skil
gjörla að þú munt að gjöf þegið hafa og skyldi þessi hringur eigi verða þér að
höfuðbana."
Eyjólfur spratt upp og gekk í
braut og vildi ekki um tala.
Snorri mælti er hann sá að
Eyjólfur stóð skyndilega upp: "Það er líkara um það er þessu þingi er lokið
að þú vitir hvað þú hefir þegið."
Gekk Eyjólfur þá til búðar
sinnar.
139. kafli
Nú er þar til máls að taka að
Ásgrímur Elliða-Grímsson er og Kári Sölmundarson að þeir fundust allir saman og
Gissur hvíti og Hjalti Skeggjason og Þorgeir skorargeir og Mörður Valgarðsson.
Ásgrímur tók þá til orða:
"Ekki þarf þetta í hljóðmæli að færa því að þeir einir menn eru hér nú við
er hver veit annars trúnað. Vil eg nú spyrja yður ef þér vitið nokkuð til
ráðagerðar þeirra Flosa. Sýnist mér sem vér munum verða að gera ráð vort í
annan stað."
Gissur hvíti svarar:
"Snorri goði sendi mann til mín og lét segja mér að Flosi hafði þegið
mikið lið af Norðlendingum en Eyjólfur Bölverksson frændi hans hafði þegið
gullhring af nokkurum og fór leynilega með. Og kvað Snorri það ætlan sína að
Eyjólfur Bölverksson mundi ætlaður vera til að færa fram lögvarnir í málinu og
mundi hringurinn til þess gefinn vera."
Þeir urðu allir á það sáttir
að það mundi svo vera.
Gissur mælti þá til þeirra:
"Nú hefir Mörður Valgarðsson mágur minn tekið við málinu því er öllum mun
torveldast þykja, að sækja Flosa. Vil eg nú að þér skiptið öðrum sóknum með
yður því að nú mun brátt verða að lýsa sökum að Lögbergi. Vér munum og þurfa að
biðja oss liðs."
Ásgrímur svarar: "Svo
skal nú og vera en biðja viljum vér þig að þú sért í liðsbóninni með oss."
Gissur kvaðst það mundu til
leggja.
Síðan valdi Gissur með sér
alla hina vitrustu menn af liði þeirra. Þar var Hjalti Skeggjason og Ásgrímur
og Kári, Þorgeir skorargeir.
Þá mælti Gissur: "Nú
munum vér fyrst ganga til búðar Skafta Þóroddssonar."
Síðan gengu þeir til
Ölfusingabúðar. Gissur hvíti gekk fyrstur, þá Hjalti, þá Kári, þá Ásgrímur, þá
Þorgeir skorargeir, þá bræður hans. Þeir gengu inn í búðina. Skafti sat á
palli. Og er hann sá Gissur hvíta stóð hann upp í mót honum og fagnaði honum
vel og öllum þeim og bað Gissur sitja hjá sér. Hann gerir nú svo.
Gissur mælti þá til Ásgríms: "Nú skalt þú
vekja til um liðsbón við Skafta en eg mun þá til leggja slíkt er mér
sýnist."
Ásgrímur mælti: "Til þess erum vér hingað
komnir Skafti að sækja að þér traust og liðsinni."
Skafti mælti: "Torsóttur þótti yður eg næstum
vera er eg vildi ekki taka undir vandræði yður."
Gissur mælti: "Nú er
annan veg til farið. Nú er að mæla eftir Njál bónda og Bergþóru húsfreyju er
bæði voru saklaus inni brennd og eftir þrjá sonu Njáls og marga aðra góða menn.
Og munt þú aldrei það vilja gera að verða mönnum eigi að liði og veita frændum
þínum og mágum."
Skafti svarar: "Það var
mér þá í hug er Skarphéðinn mælti við mig að eg hefði sjálfur borið tjöru í
höfuð mér og skorið á mig jarðarmen og hann kvað mig orðinn svo hræddan að
Þórólfur Loftsson af Eyrum bæri mig á skip út í mjölkýlum sínum og flytti mig
svo til Íslands, að eg mundi eigi eftir hann mæla."
Gissur mælti: "Ekki er
nú á slíkt að minnast því að sá er nú dauður er þetta mælti og munt þú vilja
veita mér þó að þú viljir eigi gera fyrir sakir annarra manna."
Skafti svarar: "Þetta
mál kemur ekki til þín nema þú viljir vasast í með þeim."
Gissur reiddist þá mjög og
mælti: "Ólíkur ert þú þínum föður. Þó að hann þætti nokkuð blandinn varð
hann þá mönnum jafnan að liði er menn þurftu hans mest."
Skafti mælti: "Vér erum
óskaplíkir. Þið þykist hafa staðið í stórræðum. Þú Gissur hvíti, þá er þú
sóttir Gunnar að Hlíðarenda en Ásgrímur af því er hann drap Gauk fóstbróður
sinn."
Ásgrímur svarar: "Fár
bregður hinu betra ef hann veit hið verra. En það munu margir mæla að eigi
dræpi eg Gauk fyrr en mér væri nauður á. Er það nokkur vorkunn að þú verðir oss
eigi að liði en hitt er vorkunnarlaust að þú bregðir oss brigslum. Mundi eg það
vilja um það er þessu þingi er lokið að þú fengir af þessum málum hina mestu
óvirðing og bætti þér engi þá skömm."
Þeir Gissur stóðu þá upp
allir og gengu út og svo til búðar Snorra goða og gengu inn í búðina. Snorri
sat á palli í búðinni. Hann kenndi þegar mennina og stóð upp í móti þeim og bað
þá alla vel komna og gaf þeim rúm að sitja hjá sér. Síðan spurðust þeir
almæltra tíðinda.
Ásgrímur mælti til Snorra:
"Til þess erum við Gissur frændi minn komnir hingað að biðja þig
liðveislu."
Snorri goði svarar: "Það
mælir þú þar er þér heldur vorkunn til, að mæla eftir mága þína slíka sem þú
áttir. Þágum vér mörg ráð þægileg af Njáli þó að nú muni það fáir. Enda veit eg
eigi hverrar liðveislu þér þykist mest þurfa."
Ásgrímur svarar: "Mest
þurfum vér ef vér berjumst hér á þinginu."
Snorri mælti: "Svo er og
að mikið liggur yður þá við. Er það og líkast að þér sækið með kappi enda munu
þeir svo verja. Og munu hvorigir gera öðrum rétt. Munuð þér þá eigi þola þeim
og ráða á þá. Er þá og sá einn til því að þeir vilja þá gjalda yður skömm fyrir
mannskaða en svívirðing fyrir frændalát."
Fannst það á að hann hvatti
þá fram í öllu.
Gissur hvíti mælti þá:
"Vel mælir þú Snorri og fer þér þá best jafnan og höfðinglegast er mest
liggur við."
Ásgrímur mælti: "Það vil
eg vita hvað þú vilt þá veita oss ef svo fer sem þú segir."
Snorri mælti: "Gera skal
eg þér vináttubragð það er yður sæmd skal öll við liggja. En ekki mun eg til
dóma ganga. En ef þér berjist á þingi þá ráðið þér því aðeins á þá nema þér
séuð allir sem öruggastir því að miklir kappar eru til móts. En ef þér verðið
forviða munuð þér láta slá hingað til móts við oss því að eg mun þá hafa fylkt
liði mínu hér fyrir og vera við búinn að veita yður. En ef hinn veg fer að þeir
hrökkvi fyrir þá er það ætlan mín að þeir muni ætla að renna til vígis í
Almannagjá en ef þeir komast þangað þá fáið þér þá aldrei sótta. Mun eg það á
hendur takast að fylkja þar fyrir liði mínu og verja þeim vígið en ekki munum
vér eftir ganga hvort sem þeir hörfa með ánni norður eða suður. Og þá er þér
hafið vegið í lið þeirra svo nokkuð mjög að mér þyki þér mega halda upp fébótum
svo að þér haldið goðorðum yðrum og héraðsvistum mun eg til hlaupa með menn
mína alla og skilja yður. Skuluð þér þá gera það fyrir mín orð að hætta
bardaganum ef eg geri þetta sem nú hefi eg heitið."
Gissur þakkaði honum vel og
kvað þetta í allra þeirra nauðsyn mælt vera. Gengu þeir þá út allir.
Gissur mælti: "Hvert
skulum vér nú ganga?"
"Til
Möðruvellingabúðar," sagði Ásgrímur.
Fóru þeir þá þangað.
140. kafli
Og er þeir komu í búðina þá
sáu þeir hvar Guðmundur hinn ríki sat og talaði við Einar Konalsson fóstra
sinn. Hann var vitur maður. Gengu þeir þá fyrir Guðmund. Hann tók þeim vel og
lét ryðja fyrir þeim búðina að þeir skyldu allir sitja mega. Spurðust þeir þá
tíðinda.
Ásgrímur mælti: "Ekki
þarf þetta á mutur að mæla. Til þess erum vér hér komnir að biðja þig öruggrar
liðveislu."
Guðmundur svarar: "Hvort
hafið þér nokkura höfðingja fundið áður?"
Þeir svöruðu að þeir höfðu
fundið Skafta Þóroddsson og Snorra goða og sögðu honum allt af hljóði hversu
hvorum þeirra fór.
Þá mælti Guðmundur:
"Næstum fór mér til yðvar lítilmannlega er eg var yður erfiður. Skal eg nú
því skemur draga fyrir yður er þá var eg torsóttari. Og skal eg nú ganga til
dóma með yður með alla þingmenn mína og veita yður um allt á þingi þessu og
berjast með yður þó að þess þurfi við og leggja mitt líf við yðvart líf. Eg mun
og því launa Skafta að Þorsteinn holmunnur son hans skal vera í bardaganum með
oss því að hann mun eigi treystast öðru en gera sem eg vil þar sem hann á
Jódísi dóttur mína. Mun Skafti þá til fara að skilja oss."
Þeir þökkuðu honum vel og
töluðu lengi síðan svo að ekki heyrðu það aðrir menn.
Guðmundur bað þá ekki ganga
fyrir kné fleirum höfðingjum. Kvað hann það vera lítilmannlegt "og munum
vér nú á hætta með þetta lið sem nú höfum vér. Þér skuluð ganga með vopnum til
allra lögskila en berjast þó eigi svo búið."
Gengu þeir þá út allir og
heim til búða sinna. Var þetta fyrst á fárra manna viti. Líður nú svo þingið.
141. kafli
Það var einn dag að menn
gengu til Lögbergs og var svo skipað höfðingjum að Ásgrímur Elliða-Grímsson og
Gissur hvíti, Guðmundur hinn ríki og Snorri goði voru uppi hjá Lögbergi en
Austfirðingar stóðu niðri fyrir. Mörður Valgarðsson stóð hjá Gissuri hvíta mági
sínum. Mörður var allra manna málsnjallastur. Gissur mælti þá að hann skyldi
lýsa vígsökinni og bað hann mæla svo hátt að vel mætti heyrast.
Mörður nefndi sér votta.
"Nefni eg í það vætti," segir hann, "að eg lýsi lögmætu
frumhlaupi á hönd Flosa Þórðarsyni er hann hljóp til Helga Njálssonar á þeim
vettvangi er Flosi Þórðarson hljóp til Helga Njálssonar og veitti honum
holundarsár eða heilundarsár eða mergundarsár það er að ben gerðist en Helgi
fékk bana af. Tel eg hann eiga að verða um sök þá mann sekan, skógarmann
óalanda, óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Tel eg sekt fé hans allt, hálft
mér en hálft fjórðungsmönnum þeim er sektarfé eiga að taka eftir hann að lögum.
Lýsi eg vígsök þessi til fjórðungsdóms þess er sökin á í að koma að lögum. Lýsi
eg löglýsing. Lýsi eg í heyranda hljóði að Lögbergi. Lýsi eg nú til sóknar í
sumar og til sektar fullrar á hönd Flosa Þórðarsyni. Lýsi eg handseldri sök
Þorgeirs Þórissonar."
Að Lögbergi var ger mikill
rómur að því að honum mæltist vel og skörulega.
Mörður tók til máls í annað
sinn. "Nefni eg yður í það vætti," segir hann, "að eg lýsi sök á
hönd Flosa Þórðarsyni um það er hann særði Helga Njálsson holundarsári eða
heilundarsári eða mergundarsári, því sári er að ben gerðist, en Helgi fékk bana
af á þeim vettvangi er Flosi Þórðarson hljóp til Helga Njálssonar lögmætu
frumhlaupi áður. Tel eg þig, Flosi, eiga að verða um sök þá mann sekan,
skógarmann óalanda, óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Tel eg sekt fé þitt
allt, hálft mér en hálft fjórðungsmönnum þeim er sektarfé eiga að taka eftir
þig að lögum. Lýsi eg sök þessi til fjórðungsdóms þess er sökin á í að koma að
lögum. Lýsi eg löglýsing. Lýsi eg í heyranda hljóði að Lögbergi. Lýsi eg nú til
sóknar í sumar og sektar fullrar á hönd Flosa Þórðarsyni. Lýsi eg handseldri
sök Þorgeirs Þórissonar."
Síðan settist Mörður niður. Flosi gaf gott hljóð
til og mælti ekki orð meðan.
Þorgeir skorargeir stóð upp og nefndi sér votta:
"Nefni eg í það vætti að eg lýsi sök á hönd Glúmi Hildissyni um það er
hann tók eld og kveikti og bar í hús inn að Bergþórshvoli þá er þeir brenndu
inni Njál Þorgeirsson og Bergþóru Skarphéðinsdóttur og þá menn alla er þar
brunnu inni. Tel eg hann eiga að verða um sök þá mann sekan, skógarmann
óalanda, óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Tel eg sekt fé hans allt, hálft
mér en hálft fjórðungsmönnum þeim er sektarfé eiga að taka eftir hann að lögum.
Lýsi eg sök þessi til fjórðungsdóms þess er sökin á í að koma að lögum. Lýsi eg
löglýsing. Lýsi eg í heyranda hljóði að Lögbergi. Lýsi eg nú til sóknar
í sumar og til sektar fullrar á hönd Glúmi Hildissyni."
Kári Sölmundarson sótti Kol
Þorsteinsson og Gunnar Lambason og Grana Gunnarsson og var það mál manna að
honum mæltist furðulega vel. Þorleifur krákur sótti Sigfússonu alla en
Þorgrímur hinn mikli bróðir hans sótti Móðólf Ketilsson og Lamba Sigurðarson og
Hróar Hámundarson, bróður Leiðólfs hins sterka. Ásgrímur Elliða-Grímsson sótti
Leiðólf og Þorstein Geirleifsson, Árna Kolsson og Grím hinn rauða og mæltist
þeim öllum vel. Síðan lýstu aðrir menn sökum sínum og var það lengi dags að því
gekk. Fóru menn þá heim til búða sinna.
Eyjólfur Bölverksson gekk til
búðar með Flosa. Þeir gengu austur
um búðina.
Flosi mælti til Eyjólfs: "Hvort sérð þú
nokkura vörn í málum þessum?"
"Enga," segir
Eyjólfur.
"Hvað er nú til
ráðs?" segir Flosi.
"Nú er úr vöndu að
ráða," segir Eyjólfur, "en þó mun eg til leggja nokkur ráð enn með
yður. Nú skalt þú selja af höndum goðorð þitt og í hendur Þorgeiri bróður þínum
en þú segist í þing með Áskatli goða Þorketilssyni norðan úr Reykjardal. En ef
þeir vita þetta eigi þá má vera að þeim verði að þessu mein því að þeir munu
sækja í Austfirðingadóm en þeir ættu í Norðlendingadóm að sækja og mun þeim
þetta yfir sjást. Og er fimmtarsdómsmál á þeim ef þeir sækja í annan dóm en
vera á. Skulum vér það mál þá upp taka og þó að síðasta kosti."
Flosi mælti: "Vera má að
oss sé nú launaður hringurinn."
"Eigi veit eg það,"
segir Eyjólfur, "en veita skal eg yður til laga svo að það sé mál manna að
eigi sé von framar. Skalt þú nú senda eftir Áskatli en Þorgeir skal nú þegar
koma til þín og einn maður með honum."
Litlu síðar kom Þorgeir þar
og tók við goðorðinu. Þá kom þar og Áskell. Sagðist Flosi þá í þing með honum.
Var þetta nú ekki á fleiri manna vitorði en þeirra.
142. kafli
Nú líður þar til er dómar
skulu út fara. Bjuggu þeir sig þá til hvorirtveggju og vopnuðust. Þeir gerðu
hvorirtveggju herkuml á hjálmum sínum.
Þórhallur Ásgrímsson mælti:
"Farið þér nú faðir minn að engu allæstir og gerið nú allt sem réttast. En
ef nokkuð vandast í fyrir yður látið mig vita sem skjótast og skal eg þá gefa
ráð til með yður."
Þeir Ásgrímur litu til hans
og var andlit hans sem í blóð sæi en stórt hagl hraut úr augum honum. Hann bað
færa sér spjót sitt. Það hafði Skarphéðinn gefið honum og var hin mesta
gersemi.
Ásgrímur mælti er þeir gengu
í braut: "Eigi var Þórhalli frænda gott í hug er hann var eftir í búðinni
og eigi veit eg hvað hann tekur til. Nú skulum vér ganga til með Merði
Valgarðssyni," sagði Ásgrímur, "og láta fyrst sem ekki sé annað því
að meiri er veiður í Flosa en í mörgum öðrum."
Ásgrímur sendi þá mann til
Gissurar hvíta og Hjalta Skeggjasonar og Guðmundar ríka. Þeir komu nú allir
saman og gengu þegar til Austfirðingadóms. Þeir gengu sunnan að dóminum. Þeir
Flosi og allir Austfirðingar með honum gengu norðan að dóminum. Þar voru og
Reykdalir og Öxfirðingar og Ljósvetningar með Flosa. Þar var og Eyjólfur
Bölverksson.
Flosi laut að Eyjólfi og
mælti: "Hér fer vænt að og kann vera að eigi fari fjarri því sem þú gast
til."
"Lát þú hljótt yfir
því," segir Eyjólfur. "Koma mun þar er vér munum þurfa þess að
neyta."
Mörður Valgarðsson nefndi sér
votta og bauð til hlutfalla öllum þeim mönnum er skóggangssakar áttu að sækja í
dóminn, hver sína sök skyldi fyrstur fram segja eða hver þar næst eða hver
síðast. Bauð hann lögboði að dómi svo að dómendur heyrðu. Þá voru hlutaðar
framsögur og hlaut hann fyrst fram að segja sína sök.
Mörður Valgarðsson nefndi sér
votta í annað sinn. "Nefni eg í það vætti," sagði hann, "að eg
tek miskviðu alla úr máli mínu hvort sem mér verður ofmælt eða vanmælt. Vil eg
eiga rétting allra orða minna uns eg kem máli mínu til réttra laga. Nefni eg
mér þessa votta eða þeim öðrum er neyta eða njóta þurfa þessa vættis."
Mörður Valgarðsson nefndi sér
votta. "Nefni eg í það vætti," sagði hann, "að eg býð Flosa
Þórðarsyni eða þeim manni öðrum en handselda lögvörn hefir fyrir hann að hlýða
til eiðspjalls míns og til framsögu sakar minnar og til sóknargagna þeirra
allra er eg hygg fram að færa á hendur honum. Býð eg lögboði að dómi svo að
dómendur heyra um dóm þveran."
Mörður Valgarðsson mælti:
"Nefni eg í það vætti," sagði hann, "að eg vinn eið að bók,
lögeið, og segi eg það guði að eg skal svo sök þessa sækja sem eg veit sannast
og réttast og helst að lögum og öll lögmæt skil af hendi inna meðan eg er að
þessu máli."
Síðan kvað hann svo að orði:
"Þórodd nefndi eg í vætti, annan Þorbjörn nefndi eg í það vætti að eg
lýsti lögmætu frumhlaupi á hönd Flosa Þórðarsyni á þeim vettvangi er Flosi
Þórðarson hljóp lögmætu frumhlaupi til Helga Njálssonar þá er Flosi Þórðarson
særði Helga Njálsson holundarsári eða heilundar eða mergundar því er að ben
gerðist en Helgi fékk bana af. Taldi eg hann eiga að verða um sök þá mann
sekan, skógarmann óalanda, óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Taldi eg sekt
fé hans allt, hálft mér en hálft fjórðungsmönnum þeim er sektarfé eiga að taka
eftir hann að lögum. Lýsti eg til fjórðungsdóms þess sem sökin á í að koma að
lögum. Lýsti eg löglýsing. Lýst eg í heyranda hljóði að Lögbergi. Lýsti eg nú
til sóknar í sumar og til sektar fullrar á hönd Flosa Þórðarsyni. Lýsti eg
handseldri sök Þorgeirs Þórissonar. Hafði eg þau orð öll í lýsingu minni sem nú
hafði eg í framsögu sakar minnar. Segi eg svo skapaða skóggangssök þessa fram í
Austfirðingadóm yfir höfði Jóni sem eg kvað að þá er eg lýsti."
Mörður mælti: "Þórodd
nefndi eg í vætti, annan Þorbjörn nefndi eg í það vætti að eg lýsti sök á hönd
Flosa Þórðarsyni um það er hann særði Helga Njálsson holundarsári eða heilundar
eða mergundar því sári er að ben gerðist en Helgi fékk bana af á þeim vettvangi
er Flosi Þórðarson hljóp til Helga Njálssonar áður lögmætu frumhlaupi. Taldi eg
hann eiga að verða um sök þá mann sekan, skógarmann óalanda, óferjanda,
óráðanda öllum bjargráðum. Taldi eg sekt fé hans allt, hálft mér en hálft
fjórðungsmönnum þeim er sektarfé eiga að taka eftir hann að lögum. Lýsti eg til
fjórðungsdóms þess er sökin á í að koma að lögum. Lýsti eg löglýsing. Lýst eg í
heyranda hljóði að Lögbergi. Lýsti eg nú til sóknar í sumar og til sektar
fullrar á hönd Flosa Þórðarsyni. Lýsti eg handseldri sök Þorgeirs Þórissonar.
Hafði eg þau orð öll í lýsingu minni sem nú hefi eg í framsögu sakar minnar.
Segi eg svo skapaða skóggangssök þessa fram í Austfirðingadóm yfir höfði Jóni
sem eg kvað að þá er eg lýsti."
Lýsingarvottar Marðar gengu
þá að dómi og kváðu svo að orði að annar taldi vætti fram en báðir guldu
samkvæði "að Mörður nefndi sér Þórodd í vætti en annan mig en eg heiti
Þorbjörn" - síðan nefndi hann föður sinn - "Mörður nefndi okkur í það
vætti að hann lýsti lögmætu frumhlaupi á hönd Flosa Þórðarsyni er hann hljóp
til Helga Njálssonar á þeim vettvangi er Flosi Þórðarson veitti Helga Njálsson
holundarsár eða heilundar eða mergundar það er að ben gerðist en Helgi fékk
bana af. Taldi hann Flosa eiga að verða um sök þá mann sekan, skógarmann
óalanda, óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Taldi hann sekt fé hans allt,
hálft sér en hálft fjórðungsmönnum þeim er sektarfé eiga að taka eftir hann að
lögum. Lýsti hann til fjórðungsdóms þess er sökin átti í að koma að lögum.
Lýsti hann löglýsing. Lýst hann í heyranda hljóði að Lögbergi. Lýsti hann nú
til sóknar í sumar og til sektar fullrar á hönd Flosa Þórðarsyni. Lýsti hann
handseldri sök Þorgeirs Þórissonar. Hafði hann þau orð öll í lýsingu sinni sem
hann hafði í framsögu sakar sinnar og við höfum í vættisburð okkrum. Höfum við
nú rétt borið vætti okkart og verðum báðir á eitt sáttir. Berum við svo skapað
lýsingarvætti þetta fram í Austfirðingadóm yfir höfði Jóni sem Mörður kvað að
þá er hann lýsti."
Í annað sinn sögðu þeir fram
í dóm lýsingarvætti og höfðu sár fyrr en frumhlaup síðar og höfðu öll orð önnur
hin sömu sem fyrr og báru svo skapað lýsingarvætti þetta fram í Austfirðingadóm
sem Mörður kvað að þá er hann lýsti.
Sakartökuvottar Marðar gengu
þá að dómi og taldi annar vætti fram en báðir guldu samkvæði og kváðu svo að
orði að þeir Mörður Valgarðsson og Þorgeir Þórisson nefndu þá í það vætti að
Þorgeir Þórisson seldi vígsök í hendur Merði Valgarðssyni á hendur Flosa
Þórðarsyni um víg Helga Njálssonar "seldi hann honum sök þá með
sóknargögnum öllum þeim er sökinni áttu að fylgja. Seldi hann honum að sækja og
að sættast á og svo allra gagna að njóta sem hann væri réttur aðili. Seldi
Þorgeir með lögum en Mörður tók með lögum."
Báru þeir svo skapað
sakartökuvætti þetta fram í Austfirðingadóm yfir höfði Jóni sem þeir Þorgeir og
Mörður nefndu þá votta að. Alla votta létu þeir eiða sverja áður en vætti bæru
og svo dómendur.
Mörður Valgarðsson nefndi sér
votta "í það vætti," sagði hann, "að eg býð búum þeim níu, er eg
kvaddi um sök þessa er eg höfðaði á hönd Flosa Þórðarsyni, til setu vestur á
árbakka og til ruðningar um kvið þann. Býð eg lögboði að dómi svo að dómendur
heyra."
Mörður Valgarðsson nefndi sér
votta í annað sinn. "Nefni eg yður í það vætti," sagði hann, "að
eg býð Flosa Þórðarsyni eða þeim manni öðrum er handselda lögvörn hefir fyrir
hann til ruðningar um kvið þann er eg hefi saman settan vestur á árbakka. Býð
eg lögboði að dómi svo að dómendur heyra um dóm þveran."
Enn nefndi Mörður sér votta
"í það vætti," sagði hann, "að nú eru frumgögn öll fram komin
þau er sökinni eiga að fylgja: boðið til eiðspjalls, unninn eiður, sögð fram
sök, borið lýsingarvætti, borið sakartökuvætti, boðið búum í setu, boðið til
ruðningar um kvið. Nefni eg mér þessa votta að gögnum þessum sem nú eru fram
komin og svo að því að eg vil eigi vera sókn horfinn þó að eg gangi frá dómi
gagna að leita eða annarra erinda."
Þeir Flosi gengu nú þangað
til sem búarnir sátu.
Flosi mælti til þeirra:
"Það munu Sigfússynir vita hversu réttir vettvangsbúar þessir eru er hér
eru kvaddir."
Ketill úr Mörk svarar:
"Hér er sá búi er hélt Merði Valgarðssyni undir skírn en annar er þrímenningur
hans að frændsemi."
Töldu þeir þá frændsemina og
sönnuðu með eiði. Eyjólfur nefnir sér votta að kviðurinn skyldi standa fyrst
þar til er ruddur væri.
Í annað sinn nefndi Eyjólfur
sér votta "í það vætti," sagði hann, "að eg ryð þessa menn báða úr
kviðinum" - og nefndi þá á nafn og svo feður þeirra - "fyrir þá sök
að annar þeirra er þrímenningur Marðar að frændsemi en annar að guðsifjum þeim
er kviðu eiga að ryðja að lögum. Eruð þið fyrir laga sakir ónýttir í kviðinum
því að nú er rétt lögruðning til ykkar komin. Ryð eg ykkur úr að alþingismáli
réttu og allsherjar lögum. Ryð eg handseldu máli Flosa Þórðarsonar."
Nú mælti öll alþýða og kváðu
ónýtt málið fyrir Merði. Urðu þá allir á það sáttir að þá væri framar vörn en
sókn.
Ásgrímur mælti þá við Mörð:
"Eigi er enn þeirra allt þó að þeir þykist nú hafa fast fram gengið og
skal nú fara að finna Þórhall son minn og vita hvað hann leggi til."
Þá var sendur skilríkur maður
til Þórhalls og sagði sá honum vandlega frá hvar þá var komið máli, að þeir Flosi
þóttust ónýtt hafa kviðinn.
Þórhallur mælti: "Það
skal eg að gera að yður skal þetta ekki að sakarspelli verða. Og seg þeim að
þeir trúi ekki þó að lögvillur séu gervar fyrir þeim því að vitringinum Eyjólfi
hefir nú yfir sést. Skalt þú nú ganga til þeirra sem hvatlegast og seg að
Mörður Valgarðsson gangi að dómi og nefni sér votta að ónýtt er lögruðning
þeirra" og sagði hann þá fyrir greinilega allt hversu þeir skyldu með
fara.
Sendimaður fór og sagði þeim
tillögur Þórhalls.
Mörður Valgarðsson gekk þá að
dóminum og nefndi sér votta "í það vætti," sagði hann, "að eg
ónýti lögruðning Eyjólfs Bölverkssonar. Finn eg það til að hann ruddi eigi við
aðilja frumsakar heldur við þann er með sök fór. Nefni eg mér þessa votta eða
þeim er njóta þurfa þessa vættis."
Síðan bar hann vættið í dóm.
Nú gekk hann þar til er búarnir sátu og bað þá niður setjast er upp höfðu
staðið og kvað þá rétta vera í kviðinum. Mæltu þá allir að Þórhallur hefði
mikið að gert og þótti þá öllum framar sókn en vörn.
Flosi mælti þá við Eyjólf:
"Ætlar þú þetta lög vera?"
"Það ætla eg víst,"
segir Eyjólfur, "og hefir oss að vísu yfir sést. En þó skulum vér þetta
þreyta meir með oss."
Eyjólfur nefndi sér þá votta
"í það vætti," sagði hann, "að eg ryð þessa tvo menn úr
kviðinum" - og nefndi þá báða á nafn - "fyrir þá sök að þið eruð
búðsetumenn en eigi bændur. Ann eg ykkur eigi að sitja í kviðinum því að nú er
rétt lögruðning til ykkar komin. Ryð eg ykkur úr kviðinum að alþingismáli réttu
og allsherjar lögum."
Kvað Eyjólfur sér nú mjög á
óvart koma ef þetta mætti rengja.
Mæltu þá allir að þá væri
vörn framar en sókn. Lofuðu nú allir mjög Eyjólf og kölluðu engan mann mundu
þurfa að reyna við hann lögkæni.
Mörður Valgarðsson og
Ásgrímur Elliða-Grímsson sendu nú mann til Þórhalls að segja honum hvar þá var
komið. En er Þórhallur heyrði þetta spurði hann hvað þeir ættu sér góss.
Sendimaður sagði að annar þeirra bjó við málnytu "og hefir bæði kýr og ær
að búi en annar á þriðjung í landi því er þeir búa á og fæðir sig sjálfur og hafa
þeir eina eldstó og hinn, er landið leigir, og einn smalamann."
Þórhallur mælti: "Enn
mun þeim fara sem fyrr að þeim mun hafa yfir sést og skal eg þetta allskjótt
rengja fyrir þeim og svo þó að Eyjólfur hefði hér alldigur orð um að rétt
væri."
Þórhallur sagði nú sendimanni
allt sem greinilegast hversu þeir skyldu með fara.
Kom sendimaður aftur og sagði
Merði og Ásgrími ráð þau er Þórhallur hafði til lagið.
Mörður gekk þá að dómi og
nefndi sér votta "í það vætti," sagði hann "að eg ónýti
lögruðning Eyjólfs Bölverkssonar fyrir það er hann ruddi þá menn úr kviðinum er
að réttu eiga í að vera. Er sá hver réttur í búakviði er hann á þrjú hundruð í
landi og þaðan af meira þó að hann hafi enga málnytu. Hinn er og réttur í
búakvið er hann býr við málnytu þó að hann eigi eigi land."
Lét hann þá koma vættið í
dóminn. Gekk hann nú þangað að er búarnir voru og bað þá niður setjast og kvað
þá rétta í búakviðinum.
Þá varð óp mikið og kall og
mæltu þá allir að mjög væri hrakið málið fyrir þeim Flosa og Eyjólfi og urðu nú
á það sáttir að sókn væri framar en vörn.
Flosi mælti til Eyjólfs:
"Mun þetta rétt vera?"
Eyjólfur lést eigi til þess
hafa vitsmuni að vita það víst.
Sendu þeir þá mann til Skafta
lögsögumanns að spyrja hann eftir hvort rétt væri. Hann sendi þeim þau orð
aftur að þetta væru að vísu lög þó að fáir kynnu. Var þetta sagt þeim Flosa.
Eyjólfur Bölverksson spurði
nú Sigfússonu að um aðra búa þá er kvaddir voru. Þeir kváðu vera þá fjóra er
rangkvaddir voru "því að þeir sitja heima er nærri voru."
Eyjólfur nefnir sér þá votta
að hann ryður þá alla fjóra menn úr kviðinum og mælti réttum ruðningarmálum.
Síðan mælti hann til búanna:
"Þér eruð skyldir til að gera hvorumtveggjum lög. Nú skuluð þér ganga að
dómi þá er þér eruð kvaddir og nefna yður votta að þér látið það standa fyrir
kviðburði yðrum að þér eruð fimm beiddir búakviðar en þér eigið níu að bera.
Mun Þórhallur þá öllum málum fram koma ef hann bergur þessu við."
Fannst það nú á í öllu að
þeir Flosi og Eyjólfur hældust.
Gerðist nú rómur mikill að
því að eytt væri vígsmálinu og nú væri vörn framar en sókn.
Ásgrímur mælti til Marðar:
"Eigi vita þeir enn hverju þeir hælast fyrr en Þórhallur er fundinn son
minn. Sagði Njáll mér svo að hann hefði svo kennt Þórhalli lög að hann mundi
mestur lögmaður vera á Íslandi þó að reyna þyrfti."
Var þá maður sendur til
Þórhalls að segja honum hvar þá var komið og hól þeirra Flosa og orðróm alþýðu
að þá væri eytt vígsmálinu fyrir þeim Merði.
"Vel er það," segir
Þórhallur, "en enga fá þeir enn virðing af þessu. Skalt þú nú fara og
segja Merði að hann nefni votta og vinni eið að því að meiri hlutur er rétt
kvaddur. Skal hann þá láta koma vættið í dóm og bergur hann þá frumsökinni en
sekur er hann þrem mörkum fyrir hvern þann er hann hefir rangt kvatt og má það
ekki sækja á þessu þingi."
Sendimaður fór nú aftur og
sagði þeim Merði allt sem gerst frá orðum Þórhalls.
Mörður gekk að dómi og nefndi
sér votta og vann eið að því að meiri hlutur var rétt kvaddur búanna. Kvaðst
hann þá hafa borgið frumsökinni "skulu óvinir vorir af öðru hafa metnað en
því að vér höfum hér mikið rangt í gert."
Var þá rómur mikill að því
ger að Mörður gengi vel fram í málinu en töldu Flosa og hans menn fara með
lögvillur einar og rangindi.
Flosi spurði Eyjólf hvort
þetta mundi rétt vera en hann lést það eigi víst vita og sagði lögsögumann úr
því skyldu leysa.
Fór þá Þorkell Geitisson af
þeirra hendi og sagði lögsögumanni hvar komið var og spurði hvort þetta væri
rétt er Mörður hafði mælt.
Skafti svarar: "Fleiri
eru nú allmiklir lögmenn en eg ætlaði. En þér til að segja þá er þetta svo rétt
í alla staði að hér má ekki í móti mæla. En það ætlaði eg að eg einn mundi nú
kunna þessa lagarétting nú er Njáll er dauður því hann einn vissi eg
kunna."
Þorkell gekk þá aftur til
þeirra Flosa og Eyjólfs og sagði þeim að þetta voru lög.
Mörður Valgarðsson gekk þá að
dómi og nefndi sér votta "í það vætti," sagði hann, "að eg beiði
búa þá, er eg kvaddi um sök þá er eg höfðaði á hönd Flosa Þórðarsyni,
framburðar um kvið að bera annaðtveggja af eða á. Beiði eg lögbeiðingu að dómi
svo að dómendur heyra um dóm þveran."
Búar Marðar gengu þá að dómi.
Taldi einn fram kviðinn en allir guldu samkvæði og kvað svo að orði:
"Mörður Valgarðsson kvaddi oss kviðar þegna níu en vér stöndum hér nú
þegnar fimm en fjórir eru úr ruddir. Hefir nú vottorð komið fyrir þá fjóra er
bera áttu með oss. Skylda nú til lög að bera fram kviðinn. Vorum vér kvaddir að
bera um það hvort Flosi Þórðarson hljóp lögmætu frumhlaupi til Helga Njálssonar
á þeim vettvangi er Flosi Þórðarson særði Helga Njálsson holundarsári eða
heilundar eða mergundar því er að ben gerðist en Helgi fékk bana af. Kvaddi
hann oss þeirra orða allra er oss skylda lög til um að skilja og hann vildi oss
að dómi beitt hafa og þessu máli áttu að fylgja. Kvaddi hann lögkvöð. Kvaddi
hann svo að vér heyrðum á. Kvaddi hann um handselt mál Þorgeirs Þórissonar.
Höfum vér nú allir eiða unnið og réttan kvið vorn og orðið á eitt sáttir, berum
á Flosa Þórðarson kviðinn og berum hann sannan að sökinni. Berum vér svo
skapaðan níu búa kvið þenna fram í Austfirðingadóm yfir höfði Jóni sem Mörður
kvaddi oss að. Er sá kviður vor
allra." sögðu þeir.
Í annað sinn báru þeir kviðinn og báru um sár fyrr
en um frumhlaup síðar en öll önnur orð báru þeir sem fyrr. Báru þeir á Flosa
kviðinn og báru hann sannan að sökinni.
Mörður Valgarðsson gekk að dómi og nefndi sér
votta að búar þeir, er hann hafði kvadda um sök þá er hann höfðaði á hönd Flosa
Þórðarsyni, höfðu borið á hann kviðinn og borið hann sannan að sökinni. Nefndi
hann sér þessa votta eða þeim er neyta eða njóta þyrftu þessa vættis.
Í annað sinn nefndi Mörður sér votta "nefni
eg í það vætti," sagði hann, "að eg býð Flosa Þórðarsyni eða þeim
manni öðrum, er handselda lögvörn hefir fyrir hann, að taka til varna fyrir sök
þá er eg höfðaði á hönd honum því að nú eru öll sóknargögn fram komin þau er
sökinni eiga að fylgja að lögum, borin vætti öll og búakviður og nefndir vottar
að kviðburði og öllum gögnum þeim er fram eru komin. En ef nokkur hlutur gerist
sá í lögvörn þeirra er eg þurfi til sóknar að hafa þá kýs eg sókn undir mig. Býð
eg lögboði að dómi svo að dómendur heyra."
"Það hlægir mig nú Eyjólfur," sagði
Flosi, "í hug mér að þeim mun í brún bregða og ofarlega kleyja þá er þú
berð fram vörnina."
143. kafli
Eyjólfur Bölverksson gekk þá að dómi og nefndi sér
votta "í það vætti," sagði hann, "að sú er lögvörn máls þessa að
þér hafið sótt málið í Austfirðingadóm er sækja átti í Norðlendingadóm því að
Flosi hefir sagst í þing með Áskatli goða. Eru hér nú hvorirtveggju vottarnir
þeir er við voru og það munu bera að Flosi seldi áður af hendi goðorð sitt
Þorgeiri bróður sínum en síðan sagðist hann í þing með Áskatli goða. Nefni eg
mér þessa votta eða þeim öðrum er neyta eða njóta þurfa þess vættis."
Í annað sinn nefndi Eyjólfur sér votta "nefni
eg í það vætti," sagði hann, "að eg býð Merði, er sök hefir að sækja,
eða sakaraðilja að hlýða til eiðspjalls míns og til framsögu varnar þeirrar er
eg mun fram bera og til allra gagna þeirra sem eg mun fram bera. Býð eg lögboði
að dómi svo að dómendur heyra á."
Eyjólfur nefndi sér enn votta "nefni eg í það
vætti," sagði hann, "að eg vinn eið að bók, lögeið, og segi eg það
guði að eg skal svo mál þetta verja sem eg veit réttast og sannast og helst að
lögum og öll lögmæt skil af hendi inna þau er undir mig koma meðan eg er á
þessu þingi."
Eyjólfur mælti: "Þessa tvo menn nefni eg í
vætti að eg færi fram lögvörn þessa að mál þetta var sótt í annan fjórðungsdóm
en vera átti. Tel eg fyrir það ónýtta sök þeirra. Segi eg svo skapaða vörn
þessa fram í Austfirðingadóm."
Síðan lét hann bera fram vætti þau öll er vörninni
áttu að fylgja. Síðan nefndi hann votta að öllum varnargögnum að nú voru öll
fram komin.
Eyjólfur nefndi sér enn votta "nefni eg í það
vætti," sagði hann, "að eg ver goðalýriti dómöndum að dæma sök þeirra
Marðar því að nú er lögvörn fram komin í dóminn. Ver eg lýriti, goðalýriti,
lagalýriti, efalausu lýriti, fullu og föstu svo sem eg á að verja að
alþingismáli réttu og allsherjar lögum."
Síðan lét hann dæma vörnina. Þeir Ásgrímur létu
sækja um brennumálin og gengu þau fram.
144. kafli
Nú sendu þeir Ásgrímur mann til Þórhalls og létu
segja honum í hvert óefni komið var.
"Of fjarri var eg þó nú," kvað
Þórhallur, "því að enn mundi þetta mál eigi þann veg farið hafa ef eg
hefði við verið. Sé eg nú aðferð þeirra að þeir munu ætla að stefna yður í
fimmtardóm fyrir þingsafglöpun. Þeir munu og ætla að vefengja brennumálin og
láta eigi dæma mega því að nú er sú aðför þeirra að þeir munu engis ills
svífast. Skalt þú nú ganga til þeirra sem skjótast og segja þeim að Mörður
stefni þeim báðum, Flosa og Eyjólfi, um það er þeir hafa fé borið í dóminn og
láta varða fjörbaugsgarð. Þá skal hann stefna þeim annarri stefnu um það er
þeir báru vætti þau er eigi áttu máli að skipta með þeim og gerðu í því
þingsafglöpun. Seg þeim að eg segi svo ef tvær fjörbaugssakar eru á hendi einum
manni að þann skal dæma skógarmann. Skuluð þér af því búa fyrri til yðvart mál
að þá skuluð þér og fyrri sækja og dæma."
Nú fór sendimaðurinn í braut og sagði þeim Merði
og Ásgrími. Síðan gengu þeir til Lögbergs.
Mörður Valgarðsson nefndi sér
votta "nefni eg í það vætti," sagði hann, "að eg stefni Flosa
Þórðarsyni um það er hann gaf fé til liðs sér hér á þinginu Eyjólfi Bölverkssyni.
Tel eg hann eiga að verða um sök þá mann sekan, fjörbaugsmann, því aðeins
ferjanda né festum helganda nema fjörbaugur eða aðalfestur komi fram að
féránsdómi, en alsekan skógarmann ellegar. Tel eg sekt fé hans allt, hálft mér
en hálft fjórðungsmönnum þeim er sektarfé eiga að taka eftir hann að lögum.
Stefni eg máli þessu til fimmtardóms sem málið á í að koma að lögum. Stefni eg
nú til sóknar og til sektar fullrar. Stefni eg lögstefnu. Stefni eg í heyranda
hljóði að Lögbergi."
Slíkrar stefnu stefndi hann
Eyjólfi Bölverkssyni um það er hann hafði þegið féið. Stefndi hann og þeirri
sök í fimmtardóm. Í annað sinn stefndi hann Flosa og Eyjólfi um þá sök er þeir
báru vætti þau á þingi er eigi áttu máli að skipta með mönnum að lögum og gerðu
í því þigsafglöpun. Lét hann og það varða þeim fjörbaugsgarð. Gengu þeir þá í
braut og til lögréttu. Þar var þá fimmtardómurinn settur.
Þá er þeir Ásgrímur og Mörður
voru í braut gengnir þá urðu dómendur ekki ásáttir hversu dæma skyldi því að
þeir vildu sumir dæma með Flosa en sumir með Merði og Ásgrími. Urðu þeir Flosi
og Eyjólfur þá að vefengja dóminn. Dvaldist þeim þar að því meðan stefnurnar
höfðu verið.
Litlu síðar var þeim sagt
Flosa og Eyjólfi að þeim var stefnt að Lögbergi í fimmtardóm tveim stefnum
hvorum þeirra.
Eyjólfur mælti þá: "Illu
heilli höfum vér hér dvalist er þeir hafa fyrri orðið að bragði að stefna en
vér. Hefir hér nú fram komið slægð Þórhalls og er hann engum manni líkur að
viti sínu. Eiga þeir nú fyrri að sækja í dóm sín mál. Lá þeim þar og allt við.
En þó skulum vér nú ganga til Lögbergs og búa mál til á hendur þeim þá að oss
komi það fyrir lítið."
Fóru þeir þá til Lögbergs og
stefndi Eyjólfur þeim um þingsafglöpun. Síðan gengu þeir til fimmtardómsins.
Þá er þeir Mörður og Ásgrímur
komu til fimmtardómsins þá nefndi Mörður sér votta og bauð að hlýða til
eiðspjalls síns og til framsögu sakar sinnar og til sóknargagna þeirra allra er
hann hugði fram að bera á hendur þeim Flosa og Eyjólfi. Bauð hann lögboði að
dómi svo að dómendur heyrðu um dóm þveran. Í fimmtardómi skyldi og sönnunarmenn
fylgja eiðum og skyldu þeir og eiða vinna.
Mörður nefndi sér votta
"nefni eg í það vætti," sagði hann, "að eg vinn fimmtardómseið.
Bið eg svo guð hjálpa mér í þvísa ljósi og í öðru að eg skal svo sök þessa sækja
sem eg veit réttast og sannast og helst að lögum. Og hygg eg Flosa sannan að
sök þessi vera ef efni eru að því og eg hefka fé borið í dóm þenna til liðs mér
um sök þessa og eg munka bera. Eg hefka fé fundið og eg munka finna hvorki til
laga né til ólaga."
Sönnunarmenn Marðar gengu þá
tveir að dómi og nefndu sér votta "í það vætti að við vinnum eið að bók,
lögeið. Biðjum við svo guð hjálpa okkur í þvísa ljósi og í öðru að við leggjum
það undir þegnskap okkarn að við hyggjum að Mörður muni svo sækja sök þessa sem
hann veit réttast og sannast og helst að lögum og hann hefurat fé borið í dóm
þenna um sök þessa til liðs sér og hann munat bera og hann hefurat fé fundið og
hann munat finna hvorki til laga né til ólaga."
Mörður hafði kvadda
Þingvallarbúa níu til sakarinnar. Síðan nefndi Mörður sér votta og sagði fram
þær fjórar sakar er hann hafði til búnar á hendur þeim Flosa og Eyjólfi og
hafði Mörður þau öll orð í framsögu sakar sinnar sem hann hafði í stefnum
sínum. Sagði hann svo skapaðar fjörbaugssakar þessar fram í fimmtardóm sem hann
kvað að þá er hann stefndi.
Mörður nefndi sér votta og
bauð búum þeim níu í setu vestur á árbakka. Mörður nefndi sér votta og bauð
þeim Flosa og Eyjólfi að ryðja kviðinn. Þeir gengu til að ryðja kvið og hugðu
að og gátu hvergi rengdan, gengu frá við svo búið og undu illa við. Mörður
nefndi sér votta og beiddi búa þá níu framburðar um kviðinn er hann hafði áður
kvadda, að bera annað tveggja af eða á. Búar Marðar gengu þá að dómi og taldi
einn fram kviðinn en allir guldu samkvæði. Þeir höfðu allir unnið
fimmtardómseið og báru Flosa sannan að sökinni og báru á hann kviðinn. Báru
þeir svo skapaðan fram kviðinn í fimmtardóm yfir höfði þeim manni er Mörður
hafði sök sína fram sagt. Síðan báru þeir kviðu þá alla er þeir voru skyldir að
bera til allra saka og fór það löglega fram.
Eyjólfur Bölverksson og þeir
Flosi sátu um að rengja og gátu ekki að gert.
Mörður Valgarðsson nefndi sér
votta. "Nefni eg í það vætti að búar þessir níu, er eg kvaddi til saka
þessa er eg höfðaði á hendur Flosa Þórðarsyni og Eyjólfi Bölverkssyni, hafa
borið á kviðinn og borið þá sanna að sökum."
Nefndi hann sér þessa votta.
Í annað sinn nefndi hann sér votta "nefni eg í það vætti," sagði
hann, "að eg býð Flosa Þórðarsyni eða þeim manni öðrum er handselda
lögvörn hefir fyrir hann að taka til varna því að nú eru fram komin sóknargögn
öll, boðið til eiðspjalls, unninn eiður, sögð fram sök, borið stefnuvætti,
boðið búum í setu, boðið til ruðningar um kviðinn, borinn kviður, nefndir
vottar að kviðburði."
Nefndi hann sér þessa votta
að gögnum þeim sem fram voru komin.
Þá stóð sá upp er sökin hafði
yfir höfði verið fram sögð og reifði málið. Hann reifði það fyrst er Mörður
bauð að hlýða til eiðspjalls síns og til framsögu sakar og til sóknargagna
allra. Þá reifði hann það því næst er Mörður vann eið og sönnunarmenn hans. Þá
reifði hann það er Mörður sagði fram sök og kvað svo að orði að hann hafði þau
orð öll í reifingu sinni er Mörður hafði áður í framsögu sakar sinnar og hann
hafði í stefnu sinni "og hann sagði svo skapaða sökina fram í fimmtardóm
sem hann kvað að þá er hann stefndi."
Þá reifði hann það er þeir
báru stefnuvætti og taldi þá öll orð þau er hann hafði áður í stefnu sinni og
þeir höfðu í vættisburði sínum "og nú hefi eg," sagði hann, "í
reifingu minni. Og þeir báru svo skapaðan kviðinn fram í fimmtardóm sem hann
kvað þá að er hann stefndi."
Síðan reifði hann það er
Mörður bauð búum í setu. Þá reifði hann það því næst er hann bauð Flosa að
ryðja kviðinn "eða þeim manni er handselda lögvörn hefir fyrir hann."
Þá reifði hann það er búar gengu að dómi og báru á kviðinn og báru Flosa sannan
að sökinni "báru þeir svo skapaðan níu búa kvið þenna fram í
fimmtardóm."
Þá reifði hann það er Mörður
nefndi votta að því er kviðurinn var á borinn. Þá reifði hann það er Mörður
nefndi votta að gögnum og bauð til varnar.
Mörður Valgarðsson nefndi sér
votta "nefni eg í það vætti," segði hann, "að eg banna Flosa
Þórðarsyni eða þeim manni öðrum er handselda lögvörn hefir fyrir hann að taka
til varna því að nú eru öll sóknargögn fram komin þau er sökinni eiga að fylgja
að reifðu máli og svo bornum gögnum."
Síðan reifði reifingarmaður
þetta vottorð. Mörður nefndi sér votta og beiddi dómendur að dæma um mál þetta.
Þá mælti Gissur hvíti:
"Fleira munt þú Mörður eiga að gera því að eigi munu fernar tylftir dæma
eiga."
Flosi mælti nú við Eyjólf:
"Hvað er nú til ráða?"
Eyjólfur svarar: "Nú er
úr vöndu að ráða en þó skulum vér nú bíða því að eg get að nú geri þeir rangt í
sókninni því að Mörður beiddi þegar dóms á málinu. En þeir eiga að nefna úr
dóminum sex menn. Síðan eiga þeir við votta að bjóða okkur úr að nefna dóminum
aðra sex menn en við skulum það eigi gera því að þá eiga þeir að nefna úr þá
sex menn og mun þeim það yfir sjást. Er þá ónýtt allt mál þeirra ef þeir gera
það eigi því að þrennar tylftir eiga að dæma málið."
Flosi mælti: "Vitur
maður ert þú Eyjólfur svo að fáir menn munu standa á sporði þér."
Mörður Valgarðsson nefndi sér
votta "nefni eg í það vætti," sagði hann, "að eg nefni þessa sex
menn úr dóminum" - og nefndi þá alla á nafn - "ann eg yður eigi að
sitja í dóminum. Nefni eg yður úr að alþingismáli réttu og allsherjar
lögum."
Eftir það bauð hann þeim
Flosa og Eyjólfi við votta að nefna úr aðra sex menn úr dóminum en þeir Flosi
vildu eigi úr nefna. Mörður lét þá dæma málið.
Og er dæmt var málið þá
nefndi Eyjólfi sér votta og kallaði ónýttan dóm þeirra og allt það er þeir
höfðu að gert, fann það til að dæmt hafði hálft fjórða tylft þar sem þrennar
áttu að dæma "skulum vér nú sækja fimmtardómssakar vorar á þá og gera þá
seka."
Gissur hvíti mælti þá við
Mörð Valgarðsson: "Allmjög hefir þér yfir sést er þú skyldir þetta rangt
gera og er slíkt ógæfa mikil. Eða hvað skal nú til ráða taka Ásgrímur
frændi?" segir Gissur.
Ásgrímur mælti: "Nú
skulum vér enn senda mann Þórhalli syni mínum og vita hvað hann leggur til ráðs
með oss."
145. kafli
Snorri goði spyr nú hvar
komið er málunum. Tekur hann þá að fylkja liði sínu fyrir neðan Almannagjá
millum og Hlaðbúðar og sagði fyrir áður sínum mönnum hvað þeir skyldu að gera.
Sendimaðurinn kemur nú til
Þórhalls Ásgrímssonar og segir honum hvar þá var komið að þeir Mörður
Valgarðsson mundu sekir gervir allir en eytt öllu vígsmálinu. En er hann heyrði
þetta brá honum svo við að hann mátti eigi orði upp koma. Hann spratt þá upp úr
rúminu og þreif tveim höndum spjótið Skarphéðinsnaut og rak í gegnum fótinn á
sér. Var þar á holdið og kveisunaglinn á spjótinu því að hann skar út úr
fætinum en blóðfossinn fellur og vogföllin svo að lækur féll eftir gólfinu.
Hann gekk nú út úr búðinni óhaltur og fór svo hart að sendimaðurinn fékk ekki
fylgt honum. Fer hann nú þar til er hann kemur til fimmtardómsins. Þar mætti
hann Grími hinum rauða frænda Flosa og jafnskjótt sem þeir fundust lagði
Þórhallur til hans spjótinu og kom í skjöldinn og klofnaði hann í sundur en
spjótið hljóp í gegnum hann svo að oddurinn kom út á milli herðanna. Þórhallur
kastaði honum dauðum af spjótinu.
Kári Sölmundarson gat séð
þetta og mælti við Ásgrím: "Hér er kominn Þórhallur son þinn og hefir
vegið víg nú þegar og er þetta skömm mikil ef hann einn skal hug til hafa að
hefna brennunnar."
"Það skal og eigi
vera," segir Ásgrímur, "og snúum vér nú að þeim."
Var þá kall mikið um allan
herinn og síðan var æpt heróp.
Þeir Flosi snerust þá við og
eggjuðust nú fast hvorirtveggju.
Kári Sölmundarson sneri nú
þar að sem fyrir var Árni Kolsson og Hallbjörn hinn sterki. Og þegar er
Hallbjörn sá Kára hjó hann til hans og stefndi á fótinn en Kári hljóp í loft
upp og missti Hallbjörn hans. Kári sneri að Árna Kolssyni og hjó til hans og
kom á öxlina og tók í sundur axlarbeinið og viðbeinað og hljóp allt ofan í
brjóstið. Féll Árni þegar dauður til jarðar. Síðan hjó hann til Hallbjarnar og
kom í skjöldinn og gekk í gegnum skjöldinn og svo ofan af honum þumaltána.
Hólmsteinn skaut spjóti til Kára en hann tók á lofti spjótið og sendi aftur og
verð það manns bani í liði Flosa.
Þorgeir skorargeir kom að þar
er fyrir var Hallbjörn hinn sterki. Þorgeir lagði til hans svo fast með annarri
hendi að Hallbjörn féll fyrir og komst nauðulega á fætur og sneri þegar undan.
Þá mætti Þorgeir Þorvaldi Þrum-Ketilssyni og hjó þegar til hans með öxinni
Rimmugýgi er átt hafði Skarphéðinn. Þorvaldur kom fyrir sig skildinum. Þorgeir
hjó í skjöldinn og klauf allan en hyrnan sú hin fremri rann í brjóstið og gekk
á hol og féll Þorvaldur þegar og var dauður.
Nú er að segja frá því að
Ásgrímur Elliða-Grímsson og Þórhallur son hans, Hjalti Skeggjason og Gissur
hvíti sóttu að þar sem fyrir var Flosi og Sigfússynir og aðrir brennumenn. Var
þar allharður bardagi og laukst með því að þeir Ásgrímur gengu að svo fast að
þeir Flosi hrukku undan.
Guðmundur hinn ríki og Mörður
Valgarðsson og Kári Sölmundarson og Þorgeir skorargeir sóttu þar að er fyrir
voru Öxfirðingar og Austfirðingar og Reykdælir. Var þar allharður bardagi.
Kári Sölmundarson kom að þar
er fyrir var Bjarni Brodd-Helgason. Kári þreif upp spjót og lagði til hans og
kom í skjöldinn. Bjarni skaut hjá sér skildinum ella hefði spjótið staðið í
gegnum hann. Hann hjó þá til Kára og stefndi á fótinn. Kári kippir fætinum og
snerist undan á hæli og missti Bjarni hans. Kári hjó þegar til hans. Þá hljóp
maður fram og skaut skildi fyrir Bjarna. Kári klauf ofan allan skjöldinn og nam
blóðrefillinn lærið og reist ofan allan fótinn. Sá maður féll þegar og varð
aldrei örkumlalaus meðan hann lifði. Kári þreif þá tveim höndum spjótið og
snerist að Bjarna og lagði til hans. Hann sá engan sinn kost annan en hann lét
fallast þvers undan laginu. En þegar er Bjarni kemst á fætur hrökk hann undan.
Þorgeir skorargeir sótti þá að þar er fyrir var Hólmsteinn Spak-Bersason og
Þorkell Geitisson. Lauk svo með þeim að þeir Hólmsteinn hrukku undan. Varð þá
óp mikið að þeim af mönnum Guðmundar ríka.
Þorvarður Tjörvason frá
Ljósavatni fékk sár mikið. Hann var skotinn í handlegg og ætluðu menn að skotið
hefði Halldór son Guðmundar hins ríka og hafði hann þetta sár bótalaust alla
ævi síðan.
Var þar nú þröng mikil. En þó
að hér sé sagt frá nokkurum atburðum þá eru hinir þó miklu fleiri er menn hafa
engar frásagnir af.
Flosi hafði það sagt sínum
mönnum að þeir skyldu leita til vígis í Almannagjá ef þeir yrðu forviða því að
þar mátti einum megum að sækja.
En flokkur sá er Síðu-Hallur
hafði og Ljótur son hans höfðu hörfað frá í braut fyrir atgöngu þeirra feðga
Ásgríms og Þórhalls. Sneru þeir ofan fyrir austan Öxará.
Hallur mælti þá: "Hér
slær í allmikil óefni er allur þingheimur berst. Vildi eg Ljótur frændi að við
bæðum okkur liðs að skilja menn þó að okkur sé það til orðs lagið af nokkurum
mönnum. Skalt þú bíða við brúarsporðinn en eg mun ganga í búðir og biðja mér
liðs.
Ljótur mælti: "Ef eg sé
að þeir Flosi þurfa liðs af mönnum vorum þá mun eg þegar hlaupa til með
þeim."
"Það munt þú gera sem
þér líkar," segir Hallur, "en biðja vil eg þig að þú bíðir mín."
Nú brestur flótti í liði
Flosa og flýja þeir allir vestur um Öxará en þeir Ásgrímur og Gissur hvíti
gengu eftir og allur herinn. Þeir Flosi hörfuðu neðan milli Virkisbúðar og
Hlaðbúðar. Snorri goði hafði þar fylkt fyrir liði sínu svo þykkt að þeim gekk
eigi þar að fara.
Snorri goði kallað þá á
Flosa: "Hví farið þér svo geystir eða hverjir elta yður?"
Flosi svarar: "Ekki
spyrð þú þessa af því er eigi vitir þú það áður. En hvort veldur þú því er vér
megum eigi sækja til vígis í Almannagjá?"
"Eigi vel eg því,"
segir Snorri, "en hitt er satt að eg veit hverjir valda og mun eg segja
þér ef þú vilt að þeir valda því að Þorvaldur kroppinskeggi og Kolur."
Þeir voru þá báðir dauðir og
höfðu verið hin mestu illmenni í liði Flosa.
Í annan stað mælti Snorri til
sinna manna: "Gerið þér nú hvorttveggja að þér höggvið og leggið til
þeirra og keyrið þá í braut héðan. Munu þeir þá skamma stund hér við haldast er
hinir sækja að neðan. Skuluð þér þá ekki eftir ganga og láta þá sjálfa á
sjást."
Skafta Þóroddssyni var sagt
að Þorsteinn holmunnur son hans var í bardaga með Guðmundi hinum ríka mági
sínum. Og þegar Skafti vissi þetta gekk hann til búðar Snorra goða og ætlaði að
biðja Snorra að hann gengi til að skilja þá með honum. En er hann var eigi allt
kominn að búðardyrunum Snorra þá var bardaginn sem óðastur. Þeir Ásgrímur og
hans menn gengu þar þá að neðan.
Þá mælti Þórhallur við Ásgrím
föður sinn: "Þar er hann Skafti Þóroddsson nú faðir."
Ásgrímur mælti: "Sé eg
það frændi."
Skaut hann þá spjóti til
Skafta og kom fyrir neðan það er kálfi var digrastur og svo í gengum báða
fæturna. Skafti féll við skotið og fékk eigi upp staðið. Fengu þeir það eina
ráðs tekið er hjá voru að þeir drógu Skafta inn í búð sverðskriða nokkurs
flatan.
Þeir Ásgrímur gengu þá að svo
fast að Flosi og hans menn hrukku undan suður með ánni til Möðruvellingabúðar.
Þar var maður úti hjá búð nokkurri er Sölvi hét. Hann sauð í katli miklum og
hafði þá upp fært úr katlinum en vellan var sem áköfust. Sölvi gat að líta hvar
þeir flýðu Austfirðingarnir og voru þá komnir mjög svo þar gegnt.
Hann mælti þá: "Hvort
munu þessir allir ragir Austfirðingarnir er hér flýja? Og jafnvel rennur hann
Þorkell Geitisson og er allmjög logið frá honum er margir hafa það sagt að hann
væri hugur einn en nú rennur engi harðara en hann."
Hallbjörn hinn sterki var þar
nær staddur og mælti: "Eigi skalt þú það eiga til að segja að vér séum
allir ragir" og þreif til hans og brá honum á loft og rak hann að höfði í soðketilinn.
Dó Sölvi þegar. Var þá og sótt að Hallbirni og varð hann þá undan að leita.
Flosi skaut spjóti til Brúna
Hafliðasonar og kom á hann miðjan og varð það hans bani. Hann var í liði
Guðmundar hins ríka. Þorsteinn Hlennason tók spjótið úr sárinu og skaut aftur
að Flosa og kom á fótinn og fékk hann sár mikið og féll við. Hann stóð upp
þegar. Hörfuðu þeir þá til Vatnsfirðingabúðar.
Þeir Ljótur og Hallur gengu
þá austan yfir á með flokk sinn allan. Og þá er þeir komu á hraunið var skotið
spjóti úr liði Guðmundar hins ríka og kom það á Ljót miðjan. Féll hann þegar
dauður niður og varð aldrei uppvíst hver þetta víg hafði vegið.
Þeir Flosi hörfuðu nú upp um
Vatnsfirðingabúð.
Þorgeir skorargeir mælti þá
við Kára Sölmundarson: "Þar er hann nú Eyjólfur Bölverksson ef þú vilt
launa honum hringinn."
"Eg ætla það nú eigi
fjarri," segir Kári og þreif spjót af manni og skaut til Eyjólfs og kom
það á hann miðjan og gekk í gengum hann. Féll Eyjólfur þegar dauður til jarðar.
Þá varð hvíld nokkur á um
bardagann. Snorri goði kom þá að með flokk sinn. Var þar þá Skafti í liði með
honum og hljópu þegar í milli þeirra. Náðu þeir þá eigi að berjast. Hallur gekk
þá í lið með þeim og vildi skilja þá. Voru þá sett grið og skyldu þau haldast
um þingið. Var þá búið um lík og færð til kirkju en bundin sár þeirra manna er
særðir voru.
Annan dag eftir gengu menn
til Lögbergs. Hallur af Síðu stóð upp og kvaddi sér hljóðs og fékkst þegar.
Hann mælti svo: "Hér
hafa orðið harðir atburðir í mannaláti og málasóknum. Mun eg enn sýna það er eg
er lítilmenni. Eg vil nú biðja Ásgrím og þá menn aðra er fyrir málum þessum eru
að þeir unni oss jafnsættis."
Fór hann þar um mörgum fögrum
orðum.
Kári Sölmundarson mælti:
"Þó að allir sættist aðrir á sín mál þá skal eg eigi sættast á mín mál því
að þér munuð vilja virða víg þessi í móti brennunni en vér þolum það
eigi."
Slíkt hið sama mælti Þorgeir
skorargeir.
Þá stóð upp Skafti Þóroddsson
og mælti: "Betra hefði þér verið Kári að renna eigi frá mágum þínum og
skerast nú eigi úr sáttum við góða menn."
Kári kvað þá vísur þrjár:
Hvað
skaltu, runnr, þótt rynnum,
randlinns, of sök minni
hagl dreif skarpt á Sköglar
skýjum, oss að frýja,
hinn er hélt, þá er hjalta
hátungur mjög sungu,
brynju meiðr til búðar
blauðr með skeggið rauða.
Varð,
þá er víga Njörðu
vilja þraut að skilja,
lítt gekk skáld fyrir skjöldu,
Skafta margt að hafti,
er matsjóðar Móða
málmrógs flatan drógu,
slíkt er allt af æðru,
inn í búð að trúðar.
Höfðu
Gríms að gamni
græðis elgs og Helga,
rétt unnut þá runnar,
rennendr Níals brennu.
Nú mun börgs í björgum
baugs hnykkjöndum þykkja
lyngs að loknu þingi
ljóts annan veg þjóta.
Þá varð hlátur mikill.
Snorri goði brosti að og kvað
þetta fyrir munni sér svo þó að margir heyrðu:
Vel
kann Skafti skilja,
skaut Ásgrímr spjóti.
Villat Hólmsteinn flýja,
vegr Þorketill nauðigr.
Hlógu menn nú allmjög.
Hallur af Síðu mælti:
"Allir menn vita hvern harm eg hefi beðið um lát Ljóts sonar míns. Munu
það margir ætla að hann muni dýrstur ger af þeim mönnum er hér hafa látist. En
eg vil það vinna til sátta manna að leggja son minn ógildan og ganga þó til að
veita þeim bæði tryggðir og grið er mínir mótstöðumenn eru. Bið eg þig Snorri
goði og aðra hina bestu menn að þér komið því til leiðar að sættir verði með
oss."
Síðan settist Hallur niður og
var ger að máli hans mikill rómur og góður og lofuðu allir mjög hans góðgirnd.
Snorri goði stóð þá upp og
talaði langt erindi og snjallt og bað Ásgrím og Gissur og aðra þá menn er fyrir
málum voru þaðan að, að þeir skyldu sættast.
Ásgrímur mælti: "Það
ætlaði eg þá er Flosi reið heim að mér að eg mundi við hann aldrei sættast en
nú vil eg, Snorri goði, sættast fyrir orð þín og annarra vina vorra."
Slíkt hið sama mæltu þeir
Þorleifur krákur og Þorgrímur hinn mikli að þeir mundu sættast og fýstu í öllu
Þorgeir skorargeir bróður sinn að sættast en hann skarst undan og kvaðst aldrei
við Kára skyldu skiljast.
Þá mælti Gissur hvíti:
"Nú má Flosi sjá sinn kost hvort hann vill sættast til þess að sumir séu
utan sætta."
Flosi kveðst sættast vilja
"og þykir mér því betur," segir hann, "er eg hefi færri góða
menn í móti mér."
Guðmundur hinn ríki mælti:
"Það vil eg bjóða að handsala fyrir víg þau er hér hafa orðið á þinginu að
mínum hluta til þess að ekki falli niður brennumálið."
Slíkt hið sama mæltu þeir
Gissur hvíti og Hjalti Skeggjason, Ásgrímur Elliða-Grímsson og Mörður
Valgarðsson. Við þetta gekk saman sættin.
Var þá handsalað í tólf manna
dóm og var Snorri goði fyrir gerðinni og aðrir góðir menn með honum. Var þá
jafnað saman vígum en bættir þeir menn sem umfram voru. Þeir gerðu og um
brennumálin. Skyldi Njál bæta þrennum manngjöldum en Bergþóru tvennum. Víg
Skarphéðins skyldi jafnt og víg Höskulds Hvítanesgoða. Tvennum manngjöldum
skyldi bæta hvorn þeirra Gríms og Helga. Þá skyldu ein manngjöld koma fyrir
hvern hinna er inni höfðu brunnið. Á vígið Þórðar Kárasonar var ekki sæst.
Flosi var og ger utan og allir brennumenn og skyldu eigi fara samsumars nema
þeir vildu. En ef þeir færu eigi utan um það er þrír vetur væru liðnir þá
skyldi hann og allir brennumenn vera sekir skógarmenn. Og var svo mælt að lýsa
skyldi sekt þeirra á haustþingi eða vorþingi hvort sem heldur vildi. Flosi
skyldi vera þó utan þrjá vetur. Gunnar Lambason og Grani Gunnarsson, Glúmur Hildisson,
Kolur Þorsteinsson, þeir skyldu aldrei útkvæmt eiga. Þá var Flosi spurður ef
hann vildi láta dæma fyrir sár sitt en hann kveðst ekki vilja taka fémútur á
sér. Eyjólfur Bölverksson var lagður ógildur fyrir ójöfnuð sinn og rangindi.
Var þessi sætt nú handsöluð og efndist öll.
Þeir Ásgrímur gáfu Snorra
goða góðar gjafar. Hafði hann virðing mikla af málum þessum.
Skafta var engu bættur
áverkinn.
Þeir Gissur hvíti og Hjalti
Skeggjason og Ásgrímur Elliða-Grímsson buðu heim Guðmundi hinum ríka. Hann þá heimboðin
og gaf sinn gullhring hver þeirra honum. Ríður Guðmundur nú norður heim og
hafði allra manna lof fyrir það hversu hann kom sér við í þessum málum.
Þorgeir skorargeir bauð Kára
með sér að fara en þó riðu þeir fyrst með Guðmundi allt norður á fjall. Kári
gaf Guðmundi gullsylgju en Þorgeir silfurbelti og var hvorttveggja hinn besti
gripur. Skildu þeir með hinni mestu vináttu. Reið Guðmundur þá heim og er hann
úr sögu þessi. Þeir Kári riðu suður af fjallinu og ofan í Hreppa og svo til
Þjórsár.
Flosi og brennumenn allir með
honum riðu austur til Fljótshlíðar. Lét hann þá Sigfússonu skipa til búa sinna.
Þá frétti Flosi að Þorgeir og Kári höfðu riðið norður með Guðmundi hinum ríka
og ætluðu menn nú að þeir mundu vera fyrir norðan land. Þá beiddu Sigfússynir
að fara austur undir Eyjafjöll að fjárheimtum sínum því að þeir áttu
fjárheimtur austur að Höfðabrekku. Flosi leyfði þeim það og bað þá þó vera vara
um sig og vera sem skemmst. Flosi reið þá upp um Goðaland og svo á fjall og
fyrir norðan Eyjafjallajökul og létti eigi fyrr en hann kom heim austur til
Svínafells.
Nú verður að segja frá því að
Hallur af Síðu hafði lagið ógildan son sinn og vann það til sætta. Þá bætti
honum allur þingheimurinn og varð það eigi minna fé en átta hundruð silfurs en
það voru fern manngjöld. En allir þeir aðrir er með Flosa höfðu verið fengu
engar bætur fyrir vansa sinn og undu við hið versta.
Sigfússynir dvöldust heima
tvær nætur en hinn þriðja dag riðu þeir austur til Raufarfells og voru þar um
nóttina. Þeir voru saman fimmtán og uggðu alls ekki að sér. Þeir riðu þaðan síð
og ætluðu til Höfðabrekku um kveldið. Þeir áðu í Kerlingardal og tóku þar á sig
svefn mikinn.
146. kafli
Þeir Kári Sölmundarson og
Þorgeir skorargeir riðu þenna dag austur yfir Markarfljót og svo austur til
Seljalandsmúla. Þar fundu þeir konur nokkurar.
Þær kenndu þá og mæltu til
þeirra: "Minna gemsið þið en þeir Sigfússynir en þó farið þið
óvarlega."
Þorgeir mælti: "Hví er
ykkur svo statt til Sigfússona eða hvað vitið þið til þeirra?"
"Þeir voru í nótt að
Raufarfelli," sögðu þær, "og ætluðu í kveld í Mýdal. En það þótti
okkur gott er þeim var þó ótti að ykkur og spurðu nær þið munduð heim
koma."
Þá fóru þær leið sína en þeir
keyrðu hestana.
Þorgeir mælti: "Hvað er
þér næst skapi? Vilt þú að við ríðum eftir þeim?"
Kári svarar: "Eigi mun
eg þess letja."
Þorgeir mælti: "Hvað
skulum við ætla okkur?"
"Eigi veit eg það,"
segir Kári. "Kann það oft verða að þeir menn lifa langan aldur er með
orðum eru vegnir. En veit eg hvað þú munt þér ætla. Þú munt ætla þér átta menn
og er það þó minna en það er þú vóst þá sjö í skorinni og fórst í festi ofan
til þeirra. En yður frændum er svo háttað að þér viljið yður allt til ágætis
gera. Nú mun eg eigi minna að gera en vera hjá þér til frásagnar. Skulum við nú
og tveir einir eftir ríða því að eg sé að þú hefir svo til ætlað."
Síðan riðu þeir austur hið
efra og komu ekki í Holt því að Þorgeir vildi ekki að bræðrum hans mætti um
kenna hvað sem í gerðist. Þeir riðu þá austur til Mýdals. Þar mættu þeir manni
nokkurum og hafði torfhrip á hrossi.
Hann tók til orða: "Of
fámennur ert þú nú Þorgeir félagi."
"Hvað er nú í því?"
sagði Þorgeir.
"Því," sagði sjá,
"að nú bæri veiði í hendur. Hér riðu um Sigfússynir og munu sofa í allan
dag austur í Kerlingardal því að þeir ætluðu ekki lengra í kveld en til
Höfðabrekku."
Síðan riðu hvorir leið sína.
Riðu þeir Þorgeir austur á Arnarstakksheiði og er ekki að segja frá ferð þeirra
fyrr en þeir komu til Kerlingardalsár. Áin var mikil. Riðu þeir nú upp með ánni
því að þeir sáu þar hross með söðlum. Þeir riðu nú þangað til og sáu að menn
sofa í dæl nokkurri og stóðu spjót þeirra ofan frá þeim. Þeir tóku spjótin og
báru út á ána.
Þorgeir mælti: "Hvort
vilt þú að við vekjum þá?"
Kári svarar: "Eigi
spyrðu þessa af því að eigi hafir þú þetta áður ráðið með þér að vega eigi að
liggjandi mönnum og vega skammarvíg."
Síðan æptu þeir á þá. Vöknuðu
þeir þá og hljópu upp allir og þrífa til vopna sinna. Þeir Kári réðu eigi á þá
fyrr en þeir voru vopnaðir. Þorgeir skorargeir hleypur þar að sem fyrir var
Þorkell Sigfússon. Í því bili hljóp maður að baki honum og fyrr en hann gæti
unnið Þorgeiri nokkurn geig þá reiddi Þorgeir tveim höndum öxina Rimmugýgi og
rak í höfuð þeim öxarhamarinn er að baki honum stóð svo að hausinn brotnaði í
smán mola. Féll sá þegar og var dauður. En er hann reiddi fram öxina hjó hann á
öxl Þorkatli og klauf frá ofan alla höndina og féll Þorkell dauður niður.
Í móti Kára réð Mörður
Sigfússon og Sigurður Lambason og Lambi Sigurðarson. Hann hljóp að baki Kára og
lagði til hans spjóti. Kári fékk séð hann og hljóp upp við lagið og brá í
sundur við fótunum. Kom þá lagið í völlinn en Kári hljóp á spjótskaftið og
braut í sundur. Hann hafði spjót í annarri hendi en í annarri sverð en engan
skjöld. Hann lagði hinni hægri hendi til Sigurðar Lambasonar. Kom lagið í
brjóstið og gekk spjótið út um herðarnar. Féll hann þá og var þegar dauður.
Hinni vinstri hendi hjó hann til Marðar Sigfússonar og kom á mjöðmina og tók
hana í sundur og svo hrygginn. Féll hann áfram og þegar dauður. Eftir það
snerist hann á hæli svo sem skaftkringla og að Lamba Sigurðarsyni en hann fékk
það eitt fangaráðið að hann tók á rás undan.
Nú sneri Þorgeir í móti
Leiðólfi hinum sterka og hjó þar hvor til annars jafnsnemma og varð svo mikið
högg Leiðólfs að allt tók af skildinum það er nam. Þorgeir hafði höggvið tveim
höndum með öxinni Rimmugýgi og kom hin efri hyrnan í skjöldinn og klofnaði hann
í sundur en hin fremri hyrnan tók við viðbeinað og í sundur og reist ofan í
brjóstið á hol. Kári kom að í því og rak undan Leiðólfi fótinn í miðju lærinu.
Féll Leiðólfur þá og var þegar dauður.
Ketill úr Mörk mælti:
"Renna munum vér til hesta vorra og megum vér ekki við haldast fyrir
ofureflismönnum þessum."
Þeir runnu þá til hesta sinna
og hljópu á bak. Þorgeir mælti: "Vilt þú að við eltum þá og munum við enn
geta drepið þá nokkura?"
"Sá ríður síðast,"
segir Kári, "að eg vil eigi drepa en það er Ketill úr Mörk því að við
eigum systur tvær en honum hefir farið þó best í málum vorum áður."
Stigu þeir þá á hesta sína og
riðu þar til er þeir komu heim í Holt. Lét Þorgeir þá bræður sína fara austur í
Skóga því að þeir áttu þar annað bú og því að Þorgeir vildi eigi að bræður hans
mætti kalla griðníðinga. Hafði Þorgeir þar þá mannmargt svo að aldrei var þar
færra vígra karla en þrír tigir. Var þar þá gleði mikil. Þótti mönnum Þorgeir
mjög hafa vaxið og framið sig og báðir þeir Kári. Höfðu menn í minnum mjög
eftirreið þeirra er þeir riðu tveir að fimmtán mönnum og drápu þá fimm en
renndu þeim tíu er undan komust.
Nú er frá þeim Katli að segja
að þeir riðu sem mest máttu þeir til þess er þeir komu heim til Svínafells og
sögðu sínar farar eigi sléttar.
Flosi kvað slíks að von
"og er yður þetta viðvörun," segir hann. "Skuluð þér nú aldrei
svo fara síðan."
Flosi var allra manna
glaðastur og bestur heima að hitta. Og er svo sagt að honum hafi flestir hlutir
höfðinglegast gefnir verið. Var hann nú heima um sumarið og svo um veturinn.
En um veturinn eftir jól kom
Hallur af Síðu austan og Kolur son hans. Flosi varð feginn komu hans. Töluðu
þeir oft um málaferlin. Sagði Flosi að þeir höfðu mikið afhroð nú goldið þegar.
Hallur kvaðst nærgætur orðið hafa málum þeirra. Flosi spurði hann þá ráðs hvað
honum þætti þá líkast.
Hallur svarar: "Það legg
eg til ráðs að þú sættist við Þorgeir ef kostur er og mun hann þó vera vandur
að allri sætt."
"Ætlar þú þá munu lokið
vígunum?" segir Flosi.
"Eigi ætla eg það,"
segir Hallur, "en við færri er þá um að eiga er við Kára er einn. En ef þú
sættist eigi við Þorgeir þá verður það þinn bani."
"Hverja sætt skulum vér
bjóða honum?" segir Flosi.
"Hörð mun yður sú
þykja," segir Hallur, "er hann mun þiggja. Því aðeins mun hann
sættast vilja nema hann gjaldi ekki fyrir það er hann hefir af gert en taki
bætur fyrir Njál og sonu hans að sínum þriðjungi."
"Hörð sætt er það,"
segir Flosi.
"Ekki er þér sjá sætt
hörð," segir Hallur, "því að þú átt ekki vígsmál eftir Sigfússonu og
eiga bræður þeirra vígsmál eftir þá en Hámundur hinn halti eftir son sinn. En
þú munt nú ná sættum við Þorgeir því að eg mun ríða til með þér og mun Þorgeir
mér nokkurninn vel taka. En engi þeirra, er mál þessi eiga, munu þora að sitja
að búum sínum í Fljótshlíð ef þeir eru utan sætta því að það verður þeirra
bani. Og er það að vonum við skaplyndi Þorgeirs."
Var nú sent eftir Sigfússonum
og báru þeir þetta mál upp við þá. Og lauk svo þeirra ræðum af fortölum Halls
að þeim þótti svo allt sem hann talaði um fyrir þeim og vildu gjarna sættast.
Grani Gunnarsson mælti og
Gunnar Lambason: "Sjálfrátt er oss ef Kári er einn eftir að hann sé eigi
óhræddari við oss en vér við hann."
"Ekki er svo að
mæla," segir Hallur. "Mun yður verða sárkeypt við hann og munuð þér
mikið afhroð gjalda áður en lýkur með yður."
Síðan hættu þeir talinu.
147. kafli
Hallur af Síðu og Kolur son
hans og þeir sex saman riðu vestur yfir Lómagnúpssand og svo vestur yfir
Arnarstakksheiði og léttu eigi fyrr en þeir komu í Mýdal. Þar spurðu þeir að
hvort Þorgeir mundi heima í Holti en þeim var sagt að hann mundi heima vera.
Hallur var spurður hvert hann ætlaði að fara en hann kvaðst þangað ætla í Holt.
Þeir kváðu hann með nokkuru
góðu fara mundu. Dvaldist Hallur þar nokkura stund, og áðu. Eftir það tóku þeir
hesta sína og riðu á Sólheima um kveldið og voru þar um nóttina.
En um daginn eftir riðu þeir
í Holt. Þorgeir var úti og svo Kári og menn þeirra því að þeir kenndu ferð
Halls. Hann reið í blárri kápu og hafði litla öxi silfurrekna í hendi. En er
þeir komu í túnið þá gekk Þorgeir í móti þeim og tók Hall af baki og minntust
þeir Kári báðir við hann og leiddu hann í milli sín í stofu og settu hann á
pall í hásæti og spurðu hann margra tíðinda. Var hann þar um nóttina.
Um morguninn eftir vakti
Hallur til máls við Þorgeir ef hann vildi sættast og sagði hverjar sættir þeir
buðu honum og talaði þar um mörgum orðum fögrum og góðgjarnlegum.
Þorgeir svarar: "Kunnigt
má þér það vera að eg vildi engum sættum taka við brennumenn."
"Allt var það annað
mál," segir Hallur. "Þér voruð þá vígreiðir. Hafið þér nú og mikið að
gert um mannadráp síðan."
"Svo mun yður
þykja," segir Þorgeir, "en hverja sætt bjóðið þér Kára?"
"Boðin mun honum sættin
sú er sæmileg er," segir Hallur, "ef hann vill sættast."
Kári mælti: "Þess vil eg
biðja þig, Þorgeir vinur, að þú sættist því að þinn hlutur má ekki verða betri
en góður."
"Illt þykir mér að
sættast og skiljast við þig nema þú takir slíka sætt sem eg tek," segir
Þorgeir.
"Eigi vil eg það,"
segir Kári, "að sættast. En þó kalla eg nú að við höfum hefnt brennunnar.
En sonar míns kalla eg vera óhefnt og ætla eg mér einum það að hefna hans slíkt
sem eg fæ að gert."
En Þorgeir vildi eigi fyrr
sættast en Kári sagði á ósátt sína ef hann sættist eigi. Handsalaði Þorgeir þá
grið Flosa og hans mönnum til sáttarfundarins en Hallur seldi önnur í móti er
hann hafði tekið af Flosa og Sigfússonum. En áður þeir skildust gaf Þorgeir
Halli gullhring og skarlatsskikkju en Kári silfurmen og voru á gullkrossar
þrír. Hallur þakkaði þeim vel gjafarnar og reið í braut með hinni mestu sæmd og
létti eigi fyrr en hann kom til Svínafells. Tók Flosi vel við honum.
Hallur sagði Flosa allt frá
erindum sínum og svo frá viðræðum þeirra Þorgeirs og svo það að Þorgeir vildi
eigi fyrr sættast en Kári gekk að og bað hann og sagði ósátt sína á ef hann
sættist eigi en Kári vildi þó eigi sættast.
Flosi mælti: "Fám mönnum
er Kári líkur og þann veg vildi eg helst skapfarinn vera sem hann er."
Þeir Hallur dvöldust þar
nokkura hríð. Síðan riðu þeir vestur að ákveðinni stundu til sáttarfundarins og
fundust að Höfðabrekku sem mælt hafði verið með þeim. Kom Þorgeir þá til móts
við þá vestan að. Töluðu þeir þá um sætt sína. Gekk það allt eftir því sem
Hallur hafði sagt.
Þorgeir sagði þeim fyrir
sættirnar að Kári skyldi vera með honum jafnan er hann vildi "skulu
hvorigir öðrum þar illt gera að heima mínu. Eg vil og ekki eiga að heimta að
sérhverjum þeirra og vil eg að þú Flosi varðir einn við mig en heimtir að
sveitungum þínum og vil eg að sú gerð haldist öll er ger var á þingi um
brennuna. Vil eg Flosi að þú gjaldir mér þriðjung minn óskerðan."
Flosi gekk skjótt að þessu
öllu. Þorgeir gaf hvorki upp utanferðir né héraðssektir.
Nú riðu þeir Flosi og Hallur
austur heim.
Hallur mælti til Flosa:
"Efn þú vel mágur sætt þessa bæði utanferð þína og suðurgönguna og
fégjöld. Munt þú þá þykja röskur maður þó að þú hafir ratað í stórvirki þetta
ef þú innir rösklega af hendi alla hluti."
Flosi kvaðst svo skyldu gera.
Reið Hallur nú heim austur en Flosi reið heim til Svínafells og var nú heima um
hríð.
148. kafli
Þorgeir skorargeir reið heim
af sáttarfundinum. Kári spurði hvort saman gengi sættin. Þorgeir sagði að þeir
voru sáttir að fullu. Kári tók hest sinn og vildi í braut ríða.
"Eigi þarft þú í braut
að ríða," segir Þorgeir, "fyrir því að það var skilið í sætt vora að
þú skyldir hér vera jafnan hvern tíma er þú vildir."
Kári mælti: "Ekki skal
svo vera mágur því að þegar ef eg veg víg nokkurt þá munu þeir það mæla að þú
sért í ráðum með mér og vil eg það eigi. En það vil eg að þú takir við
handsölum á fé mínu og eignir ykkur Helgu Njálsdóttur konu minni og dætrum
mínum. Mun það þá ekki upp tekið af þeim sökudólgum mínum."
Þorgeir játaði því sem Kári
vildi beitt hafa. Tók Þorgeir þá handsölum á fé Kára.
Síðan reið Kári í braut. Hann
hafði hesta tvo og vopn sín og klæði og nokkurt lausafé í gulli og silfri. Kári
reið nú vestur fyrir Seljalandsmúla og upp með Markarfljóti og svo upp í
Þórsmörk. Þar eru þrír bæir er í Mörk heita allir. Á miðbænum bjó sá maður er
Björn hét og var kallaður Björn hvíti. Hann var Kaðalsson, Bjálfasonar. Bjálfi
hafði verið leysingi Ásgerðar móður Njáls og Holta-Þóris. Björn átti þá konu er
Valgerður hét. Hún var Þorbrandsdóttir, Ásbrandssonar. Móðir hennar hét
Guðlaug. Hún var systir Hámundar föður Gunnars að Hlíðarenda. Hún var gefin til
fjár Birni og unni hún honum ekki mikið en þó áttu þau börn saman. Þau áttu
gnóttir í búi. Björn var maður sjálfhælinn en húsfreyju hans þótti það illt.
Hann var skyggn og skjótur á fæti. Þangað kom Kári til gistingar og tóku þau
við honum báðum höndum. Var hann þar um nóttina.
Um morguninn töluðust þeir
við.
Kári mælti til Bjarnar:
"Það vildi eg að þú tækir við mér. Þykist eg hér vel kominn með þér. Vildi
eg að þú værir í ferðum með mér er þú ert maður skyggn og frár enda ætla eg að
þú munir öruggur til áræðis."
"Hvorki frý eg
mér," segir Björn, "skyggnleiks né áræðis eða nokkurrar karlmennsku.
En því munt þú hingað kominn að nú mun fokið í öll skjól. En við áskorun þína
Kári," segir Björn, "þá skal ekki gera þig líkan hversdagsmönnum.
Skal eg víst verða þér að liði öllu slíku sem þú beiðir."
Húsfreyja hans varð áheyrsla
og mælti: "Tröll hafi þitt hól," sagði hún, "og skrum og skyldir
þú eigi mæla ykkur tál báðum og hégóma í þessu. En gjarna vil eg veita Kára mat
og aðra góða hluti þá er eg veit að honum má gagn að verða. En á harðræði
Bjarnar skalt þú Kári ekki treysta því að eg uggi að þér verði að öðru en hann
segir."
Björn mælti: "Oft hefir
þú veitt mér ámæli en eg treysti mér svo vel að eg mun fyrir engum manni á hæl
hopa. Er hér raun til að því leita fáir á mig að engir þora."
Þar var Kári nokkura stund á
laun og var það á fárra manna viti. Ætluðu menn nú að hann mundi riðinn norður
um land á fund Guðmundar hins ríka því að Kári lét Björn það segja nábúum sínum
að hann hefði fundið Kára á förnum vegi og riði hann þaðan upp á Goðaland og
svo norður á Gásasand og svo til Guðmundar hins ríka norður á Möðruvöllu.
Spurðist það þá um allar sveitir.
149. kafli
Nú er þar til máls að taka er
Flosi er. Hann mælti til brennumanna félaga sinna: "Eigi mun oss enn duga
kyrru fyrir að halda. Munum vér hljóta að hugsa um utanferðir vorar og fégjöld
og efna sættir vorar sem drengilegast, taka oss fari þar hver er líkast
þykir."
Þeir báðu hann fyrir sjá.
Flosi mælti: "Austur munum
vér ríða til Hornafjarðar því að þar stendur skip uppi er á Eyjólfur nef,
þrænskur maður, en hann vill biðja sér konu og nær hann eigi ráðinu nema hann
setjist aftur. Munum vér kaupa skipið að honum því að vér munum hafa fé lítið
en margt manna. Er það skip mikið og mun það taka oss upp alla."
Hættu þeir þá talinu.
En litlu síðar riðu þeir
austur og léttu eigi fyrr en þeir komu í Bjarnanes í Hornafjörð. Fundu þeir þar
Eyjólf því að hann hafði þar verið á vist um veturinn. Þar var tekið vel við
Flosa og voru þeir þar um nóttina. En um morguninn eftir falaði Flosi skipið að
stýrimanni. Hann kvaðst ekki mundu þver í vera að selja skipið ef hann hefði
það fyrir sem hann vildi. Flosi spurði í hverjum aurum hann vildi fyrir hafa.
Austmaðurinn kveðst vildu fyrir hafa land og þó nær sér. Sagði Eyjólfur þá
Flosa allt sem farið var um kaup þeirra bónda. Flosi kveðst skyldu saman róa
svo að keypt yrði en kaupa síðan skipið að honum. Austmaðurinn gladdist við
þetta. Flosi bauð honum land í Borgarhöfn. Austmaðurinn heldur nú á málinu við
bónda svo að Flosi var hjá. Flosi lagði þá til orð sín með þeim svo að saman
gekk með þeim kaupið. Lagði Flosi til landið í Borgarhöfn með Austmanninum en
tók handsölum á kaupskipinu. Flosi hafði og af Austmanninum tuttugu hundruð vöru
og varð það í kaupi þeirra.
Reið Flosi þá aftur. Hann var
svo vinsæll af sínum mönnum að hann hafði þar vöru að láni eða gjöf sem hann
vildi. Flosi reið nú heim til Svínafells og var heima um hríð. Flosi sendi þá
Kol Þorsteinsson og Gunnar Lambason austur í Hornafjörð. Skyldu þeir þar vera
við skip og búast um og tjalda búðir og sekka vöru og draga að slíkt sem
þurfti.
Nú er að segja frá
Sigfússonum að þeir segja Flosa að þeir vilja ríða vestur í Fljótshlíð að skipa
til búa sinna og hafa þaðan vöru og slíkt annað sem þeir þyrftu.
"Er nú eigi Kára að
varast," sögðu þeir, "ef hann er fyrir norðan land sem sagt er."
Flosi svarar: "Eigi veit
eg um sögur slíkar hvað satt er sagt um ferðir Kára. Þykir mér það oft rjúfast
er skemmra er að frétta en slíkt. Er það mitt ráð að þér farið margir saman og
skiljist lítt og verið um yður sem varastir. Skalt þú nú og, Ketill úr Mörk,
muna draum þann er eg sagði þér og þú baðst að við skyldum leyna, því að margir
eru þeir nú í för með þér er kallaðir voru."
Ketill mælti: "Allt mun
það sínu fram fara um aldur manna sem ætlað er fyrir áður en gott gengur þér
til vörunnar þinnar."
Töluðu þeir nú ekki um
fleira. Síðan bjuggust þeir Sigfússynir og menn með þeim þeir sem til voru
ætlaðir. Voru þeir átján saman. Riðu þeir þá í braut. Og áður en þeir fóru
minntust þeir við Flosa. Hann bað þá vel fara og kvað þá eigi mundu sjást oftar
suma er í braut riðu en þeir létu eigi letjast. Riðu þeir nú leið sína. Flosi
mælti að þeir skyldu taka vöru hans í Meðallandi og flytja austur og svo í
Landbroti og í Skógahverfi.
Síðan ríða þeir til
Skaftártungu og svo fjall og fyrir norðan Eyjafjallajökul og ofan í Goðaland og
svo ofan um skóga í Þórsmörk.
Björn úr Mörk gat séð
mannareiðina og fór þegar til fundar við þá. Þar kvöddu hvorir aðra vel.
Sigfússynir spurðu að Kára Sölmundarsyni.
"Fann eg Kára,"
segir Björn, "og var það nú mjög fyrir löngu. Reið hann þaðan norður á
Gásasand og ætlaði hann norður á Möðruvöllu til Guðmundar hins ríka og þótti
mér nú sem hann mundi heldur óttast yður. Þóttist hann nú mjög einmani."
Grani Gunnarsson mælti:
"Meir skyldi hann þó síðar óttast oss. Mun hann svo fremi vita að hann
kæmi í kast við oss. Hræðumst vér hann nú alls ekki er hann er einn síns
liðs."
Ketill úr Mörk bað hann þegja
og hafa engi stóryrði frammi. Björn spurði nær þeir mundu aftur.
"Nær viku munum vér
dveljast í Fljótshlíð," sögðu þeir, kváðu þá á dag fyrir honum nær þeir
mundu á fjall ríða. Skildu þeir við þetta. Riðu nú Sigfússynir til búa sinna og
urðu heimamenn þeirra þeim fegnir. Voru þeir þar nær viku.
Nú kemur Björn heim og finnur
Kára og segir honum allt um ferðir Sigfússona og fyrirætlan þeirra. Kári kvað
hann sýnt hafa í þessu vinskap mikinn og trúleik við sig.
Björn mælti: "Það ætlaði
eg ef eg héti nokkurum manni trausti mínu eða umsjá að þeim skyldi mun í
fara."
Húsfreyja hans mælti:
"Fyrr væri illa en þú værir drottinsviki."
Kári dvaldist þar sex nætur
síðan.
150. kafli
Kári talar nú við Björn:
"Við skulum ríða austur um fjall og ofan í Skaftártungu og fara leynilega
um þingmannasveit Flosa því að eg ætla að koma mér utan austur í
Álftafirði."
Björn mælti: "Þetta er
hættuför mikil og munu fáir hug til hafa nema þú og eg."
Húsfreyja mælti: "Ef þú
fylgir Kára illa þá skalt þú það vita að aldrei skalt þú koma í mína rekkju
sinn síðan. Skulu frændur mínir gera fjárskipti með okkur."
"Það er líkara
húsfreyja," segir Björn, "að fyrir öðru þurfi ráð að gera en það beri
til skilnaðar okkars því að eg mun mér bera vitni um það hver garpur eða
afreksmaður eg er í vopnaskipti."
Þeir ríða nú um daginn á
fjall og aldrei almannaveg og ofan í Skaftártungu og fyrir ofan bæi alla til
Skaftár og leiddu hesta sína í dæl nokkura. En þeir voru á njósn og höfðu svo
um sig búið að þá mátti ekki sjá.
Kári mælti þá til Bjarnar:
"Hvað skulum við til taka ef þeir ríða hér ofan að okkur af
fjallinu?"
"Munu eigi tveir
til," segir Björn, "annaðhvort að ríða undan norður með brekkunum og
láta þá ríða um fram eða bíða ef nokkurir dveljast eftir og ráða þá að
þeim."
Margt töluðu þeir um þetta og
hafði Björn í sínu orði hvort að hann vildi flýja sem harðast eða hitt að hann
vildi bíða og taka í móti og þótti Kára að þessu allmikið gaman.
Nú er að segja frá
Sigfússonum að þeir riðu þann dag heiman sem þeir höfðu sagt Birni. Þeir komu í
Mörk og drápu þar á dyr og vildu finna Björn en húsfreyja gekk til dyra og
heilsaði þeim. Þeir spurðu þegar að Birni.
Hún sagði að hann var riðinn
ofan undir Eyjafjöll og svo austur í Holt "því að hann á þar
fjárheimtur," sagði hún.
Þeir trúðu þessu og vissu að
Björn átti þar fé að heimta, riðu síðan austur á fjall og léttu eigi fyrr en
þeir komu í Skaftártungu og riðu ofan með Skaftá og áðu þar sem þeir Kári
ætluðu.
Skiptu þeir þá liði sínu.
Ketill úr Mörk reið austur í Meðalland og átta menn með honum en hinir lögðust
niður til svefns og urðu eigi fyrr við varir en þeir Kári komu að þeim.
Þar gekk nes lítið í ána
fram. Gekk Kári þar í fram og bað Björn standa að baki sér og hafa sig eigi
allmjög frammi, "en ger mér gagn slíkt er þú mátt."
"Hitt hafði eg ætlað,"
segir Björn, "að hafa engan mann að hlífiskildi mér en þó er nú þar komið
að nú munt ráða verða. En með vitsmunum mínum og hvatleik þá mun eg þó verða
þér að gagni en óvinum okkrum ekki óskeinisamur."
Þeir stóðu nú upp allir og
hljópu að þeim og varð skjótastur Móðólfur Ketilsson og lagði spjóti til Kára.
Kári hafði skjöldinn fyrir sér og kom þar í lagið og festi í skildinum. Kári
snaraði skjöldinn svo hart að spjótið brotnaði. Hann hafði brugðið sverðinu og
hjó til Móðólfs. Hann hjó í móti. Sverðið Kára kom á hjaltið og stökk af í
braut og á úlfliðinn Móðólfi og tók af höndina og féll sverðið niður og svo
höndin en sverð Kára hljóp á síðuna Móðólfi og inn í millum rifjanna. Féll
Móðólfur þá og var þegar dauður. Grani Gunnarsson þreif spjót og skaut að Kára
en Kári skaut niður við skildinum svo að fastur stóð í vellinum en tók með
hinni vinstri hendi spjótið á lofti og skaut aftur að Grana og tók þegar skjöld
sinn hinni vinstri hendi. Grani hafði skjöld fyrir sér. Kom spjótið í skjöldinn
og gekk þegar í gegnum og kom í lærið Grana fyrir neðan smáþarmana og þar í
gegnum og svo í völlinn og komst hann eigi af spjótinu fyrr en félagar hans
drógu hann af og bjuggu um hann í dæl nokkurri með hlífum. Maður einn skaust að
og ætlaði að höggva fót undan Kára og komst á hlið honum. Björn hjó af þessum
manni höndina og skaust aftur síðan að baki Kára og fengu þeir honum engan geig
gervan. Kári slæmdi til þessa manns sverðinu og hjó hann í sundur í miðju. Þá
hljóp Lambi Sigurðarson að Kára og hjó til hans með sverði. Kári brá við flötum
skildinum og beit sverðið ekki á. Kári lagði til hans sverðinu framan í
brjóstið svo að út gekk meðal herðanna. Varð það hans bani. Þá hljóp að Kára
Þorsteinn Geirleifsson og ætlaði á hlið Kára. Hann fékk séð Þorstein og slæmdi
til hans sverðinu um þverar herðarnar svo að í sundur tók manninn. Litlu síðar
hjó hann mann banahöggi, Gunnar úr Skál, góðan bónda. Björn hafði særða þrjá
menn þá er ætlað höfðu til að vinna á Kára og var þó aldrei svo frammi að honum
væri nein raun í. Varð hann og ekki sár og hvorgi þeirra félaga á fundinum en
þeir voru allir sárir er undan komust. Hljópu þeir á hesta sína og hleyptu út á
Skaftá sem mest máttu þeir og urðu svo hræddir að þeir komu hvergi til bæja og
hvergi þorðu þeir að segja tíðindin. Þeir Kári æptu að þeim er þeir hleyptu út
á ána.
Björn mælti: "Rennið þér
nú brennumenn," segir hann.
Þeir riðu austur í
Skógahverfi og léttu eigi fyrr en þeir komu til Svínafells. Flosi var ekki
heima er þeir komu þar og varð því þaðan ekki eftir leitað. Öllum þótti þeirra
ferð hin svívirðlegasta. Kári reið í Skál og lýsti þar vígum þessum á hendur
sér. Sagði hann þar lát húsbónda og þeirra fimm og sár Grana og kvað betra
mundu að færa hann til húss ef hann skyldi lifa. Björn mælti og kvaðst eigi nenna
að drepa hann fyrir mágsemdar sökum en kvað hann þó þess maklegan en þeir er
svöruðu kváðu fá fúnað hafa fyrir honum. Björn kvað nú kost vera að fúnuðu svo
margir af Síðumönnum sem hann vildi. Þeir sögðu þá þó ill að vera. Þeir Kári og
Björn riðu þá í braut.
151. kafli
Kári spurði Björn: "Hvað
skulum við nú til ráða taka? Skal eg nú reyna vitsmuni þína."
Björn svaraði: "Hvort
þykir þér undir því mest að við séum sem vitrastir?"
"Já," sagði Kári,
"svo er víst."
"Þá er skjótt til ráða
að taka," segir Björn. "Við skulum ginna þá alla sem þursa og skulum
við láta sem við munum ríða norður á fjall. En þegar er leiti ber á milli vor
þá skulum við snúa aftur og ofan með Skaftá og felast þar sem okkur þykir
vænlegast meðan leitin er sem áköfust ef þeir ríða eftir."
Kári mælti: "Svo munum
við gera og hafði eg þetta ætlað áður."
"Svo mun þér
reynast," sagði Björn, "að eg mun ekki vera hjátækur í vitsmunum eigi
síður en í harðræðunum."
Þeir Kári riðu nú sem þeir
höfðu ætlað ofan með Skaftá. Þá fellur áin sum í austur en sum í landsuður.
Sneru þeir þá ofan með miðkvíslinni og léttu eigi fyrr en þeir komu í Meðalland
og á mýri þá er Kringlumýri heitir. Þar er hraun allt umhverfis.
Kári mælti þá við Björn að
hann skyldi gæta hesta þeirra og vera á varðhaldi "en mér gerir
svefnhöfugt."
Björn gætti hestanna en Kári
lagðist niður og svaf allskamma stund áður en Björn vakti hann. Hann hafði þá
leidda saman hestana og voru þar hjá þeim.
Björn mælti þá til Kára:
"Allmjög þarft þú þó mín til. Mundi sá nú hafa hlaupið í braut frá þér er
eigi væri jafnvel hugaður sem eg er því að nú ríða hér óvinir þínir að þér og
skalt þú svo við búast."
Kári gekk þá undir hamarskúta
nokkurn.
Björn mælti: "Hvar skal
eg nú standa?"
Kári svarar: "Tveir eru
nú kostir fyrir höndum. Sá er annar að þú standir að baki mér og hafir
skjöldinn að hlífa þér með ef þér kemur hann að nokkuru gagni. Hinn er annar að
þú stígir á hest þinn og ríðir undan sem þú mátt mest."
"Það vil eg eigi,"
sagði Björn. "Heldur þar margt til þess. Það fyrst að vera kann að
nokkurar skæðar tungur taki svo til orðs að eg renni frá þér fyrir hugleysi ef
eg ríð í braut. Hitt er annað að eg veit hver veiður þeim mun þykja í mér og
munu ríða eftir mér tveir eða þrír en eg verð þér þá þó að engu gagni eða liði.
Vil eg heldur standa hjá þér og verjast meðan auðið verður."
Þá var eigi langt að bíða
áður reknir voru klyfjahestar fram um mýrina og fóru þar með þrír menn.
Kári mælti: "Þessir sjá
okkur ekki."
"Látum við þá um
ríða," segir Björn.
Síðan riðu þeir um fram en hinir
sex riðu þá að fram og hljópu þegar af baki allir senn og sneru að þeim Kára.
Fyrst hleypur að þeim Glúmur Hildisson og lagði til Kára með spjóti. Kári
snerist undan á hæli og missti Glúmur hans og kom lagið í bjargið. Björn sér
það og hjó þegar spjótið af skafti fyrir Glúmi. Kári hjó til Glúms höllum fæti
og kom sverðið á lærið og tók undan fótinn uppi í lærinu og dó Glúmur þegar. Þá
hljópu fram að Kára Þorfinnssynir, Vébrandur og Ásbrandur. Kári hljóp að
Vébrandi og rak sverðið í gegnum hann en síðan hjó hann báða fætur undan
Ásbrandi. Í þessi svipan urðu þeir sárir báðir, Kári og Björn. Þá hljóp að Kára
Ketill úr Mörk og lagði til hans spjóti. Kári brá upp við fætinum og kom
spjótið í völlinn. Kári hljóp á spjótskaftið og braut í sundur. Kári þreif Ketil
höndum. Björn hljóp að þegar og vildi vega Ketil.
Kári mælti: "Lát vera
kyrrt. Eg skal gefa Katli grið og þó að svo verði, Ketill, oftar að eg eigi
vald á lífi þínu þá skal eg þig aldrei drepa."
Ketill svarar fá og reið í
braut eftir félögum sínum og sagði þeim er eigi vissu áður tíðindin. Þeir sögðu
héraðsmönnum tíðindin. Héraðsmenn gerðu þegar herhlaup mikið og fóru þegar með
öllum vatnföllum og svo langt norður á fjall að þeir voru þrjú dægur í
leitinni. En síðan sneru þeir aftur og fór hver til síns heimilis. En Ketill og
þeir félagar riðu austur til Svínafells og sögðu þar tíðindin.
Flosi tók lítt á þeirra ferð
og kvað þó eigi víst um hvort hér næmi staðar "er Kári engum manni líkur
þeim sem nú er á Íslandi."
152. kafli
Nú er að segja frá Birni og
Kára að þeir ríða á sand og leiða hesta sína undir melbakka og skáru fyrir þá
melinn að þeir dæju eigi af sulti. Kári varð svo nærgætur að hann reið þegar í
braut er þeir hættu leitinni. Hann reið um nóttina upp eftir héraðinu og síðan
á fjall og svo alla hina sömu leið sem þeir riðu austur og léttu eigi fyrr en
þeir komu í Mið-Mörk.
Björn mælti þá til Kára:
"Nú skalt þú vera vin minn mikill fyrir húsfreyju minni því að hún mun
engu orði trúa því er eg segi en mér liggur hér nú allt við. Launa þú mér nú
góða fylgd er eg hefi þér veitta."
"Svo skal vera,"
segir Kári.
Síðan riðu þeir heim á bæinn.
Húsfreyja spurði þá tíðinda og fagnaði þeim vel.
Björn svaraði: "Aukist
hafa heldur vandræðin kerling."
Hún svarar fá og brosti að.
Húsfreyja mælti þá: "Hversu gafst Björn þér Kári?"
Hann svarar: "Ber er
hver að baki nema sér bróður eigi og gafst Björn mér vel. Hann vann á þremur
mönnum en hann er þó sár sjálfur. Og var hann mér hinn hallkvæmasti í öllu því
er hann mátti."
Þar voru þeir þrjár nætur.
Síðan riðu þeir í Holt til Þorgeirs og sögðu honum einum saman tíðindin því að
þangað höfðu eigi spurst tíðindin fyrr. Þorgeir þakkaði Kára og fannst það á að
hann varð þessu feginn. Hann spurði Kára að hvað þá væri óunnið það er hann
ætlaði að vinna.
Kári svarar: "Drepa ætla
eg Gunnar Lambason og Kol Þorsteinsson ef færi gefur á. Höfum við þá drepið
fimmtán menn með þeim fimm er við drápum báðir saman en þó vil eg nú biðja þig
bænar," segir Kári.
Þorgeir kvaðst veita honum
mundu það er hann beiddi.
Kári mælti: "Það vil eg
að mann þenna, er Björn heitir og að vígum hefir verið með mér, takir þú til
þín og skiptir þú um bústaði við hann og fáir honum bú algert hér hjá þér og
halt svo hendi yfir honum að engri hefnd sé til hans snúið og er þér það
sjálfrátt fyrir sakir höfðingskapar þíns."
"Svo skal vera,"
segir Þorgeir.
Fékk hann þá Birni bú algert
að Ásólfsskála en tók við búi í Mörk. Þorgeir færði sjálfur hjón Bjarnar til
Ásólfsskála og allt búferli hans. Þorgeir sættist á öll mál fyrir Björn og
gerði hann alsáttum sáttan við þá. Þótti Björn nú miklu heldur maður en áður
fyrir sér.
Kári reið í braut og létti
eigi fyrr en hann kom vestur í Tungu til Ásgríms Elliða-Grímssonar. Hann tók
við Kára ágæta vel. Kári sagði honum frá öllum atburðum þeim er orðið höfðu í
vígum. Ásgrímur lét vel yfir því og spurði hvað Kári ætlaðist þá fyrir.
Kári svaraði: "Eg ætla
að fara utan eftir þeim og sitja svo að þeim og drepa þá ef eg fæ náð
þeim."
Ásgrímur sagði að hann væri engum
manni líkur fyrir hreysti sína. Þar var hann nokkurar nætur.
Síðan reið hann til Gissurar
hvíta. Gissur tók við Kára báðum höndum. Kári dvaldist þar nokkura stund. Hann
sagði Gissuri að hann mundi ríða ofan á Eyrar. Gissur gaf Kára sverð gott að
skilnaði.
Reið hann nú ofan á Eyrar og
tók sér þar fari með Kolbeini svarta. Hann var orkneyskur maður og aldavinur
Kára og var hinn kappsamasti og hinn vaskasti maður. Tók hann við Kára báðum
höndum og kvað eitt skyldu yfir þá ganga báða.
153. kafli
Nú er þar til máls að taka er
Flosi er, að þeir riðu austur til Hornafjarðar. Fylgdu Flosa flestir allir
þingmenn hans. Fluttu þeir þá austur vöru sína og önnur föng og fargögn öll þau
er þeir skyldu hafa með sér. Síðan bjuggu þeir ferð sína og skip. Var Flosi nú
við skipið þar til er þeir voru búnir. En þegar er byr gaf létu þeir í haf.
Þeir höfðu langa útivist og veðráttu illa. Fóru þeir þá hundvillir.
Það var einu hverju sinni að
þeir fengu áföll stór þrjú nokkur. Sagði Flosi þá að þeir mundu nokkur vera í nánd
löndum og þetta væru grunnföll. Þoka var á mikil en veðrið óx svo að hríð mikla
gerði að þeim. Fundu þeir eigi fyrr en þá keyrði á land upp um nótt eina og
varð þar borgið mönnum en skip braut allt í spón og fé máttu þeir ekki bjarga.
Urðu þeir að leita sér verma.
En um daginn eftir gengu þeir
upp á hæð nokkura. Var þá veður gott. Flosi spurði ef nokkur maður kenndi land
þetta. Þar voru þeir menn tveir er farið höfðu áður og sögðust kenna að vísu
"og erum vér komnir við Orkneyjar í Hrossey."
"Fá máttum vér betri
landtöku," segir Flosi, "því að Helgi Njálsson var hirðmaður Sigurðar
jarls Hlöðvissonar er eg vó."
Leituðu þeir sér þá fylgsnis
og reyttu á sig mosa og lágu svo um stund og eigi langa áður Flosi mælti:
"Ekki skulum vér hér liggja lengur svo að landsmenn verði þess
varir."
Stóðu þeir þá upp og gerðu
ráð sitt.
Flosi mælti þá til sinna
manna: "Vér skulum ganga allir á vald jarlsins. Gerir oss ekki annað því
að jarl hefir að líku líf vort ef hann vill eftir því leita."
Gengu þeir þá allir í braut
þaðan. Flosi mælti að þeir skyldu engum manni segja tíðindin eða frá ferðum
sínum fyrr en hann segði jarli.
Fóru þeir þá til þess er þeir
fundu menn þá er þeim vísuðu til jarls. Gengu þeir þá fyrir jarl og kvaddi
Flosi hann og allir þeir. Jarl spurði hvað manna þeir væru. Flosi nefndi sig og
sagði úr hverri sveit hann var af Íslandi. Jarl hafði spurt áður brennuna og
kenndist hann af því þegar við mennina.
Jarl spurði þá Flosa:
"Hvað segir þú mér til Helga Njálssonar, hirðmanns míns?"
"Það," sagði Flosi,
"að eg hjó höfuð af honum."
Jarl mælti: "Takið þá
alla."
Þá var svo gert. Þá kom að í
því Þorsteinn Síðu-Hallsson. Flosi átti Steinvöru systur Þorsteins. Þorsteinn
var hirðmaður Sigurðar jarls. En er Þorsteinn sá Flosa höndlaðan þá gekk hann
fyrir jarl og bauð fyrir Flosa allt það góss er hann átti. Jarl var hinn
reiðasti og hinn erfiðasti lengi. En þó kom svo um síðir við umtölur góðra
manna með Þorsteini, því að hann var vel vinum horfinn og gengu margir til að
flytja með honum, að jarl tók sættum við þá og gaf Flosa grið og öllum þeim.
Hafði jarl á því ríkra manna hátt að Flosi gekk í þá þjónustu sem Helgi
Njálsson hafði haft. Gerðist Flosi þá hirðmaður Sigurðar jarls og kom hann sér
brátt í kærleika mikla við jarlinn.
154. kafli
Þeir Kári og Kolbeinn svarti
létu út hálfum mánuði síðar af Eyrum en þeir Flosi úr Hornafirði. Gaf þeim vel
byri og voru skamma stund úti. Tóku þeir Friðarey. Hún er á milli Hjaltlands og
Orkneyja. Tók við Kára sá maður er Dagviður hvíti hét. Hann sagði Kára allt um
ferðir þeirra Flosa slíkt sem hann hafði vís orðið. Hann var hinn mesti vin
Kára og var Kári með honum um veturinn. Höfðu þeir þá fréttir vestan um
veturinn úr Hrosseyju allar þær er þar gerðust.
Sigurður jarl bauð til sín að
jólum Gilla jarli mági sínum úr Suðureyjum. Hann átti Svanlaugu systur Sigurðar
jarls. Þá kom og til Sigurðar jarls konungur sá er Sigtryggur hét. Hann var af
Írlandi. Hann var sonur Ólafs kvarans en móðir hans hét Kormlöð. Hún var allra kvenna
fegurst og best að sér orðin um það allt er henni var ósjálfrátt en það er mál
manna að henni hafi allt verið illa gefið það er henni var sjálfrátt.
Brjánn hét konungur sá er
hana hafði átta og voru þau þá skilin því að hann var allra konunga best að
sér. Hann sat í Kunnjáttaborg. Bróðir hans var Úlfur hræða, hinn mesti kappi og
hermaður. Fóstri Brjáns konungs hét Kerþjálfaður. Hann var son Kylfis konungs
þess er margar orustur átti við Brján konung og stökk úr landi fyrir honum og
settist í stein. En þá er Brjánn konungur gekk suður þá fann hann Kylfi konung
og sættust þeir þá. Tók þá Brjánn konungur við syni hans Kerþjálfaði og unni
meira en sínum sonum. Hann var þá roskinn er þetta er tíðinda og var allra
manna fræknastur. Dungaður hét son Brjáns konungs en annar Margaður, þriðji
Taðkur, þann köllum vér Tann. Hann var þeirra yngstur en hinir eldri synir
Brjáns konungs voru frumvaxta og manna vasklegastir. Ekki var Kormlöð móðir
barna Brjáns konungs. En svo var hún orðin grimm Brjáni konungi eftir skilnað
þeirra að hún vildi hann gjarna feigan. Brjánn konungur gaf upp þrisvar útlögum
sínum hinar sömu sakar. En ef þeir misgerðu oftar þá lét hann dæma þá að lögum.
Og má af slíku marka hvílíkur konungur hann hefir verið.
Kormlöð eggjaði mjög Sigtrygg
son sinn að drepa Brján konung. Sendi hún hann af því til Sigurðar jarls að
biðja hann liðs. Kom Sigtryggur konungur fyrir jól til Orkneyja. Þar kom þá og
Gilli jarl sem fyrr var ritað.
Svo var mönnum skipað að
Sigtryggur konungur sat í miðju hásæti en til sinnar handar konungi sat hvor
jarlanna. Sátu menn þeirra Sigtryggs konungs og Gilla jarls innar frá en utar
frá Sigurði jarli sat Flosi og Þorsteinn Síðu-Hallsson og var skipuð öll
höllin.
Sigtryggur konungur og Gilli
jarl vildu heyra tíðindi þau er gerst höfðu um brennuna og svo síðan er hún
varð. Þá var fenginn til Gunnar Lambason að segja söguna og var settur undir
hann stóll.
155. kafli
Í þenna tíma komu þeir Kári
og Kolbeinn og Dagviður hvíti til Hrosseyjar öllum á óvart og gengu upp þegar á
land en nokkurir menn gættu skips. Kári og þeir félagar gengu upp til
jarlsbæjarins og komu að höllinni um drykkju. Bar það saman og þá var Gunnar að
að segja söguna en þeir Kári hlýddu til á meðan úti. Þetta var jóladaginn
sjálfan.
Sigtryggur konungur spurði: "Hversu
þoldi Skarphéðinn í brennunni?"
"Vel fyrst lengi,"
sagði Gunnar, "en þó lauk svo að hann grét."
Og um allar sagnir hallaði
hann mjög til en ló víða frá.
Kári stóðst þetta eigi. Hljóp
hann þá inn með brugðnu sverði og kvað vísu þessa:
Hrósa
hildar fúsir,
hvað hafa til fregið skatnar
hve, ráfáka, rákum?
rennendr Níals brennu.
Varðat veiti-Njörðum
víðeims að það síðan,
hrátt gat hrafn að slíta
hold, slælega goldið.
Þá hljóp hann innar eftir
höllinni og hjó á hálsinn Gunnari Lambasyni og svo snart að höfuðið fauk upp á
borðið fyrir konunginn og jarlana. Urðu borðin í blóði einu og svo klæðin
jarlanna.
Sigurður jarl kenndi manninn
þann er vegið hafði vígið og mælti: "Takið þér Kára og drepið hann."
Kári hafði verið hirðmaður
Sigurðar jarls og var allra manna vinsælastur og stóð engi upp að heldur þó að
jarl ræddi um.
Kári mælti: "Það munu
margir mæla herra að eg hafi þetta verk fyrir yður unnið að hefna hirðmanns
yðvars."
Flosi mælti: "Ekki gerði
Kári þetta um sakleysi því að hann er í engum sættum við oss. Gerði hann það að
sem hann átti."
Kári gekk í braut og varð
ekki eftir honum gengið. Fór Kári til skips síns og þeir félagar. Var þá veður
gott. Sigldu þeir suður til Kataness og fóru upp í Þrasvík til göfugs manns er
Skeggi hét og voru með honum mjög lengi.
Þeir í Orkneyjum hreinsuðu
borðin og báru út hinn dauða. Jarli var sagt að þeir hefðu siglt suður til
Skotlands.
Sigtryggur konungur mælti:
"Þessi var herðimaður mikill fyrir sér er svo rösklega vann að og sást
ekki fyrir."
Sigurður jarl svaraði:
"Engum manni er Kári líkur í hvatleik sínum og áræði."
Flosi tók nú til og sagði
söguna frá brennunni. Bar hann öllum vel og var því trúað.
Sigtryggur konungur vakti þá
til um erindi sín við Sigurð jarl og bað hann fara til orustu með sér í móti
Brjáni konungi. Jarl var lengi erfiður en þar kom um síðir að hann gerði á
kost. Mælti hann það til að eiga móður hans og vera síðan konungur á Írlandi ef
þeir felldu Brján. En allir löttu Sigurð jarl í að ganga og týði ekki. Skildu
þeir að því að Sigurður jarl hét ferðinni en Sigtryggur konungur hét honum
móður sinni og konungdómi. Var svo mælt að Sigurður jarl skyldi kominn með her
sinn allan til Dyflinnar að pálmsunnudegi.
Fór Sigtryggur konungur þá
suður til Írlands og sagði Kormlöðu móður sinni að jarl hafði í gengið og svo
hvað hann hafði til unnið. Hún lét vel yfir því en kvað þau þó skyldu draga að
meira lið. Sigtryggur spurði hvaðan þess væri að von.
Hún sagði að víkingar tveir
lágu úti fyrir vestan Mön og höfðu þrjá tigu skipa "og svo harðfengir að
ekki stendur við. Heitir annar Óspakur en annar Bróðir. Þú skalt fara til móts
við þá og lát ekki að skorta að koma þeim í með þér hvað sem þeir mæla
til."
Sigtryggur konungur fer nú og
leitar víkinganna og fann þá fyrir utan Mön. Ber Sigtryggur konungur þegar upp
erindi sín en Bróðir skarst undan allt til þess er Sigtryggur konungur hét
honum konungdómi og móður sinni. Og skyldi þetta fara svo hljótt að Sigurður
jarl yrði eigi vís. Hann skyldi og koma fyrir pálmsunnudag með her sinn til
Dyflinnar. Sigtryggur konungur fór heim til móður sinnar og sagði henni hvar þá
var komið.
Eftir þetta talast þeir við
Óspakur og Bróðir. Sagði þá Bróðir Óspaki alla viðræðu þeirra Sigtryggs og bað
hann fara til bardaga með sér í móti Brjáni konungi og kvað sér mikið við
liggja. Óspakur kvaðst eigi vilja berjast í móti svo góðum konungi. Urðu þeir
þá báðir reiðir og skiptu þegar liði sínu. Hafði Óspakur tíu skip en Bróðir
tuttugu. Óspakur var heiðinn og allra manna vitrastur. Hann lagði skip sín inn
á sundið en Bróðir lá fyrir utan. Bróðir hafði verið maður kristinn og
messudjákn að vígslu en hann hafði kastað trú sinni og gerðist guðníðingur og
blótaði nú heiðnar vættir og var allra manna fjölkunnigastur. Hann hafði herbúnað
þann er eigi bitu járn. Hann var bæði mikill og sterkur og hafði hár svo mikið
að hann drap undir belti sér. Það var svart.
156. kafli
Það bar við eina nótt að gnýr
mikill kom yfir þá Bróður svo að þeir vöknuðu við allir og spruttu upp og fóru í
klæði sín. Þar með rigndi á þá blóði vellanda. Hlífðu þeir sér þá með skjöldum
og brunnu þó margir. Undur þetta hélst allt til dags. Maður hafði látist af
hverju skipi. Sváfu þeir þá um daginn.
Aðra nótt varð enn gnýr og
spruttu þá enn allir upp. Þá renndu sverð úr slíðrum en öxar og spjót flugu í
loft upp og börðust. Sóttu þá vopnin svo fast að þeim að þeir urðu að hlífa sér
og urðu þó margir sárir en dó maður af hverju skipi. Hélst undur þetta allt til
dags. Sváfu þeir þá enn um daginn eftir.
Þriðju nótt varð gnýr með
sama hætti. Þá flugu að þeim hrafnar og sýndist þeim úr járni nefin og klærnar.
Hrafnarnir sóttu þá svo fast að þeir urðu að verja sig með sverðum en hlífðu
sér með skjöldum. Gekk þessu enn til dags. Þá hafði enn látist maður af hverju skipi.
Þeir sváfu þá enn fyrst.
En er Bróðir vaknaði varp
hann mæðilega öndunni og bað skjóta utan báti "því að eg vil finna
Óspak." Steig hann þá í bátinn og nokkurir menn með honum. En er hann fann
Óspak sagði hann honum öll undur þau er fyrir þá hafði borið og bað hann segja
sér fyrir hverju vera mundi. Óspakur vildi eigi segja honum fyrr en hann seldi
honum grið. Bróðir hét honum griðum en Óspakur dró þó undan allt til nætur því
að Bróðir vó aldrei víg um nætur.
Óspakur mælti þá: "Þar
sem blóði rigndi á yður þar munuð þér hella út margs manns blóði, bæði yðru og
annarra. En þar sem þér heyrðuð gný mikinn þar mun yður sýndur heimsbrestur og
munuð þér deyja allir brátt. En þar er vopnin sóttu að yður, það mun vera fyrir
orustu. En þar sem hrafnar sóttu að yður, það eru óvinir þeir er þér trúið á og
yður munu draga til helvítis kvala."
Bróðir varð svo reiður að
hann mátti engu svara og fór þegar til manna sinna og lét þekja sundið allt með
skipum og bera strengi á land og ætlaði að drepa þá alla eftir um morguninn.
Óspakur sá ráðagerð þeirra alla. Þá hét hann að taka trú rétta og fara til
Brjáns konungs og fylgja honum til dauðadags. Hann lét þá taka það til ráðs að
þekja öll skipin og forka með landinu og höggva strengi þeirra Bróður. Tók þá
að reiða saman skipin en þeir voru sofnaðir.
Þeir Óspakur fóru þá út úr
firðinum og svo vestur til Írlands og léttu eigi fyrr en þeir komu til
Kunnjátta. Og sagði Óspakur Brjáni konungi allt það er hann var vís orðinn og
tók skírn og fal sig konungi á hendi.
Síðan lét Brjánn konungur
safna liði um allt ríki sitt og skyldi kominn herinn allur til Dyflinnar í
vikunni fyrir pálmdrottinsdag.
157. kafli
Sigurður jarl Hlöðvisson
bjóst af Orkneyjum. Flosi bauð að fara með honum. Jarl vildi það eigi þar sem
hann átti suðurgöngu sína að leysa. Flosi bauð fimmtán menn af liði sínu til
ferðarinnar en jarl þekktist það. En Flosi fór með Gilla jarli í Suðureyjar.
Þorsteinn Síðu-Hallsson fór með Sigurði jarli, Hrafn hinn rauði, Erlingur af
Straumey. Jarl vildi eigi að Hárekur færi en kveðst segja honum mundu fyrstum
tíðindin.
Sigurður jarl kom með allan
her sinn að pálmadegi til Dyflinnar. Þar var kominn Bróðir með sínu liði.
Bróðir reyndi til með forneskju hversu ganga mundi orustan. En svo gekk fréttin
ef á föstudegi væri barist að Brjánn konungur mundi falla og hafa sigur en ef
fyrr væri barist þá mundu þeir allir falla er í móti honum væru. Þá sagði
Bróðir að föstudaginn skyldi berjast.
Fimmtadaginn reið maður að
þeim Kormlöðu á apalgrám hesti og hafði í hendi pálstaf. Hann talaði lengi við
þau Bróður og Kormlöðu.
Brjánn konungur var kominn
með allan her sinn til borgarinnar. Föstudaginn fór út herinn allur af borginni
og var fylkt liðinu hvorutveggja. Bróðir var í annan arm fylkingar en í annan
Sigtryggur konungur. Sigurður jarl var í miðju liðinu.
Nú er að segja frá Brjáni
konungi að hann vildi eigi berjast föstudaginn og var skotið um hann skjaldborg
og fylkt þar liðinu fyrir framan. Úlfur hræða var í þann fylkingararminn sem
Bróðir var til móts en í annan fylkingararm var Óspakur og synir Brjáns konungs
þar er Sigtryggur var í móti en í miðri fylkingunni var Kerþjálfaður og voru
fyrir honum borin merkin.
Fallast nú að fylkingarnar.
Varð þá orusta allhörð. Gekk Bróðir í gegnum lið og felldi þá alla er fremstir
stóðu en hann bitu ekki járn. Úlfur hræða sneri þá í móti honum og lagði til
hans þrisvar sinnum svo fast að Bróðir féll fyrir í hvert sinn og var við
sjálft að hann mundi eigi á fætur komast. En þegar er hann fékk upp staðið þá
flýði hann undan og í skóg.
Sigurður jarl átti harðan
bardaga við Kerþjálfað. Kerþjálfaður gekk svo fast fram að hann felldi þá alla
er fremstir voru. Rauf hann fylking Sigurðar jarls allt að merkinu og drap
merkismanninn. Fékk jarl þá til annan mann að bera merkið. Varð þá enn orusta
hörð. Kerþjálfaður hjó þenna þegar banahöggi og hvern að öðrum þá er í nánd
voru. Sigurður jarl kvaddi þá til Þorstein Síðu-Hallsson að bera merkið.
Þorsteinn ætlaði upp að taka merkið.
Þá mælti Ámundi hvíti:
"Ber þú eigi merkið Þorsteinn því að þeir eru allir drepnir er það
bera."
"Hrafn hinn rauði,"
sagði jarl, "ber þú merkið."
Hrafn svaraði: "Ber þú
sjálfur fjanda þinn."
Jarl mælti: "Það mun
vera maklegast að fari allt saman, karl og kýll."
Tók hann þá merkið af
stönginni og kom í millum klæða sinna. Litlu síðar var veginn Ámundi hvíti. Þá
var og Sigurður jarl skotinn spjóti í gegnum.
Óspakur hafði gengið um allan
fylkingararminn. Hann var orðinn sár mjög en látið sonu Brjáns báða áður. Sigtryggur
konungur flýði fyrir honum. Brast þá flótti í öllu liðinu.
Þorsteinn Síðu-Hallsson nam
staðar þá er allir flýðu aðrir og batt skóþveng sinn. Þá spurði Kerþjálfaður
hví hann rynni eigi. "Því," sagði Þorsteinn, "að eg tek eigi
heim í kveld þar sem eg á heima út á Íslandi."
Kerþjálfaður gaf honum grið.
Hrafn hinn rauði var eltur út
á á nokkura. Hann þóttist þar sjá helvítis kvalar í niðri og þótti honum
djöflar vilja draga sig til.
Hrafn mælti þá: "Runnið
hefir hundur þinn, Pétur postuli, til Róms tvisvar og mundi renna hið þriðja
sinn ef þú leyfðir."
Þá létu djöflar hann lausan
og komst Hrafn yfir ána.
Bróðir sá nú að liðið Brjáns
konungs rak flóttann og var fátt manna hjá skjaldborginni. Hljóp hann þá úr
skóginum og rauf alla skjaldborgina og hjó til konungsins. Sveinninn Taðkur brá
upp við hendinni og tók hana af honum og höfuðið af konunginum en blóðið
konungsins kom á handarstúf sveininum og greri þegar fyrir stúfinn.
Bróðir kallaði þá hátt:
"Kunni það maður manni að segja að Bróðir felldi Brján."
Þá var runnið eftir þeim er
flóttann ráku og sagt þeim fallið Brjáns konungs. Sneru þeir þá aftur þegar
Úlfur hræða og Kerþjálfaður. Slógu þeir þá hring um þá Bróður og felldu að þeim
viðu. Var þá Bróðir höndum tekinn. Úlfur hræða reist á honum kviðinn og leiddi
hann um eik og rakti svo úr honum þarmana og dó hann eigi fyrr en allir voru úr
honum raktir. Menn Bróður voru og allir drepnir. Síðan tóku þeir lík Brjáns
konungs og bjuggu um. Höfuð konungsins var gróið við bolinn. Fimmtán menn af
brennumönnum féllu í Brjánsorustu. Þar féll og Halldór son Guðmundar hins ríka
og Erlingur af Straumey.
Föstudagsmorgun varð sá
atburður á Katanesi að maður sá er Dörruður hét gekk út. Hann sá að menn riðu
tólf saman til dyngju einnar og hurfu þar allir. Hann gekk til dyngjunnar. Hann
sá inn í glugg einn er á var og sá að þar voru konur inni og höfðu færðan upp
vef. Mannahöfuð voru fyrir kljána en þarmar úr mönnum fyrir viftu og garn,
sverð var fyrir skeið en ör fyrir hræl.
Þær kváðu vísur þessar:
Vítt
er orpið
fyrir valfalli
rifs reiðiský,
rignir blóði.
Nú er fyrir geirum
grár upp kominn
vefr verþjóðar
er þær vinur fylla
rauðum vefti
Randvés bana.
Sjá
er orpinn vefr
ýta þörmum
og harðkléaðr
höfðum manna.
Eru dreyrrekin
dörr að sköftum,
járnvarðr yllir
en örum hrælaðr.
Skulum slá sverðum
sigrvef þenna.
Gengr
Hildr vefa
og Hjörþrimul,
Sanngríðr, Svipul
sverðum tognum.
Skaft mun gnesta,
skjöldr mun bresta,
mun hjálmgagar
í hlíf koma.
Vindum,
vindum
vef darraðar,
þann er ungr konungr
átti fyrri.
Fram skulum ganga
og í fólk vaða
þar er vinir vorir
vopnum skipta.
Vindum,
vindum
vef darraðar
og siklingi
síðan fylgjum.
Þar sjá bragna
blóðgar randir
Gunnr og Göndul
er grami hlífðu.
Vindum,
vindum
vef darraðar
þar er vé vaða
vígra manna.
Látum eigi
líf hans farast,
eiga valkyrjur
vals um kosti.
Þeir
munu lýðir
löndum ráða
er útskaga
áðr um byggðu.
Kveð eg ríkum gram
ráðinn dauða.
Nú er fyrir oddum
jarlmaðr hniginn.
Og
munu Írar
angr um bíða,
það er aldrei mun
ýtum fyrnast.
Nú er vefr ofinn,
en völlr roðinn,
munu um lönd fara
læspjöll gota.
Nú
er ógurlegt
um að litast
er dreyrug ský
dregr með himni.
Mun loft litað
lýða blóði
er sóknvarðar
syngja kunnu.
Vel
kváðum vér
um konung ungan
sigrhljóða fjöld,
syngjum heilar.
En hinn nemi,
er heyrir á
geirfljóða hljóð,
og gumum segi.
Ríðum
hestum
hart út berum
brugðnum sverðum
á braut heðan.
Rifu þær þá ofan vefinn og í
sundur og hafði hver það er hélt á. Gekk Dörruður nú í braut frá glugginum og
heim en þær stigu á hesta sína og riðu sex í suður en aðrar sex í norður.
Slíkan atburð bar fyrir Brand
í Færeyjum Gneistason.
Á Íslandi að Svínafelli kom
blóð ofan á messuhökul prests föstudaginn langa svo að hann varð úr að fara.
Að Þvottá sýndist presti á
föstudaginn langa sjávardjúp hjá altarinu og sá þar í ógnir margar og var það
lengi að hann mátti eigi syngja tíðirnar.
Sá atburður varð í Orkneyjum
að Hárekur þóttist sjá Sigurð jarl og nokkura menn með honum. Tók Hárekur þá
hest sinn og reið til móts við jarl. Sáu menn það að þeir fundust og riðu undir
leiti nokkurt en þeir sáust aldrei síðan og engi urmul fundust af Háreki.
Gilla jarl í Suðureyjum
dreymdi það að maður kæmi að honum og nefndist Herfinnur og kvaðst vera kominn
af Írlandi. Jarl þóttist spyrja þaðan tíðinda.
Hann kvað vísu þessa:
Var
eg þar er bragnar börðust,
brandr gall á Írlandi.
Margr, þar er mættust törgur,
málmr gnast í dyn hjálma.
Sókn þeirra frá eg snarpa,
Sigurðr féll í dyn vigra.
Áðr téði ben blæða.
Brjánn fell og hélt velli.
Þeir Flosi og jarl töluðu
margt um draum þenna. Viku síðar kom þar Hrafn hinn rauði og sagði þeim
tíðindin öll úr Brjánsorustu, fall konungs og Sigurðar jarls og Bróður og allra
víkinganna.
Flosi mælti: "Hvað segir
þú mér til manna minna?"
"Þar féllu þeir
allir," segir Hrafn, "en Þorsteinn mágur þinn þá grið af Kerþjálfaði
og er nú með honum. Halldór Guðmundarson lést þar."
Flosi segir jarli að hann
mundi í braut fara "eigum vér suðurgöngu af höndum að inna."
Jarl bað hann fara sem hann
vildi og fékk honum skip og það sem hann þurfti og í silfur mikið. Sigldu þeir
síðan til Bretlands og dvöldust þar um stund.
158. kafli
Kári Sölmundarson sagði
Skeggja bónda að hann vildi að hann fengi honum skip. Skeggi bóndi gaf Kára
skip alskipað. Stigu þeir þar á með Kára Dagviður hvíti og Kolbeinn svarti.
Sigldu þeir Kári nú suður fyrir Skotlandsfjörðu. Þá fundu þeir menn úr
Suðureyjum. Þeir sögðu Kára tíðindin af Írlandi og svo það að Flosi var farinn
til Bretlands og menn hans. En er Kári spurði þetta þá sagði hann félögum sínum
að hann vill halda suður til Bretlands til móts við þá Flosa. Bað hann þá þann
skiljast við sitt föruneyti er það þætti betra og kvaðst að engum manni vilja
vél draga að hann lést enn á þeim hafa óhefnt harma sinna. Allir vildu honum
fylgja. Siglir hann þá suður til Bretlands og lögðu þar að í leynivog einn.
Þenna myrgin gekk Kolur
Þorsteinsson í borg og skyldi kaupa silfur. Hann hafði mest hæðiyrði við af
brennumönnum. Kolur hafði talað margt við frú eina ríka og var mjög í gadda
slegið að hann mundi fá hennar og setjast þar.
Þenna hinn sama morgun gekk
Kári í borgina. Hann kom þar að er Kolur taldi silfrið. Kári kenndi hann og
hljóp að honum með sverð brugðið og hjó á hálsinn en hann taldi silfrið og
nefndi tíu höfuðið er það fauk af bolnum.
Kári mælti: "Segið það
Flosa að Kári Sölmundarson hefir vegið Kol Þorsteinsson. Lýsi eg vígi þessu mér
á hendur."
Gekk Kári þá til skips síns.
Sagði hann þá skipverjum sínum vígið. Þá sigldu þeir norður til Beruvíkur og settu
upp skip sitt og fóru upp í Hvítsborg í Skotlandi og voru með Melkólfi jarli
þau misseri.
Nú er að segja frá Flosa að
hann gengur upp og tekur lík Kols og býr um og gefur fé mikið til legs honum.
Flosa stukku aldrei hermdaryrði til Kára. Flosi fór þaðan suður um sjá og hóf
þá upp göngu sína og gekk suður og létti ekki fyrr en hann kom til Rómaborgar.
Þar fékk hann svo mikla sæmd að hann tók lausn af sjálfum páfanum og gaf þar
til fé mikið. Hann fór þá aftur hina eystri leið og dvaldist víða í borgum og
gekk fyrir ríka menn og þá af þeim mikla sæmd. Hann var í Noregi um veturinn
eftir og þá skip af Eiríki jarli til útferðar og hann fékk honum mjöl mikið og
margir menn aðrir gerðu sæmilega til hans. Sigldi hann síðan út til Íslands og
kom í Hornafjörð og fór þá heim til Svínafells. Hafði hann þá af hendi innt
alla sætt sína bæði í utanferðum og fégjöldum.
159. kafli
Nú er segja frá Kára að um
sumarið eftir fór hann til skips síns og sigldi suður um sæ og hóf upp göngu
sína í Norðmandí og gekk suður og þá lausn og fór aftur hina vestri leið og tók
skip sitt í Norðmandí og sigldi norður um sjá til Dofra á Englandi. Þaðan
sigldi hann vestur um Bretland og svo norður með Bretlandi og norður um
Skotlandsfjörðu og létti eigi fyrr en hann kom norður í Þrasvík á Katanesi til
Skeggja bónda. Fékk hann þá þeim Kolbeini og Dagviði byrðinginn. Sigldi
Kolbeinn þessu skipi til Noregs en Dagviður var eftir í Friðarey. Kári var
þenna vetur á Katanesi. Á þessum vetri andaðist húsfreyja hans á Íslandi.
Um sumarið eftir bjóst Kári
til Íslands. Skeggi fékk honum byrðing. Voru þeir þar á átján. Þeir urðu heldur
síðbúnir og sigldu þó í haf og höfðu langa útivist. En um síðir tóku þeir
Ingólfshöfða og brutu þar skipið allt í spón en þó varð mannbjörg. Kafahríð var
á. Spyrja þeir nú Kára hvað nú skal til ráða taka en hann sagði það ráð að fara
til Svínafells og reyna þegnskap Flosa. Gengu þeir þá til Svínafells í
hríðinni.
Flosi var í stofu. Hann
kenndi Kára er hann kom í stofuna og spratt upp í móti honum og minntist til
hans og setti hann í hásæti hjá sér. Flosi bauð Kára að vera þar um veturinn.
Kári þá það. Sættust þeir þá heilum sáttum. Flosi gifti þá Kára Hildigunni
bróðurdóttur sína er Höskuldur Hvítanesgoði hafði átta. Bjuggu þau þá fyrst að
Breiðá.
Það segja menn að þau yrðu
ævilok Flosa að hann færi utan þá er hann var orðinn gamall að sækja sér
skálavið og var hann í Noregi þann vetur. En um sumarið varð hann síðbúinn.
Menn ræddu um að vant væri skip hans. Flosi sagði vera ærið gott gömlum og
feigum og sté á skip og lét í haf og hefir til þess skips aldrei spurst síðan.
Þessi voru börn þeirra Kára
Sölmundarsonar og Helgu Njálsdóttur: Þorgerður og Ragneiður og Valgerður og
Þórður er inni brann. En börn þeirra Hildigunnar og Kára voru þeir Starkaður og
Þórður og Flosi. Son Flosa var Kolbeinn er ágætastur maður hefir verið einnhver
í þeirri ætt.
Og lúkum vér þar Brennu-Njáls
sögu.